Sómalía

Vígahópum vex ásmegin: Stór hluti Sahelsvæðisins í hættu
Óreiða ríkir á stórum hlutum Sahelsvæðisins í Afríku. Átök eru víða og hafa þau komið verulega niður á fólki sem býr þar og er hætta á að óreiðan muni dreifa úr sér á komandi mánuðum og árum með tilheyrandi ódæðum, óstöðugleika og fólksflótta.

Sjóræningjar fengu sjö hundruð milljónir í lausnargjald
Sómalskir sjórængingjar hafa sleppt 23 manna áhöfn skipsins MV Abdullah úr haldi og leyft þeim að sigla á brott á skipinu eftir að þeir fengu fimm milljón dala greiðslu í lausnargjald. Umsvif sjóræningjanna eru að aukast á ný eftir að lítið hefur á þeim borið í nokkur ár.

Sést aftur í sand í fyrsta sinn í langan tíma
Tvær milljónir kílóa af rusli hafa undanfarið verið hreinsaðar af strönd í höfuðborg Sómalíu. Verkið er alfarið unnið í sjálfboðavinnu. Þar sem nú sést í rusl sást eitt sinn í fallega strönd.

Tilfinningaþrungnir endurfundir móður og átta barna eftir fjögurra ára aðskilnað
Það var tilfinningaþrungin stund í Leifsstöð í dag, þegar Hodman Omar hitti börnin sín átta, eftir fjögurra ára aðskilnað. Hodman Omar er fjörutíu ára gömul, menntuð sem læknir og kemur frá Sómalíu. Hún er gift íslenskum manni, Gunnari Waage og hefur verið hér á landi í fjögur ár sem flóttamaður. Hún neyddist til að flýja heimili sitt í Mogadishu, Sómalíu þar sem hryðjuverkasamtökin al-Shaba höfðu tekið yfir.

Felldu háttsettan ISIS-liða í hellum í Sómalíu
Bandarískir sérsveitarhermenn bönuðu í gær háttsettum leiðtoga Íslamska ríkisins í Afríku og tíu vígamönnum í árás í norðurhluta Sómalíu á miðvikudaginn. Bilal al-Sudani er sagður hafa verið einn af fjármálastjórum hryðjuverkasamtakanna en hann var felldur í árás á hella sem hann hélt til í fjöllum Sómalíu.

Minnst hundrað látnir eftir bílsprengjur í Mogadishu
Minnst hundrað eru látnir og þrjú hundruð særðir í Sómalíu eftir að tvær bílsprengjur voru sprengdar fyrir utan menntamálaráðuneytið í Mogadishu í gær. Forseti Sómalíu kennir hryðjuverkasamtökunum al Shabaab en samtökin hafa einnig lýst yfir ábyrgð á árásinni.

Sómalski herinn batt enda á umsátur um hótel í Mogadishu
Yfirvöld í Sómalíu bundu í gærkvöldi enda á blóðuga árás á hótel í höfuðborginni Mogadishu. Talið er að um tuttugu manns hafi verið drepnir þegar árásarmenn réðust inn í Hayat hótel og héldu gestum þess í gíslingu í meira en þrjátíu klukkustundir.

Minnst tólf hafa verið myrtir í gíslatöku á hóteli
Minnst tólf hafa verið drepnir af gíslatökumönnum á hóteli í Mogadishu, höfuðborg Sómalíu. Árásarmennirnir eru sagðir tengjast hryðjuverkahópnum al Qaeda en þeir hafa haldið hótelgestum í gíslingu í meira en tuttugu klukkustundir.

Mo Farah var seldur í mansal sem barn
Langhlauparinn Sir Mo Farah var seldur í mansal sem barn en hann kom til Bretlands frá Sómalíu þegar hann var einungis níu ára gamall. Hann var látinn gera húsverk hjá fjölskyldu í Bretlandi og fékk ekki að fara í skóla fyrstu þrjú árin.

Óttast um líf sitt verði þau send til Grikklands
Flóttafólk sem til stendur að senda úr landi óttast um líf sitt verði það sent til Grikklands, þar sem þeirra bíði ekkert nema líf á götunni. Fyrirhuguðum fjöldabrottvísunum var mótmælt á Austurvelli í dag.

Ísland veitir 80 milljónum til Eþíópíu
Á framlagaráðstefnu sem fram fór í Genf í gær tilkynntu íslensk stjórnvöld að þau myndu veita 80 milljónum króna til mannúðaraðstoðar í Eþíópíu á þessu ári. Samhæfingarskrifstofa aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA), Evrópusambandið, Eþíópía, Kenía og Sómalía stóðu fyrir ráðstefnunni vegna yfirvofandi hungursneyðar af völdum þurrka á svæðinu sem kennt er við horn Afríku.

Um 25 milljónir manna í Austur-Afríku búa við sult vegna þurrka
Verstu þurrkar í fjörutíu ár hafa leitt til alvarlegs matarskorts í austurhluta Afríku, einkum í Eþíópíu, Kenía, Sómalíu og Sómalílandi. Að mati Alþjóðabjörgunarnefndarinnar, IRC, hafa nú þegar þrettán milljónir manna sáralítið að borða og búa aukin heldur við vatnsskort. Óttast er að ástandið versni á næstu mánuðum.

