Reykjavík „
143 144 145 146 147 148 149 150 151 … 334 ›
„Getur verið að kötturinn þinn sé læstur inni í Grandaskóla?“ Eigandi læðunnar Kleó þakkar nágrönnum og kattarunnendum Vesturbæjar því að Kleó hafi fundist. Hún var læst inni í Grandaskóla yfir nótt og endurfundir voru því afar kærkomnir. Lífið 22.10.2022 21:41
Bar að stöðva tæmingu Árbæjarlóns tafarlaust Skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar bar að stöðva tæmingu Árbæjarlóns tafarlaust er lónið var tæmt haustið 2020. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála telur ljóst að framkvæmdin hafi verið meiri háttar framkvæmd sem borið hafi að afla framkvæmdaleyfis vegna. Innlent 22.10.2022 12:45
Mjóddin má muna sinn fífil fegurri Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar hefur lagt til að ráðist verði í umbætur á strætóskiptistöðinni í Mjóddinni. Stöðin er sú fjölfarnasta á landinu. Innlent 22.10.2022 07:01
Magnus Carlsen mætir til Íslands á sunnudag í baráttu um sextíu milljónir króna Skákáhugamenn hér á landi iða í skinninu enda aðeins tveir sólarhringar í að heimsmeistarinn Magnus Carlsen komi til landsins. Átta sterkir skákmenn berjast um tæplega sextíu milljóna króna verðlaunafé á heimsmeistaramótinu í afsprengi skákar úr smiðju Bobby Fischer. Sport 21.10.2022 15:46
Reykjavíkurborg hunsi úthverfin þegar kemur að fegrun Tæplega sjötíu prósent af Fegrunarviðurkenningum Reykjavíkurborgar síðustu tíu ár hefur farið til lóða í Miðborginni eða Vesturbænum. Borgarfulltrúi Flokks fólksins gagnrýnir að úthverfin séu oftar en ekki skilin eftir. Þau hafa fengið einungis tæp tíu prósent viðurkenninga. Innlent 21.10.2022 13:31
Veggur Alþingisgarðsins hvergi sjáanlegur á forhönnun borgarinnar Myndir af nýrri forhönnun af göngugötuskipulagi við Kirkjustræti og Templarasund í miðbæ Reykjavíkur voru birtar á miðvikudag. Útlit breytinganna er sagt gera tilraun til þess að tengja saman hið gamla og nýja. Athygli vekur að ekki er gert ráð fyrir vegg Alþingisgarðsins á myndunum, það stangast á við orð skrifstofustjóra Alþingis en hún segir til umræðu að friða garðinn. Innlent 21.10.2022 12:06
618 ársgömul börn á biðlista eftir leikskólaplássi Enn bíða 618 börn 12 mánaða og eldri eftir að fá leikskólapláss í Reykjavík. Nærri hundrað pláss eru ónýt vegna myglu og þá hefur ekki tekist að manna leikskólana til að geta boðið fleiri pláss. Innlent 21.10.2022 06:56
Ungmenni með loftbyssu veittust að einstaklingi Tvö ungmenni voru í gærkvöldi kærð fyrir vopnalagabrot. Þau höfðu verið að leika sér með loftbyssu og veittu sér að öðrum einstakling. Engin meiðsli urðu á fólki en barnavernd og foreldrum var tilkynnt um atvikið. Innlent 21.10.2022 06:10
„Áfram hef ég trú á þessari þjóð“ Í dag eru liðin tíu ár frá því að þjóðaratkvæðagreiðsla um nýja stjórnarskrá fór fram. Formaður Stjórnarskrárfélagsins efast um að fólki þyki eðlilegt að bíða í tíu ár eftir nýrri stjórnarskrá sem þjóðin hafi samþykkt. Fyrrverandi meðlimur í stjórnlagaráði segir Alþingi ekki hafa virt vilja þjóðarinnar. Innlent 20.10.2022 21:45
