Innlendar
46 47 48 49 50 51 52 53 54 … 75 ›
HK mistókst að tryggja úrvalsdeildarsætið HK tapaði mjög óvænt fyrir Víkingi Ólafsvík á heimavelli sínum í Kópavogi í dag, 0-1. Ósigurinn þýðir að liðið hefur enn ekki tryggt sér sæti í Landsbankadeild að ári en þeim til happs náði Fjölnir aðeins markalausu jafntefli gegn Leikni á heimavelli og því munar enn þremur stigum á liðunum þegar ein umferð er óleikin. Ósigur HK þýðir jafnframt að Fram hafnar í 1. sæti deildarinnar þrátt fyrir 1-0 tap gegn Þór á Akureyri. Sport 9.9.2006 16:22
Arnór byrjar vel Arnór Atlason var markahæstur með sjö mörk og þótti besti maður vallarins þegar lið hans FCK bar sigurorð af Lemvig í opnunarleik dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í gærkvöldi. Handbolti 9.9.2006 11:25
Hannes líklega í byrjunarliðinu Hannes Þ. Sigurðsson, landsliðsmaðurinn sem var skilinn eftir utan hóps vegna þreytu í leiknum í Danmörku, verður líklega í byrjunarliði Bröndby gegn toppliði Aab í viðureign liðanna í dönsku úrvalsdeildinni í dag. Sport 9.9.2006 11:16
HK getur tryggt úrvalsdeildarsætið Tólf þýðingarmiklir leikir fara fram í neðri deildum karla í dag. HK getur tryggt sér úrvalsdeildarsæti ásamt því að leikurinn um þriðja sæti 3. deildarinnar er nú í fyrsta sinn spennuhlaðin viðureign. Sport 8.9.2006 21:15
Njarðvík spilar heimaleikina í Keflavík Sú skondna staða er komin upp að Njarðvík mun leika heimaleiki sína í Evrópukeppninni á heimavelli erkifjendanna í Keflavík. Körfuknattleikssamband Evrópu neitaði að samþykkja litlu ljónagryfjuna í Njarðvík sem völl fyrir Evrópukeppni og því varð Njarðvík að kyngja stoltinu og sætta sig við að spila hjá "stóra" bróður. Körfubolti 8.9.2006 21:15
Akureyri - handboltafélag prófar Litháa Í gær kom til Akureyrar litháíska skyttan Dmitrij Afanasjev en hann mun vera til reynslu hjá félaginu næstu daga og einnig mun hann leika með liðinu á Sjallamótinu um helgina. Afanasjev er 22 ára gamall og er örvhent skytta. Hann er rúmir 190 sentimetrar á hæð. Hann skoraði rúmlega fimm mörk í leik í litháísku deildinni síðasta vetur og kom ekkert þeirra af vítalínunni. Lið hans endaði í fjórða sæti deildarinnar. Handbolti 8.9.2006 21:15
Boltaveisla á Sýn um helgina Það verður mikið um að vera í íþróttalífinu hér heima sem og erlendis um helgina. Af innlendum vettvangi má nefna að úrslit fara langt með að ráðast í fyrstu- og Landsbankadeild karla í knattspyrnu og þá fer sjálfur bikarúrslitaleikurinn í kvennaflokki fram á morgun. Þá fer allt á fullt í spænska- og enska boltanum um helgina. Sport 8.9.2006 19:40
Njarðvíkingar leika í Sláturhúsinu Njarðvíkingar fengu ekki leyfi hjá Körfuknattleikssambandi Evrópu til þess að leika heimaleiki sína í Evrópukeppninni í vetur í ljónagryfjunni í Njarðvík. Þess í stað þurfa þeir að leika heimaleikina í Sláturhúsinu, heimavelli erkifjendanna í Keflavík. Þorsteinn Gunnarsson greindi frá þessu í íþróttafréttum á NFS í kvöld. Körfubolti 8.9.2006 19:07
Elísabet framlengir við Val Knattspyrnudeild Vals gekk í gærkvöld frá nýjum þriggja ára samningi við Elísabetu Gunnarsdóttur, þjálfara kvennaliðs félagsins sem tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn á dögunum. Elísabet mun einnig gegna starfi yfirþjálfara hjá yngri kvennaflokkum félagsins. Þetta kemur fram á heimasíðu Vals í dag. Sport 7.9.2006 16:35
