Danski boltinn

Jón Dagur fór hamförum er AGF burstaði Íslendingalið Elfsborg
Jón Dagur Þorsteinsson gerði sér lítið fyrir og skoraði tvö af sex mörkum AGF er það lagði Elfsborg 6-1 í æfingaleik á Spáni. Jón Dagur lagði einnig upp tvö mörk í leiknum en alls tóku fjórir Íslendingar þátt í leiknum.

SønderjyskE kaupir Atla frá Víkingi
Danska úrvalsdeildarliðið SønderjyskE hefur keypt Atla Barkarson frá Íslands- og bikarmeisturum Víkings.

Sjáðu frábæra íslenska samvinnu hjá aðalliði FCK
Unglingalandsliðsmennirnir Orri Steinn Óskarsson og Hákon Arnar Haraldsson eru farnir að banka á dyrnar hjá aðalliði FC Kaupmannahafnar og eru að minna á sig í æfingarleikjum liðsins.

Búin að klára læknisnámið með atvinnumennsku fótbolta
Nadia Nadim flúði Afganistan ellefu ára gömul eftir að faðir hennar var drepinn. Síðan hefur hún gert mikið með tækifærin sín bæði inn á knattspyrnuvellinum en líka utan hans.

Keyptu þjálfara frá dönsku liði til að leysa af Milos
Leikmenn ganga ekki aðeins kaupum og sölum heldur einnig þjálfarar. Þjálfarakapallinn í sænska boltanum er að ganga upp eftir að fyrrum þjálfari Víkings og Breiðabliks setti allt upp í háaloft.

AGF vill yfir hundrað milljónir fyrir bráðum samningslausan Jón Dag
Danska knattspyrnufélagið AGF hefur sett háan verðmiða á landsliðsmanninn Jón Dag Þorsteinsson en hann verður samningslaus næsta sumar.

Danskt úrvalsdeildarlið á eftir Atla Barkarsyni
Atli Barkarson, vinstri bakvörður Íslands- og bikarmeistara Víkings, gæti verið á leið til Danmerkur en SöndejyskE hefur boðið í leikmanninn.

Kristín Dís til Danmerkur
Fótboltakonan Kristín Dís Árnadóttir hefur samið við danska úrvalsdeildarfélagið Brøndby.

Keppinautur Elíasar segist ekki ætla aftur til Midtjylland og heldur áfram að kvarta
Danski markvörðurinn Jonas Lössl segist hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Midtjylland. Ristjóri bold.dk skilur ekki hvað honum gengur til með ummælum sínum.

Keppinautur Elíasar lánaður í ensku úrvalsdeildina
Danski markvörðurinn Jonas Lössl er genginn til liðs við enska úrvalsdeildarliðið Brentford, að láni frá danska úrvalsdeildarliðinu Midtjylland.

Elías Rafn hjá Midtjylland til 2026
Markvörðurinn Elías Rafn Ólafsson, leikmaður FC Midtjylland í dönsku úrvalsdeildinni, hefur skrifað undir samning við liðið til ársins 2026.

„Setti mér það markmið mjög snemma að þjálfa í Danmörku“
Freyr Alexandersson, þjálfari Lyngby í dönsku B-deildinni í knattspyrnu, hefur þrátt fyrir ungan aldur áorkað miklu hér á landi sem og erlendis.

Viktor Gísli og félagar enn taplausir
Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar hans í GOG unnu nokkuð sannfærandi níu marka sigur er liðið tók á móti Sønderjyske í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Lokatölur uðru 35-26, en Viktor og félagar haf ekki enn tapað leik á tímabilinu.

Íslendingaliðin á leið í undanúrslit þrátt fyrir töp
Íslendingaliðin OB og Midtjylland eru bæði á leið í undanúrslit dönsku bikarkeppninnar í fótbolta, þrátt fyrir að hafa bæði tapað leikjum sínum 2-1 í kvöld.

Markvörður danska dínamítsins á HM í Mexíkó 1986 dáinn
Danir misstu í fyrrinótt einn af leikmönnum eftirminnilegs landsliðs síns frá níunda áratugnum þegar Lars Högh lést 62 ára gamall.

