Palestína

Spítalinn í Rafah yfirfullur og skortur á öllu
Íslenskur skurðhjúkrunarfræðingur sem starfaði á spítala á Gaza segir ástandið vægast sagt slæmt. Mikill skortur væri á lyfjum, áhöldum og mat og fjölmargir hafi misst jafnvel alla fjölskyldu sína.

Leysi Ísland ekki undan siðferðislegri skyldu að lagaleg skylda sé til staðar
Alls 24 íslensk félagasamtök hvetja í yfirlýsingu íslensk stjórnvöld til „að leggja allt kapp á að tryggja tafarlausa brottför“ þeirra Palestínumanna sem hafa fengið veitt dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli fjölskyldusameiningar.

Elín snýr aftur af Gasaströndinni
Skurðhjúkrunarfræðingurinn Elín Jakobína Oddsdóttir, sem hefur starfað fyrir Alþjóðaráð Rauða krossins á sjúkrahúsi á Gasaströndinni síðustu sex vikur, er komin aftur til Íslands.

„Mér er alveg sama þó ég sé umdeildur“
Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra segir ákvörðun um að frysta greiðslur til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna fyrst og fremst vera pólitíska yfirlýsingu. Hann hafi ekki viljað líta fram hjá alvarlegum ásökunum í garð stofnunarinnar.

Dulbjuggu sig og myrtu palestínska vígamenn á spítala
Ísraelskir sérsveitarliðar dulbjuggu sig sem heilbrigðisstarfsmenn og myrtu þrjá palestínska menn á spítala á Vesturbakkanum í Palestínu í morgun. Ísraelsk yfirvöld segja að um hryðjuverkamenn hafi verið að ræða.

„Ásakanir á hendur örfáum starfsmönnum í mjög stórum starfsmannahópi“
Forsætisráðherra segir að ákvörðun um að frysta greiðslur til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna sé tímabundin. Greiðslum hafi verið frestað þar til samráð hefur verið haft við Norðurlöndin og stofnunin svarar erfiðum spurningum um ásakanir á hendur hluta starfsmanna hennar.

Palestínumenn reistu snjóskýli á Austurvelli
Palestínskir mótmælendur sem hafst hafa við í tjaldbúðum á Austurvelli undanfarnar fimm vikur, hafa nú reist nokkurskonar snjóvirki í stað tjaldbúðanna.

Liðsmenn Hamas ná aftur vopnum sínum í norðurhluta Gasa
Liðsmenn Hamas eru sagðir hafa snúið aftur til norðurhluta Gasa, þar sem þeir eru sagðir vinna að því að ná aftur stjórn og ná vopnum sínum fyrir frekari átök við Ísraelsher.

Betra ef Bjarni hefði rætt hugmyndir sínar við nefndina
Þingflokksformaður Vinstri grænna telur að betur hefði farið á því ef utanríkisráðherra hefði rætt hugmyndir um að frysta fjárframlög Íslands til Palestínuflóttamannaðstoðar Sameinuðu þjóðanna við utanríkismálanefnd þingsins, áður en ákvörðunin var tekin.

Fordæma ákvörðun utanríkisráðherra
Stjórn félagsins Ísland - Palestína hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem ákvörðun Bjarna Benediktssonar, utanríkisráðherra, um að frysta greiðslur til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) er fordæmd.

UNRWA segir fjármagnið munu þrjóta í lok febrúar að óbreyttu
Forsvarsmenn Palestínu-flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) segja stofnunina ekki munu getað aðstoðað íbúa á Gasa og viðhalda aðgerðum á svæðinu lengur en til loka febrúar ef framlög til hennar verða skert.

Æðstu ráðamenn Ísrael ítreka áköll um brottflutning Palestínumanna
Ráðherrar í ríkisstjórn Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, voru meðal þúsunda gesta á ráðstefnu sem fram fór í Jerúsalem í gær, þar sem fjallað var um nauðsyn þess að „endurnema“ Gasa og mögulegar leiðir til þess.

Boða til skólaverkfalls til stuðnings Palestínu
Nemendur í Hagaskóla hafa boðað til skólaverkfalls þann 6. febrúar næstkomandi til stuðnings Palestínu. Nemendurnir hyggjast yfirgefa tíma til að mæta á Austurvöll.

Saklausir borgarar líði fyrir ákvörðun Íslands
Fyrrverandi starfsmaður Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna segir ákvörðun Íslands um að frysta fjármagn til stofnunarinna ómannúðlega og hún muni bitna á saklausum borgurum.

Hvernig stendur á þessum hörmungunum?
Þessa daga er heimsbyggðin að horfa á vægðarlausar aftökur saklausra manneskja í Ísrael og á Gaza-ströndinni. Hvernig getur svona gerst? Förum aftur í tímann til Þýskalands nazismans, þegar Hitler tókst að höfða til þjóðerniskenndar Þjóðverja og spila á hugmyndir um yfirburði eins kynþáttar umfram annarra.

Nefndin verði upplýst um grundvöll ákvörðunarinnar
Formaður Viðreisnar segir mikilvægt að utanríkismálanefnd verði upplýst um á hvaða grundvelli ákvörðun var tekin um að fresta greiðslum Íslands til Palestínuaðstoðar Sameinuðu Þjóðanna. Yfirmaður stofnunarinnar hefur kallað eftir því að slíkar ákvarðanir verði dregnar til baka.

