
Pósturinn


Vill úttekt á Íslandspósti
Raddir uppi um að ráðast verði í úttekt á samkeppnisrekstri Íslandspósts. Fjárlaganefnd skoðar enn hvort veita skuli fyrirtækinu 1,5 milljarða neyðarlán.

Tap Íslandspósts vegna dótturfélaga hleypur á mörg hundruð milljónum
Íslandspóstur fór nýverið fram á að fá 1,5 milljarða að láni frá ríkinu til að mæta rekstrarvanda. Vandann megi rekja til þess að hagnaður af einkarétti standi ekki undir kostnaði af alþjónustu.

Fjárlaganefnd skoðar áfram heimild til að lána Póstinum
Willum Þór Þórsson, formaður fjárlaganefndar Alþingis, segir að það komi til greina að breyta fjárlagafrumvarpinu fyrir þriðju umræðu og veita ríkissjóði heimild til að lána Íslandspósti ef skýr svör berast frá fyrirtækinu um endurgreiðslu lánsins og hvaða tryggingar verði settar fyrir endurgreiðslunni.

Forstjóri Póstsins kallar eftir ríkisframlagi til að halda uppi þjónustu
Ingimundur Sigurpálsson forstjóri Íslandspósts segir að fyrirtækið sé eitt af örfáum póstfyrirtækjum í Evrópu sem njóti ekki framlaga frá ríkissjóði. Póstfyrirtæki á Norðurlöndunum njóti slíkra framlaga til að halda uppi þjónustu. Pósturinn glímir nú við mikinn lausafjárvanda og staða fyrirtækisins er tvísýn ef það fær ekki lán frá ríkissjóði.

Staða Póstsins tvísýn ef ekki fæst lán frá ríkissjóði
Forstjóri Íslandspósts vonar að fjárlaganefnd Alþingis sjái að sér og samþykki breytingartillögu við fjárlög sem heimilar ríkissjóði að veita Íslandspósti 1,5 milljarða króna lán.

Forstjóri segist ætla að stokka upp í rekstri Íslandspósts
Ingimundur Sigurpálsson forstjóri Íslandspósts segir að stokka þurfi upp rekstur fyrirtækisins sem hefur ekki staðið undir sér undanfarin ár.

Tóku út heimild fyrir láni til Íslandspósts
Annarri umræðu um fjárlagafrumvarp næsta árs lauk í gær með fjölda atkvæðagreiðslna en þær tóku fjórar klukkustundir rúmar.