Grindavík

Sjáðu þegar sprungan opnaðist
Gos hófst norðan Sýlingarfells á Reykjanesskaga klukkan 6:02 í morgun. Í vefmyndavél á vegum Vísis sést þegar sprungan opnaðist.

Staðsetning gossins ekki jafn ógnvekjandi og síðast
Hjálmar Hallgrímsson, formaður bæjarráðs í Grindavík, frétti af eldgosinu í morgun frá syni sínum sem vinnur á Keflavíkurflugvelli.

Viðbragðslúðrar ómuðu við Svartsengi
„Við vitum að eldgosið hófst þarna um sex leytið og við vitum að það er á svipuðum stað og eldgosið sem hófst 18. desember og við vitum að þetta er alveg bara, við þekkjum þetta,“ segir Hjördís Guðmundsdóttir samskiptastjóri Almannavarna í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Liggur frá Sundhnúk í suðri til austurenda Stóra-Skógfells
Samkvæmt fyrstu fréttum úr eftirlitsflugi Landhelgisgæslunnar er eldgosið á sömu slóðum og gaus 18. desember síðastliðinn.

Gosið að lengjast í norðurátt
Böðvar Sveinsson náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofunni, segir að aðdragandi þessa goss hafi verið mjög svipaður og í síðustu tvö skipti.

Búið að rýma Bláa lónið
Öll athafnasvæði Bláa lónsins í Svartsengi hafa verið rýmd vegna skjálfta sem mældust við Sundhnjúkagígaröðina í aðdraganda eldgossins sem hófst um klukkan 6 í morgun.

Vaktin: Eldgos hafið við Sundhnúksgíga
Eldgos hófst klukkan sex í morgun í Sundhnúksgígaröðinni á Reykjanesskaga. Neyðarstigi hefur verið lýst yfir vegna heitavatnsskorts á Suðurnesjum. Hraun hefur flætt yfir Grindavíkurveg, nærri afleggjaranum að Bláa lóninu, og þá hefur hraun einnig flætt yfir heitavatnslögn.

Ákveðin svæði mun verr farin en önnur
Undanfarnar þrjár vikur hefur verið unnið að því að skoða sprungur og holrými í Grindavík.

„Þá er þetta bara búið hjá okkur“
Uppsagnir fyrirtækja í Grindavík eru áhyggjuefni að mati bæjarbúa sem segja lítið eftir af bænum ef fyrirtækin fara. Starfsfólk nokkurra fyrirtækja vann að verðmætabjörgun í bænum í dag en hjá sumum þeirra er tjónið þegar orðið gífurlegt.

Heiðar Örn svarar Úlfari fullum hálsi
Heiðar Örn Sigurfinnsson fréttastjóri Ríkisútvarpsins gengst við frekju, ef það að kvarta undan skertu aðgengi megi túlkast sem svo.

Fréttateymi RÚV lét sig hverfa í Grindavík
Fulltrúar fréttastofu RÚV í skipulagðri ferð til Grindavíkur í dag létu sig hverfa úr hópnum. Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri á Suðurnesjum staðfestir þetta og segir að starfsmenn á vegum RÚV hafi ekki farið að tilmælum öryggisstjóra í Grindavík.

130 starfsmenn Vísis falla af launaskrá
Í dag fengu 130 starfsmenn Vísis bréf þar sem þeim var tjáð að þeir yrðu teknir af launaskrá fyrirtækisins og fari á úrræði ríkisins. Ástæðan séu náttúruhamfarirnar í Grindavík, þar sem fyrirtækið hefur verið starfrækt.

Frumvarp vegna húsnæðis í Grindavík væntanlegt síðar í vikunni
Forsætisráðherra væntir þess að frumvarp um uppgjör á íbúðarhúsnæði í Grindavík verði kynnt síðar í vikunni. Hún segir frumvarpið lúta að því að fólki verði gert kleift að koma sér fyrir á nýjum stað, óháð því hvort hús þeirra hafi verið metin sem tjónuð af Náttúruhamfaratryggingu eða ekki.

Uppgötvuðu risastóra sprungu undir gervigrasinu
Risavaxin sprunga fannst í dag undir íþróttahúsinu Hópinu í Grindavík. Legið hafði fyrir að húsnæðið hafði orðið fyrir miklum skemmdum, en sprungur liggja upp eftir byggingunni og sigdalur er þar í kring.

Brasilísk bomba berbrjósta við Grindavíkurskilti
Brasilísk brjóstafyrirsæta segist hafa þurft á aðhlynningu að halda á íslensku sjúkrahúsi eftir að hafa berað brjóstin við Grindavíkurskilti á Suðurnesjum. Hún segist elska Ísland og geta hugsað sér að búa hér á landi.