„Aðgerðir umfram hugsanir, því tíminn skiptir máli“
Palestínskur keppandi í söngvakeppninni söng á fjölmennum samstöðufundi á Austurvelli í dag. Aðgerðasinni segir bráðabirgðaúrskurð Alþjóðadómstólsins vekja sér von í brjósti um að stríðsátökum á Gasa linni. Hann segir stuðning við málstað palestínsku þjóðarinnar fara vaxandi hér á landi, og kallar eftir því að stjórnvöld hlusti.

Segir stjórnvöld rög við að taka sjálfstæðar ákvarðanir
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður Pírata sem er einnig menntuð í alþjóða- og Evrópulögum segir íslensk stjórnvöld ekki hafa verið að standa sig varðandi átökin í Palestínu.

Norðmenn frysta ekki greiðslur til flóttamannaaðstoðar
Stjórnvöld í Noregi ætla ekki að frysta fjárframlög til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) í kjölfar ásakanna á hendur starfsmönnum þess að hafa tekið þátt með einhverjum hætti í árás Hamasliða á Ísrael í október síðastliðnum.

Ísland frystir greiðslur og kallar eftir ítarlegri rannsókn
Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra hefur kallað eftir ítarlegri rannsókn á ásökunum á hendur nokkrum starfsmönnum Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna. Ísland sé nú í samráði við önnur Norðurlönd um næstu skref og greiðslur til stofnunarinnar verði frystar þar til að samráði loknu.

Olíuflutningaskip í ljósum logum eftir loftárás Húta
Breskt olíuflutningaskip stendur í ljósum logum í Adenflóa eftir að Hútar skutu eldflaug að því í gærkvöldi. Árásin er samkvæmt Hútum viðbragð við auknum árásum Breta og Bandaríkjamanna á Jemen síðastliðnar vikur.

Alþjóðadómstóllinn telji trúanlegt að hópmorð sé í gangi
Kári Hólmar Ragnarsson lektor í þjóðarrétti við Háskóla Íslands segir að bráðabirgðaúrskurður í máli Suður-Afríku gegn Ísrael sýni fram á að dómurinn telji trúanlegt að hópmorð sé að eiga sér stað í Palestínu.

Brot á alþjóðalögum að framfylgja ekki skipunum Alþjóðadómstólsins
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, sem er menntuð í alþjóða- og Evrópulögum sem og mannréttindum og alþjóðlegum refsirétti, segir bráðabirgðaniðurstöðu Alþjóðadómstólsins í Haag vera ofboðslega mikilvæga fyrir íbúa á Gasa og hafa mikla þýðingu.

Starfsmenn Sameinuðu þjóðanna bendlaðir við árásirnar 7. október
Yfirmaður Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) segir yfirvöld í Ísrael hafa útvegað stofnuninni gögn sem bendli starfsmenn hennar við árásir Hamas-samtakanna á Ísrael þann 7. október. Um er að ræða tólf starfsmenn sem Philippe Lazzarini, yfirmaður UNRWA, segir að hafi verið reknir.

Segja Ísraelum að draga úr hernaði á Gasa
Dómarar Alþjóðargerðardómstólsins í Haag hafa komist að þeirri niðurstöðu að Ísraelar eigi að draga úr hernaðaraðgerðum á Gasaströndinni og koma í veg fyrir dauðsföll óbreyttra borgara á meðan fjallað er um hvort þeir séu að fremja þjóðarmorð á Gasaströndinni eða ekki.

Von á bráðabirgðaúrskurði frá Alþjóðadómstólnum í dag
Von er á bráðabirgðaúrskurði frá Alþjóðadómstólnum í Haag í máli Suður-Afríku gegn Ísrael. Suður-Afríka óskaði þess í máli sínu að dómstóllinn myndi til bráðabirgða úrskurða um það að Ísraelar láti af hernaði sínum á Gasa á meðan dómstóllinn tekur fyrir ásakanir þeirra um þjóðarmorð Ísraela á Gasa.

Vinna að breiðu einskismannslandi við landamæri Gasa
Ísraelskir hermenn hafa frá því í nóvember unnið að því að skapa eins kílómetra breitt einskismannsland við landamæri Gasastrandarinnar. Hús hafa verið jöfnuð við jörðu með sprengjum og jarðýtum, fyllt er upp í göng Hamas-samtakanna og akrar reittir upp.

Ísland tók stökk í Eurovision-veðbönkum
Ísland tók stökk í Eurovision-veðbönkum í gær og er nú spáð sjöunda sæti. Fyrir það hafði Íslandi verið spáð 18. og 20. sæti.

„Við gefumst aldrei upp“
Tjald á vegum Palestínumanna sem bíða fjölskyldusameiningar sem hefur verið uppi fyrir framan Alþingishúsið í tæpan mánuð var tekið niður í dag. Mótmælendur segjast alls ekki vera að gefast upp og ætla að halda dvölinni áfram án tjaldsins.

Palestínumaðurinn Bashar Murad keppir í Söngvakeppninni
Palestínski tónlistarmaðurinn Bashar Murad mun keppa í Söngvakeppni sjónvarpsins. Murad er landsmönnum kunnugur en hann gaf út lag með hljómsveitinni Hatara, eftir Eurovision ævintýri sveitarinnar í Tel Aviv árið 2019.