

Karlmaður slasaðist í sexhjólaslysi í Tálknafirði, utan við pollinn svokallaða, í dag og var fluttur til Reykjavíkur með sjúkraflugi.
Sveitarfélögin Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur telja að ástand ferjunnar Baldurs, sem sveitarfélögin nefna að sé ömurlegt, sýni nauðsyn þess að Herjólfur III leysi ferjuna af án tafar.
Fólk í nokkrum húsum í Tálknafirði og á Patreksfirði var fyrir hádegi beðið um að yfirgefa heimili sín vegna snjóflóðahættu en hættustig er í gildi.
Vestfirðir eru í sókn. Færin eru fjölmörg og ef horft er til ársins 2021 má segja að nokkrum góðum áföngum hafi verið náð á árinu. Rétt er við áramót að staldra við og líta til baka og reyna að meta hvað beri hæst á árinu varðandi þróun samfélaga og atvinnulífs á Vestfjörðum.
Vestfirðir eru efst á lista yfir svæði til að heimsækja árið 2022 að mati ferðabókaútgefandans Lonely Planet. Sviðstjóri hjá áfangastofu Vestfjarða segir að viðurkenningin muni nýtast þeim næstu árin en mikilvægt sé að uppbygging verði í takt við aukna eftirspurn.
Vestfirðir eru efst á lista yfir svæði til að heimsækja árið 2022 í árlegu vali ferðabókaútgefandans Lonely Planet yfir lönd, svæði og borgir til að heimsækja árið 2022, eða svokallaða Best in Travel viðurkenningu, sem birt var í gærkvöldi.
Íbúafundur verður haldinn á Tálknafirði í næstu viku þar sem fjallað verður um möguleika í sameiningarmálum við önnur sveitarfélög.
„Vegakerfið á Vestfjörðum þolir einfaldlega ekki frekari tafir á samþykktum vegaframkvæmdum,“ segir í ályktun frá Vestfjarðastofu og sveitarfélögum á norðan- og sunnanverðum Vestfjörðum vegna frétta af frestun útboðs á Dynjandisheiði.
„Við höfum náttúrlega reynslu af því að þurfa að bíða mjög lengi eftir því að fá samgöngubætur, eins og Teigsskógarruglið hefur verið. Við bara þekkjum það vel. Og það er ekkert í höfn fyrr en við bara sitjum í bílunum okkar og það er verið að opna vegina okkar,“ segir Hafdís Gunnarsdóttir, formaður Fjórðungssambands Vestfirðinga.
Opnunardagur Dýrafjarðarganga í haust var stór dagur á Vestfjörðum. Löng bílalestin við gangamunnann lýsti eftirvæntingunni. Um líkt leyti var vinna hafin við gerð nýs vegar yfir Dynjandisheiði og endurnýjun Vestfjarðavegar um Gufudalssveit.
Framkvæmdastjóri Odda á Patreksfirði, stærsta sjávarútvegsfyrirtækis sunnanverðra Vestfjarða, segir galið að allir þungaflutningar landsins fari um þjóðvegakerfið. Hann hvetur til skipaferða og að ferjusiglingar yfir Breiðafjörð verði efldar.
Forystumenn á Vestfjörðum telja þörf á minnst fernum nýjum jarðgöngum í fjórðungum til að koma samgöngumálum þar í viðunandi horf; einum á norðanverðum fjörðunum og þrennum á sunnanverðum.
Síðustu daga höfum við fylgst með fréttum af miklum slitlagsskemmdum á Bíldudalsvegi, á Mikladal og í Tálknafirði.
Bæjarráð Vesturbyggðar lýsir yfir miklum áhyggjum vegna alvarlegs ástands þjóðvega á sunnanverðum Vestfjörðum. Eigandi flutningafyrirtækis, sem misst hefur þrjá trukka á vestfirskum vegum, segir að bora verði í gegnum fjöllin milli Bíldudals og Patreksfjarðar.
Umtalsverðar slitlagsskemmdir hafa orðið á Bíldudalsvegi í Mikladal og Tálknafirði vegna veðurs. Unnið er að bráðabirgðaviðgerðum á svæðinu.
Sveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps lýsir yfir þungum áhyggjum af samgönguöryggi íbúa á sunnanverðum Vestfjörðum.
Samgöngumálin brenna á Vestfirðingum sem aldrei fyrr. Umræðan hefur enn og aftur blossað upp eftir óhapp á Hjallahálsi um síðustu helgi þar sem vöruflutningabíll valt. Á sunnanverðum Vestfjörðum vilja samtök atvinnurekenda fá nýjan Baldur strax.
Fiskibátur sem strandaði í Tálknafirði á sjöunda tímanum í kvöld er kominn á flot með aðstoð annars fiskibáts og heldur nú til hafnar í Tálknafirði.
Vestfirðingar flautuðu úr bílum sínum af gleði þegar Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra gaf fyrirmæli um að lyfta skyldi slánni við gangamunna Dýrafjarðarganga. Þegar þeir svo óku í gegn flautuðu þeir ennþá meira.
Björgunarsveitir á sunnanverðum Vestfjörðum voru kallaðar út klukkan tvö í dag vegna göngukonu sem slasast hafði á fæti í Traðarvík undir Sellátrafjalli í Tálknafirði.
Í tilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum kemur fram að smituðum einstaklingum á svæðinu hefur fjölgað um sex frá 10. apríl.
Sveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps samþykkti í gær að ráða Ólaf Þór Ólafsson sem sveitarstjóra.
Slitlagið á þjóðvegum á Vestfjörðum er víða mikið skemmt eftir þíðuna í síðustu viku og á verstu köflunum milli Patreksfjarðar og Tálknafjarðar hefur Vegagerðina neyðst til að lækka hámarkshraða.
Rafmagnslaust er nú á stórum hluta Vestfjarða eftir að Mjólkárlína 1, Breiðadalslína 1 og Ísafjarðarlína 1 fóru út í kringum 11:30.
Vegagerðin sótti í dag um framkvæmdaleyfi til Reykhólahrepps til lagningar Vestfjarðavegar um Teigsskóg. Svo langt hefur þessi umdeilda vegagerð aldrei áður náð í undirbúningsferli.
Bátasmiðja á Djúpavogi smíðar sjókvíar og báta fyrir fiskeldi. Framkvæmdastjórinn segir marga ekki átta sig á hve sprotar geta farið víða og hve störfin eru orðin mörg sem tengjast fiskeldinu.
Skipulagsstofnun hefur staðfest veglínu Vestfjarðavegar um Teigsskóg og stefnir Vegagerðin að því að sækja um framkvæmdaleyfi fyrir lok mánaðarins.
Dráttarbíll með tengivagn rann til á veginum yfir Mikladal.
Dýrafjarðargöng verða fyrstu fimm rekstrarárin án tengingar við heilsársveg um Dynjandisheiði. Uppbygging nýs vegar yfir heiðina vart fyrr en eftir tvö ár.
Fiskeldi hefur tekið við af hefðbundnum sjávarútvegi sem stærsta atvinnugreinin á Tálknafirði. Helsti forystumaður Vestfirðinga um árabil segir laxeldið stærsta tækifæri fjórðungsins í atvinnumálum.