Svipuð merki og fyrir síðustu tvö gos
Benedikt G. Ófeigsson, fagstjóri aflögunarmælinga hjá Veðurstofunni, segir að miklar líkur séu taldar á þriðja eldgosinu á Reykjanesi á nokkurra mánaða tímabili. Staðan sé svipuð og fyrir síðastu gos.

Brennisteinslykt í tómlegri Grindavík
Verðmætabjörgun hélt áfram í Grindavík í dag. Fjölmiðlar fóru inn í bæinn í fyrsta sinn í þrjár vikur og fengu að virða fyrir sér skemmdirnar og nýja hraunið.

Áfram kvikusöfnun undir Svartsengi
Kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi, þó hægt hafi aðeins á landrisi síðustu daga. Svipað ferli er sagt hafa átt sér stað fyrir kvikuhlaupin og eldgosin sem urðu á svæðinu í janúar og í desember.

Stefnir íslenska ríkinu vegna takmarkana á aðgengi í Grindavík
Forstjóri og eigandi fiskvinnslufyrirtækisins Einhamars í Grindavík hefur höfðað mál á hendur íslenska ríkinu vegna banns við viðveru og starfsemi í Grindavík.

Ætla að spila golf í Grindavík í sumar
Grindavík er golfbær. Húsatólftavöllur er heimavöllur Golfklúbbs Grindavíkur og þar stefna menn á að spila hvað sem líður jarðhræringum og eldgosum.

Mögulegt að smærri viðburður valdi gosi
Verðmætabjörgun í Grindavík heldur áfram í dag. Svipað mynstur er á jarðhræringum á svæðinu og fyrir síðasta gos en mögulegt er að minni atburð þurfi en áður til að koma gosi af stað vegna skamms tíma frá síðasta gosi.

Hverfa aftur til fyrra skipulags aðgengis að Grindavík
Á morgun, þriðjudaginn 6.febrúar, verður aftur farið í fyrra útgefið skipulag þar sem aðgengi að Grindavík verður með þeim hætti að íbúar fá fyrirframskilgreindan dag til að fara til Grindavíkur í lengri tíma en áður.

1.200 til Grindavíkur í gær og um þúsund í dag
Yfir 1.200 manns fóru til Grindavíkur í gær, að stærstum hluta íbúar en einnig viðbragðsaðilar. Þess er vænst að fjöldinn verði í kringum þúsund í dag.

Nálgast sömu stöðu og fyrir gos
Sama magn kviku, eða um 6,5 milljón rúmmetrar, hefur flætt inn í kvikuholfið undir Svartsengi frá goslokum og talið er að hafi flætt inn í kvikuinnskotið í aðdraganda eldgoss 14. janúar síðastliðinn.

Eins og hundrað kílóum léttari eftir að hafa tæmt húsið
Fjöldi Grindvíkinga tæmdi hús sín í dag, þegar íbúar fengu rýmri aðgang að bænum en áður. Einhverjir vonast til að geta snúið aftur á meðan aðrir kvöddu bæinn fyrir fullt og allt í dag.

Þorrablót Grindvíkinga: „Fólk þurfti þessa kærleiksstund“
Vilhjálmur Árnason, þingmaður og Grindvíkingur, segir Þorrablót Grindvíkinga sem haldið var í Smáranum í Kópavogi í gærkvöldi hafa verið kærkomna stund fyrir Grindvíkinga. Mikið hafi verið hlegið og gert grín að flækustiginu á bakvið aðgerðir almannavarna.

Lilja Dögg ráðherra er ánægð með að Bláa lónið sé opið
Menningar- og viðskiptaráðherra, Lilja Dögg Alfreðsdóttir er mjög sátt við að Bláa lónið sé opið þrátt fyrir jarðhræringar á Reykjanesi. Hún segir fyrirtækið afar mikilvægt þegar ferðaþjónustan er annars vegar en þar starfa tæplega níu hundruð manns.

Búslóðinni pakkað á sex klukkutímum
Andrea Ævarsdóttir er ein þúsunda Grindvíkinga sem er í Grindavík í dag að tæma húsið sitt.

Yfir þúsund manns til Grindavíkur í dag
Þúsund manns munu fara inn til Grindavíkur í dag að vitja eigna sinna og/eða aðstoða við að pakka og/eða flytja búslóð. Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá almannavörnum.

Gengur vel að undirbúa verðmætabjörgun í Grindavík
Lögreglustjóri segir viðbragðsaðila á fullu við að undirbúa vitjanir Grindvíkinga á heimilum sínum á morgun. Grindvíkingum verður hleypt inn í bæinn á morgun og á mánudag til að sækja verðmæti. Samskiptastjóri almannavarna segir í boði að samnýta bíla.