Lögreglan
8 9 10 11 12 13 14 15 16 … 39 ›
Tindur fékk lifrarpylsu sem þakklætisvott eftir níu ára þjónustu Fíkniefnaleitarhundurinn Tindur hefur lokið þjónustu sinni hjá lögreglunni á Vestfjörðum. Þar hefur hann verið í níu ár en sem þakklætisvott fékk hann frá samstarfsfólki sínu lifrarpylsu. Innlent 17.4.2023 10:50
Hótaði að myrða börn lögregluþjóns Karlmaður á fertugsaldri var á dögunum dæmdur til níutíu daga óskilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa hótað tveimur lögregluþjónum líkamsmeiðingum og börnum þriðja lögregluþjónsins lífláti og líkamsmeiðingum. Innlent 14.4.2023 22:23
Lögreglan á Vesturlandi komin á Teslu Lögreglan á Vesturlandi hefur fest kaup á tveimur Teslu-bifreiðum sem notaðar verða við almenna löggæslu framvegis. Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir bifreiðakaupin hluta af kolefnisjöfnun embættisins. Innlent 5.4.2023 19:20
Vopnaðir lögreglumenn á götum borgarinnar vegna fundarins Mikill viðbúnaður lögreglu verður í höfuðborginni í maí vegna fundar leiðtogafundar Evrópuráðsins. Gera má ráð fyrir vopnuðum fylgdarmönnum þjóðarleiðtoga og umferðartöfum. Tónlistarhúsinu Hörpu og nærliggjandi umhverfi verður lokað. Innlent 4.4.2023 20:46
Aðstoðarlögreglustjóri biðst lausnar Hulda Elsa Björgvinsdóttir, aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu og sviðsstjóri ákærusviðs, er hætt störfum. Hún hefur verið í leyfi síðan í desember síðastliðnum eftir að sálfræðistofa gerði úttekt á starfinu á ákærusviðinu og skilaði í framhaldinu svartri skýrslu. Innlent 3.4.2023 19:02
Pallborðið: Rafbyssuvæðing lögreglunnar á Íslandi Rafbyssuvæðing lögreglunnar á Íslandi verður til umfjöllunar í Pallborðinu í beinni útsendingu á Vísi klukkan 14 í dag. Gestir verða Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, og Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata. Innlent 3.4.2023 13:22
Hafa fundið yfir hundrað kíló af fíkniefnum: „Við erum ekki bara hérna til að vera með leiðindi“ Fíkniefnahundurinn Bylur hefur haft aðkomu að haldlagninu á yfir hundrað kílóum af fíkniefnum hér á landi. Umsjónarkona hans telur að þörf sé á miklu fleiri hundum við störf. Innlent 2.4.2023 22:02
„Hefur það engar afleiðingar að haga sér svona?“ Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar, segir að henni þyki skipun dómsmálaráðherra í embætti lögreglustjóra í bænum vera sérstaka. Hún spyr hvort mál sem Klaustursmálið hafi engar afleiðingar fyrir þá sem þar voru staddir. Innlent 2.4.2023 13:04
Grunlaus fórnarlömb sökuð um vörslur barnakláms í nafni ríkislögreglustjóra Hugmyndaauðgi svikahrappa er hvergi nærri uppurið. Í nýju svindli senda netþrjótar svikapósta á grunlaus fórnarlömb þar sem Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri er titluð sem sendandi og skilaboðin merkt lögreglunni, Europol og dómsmálaráðuneytinu. Innlent 31.3.2023 14:40
Rafbyssur og slys á lögreglumönnum: Ráðherra mátti vita betur Það kemur skýrt fram í minnisblaði ríkislögreglustjóra til dómsmálaráðuneytisins að prófanir og rannsóknir á notkun norsku lögreglunnar á rafbyssum hafi leitt í ljós að notkun vopnanna hefur ekki áhrif á fjölda meiðsla hjá lögreglu eða „mótaðila“. Innlent 30.3.2023 09:10