Horn Afríku: Horfellir og hungur af völdum langvinnra þurrka
Þurrkar valda miklum búsifjum og matarskorti í þremur löndum sem kennd eru við horn Afríku, Eþíópíu, Kenía og Sómalíu. Að mati Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna, WFP, búa um þrettán milljónir íbúa þessara landa við sult og seyru. Jafn langvinnir þurrkar hafa ekki verið á þessum slóðum í rúmlega fjörutíu ár, eða frá árinu 1981.

Sjötíu milljónir frá Rauða krossinum til Afganistan og Sómalíu
Stuðningurinn skiptir sköpum fyrir þá sem verst standa.

Rauði krossinn styrkir flutning á 30 súrefnisvélum til Sómalíu
Hluti framlaganna er greiddur með stuðningi utanríkisráðuneytisins.

Tuttugu og tvær fjölskyldur sameinaðar það sem af er ári
Í dag er alþjóðadagur þeirra horfnu. Mestur fjöldi týndra einstaklinga er frá Afganistan, Írak, Sómalíu, Sýrlandi og Eritreu.

Óttast að stjórnarskrárkreppa leiði til frekara ofbeldis
Mikil skothríð hefur heyrst í Mógadisjú, höfuðborg Sómalíu, í morgun og hefur komið til átaka milli öryggissveita og mótmælenda sem vilja kosningar. Vitni segja sveitir sem stóðu vörð um leiðtoga stjórnarandstöðunnar hafa skipst á skotum við öryggissveitir þegar kröfuganga fór fram.

Íhuga að kalla hermenn heim frá Sómalíu
Bandaríkjamenn íhuga að kalla alla rúmlega 700 hermenn sína frá Sómalíu. Sérfræðingar óttast að mikil óreiða gæti fylgt slíkri ákvörðun.

Ellefu manns féllu í árás í Mogadishu
Sómalískir hermenn bundu í gærkvöldi enda á umsátur í Mogadishu þar sem vígamenn höfðu tekið stjórn á hóteli.

Fordæmalaus engisprettuplága veldur usla í Afríku og Asíu
Sameinuðu þjóðirnar biðla til þjóða heims um aukið fjármagn til að hjálpa ríkjunum að glíma við faraldurinn sem gæti orðið enn verri fyrir sumarið.

Óttast að engisprettufaraldur valdi hungursneyð í Austur-Afríku
Sveimar sem herja á nokkur ríki í Austur-Afríku telja þegar hundruð milljarða engisprettna en Sameinuðu þjóðirnar óttast að fjöldinn gæti fimmhundraðfaldast fyrir sumarið.

Mesti engisprettufaraldurinn í Kenía í sjötíu ár
Fjölmörg ríki í austanverðri Afríku hafa þurft að glíma við eyðileggingu akra og uppskerubrest vegna mikils engisprettufaraldurs sem nú herjar.

76 látnir eftir sprengjuárás í Mógadisjú
Sprengjuárás var gerð í morgunumferðinni í sómölsku höfuðborginni Mógadisjú í morgun.

Tveir fréttamenn á meðal hinna látnu í hryðjuverkaárás í Sómalíu
Tuttugu og sex eru látin og að minnsta kosti fimmtíu særð eftir árás á hótel í hafnarborginni Kismayu í Sómalíu.

Boðberi mannúðar í Sómalíu eða miskunnarlaus málaliði
Athafnakonan Michele Ballarin er hergagnaframleiðandi og sjálfskipaður samningamaður í mannránum. Hún hefur þegið greiðslur frá Pentagon og boðið aðstoð í stríði gegn hryðjuverkum. Nú ætlar hún að endurreisa WOW air.

Viðurkenna ábyrgð á dauða almennra borgara eftir drónaárás
Hernaðaryfirvöld í Bandaríkjunum hafa játað hafa valdið dauða konu og barns hennar í loftárás dróna í Sómalíu fyrir ári síðan

Segir búið að fella alla árásarmennina í Naíróbí
Forseti Kenía segir að fjórtán óbreyttir borgarar hafi látið lífið í árásinni á DusitD2-hótelið í höfuðborginni Naíróbí í gær.

Al-Shabab lýsir yfir ábyrgð á mannskæðri árás í Kenía
Ekki er enn hægt að segja til um hve margir féllu í árásinni þar sem átök standa enn yfir.

„Ef Obama hefði gert þetta, værum við allir brjálaðir“
Ákvörðun Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, að kalla alla hermenn Bandaríkjanna frá Sýrlandi heim, kom mörgum á óvart. Þar á meðal þingmönnum, embættismönnum og bandamönnum Bandaríkjanna.

Fjölbreyttir frambjóðendur náðu kjöri
Samkynhneigð kona af frumbyggjaættum, múslimakonur og opinskátt samkynhneigður karlmaður voru á meðal þeirra frambjóðenda sem skráðu nöfn sín í sögubækurnar í kosningunum í Bandaríkjunum í gær.