María á bekknum er Celtic vann deildarbikarinn | Aron Elís, Elías Rafn og Kristófer Ingi áfram í bikarnum
María Catharina Ólafsdóttir Gros sat allan tímann á bekknum er Celtic varð deildarbikarmeistari kvenna í Skotlandi í dag. Í Danmörku komust Aron Elís Þrándarson og Elías Rafn Ólafsson áfram í 8-liða úrslit.

Sævar Atli kom inn af bekknum og skoraði í dramatísku jafntefli Lyngby
Sævar Atli Magnússon kom inn af varamannabekknum og skoraði það sem virtist ætla að vera sigurmark Lyngby er liðið heimsótti HB Köge á útivelli í dönsku B-deildinni í dag. Allt kom þó fyrir ekki.

Ísak spilaði allan leikinn í tapi gegn toppliðinu
Ísak Óli Ólafsson og félagar hans í Esvjerg máttu þola 2-0 tap er liðið heimsótti Hvidovre í dönsku B-deildinni í fótbolta í kvöld.

Christian Eriksen æfir á ný hjá félagi landsliðsmannsins Arons Elísar
Danski knattspyrnumaðurinn Christian Eriksen er byrjaður aftur að æfa á ný eftir að hafa fengið að mæta á æfingasvæðið hjá uppeldisfélaginu hans Odense Boldklub.

Aftur skoraði Rúnar Már | Elfsborg varð af mikilvægum stigum
Rúnar Már Sigurjónsson skoraði annan leikinn í röð með Cluj í rúmensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Þá varð Íslendingalið Elfsborg af mikilvægum stigum í baráttunni um Evrópusæti í Svíþjóð.

Ísak og Hákon spiluðu í mikilvægum sigri FCK
Ísak Bergmann Jóhannesson og Hákon Arnar Haraldsson hófu leik á varamannabekk FCK þegar liðið heimsótti AaB í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Kristófer og félagar gerðu jafntefli gegn tíu leikmönnum Viborg | Aron Elís og félagar unnu
Nú rétt í þessu lauk tveimur leikjum í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta og það voru Íslendingar í eldlínunni í þeim báðum. Kristófer Ingi Kristinsson og félagar hans í SønderjyskE gerðu 1-1 jafntefli gegn tíu leikmönnum Viborg og Aron Elís Þrándarson og félagar hans í OB unnu 2-0 sigur gegn Nordsjælland.

Íslendingaliðin skiptu stigunum á milli sín
Mikael Anderson var í byrjunarliði AGF og Stefán Teitur Þórðarson byrjaði fyrir Silkeborg er liðin gerðu 1-1 jafntefli í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Sindri til reynslu hjá litla bróður
Markvörðurinn Sindri Kristinn Ólafsson úr Keflavík verður næstu daga til reynslu hjá danska 1. deildarliðinu Esbjerg.

Elías Rafn vermdi bekkinn þegar Midtjylland tapaði öðrum leiknum í röð
Jonas Lössl stóð á milli stanganna hjá Midtjylland í dönsku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið fékk Bröndby í heimsókn.

Mikael og Jón Dagur byrjuðu þegar AGF sótti stig gegn FCK
Alls voru fjórir íslenskir knattspyrnumenn í leikmannahópunum þegar danska stórveldið FCK tók á móti AGF í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag en aðeins tveir þeirra komu við sögu í leiknum.

Yngri bróðir Ísaks á reynslu hjá FCK
Danska stórliðið FC Kaupmannahafnar er með fjóra unga íslenska leikmenn innan sinna raða og er ekki hætt að horfa til Íslands.

Barbára Sól sneri aftur í sigri
Barbára Sól Gísladóttir sneri aftur í lið Bröndby eftir nokkurra leikja fjarveru vegna meiðsla er liðið vann 1-0 útisigur á Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Nýtur þess að spila með besta vini sínum hjá einu stærsta félagi Norðurlandanna
Ísak Bergmann Jóhannesson nýtur þess að spila með jafnaldra sínum frá Akranesi, Hákoni Arnari Haraldssyni, hjá FC Kaupmannahöfn. Hann segir að hann eigi erindi í A-landsliðið.

Framherji danska landsliðsins með sykursýki
Kasper Dolberg, framherji danska landsliðsins og Nice í Frakklandi, hefur greinst með sykursýki eitt.