„Þar var hinn nýskipaði lögreglustjóri þátttakandi“ Karl Gauti Hjaltason, fyrrverandi lögreglustjóri og þingmaður Miðflokksins, var í dag skipaður af dómsmálaráðherra í embætti lögreglustjórans í Vestmannaeyjum frá og með næstu mánaðarmótum. Bæjarstjóri Vestmannaeyja gagnrýnir ráðninguna í færslu sem hún birtir á Facebook-síðu sinni. Innlent 29.3.2023 20:20
Tekur aftur við embætti lögreglustjóra í Eyjum Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur skipað Karl Gauta Hjaltason, fyrrverandi lögreglustjóra og þingmann Miðflokksins, í embætti lögreglustjórans í Vestmannaeyjum frá og með 1. apríl 2023. Innlent 29.3.2023 14:26
Rannsóknir þingmanna um rafbyssur stönguðust hver á við aðra Þingmaður Pírata segir rannsóknir sýna að rafbyssur auki ekki öryggi. Valdbeiting gegn almennum borgurum hafi hins vegar aukist. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segist hafa séð rannsóknir af öndverðum meiði. Innlent 26.3.2023 16:30
Það skiptir máli hver stjórnar Með þessu slagorði sannfærði Vinstrihreyfingin - grænt framboð kjósendur sína um það að í því fælist ábyrgðarhlutverk að velja flokkinn til forystu. Aðeins þau gætu tryggt farsæld og velferð, hreint loft og græn tún. Skoðun 26.3.2023 15:01
Yfirlögregluþjónn sakaður um kynferðislega áreitni á starfsmannaviðburði Lögreglan hjá höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú ásakanir um kynferðislega áreitni á hendur yfirlögregluþjóni hjá embættinu. Hann hefur meðal annars starfað í kynferðisbrotadeild. Yfirlögregluþjónninn verður áfram við störf. Innlent 24.3.2023 19:56
Meint brot afans fyrndust vegna mistaka lögreglu Íslenska ríkið þarf að greiða konu sem kærði afa sinn fyrir kynferðisbrot 1,4 milljónir í miskabætur. Mistök lögreglu urðu til þess að málið fyrndist á meðan það var til rannsóknar þar. Innlent 24.3.2023 11:09
Allt í einu er lögreglan með rafbyssur Allt í einu hefur lögreglan fengið leyfi til þess að nota rafbyssur. Sama dag og dómsmálaráðherra segist hafa tekið ákvörðun um að gera nauðsynlegar breytingar til þess að láta lögregluna fá rafbyssur segir forsætisráðherra að það þurfi nú að ræða málið í ríkisstjórn og í þinginu. Skoðun 23.3.2023 10:30
Samstarfssamningur ríkislögreglustjóra og Samtakanna ´78 undirritaður Ríkislögreglustjóri og Samtökin ´78 hafa gert með sér samstarfssamning um áframhaldandi hinsegin fræðslu, ráðgjöf við rannsóknir og þróun á verklagi og nýju fræðsluefni fyrir lögreglu. Innlent 21.3.2023 17:25
Undirbúningur hafinn fyrir notkun rafbyssa Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri segir undirbúning hafin fyrir notkun lögreglunnar á rafbyssum. Ágreiningur var milli ráðherra Vinstri grænna og dómsmálaráðherra um reglugerð sem hann gaf út og heimilaði notkun rafbyssa. Sigríður Björk segir að nú standi yfir undirbúningur útboðs á vopnunum fyrir lögreglu og hvaða tæknimöguleikar væru bestir. Innlent 21.3.2023 13:13
Svört skýrsla um rasisma og kvenfyrirlitningu hjá Lundúnarlögreglunni Lundúnarlögreglan er ónýt, rúin trausti og þjáist af kerfisbundnum rasisma, kvenfyrirlitningu og fordómum gegn samkynhneigðum. Þetta segir í nýrri 363 blaðsíðna skýrslu um stöðu lögreglunnar, sem unnin var undir forystu barónessunnar Louise Casey. Erlent 21.3.2023 07:33