Telur að „menn hafi aðeins misst sig“ við hryðjuverkarannsókn Sveinn Andri Sveinsson verjandi annars mannanna, sem situr í gæsluvarðhaldi grunaður um skipulagningu hryðjuverks, segir málið hvorki fugl né fisk og telur lögreglu hafa gert of mikið úr því. Innlent 20.10.2022 21:17
„Genginn er nú okkar dáðasti darlingur“ Fjöllistamaðurinn Svavar Pétur Eysteinsson, sem betur var þekktur undir listamannsnafninu Prins Póló, var jarðsunginn frá Hallgrímskirkju í dag. Innlent 20.10.2022 18:16
Furðufluga vekur athygli í Kringlunni Risastór furðufluga hefur vakið athygli gesta verslunarmiðstöðvarinnar Kringlunnar í dag. Um er að ræða fjögurra metra listaverk eftir myndlistarnema í Listaháskólanum. Lífið 20.10.2022 15:26
Hjólreiðamaður ekinn niður við Kringlumýrarbraut Hjólreiðamaður var ekinn niður á fjölförnum gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar í morgunumferðinni. Ökumaður náði atvikinu á myndavél og vonast til að geta náð til hjólreiðamannsins sem hann vonar að hafi ekki orðið meint af. Innlent 20.10.2022 11:20
Rún nýr samskiptastjóri Veitna Rún Ingvarsdóttir hefur verið ráðin samskiptastjóri Veitna. Rún kemur inn í teymi sérfræðinga sakskipta- og samfélags hjá Orkuveitu Reykjavíkur (OR) sem er móðurfélag Veitna. Viðskipti innlent 20.10.2022 10:01
Ákærður fyrir grófa nauðgun í bíl Karlmaður hefur verið ákærður af héraðssaksóknara fyrir að hafa nauðgað konu í bíl í Reykjavík. Ákærði beitti konuna einnig ítrekað fleira ofbeldi á meðan atvikið átti sér stað. Innlent 20.10.2022 08:05
Leggja niður starfsemi bókabílsins Borgarbókasafnið leggur til að starfsemi bókabílsins verði lögð niður. Bíllinn er orðin 22 ára gamall og myndi það kosta um hundrað milljónir króna að endurnýja hann. Innlent 20.10.2022 06:29
Reif sig úr að ofan á veitingastað Lögreglan ók manni heim í gær eftir að kvartað var undan hegðun hans inni á veitingastað. Meðal annars hafði maðurinn rifið sig úr að ofan. Innlent 20.10.2022 06:16
Lóðirnar sem hljóta fegrunarviðurkenningar Reykjavíkurborgar 2022 Fegrunarviðurkenningar Reykjavíkurborgar fyrir árið 2022 voru veittar við hátíðlega athöfn í Höfða í dag, miðvikudaginn 19. október. Reykjavíkurborg veitir árlega viðurkenningar fyrir fallegar stofnana- , fyrirtækja- og fjölbýlishúsalóðir og fyrir vandaðar endurbætur á eldri húsum. Lífið 19.10.2022 15:30
Heimaleikjabann Víkinga fellt niður Ekkert verður af fyrsta heimaleikjabanninu í sögu íslensks fótbolta, sem Víkingur Reykjavík átti að sæta, því áfrýjunardómstóll KSÍ hefur fellt úrskurð þess efnis úr gildi. Íslenski boltinn 19.10.2022 14:55
Ekki frítt í stæði fyrir rafmagnsbíla frá og með áramótum Reglur sem veita rétt til þess að leggja rafmagns- og metan-bílum endurgjaldslaust í gjaldskyld bílastæði í Reykjavík falla úr gildi um áramótin. Ekki er lengur talin þörf á slíkum ívilnunum. Innlent 19.10.2022 14:27
