

Vonir standa til að jafnmargir, og helst fleiri, mæti á útifundinn á kvennafrídaginn á morgun en fyrir þrjátíu árum. Erlendir fjölmiðlar sýna baráttunni hér á landi áhuga.
Unglæknir telur sig eiga inni yfir 300 klukkustundir í hvíldartíma hjá Landspítala háskólasjúkarhúsi. Málaferli eru nú í gangi vegna ágreinings um hvíldartíma á annað hundrað unglækna, sem vinna eða hafa unnið hjá spítalanum.</font /></b />
"Fyrirtæki í verslun og þjónustu hafa að undanförnu hækkað laun þeirra starfsmanna sinna sem þykja eftirsóknarverðir til að tryggja að þeir hætti ekki," segir Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu.
Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra segir það fagnaðarefni, að forráðamenn tiltekinna fyrirtækja skuli hafa tekið upp þá starfsmannastefnu að ráða eldra fólk með reynslu í vinnu, þannig að það hafi valfrelsi á ævikvöldinu.
Frábært fordæmi segir formaður Kjalar, stéttarfélags í almannaþjónustu, um þá starfsmannastefnu að ráða eldra fólk til starfa. Húsasmiðjan hefur stigið það skref að auglýsa eftir starfskröftum úr þeim aldurshópi. </font /></b />
"Það var algjörlega farið eftir vinnulöggjöf í þessum efnum, að höfðu samráði við lögfræðinga okkar," segir Sævar Gunnarsson formaður Sjómannasambands Íslands um fram komna stjórnsýslukæru til félagsmálaráðuneytis vegna framkvæmdar talningar atkvæða um kjarasamning sjómanna.
Framkvæmd atkvæðagreiðslu um kjarasamning sjómanna hefur verið kærð til félagsmálaráðuneytisins. Kærandi telur að um tvöfalt brot á vinnulöggjöfinni sé að ræða. Atkvæðagreiðslan sé því ógild og efna þurfi til nýrra kosninga. </font /></b />
Starfsmannafélag Hafnarfjarðar hefur samþykkt kjarasamning félagsins við Hafnarfjarðarbæ með tæplega 60% greiddra atkvæða. Um 20 % félagsmanna, eða 113 manns, tóku þátt í atkvæðagreiðslu um samninginn. Atkvæði fóru þannig: Já sögðu 67 eða 59%, nei sögðu 45 eða 40%, einn seðill var auður eða 1%.
Starfsmannafélag Hafnarfjarðar og launanefnd sveitarfélaga náðu samkomulagi um nýjan kjarasamning í dag. Samningurinn og bókanir eru á sömu nótum og samningur sem gerður var við Samflot bæjarstarfsmanna í lok maí.
Starfsmenn sveitarfélaga í Kili, stéttarfélagi starfsmanna í almannaþjónustu, samþykktu kjarasamning við launanefnd sveitarfélaganna með miklum meirihluta. 69 prósent þeirra samþykktu samninginn en 23 prósent vildu fella hann. Auðir og ógildir seðlar voru átta prósent.
Starfsmannafélög Hafnarfjarðar, Kópavogs og Akraness hafa slitið samningaviðræðum við launanefnd sveitarfélaganna. Launanefndin hafði gert félögunum tilboð sem félögin töldu of lágt og í engu samræmi við hækkanir sem aðrar stéttir hafa fengið, eins og kennarar. Næstu skref í kjaradeilunni verða ákveðin á næstu dögum.
Ekki er um launaskrið að ræða, þótt laun hafi hækkað um 6,7 prósent síðastliðna tólf mánuði og kaupmáttur vaxið um 2,3 prósent, segir Alþýðusamband Íslands.
Impregilo og fulltrúar verkalýðsfélaga, sem aðild eiga að svo kölluðum virkjunarsamningi, hafa komið á fót nefnd með þátttöku fulltrúa ASÍ og Samtaka atvinnulífsins. Er nefndinni ætlað að verða vettvangur til ákvarðana um framkvæmd kjarasamninga.
Rafiðnaðarmenn skrifuðu í gærkvöldi undir viðauka við kjarasamning við álver Alcan í Straumsvík sem felldur var í atkvæðagreiðslu fyrir nokkru. Í viðaukanum er komið til móts við þau atriði sem starfsmenn gagnrýndu í nýjum kjarasamningi. Samningurinn gildir til 30 nóvember 2008.
Framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands segir að kostnaður ríkisins vegna samninga Bandalags háskólamanna sé töluvert meiri en samið hafi verið um á almennum vinnumarkaði. Hann segir að tryggja verði að ekki halli á einstaka hópa.
Allir grunnskólakennarar utan tveggja þeirra sem sögðu upp í hópum í Mosfellsbæ, Fáskrúðsfirði og Hólmavík í verkfallinu drógu uppsagnir sínar til baka að því loknu.
Laun hjúkrunarfræðinga hækka að minnsta kosti um sautján prósent á einu ári með nýjum kjarasamningi Bandalags háskólamanna.
Sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfarar telja að tilboð samninganefndar heilbrigðis- og tryggingaráðuneytis feli í sér stórt skref aftur á bak fyrir stéttina og skjólstæðinga þeirra. Þeir telja að í tilboðinu felist ávísun á þá löngu biðlista og skertu þjónustu sem þegar einkenni heilbrigðiskerfið.
Samninganefndir starfsmanna og eigenda Íslenska járnblendifélagins á Grundartanga undirrituðu kjarasamning í húsi ríkissáttasemjara í gær.
Algerlega ótímabært er fyrir samninganefndir kennara og sveitarfélaga að tjá sig um hvernig þeim lítist á sérkjarasamning í Sjálandsskóla fyrr en þeir hafi hann í höndunum, segir Ásdís Halla Bragadóttir bæjarstjóri í Garðabæ.
Sérsamningur við kennara í Sjálandsskóla, nýjum grunnskóla Garðabæjar, getur ekki orðið að veruleika nema launanefnd sveitarfélaga og Kennarasamband Íslands samþykki hann.
Nýr kjarasamningur Félags leikskólakennara var samþykktur með allsherjaratkvæðagreiðslu í dag. Atkvæði greiddu 1.365; 880 sögðu „já“, eða 64,5%, en 443 sögðu „nei“, eða 32,5%. Auðir seðlar og ógildir voru 42, eða 3,0%. 1.491 var á kjörskrá og þátttaka því 91,5%.
Úrslit í atkvæðagreiðslu um kjarasamning leikskólakennara verða kunn á morgun. Launanefnd sveitarfélaga samþykkti samninginn, sem var undirritaður tveimur dögum fyrir jól, í fyrradag.
Nýjasti dómur Hæstaréttar í máli gegn Akureyrarbæ er varðar mismunun vegna kynbundins launamunar markar tímamót. Þetta segir Sif Konráðsdóttir hæstaréttarlögmaður.
Fundur var haldinn í félagsmálanefnd Alþingis í morgun til þess m.a. að fjalla um ágreining ASÍ og Impregilo. Gert var ráð fyrir að fulltrúar ASÍ og Impregilo yrðu samtímis á fundinum en þegar til kastanna kom neituðu fulltrúar Impregilo með öllu að sá háttur yrði hafður á og fengu það í gegn.
Impregilo skuldar hundruð milljóna króna í vangoldna staðgreiðslu launa portúgalskra starfsmanna sinna samkvæmt áætlun íslenskra skattayfirvalda. Impregilo segist ekki bera ábyrgð á skattskyldu starfsmanna frá Portúgal sem hafa starfað við Kárahnjúkavirkjun og vísar á starfsmannaleigur.
Umfram lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna á launafólk á almennum markaði jafnast á við tíu milljóna króna starfslokasamning, miðað við ákveðnar forsendur. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að jafna þurfi kjörin en það verði að gerast með því að draga úr réttindum opinberra starfsmanna.
Starfsgreinasambandið ætlar að kæra Impregilo til Vinnueftirlitsins fyrir að brjóta ákvæði um hámarksvinnutíma. Hitastig í svefnskálum við Kárahnjúkavirkjun fór niður í tíu stig í desember. Framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins segir skálana ekki byggða fyrir íslenskar aðstæður.
Félagsmenn í Sjómannasambandi Íslands og Farmanna- og fiskimannasambandinu samþykktu kjarasamning við Landssamband Útvegsmanna með tæplega 58% greiddra atkvæða. Lítil þátttaka var í atkvæðagreiðslunni því einungis 43% félagsmanna tóku þátt.
Margt bendir nú til þess að Alþýðusamband Íslands muni í haust krefjast endurskoðunar á kjarasamningnum sem sambandið gerði við Samtök atvinnulífsins í fyrra þar sem forsendur hans viðrast brostnar.