Tekist á um rafbyssuvæðingu: Svör forsætisráðherra ófullnægjandi og óskýr Forsætisráðherra segir það alltaf háð mati hvers ráðherra fyrir sig hvort mál teljist svo mikilvæg að bera þurfi þau upp við ríkisstjórn áður en ákvörðun er tekin. Það mat geti verið ólíkt milli ráðherra, eins og um rafbyssuvæðingu dómsmálaráðherra, og það hljóti að vera pólitískt. Innlent 20.3.2023 22:27
Lýsa yfir áhyggjum af vegferð lögreglunnar Stjórn Blaðamannafélags Íslands hefur samþykkt ályktun þar sem hún fordæmir að enn einn blaðamaðurinn hafi hlotið stöðu sakbornings í tengslum við Samherjamálið svokallaða. Innlent 20.3.2023 18:29
Bein útsending: Katrín svarar fyrir rafbyssumálið Sérstök umræða um samráðsleysi dómsmálaráðherra við ríkisstjórnina varðandi rafbyssur verður í dag á Alþingi klukkan 15.45. Horfa má á umræðuna í beinni útsendingu hér að neðan. Innlent 20.3.2023 14:45
Sakar lögregluna um að nota nafn Birnu í annarlegum tilgangi Móðir Birnu Brjánsdóttur, sem myrt var árið 2017, óskar eftir áheyrn og virðingu gagnvart sér og dóttur sinni heitinni frá lögreglunni. Hún segir að sér hafi fallist hendur þegar hún las viðtal við aðstoðarlögreglustjóra í Reykjavík, þar sem hann notaði nafn dóttur hennar í „annarlegum tilgangi.“ Innlent 17.3.2023 18:51
„Óásættanlegt að yfir hundrað lögreglumenn slasist við störf á ári hverju“ Landssamband lögreglumanna segir í ályktun að nauðsynlegt sé að tryggja öryggi lögreglumanna í starfi. Starfsstéttin búi við flest vinnuslys. Ályktunin kemur í kjölfar fréttar Vísis sem birtist í morgun, kom þar fram að fullyrðingar dómsmálaráðherra um að slysum lögreglumanna hafi fjölgað verulega standist ekki. Innlent 17.3.2023 14:31
Fullyrðingar ráðherra um verulega fjölgun slysa standast ekki skoðun Fullyrðingar Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra um að slysum á lögreglumönnum hafi fjölgað verulega á síðustu árum fást ekki staðist samkvæmt gögnum frá Vinnueftirlitinu. Ráðherra hefur ítrekað vísað til þessa til að réttlæta að heimila lögreglu að bera rafbyssur. Innlent 17.3.2023 07:59
Forsætisráðherra ítrekar ágreining við dómsmálaráðherra um rafbyssur Forsætisráðherra er sammála umboðsmanni Alþingis um að það hefði verið betri stjórnsýsla hjá dómsmálaráðherra að ræða rafbyssuvæðingu lögreglunnar á ríkisstjórnarfundi, áður en hann gaf út reglugerð sem heimilaði notkun þessara vopna. Innlent 16.3.2023 19:45
Hæstiréttur tekur fyrir mál sérsveitarmanns vegna Hraunbæjarmálsins Hæstiréttur hefur samþykkt áfrýjunarbeiðni fyrrverandi liðsmanns sérsveitar ríkislögreglustjóra sem glímt hefur við áfallastreituröskun í kjölfar aðgerðar sérsveitarinnar í Árbæ í Reykjavík síðla árs 2013 sem leiddi til dauða manns. Innlent 16.3.2023 08:14
Þóra aftur kölluð í yfirheyrslu Þóra Arnórsdóttir, fyrrverandi ritstjóri fréttaskýringaþáttarins Kveiks á Ríkisútvarpinu, var yfirheyrð af lögreglu á þriðjudag í tengslum við rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra vegna umfjöllunar fjölmiðla um „skæruliðadeild“ Samherja. Innlent 16.3.2023 06:27
Ósáttur við aukið myndavélaeftirlit: „Hvert og eitt skref í þessa átt finnst mér hættulegt“ Sósíalistar eru ósáttir við fyrirhuguð áform um stóraukið öryggismyndavélaeftirlit í miðborg Reykjavíkur. Borgarfulltrúi segir óttann ekki mega taka yfir. Innlent 15.3.2023 10:31