Allt stopp á meðan beðið var eftir Finnlandsforseta Ökumenn á höfuðborgarsvæðinu í morgun þurftu margir hverjir að bíða lengi á rauðu ljósi án þess að hafa hugmynd um hvers vegna. Í ljós kom að lögregla var að greiða leið Finnlandsforseta á leið í heimsókn til Bessastaða. Innlent 19.10.2022 09:10
Strákar á speglinum tilkynna einelti Nokkrir strákar sem voru bendlaðir við ofbeldi þegar nöfn þeirra voru krotuð á spegil í Menntaskólanum við Hamrahlíð hafa kvartað til skólans vegna eineltis. Skólinn hefur óskað eftir því að utanaðkomandi teymi taki málin til meðferðar. Innlent 19.10.2022 06:58
Samþykkja að styrkja rafíþróttir Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í dag að vísa tillögu um að veita íþróttafélögum sem eru með rafíþróttadeildir styrk á næsta ári til fjárhagsáætlanargerðar. Um er að ræða tuttugu milljóna króna sem verja á til íþróttafélaganna. Innlent 18.10.2022 20:34
Mála hönd Danakonungs bláa og minna á að Íslendingar búi við „úrelta stjórnarskrá“ Stjórnarskrárfélagið sendi frá sér tilkynningu fyrr í kvöld þar sem gjörningur félagsins síðan í dag er útskýrður. Félagið málaði hönd styttu af Kristjáni níunda Danakonungi bláa til þess að minna á að Íslendingar búi „enn við þessa úreltu dönsku stjórnarskrá“ þrátt fyrir að grunnur að nýrri hafi þegar verið samþykktur. Innlent 18.10.2022 19:42
Hefur áhyggjur af vinum sínum í þungri vímuefnaneyslu á meðan borgin gerir ekkert Heimilislausir karlmenn segja borgina ekki hafa veitt þeim nein svör eða brugðist við fyrirséðum vanda þeirra í vetur á nokkurn hátt. Þeir kalla eftir því að neyðarskýli verði opin á daginn og neituðu að fara úr einu slíku í morgun til að vekja athygli á málstað sínum. Innlent 18.10.2022 16:35
Reykjavíkurborg fær rafmagn frá N1 N1 rafmagn ehf. mun sjá Reykjavíkurborg fyrir rafmagni næstu tvö árin, frá og með áramótum. Rafmagnskaup borgarinnar færast frá dótturfélagi Orkuveitu Reykjavíkur sem er í meirihlutaeigu borgarinnar. Viðskipti innlent 18.10.2022 15:15
Vill kanna hvort borgin geti haldið úti næturstrætó innan borgarmarkanna Alexandra Briem, borgarfulltrúi Pírata og varaformaður stjórnar Strætó, segir það hundleiðinlegt að Strætó hafi ákveðið að hætta að bjóða upp á næturstrætó um helgar. Hún vilji þó kanna hvort borgin gæti mögulega sjálf haldi úti slíkum akstri á slíkum leiðum innan borgarmarkanna. Innlent 18.10.2022 14:28
Skipverjinn féll útbyrðis og drukknaði Skipverji sem fannst látinn í sjónum við Sólfarið í Reykjavík féll frá borði báts síns og drukknaði. Umfangsmikil leit hófst að honum eftir að bátur hanns fannst mannlaus, strandaður við Engey. Innlent 18.10.2022 13:32
Ekki bara slagsmál heldur einbeitt árás til að skaða Ekkert okkar hefur farið varhluta af fréttum um aukið ofbeldi meðal ungmenna og fjölgun stunguárása. Lögregla gaf nýverið út yfirlýsingu þar sem hún lýsti áhyggjum yfir auknum vopnaburði meðal ungmenna í miðbæ Reykjavíkur. Skoðun 18.10.2022 12:01
Hætta með næturstrætó Strætó hefur ákveðið að hætta að bjóða upp á næturstrætó um helgar. Ljóst er að farþegafjöldi í næturstrætó var ekki jafn mikill og búist var við. Innlent 18.10.2022 09:33