Sérstök hátíðarforsýning í kvöld Sérstök hátíðarforsýning á heimildarmyndinni "Þetta er ekkert mál" verður í Smárabíói klukkan 20 í kvöld, en hér er um að ræða kvikmynd um goðsögnina Jón Pál Sigmarsson sem er einhver dáðasti íþróttamaður Íslendinga fyrr og síðar. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, verður á meðal heiðursgesta á forsýningunni í kvöld, en almennar sýningar hefjast annað kvöld í kvikmyndahúsum um land allt. Sport 7.9.2006 14:06
Við bara frusum eins og hvolpar Keppnismaðurinn Hlynur Bæringsson var afar ósáttur við tap íslenska landsliðsin í körfubolta gegn Finnum í B-deild Evrópukeppninnar í kvöld. Hann segir að þó vissulega sé finnska liðið sterkt, hafi íslenska liðið verið allt of lint í síðari hálfleiknum og því hafi Finnarnir gengið á lagið. Körfubolti 6.9.2006 23:30
Tap fyrir Finnum Íslenska landsliðið í körfubolta tapaði fyrir Finnum í kvöld 93-86 í leik liðanna í B-deild Evrópumótsins. Íslenska liðið hafði forystu framan af leik og var 11 stigum yfir í hálfleik, en sterkt lið Finna með Hanno Mottola í fararbroddi, náði að komasti yfir og vann að lokum nokkuð öruggan sigur. Körfubolti 6.9.2006 22:31
Finnar yfir eftir þrjá leikhluta Finnar hafa komist yfir í Evrópuleiknum gegn Íslendingum í Laugardalshöllinni og hafa 71-67 forystu þegar fjórði og síðasti leikhlutinn er að hefjast. Brenton Birmingham er stigahæstur í íslenska liðinu með 17 stig. Körfubolti 6.9.2006 21:59
Ísland yfir í hálfleik Íslenska karlalandsliðið í körfubolta hefur yfir 57-46 gegn Finnum þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign þjóðanna í B-deild Evrópumótsins í körfuknattleik. Brenton Birmingham er stigahæstur í íslenska liðinu með 16 stig, Logi Gunnarsson er með 10 stig, Hlynur Bæringsson 9 stig og 7 fráköst og Páll Axel Vilbergsson hefur skorað 8 stig. Leikurinn er bráðfjörugur og spilast undir föstum takti Pumasveitarinnar frá Keflavík. Körfubolti 6.9.2006 21:26
Góð byrjun Íslendinga gegn Finnum Íslenska landsliðið í körfubolta byrjar vel gegn Finnum í viðureign þjóðanna í B-deild Evrópukeppninnar. Ísland hefur yfir 31-21 eftir fyrsta leikhlutann, þar sem Brenton Birmingham hefur skorað 9 stig fyrir íslenska liðið og þeir Logi Gunnarsson go Páll Axl Vilbergsson 8 hvor. Leikurinn fer fram í Laugardalshöll, þar sem trommusveit Keflvíkinga fer fremst í flokki við að hvetja íslenska liðið. Körfubolti 6.9.2006 21:05
Lokaútkall á Ísland - Finnland Rétt er að minna enn og aftur á landsleik Íslendinga og Finna í körfubolta sem fram fer í Laugardalshöllinni í kvöld klukkan 20:30 og hefst hann svo að segja um leið og leik Dana og Íslendinga í knattspyrnunni lýkur. Finnska liðið er mjög sterkt og því er rétt að hvetja alla sem vettlingi geta valdið til að mæta í Höllina og styðja við bakið á íslensku strákunum. Körfubolti 6.9.2006 17:36
Margrét Lára best Margrét Lára Viðarsdóttir hjá Íslandsmeisturum Vals var í dag útnefnd besti leikmaður 8-14 umferðar Landsbankadeildar kvenna í knattspyrnu. Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari Vals, var kjörin besti þjálfarinn og stuðningsmenn Vals þóttu bestu stuðningsmennirnir á síðari helmingi tímabilsins. Þá var valið úrvalslið síðustu umferðanna. Sport 5.9.2006 14:53
Ísland mætir Finnum annað kvöld Íslenska landsliðið í körfubolta leikur fyrsta leikinn í sínum riðli í í b-deild Evrópukeppninnar á morgun þegar liðið mætir Finnum. Finnska landsliðið kom til landsins í gær en liðið er mjög sterkt og er gríðarlega mikilvægt að Íslenska liðið fái góðan stuðning í Laugardalshöllinni annað kvöld. Körfubolti 5.9.2006 13:04
HK kærði aftur Kæru HK vegna félagaskipta markvarðarins Egidijusar Petkeviciusar úr Fram í HK var vísað frá í gær vegna formgalla en HK-menn stóðu ekki nógu vel að kærunni. Þeir létu það ekki stöðva sig heldur lögðu inn nýja kæru vegna málsins í gær. Handbolti 4.9.2006 21:55
Fimm nýliðar í landsliðshóp Guðjóns Guðjón Skúlason landsliðsþjálfari hefur valið 16 manna hóp sem tekur þátt í Evrópumóti landsliða í Rotterdam um næstu helgi. Þetta er í fyrsta sinn sem kvennalandsliðið fer á Evrópumótið, en í hóp Guðjóns eru fimm nýliðar. Körfubolti 4.9.2006 21:04
Ólafur og Ragnhildur stigameistarar Ólafur Már Sigurðsson og Ragnhildur Sigurðardóttir úr GR tryggðu sér um helgina stigameistaratitil Golfsambands Íslands í karla- og kvennaflokki að loknu 6. mótinu á KB-banka mótaröðinni. Golf 4.9.2006 17:57
Finnarnir að lenda Finnska landsliðið í körfuknattleik kemur hingað til lands í dag og hefur undirbúning sinn fyrir leikinn við Ísland í B-deild Evrópumótsins á miðvikudagskvöld. Finnar ætla sér góðan tíma í undirbúninginn og ætla sér sigur, en lögðu íslenska liðið á Norðurlandamótinu í haust. Þar var íslenska liðið ekki með nokkra af sínum bestu leikmönnum, en annað verður uppi á teningnum á miðvikudagskvöldið. Körfubolti 4.9.2006 16:17
Yfirlýsing frá kvennaráði FH Kvennaráð FH hefur gefið út yfirlýsingu vegna leiðinlegrar uppákomu sem átti sér stað á Valbjarnarvelli í dag þegar ljóst varð að FH gat ekki teflt fram liði í lokaleik sínum gegn Íslandsmeisturum Vals í Landsbankadeildinni. Sport 3.9.2006 17:56
Fjölnir í Landsbankadeildina Kvennalið Fjölnis vann sér í dag sæti í efstu deild á næstu leiktíð þegar liðið lagði ÍR 1-0 í úrslitaleik um sæti í Landsbankadeildinni. ÍR á þó enn möguleika á að vinna sér sæti í deildinni þegar það mætir næstneðsta liði Landsbankadeildarinnar, Þór/KA, í leik um sæti í deildinni á næstu leiktíð. Sport 3.9.2006 17:52
KR valtaði yfir Fylki Keppni í Landsbankadeild kvenna lauk í dag, en fyrr í dag varð ljóst að Valur landaði titlinum og FH féll á óeftirminnilegan hátt. KR-stúlkur völtuðu yfir Fylki 11-1 á útivelli í dag þar sem Fjóla Dröfn Friðriksdóttir skoraði fimm mörk, Breiðablik lagði Stjörnuna 2-0 á útivelli og Keflavík sigraði Þór/KA 3-1. Sport 3.9.2006 17:38
Hneyksli fyrir kvennaknattspyrnuna Kvennalið Vals er nú formlega orðið Íslandsmeistari í kvennaknattspyrnu, en ekki er hægt að segja að liðið hafi fengið tækifæri til að ljúka keppni með tilþrifum því lið FH mætti aðeins með 6 leikmenn til leiks á Valbjarnarvöll og því var Valsliðinu dæmdur sigur án þess að flautað væri til leiks. Þjálfari Vals kallar atvikið hneyksli fyrir kvennaknattspyrnuna. Sport 3.9.2006 14:59
Hannes Hlífar landaði sínum áttunda titli Hannes Hlífar Stefánsson varð í gærkvöldi Íslandsmeistari í skák í áttunda sinn. Hann gerði jafntefli við Héðin Steingrímsson í fjórðu einvígisskákinni. Með sigrinum sló Hannes Hlífar met, en enginn hefur orðið Íslandsmeistari í skák jafn oft. Innlent 2.9.2006 13:41
Birgir og Davíð úr leik Kylfingarnir Birgir Leifur Hafþórsson og Heiðar Davíð Bragason eru báðir úr leik eftir annan hringinn á áskorendamótinu í Vaxholm sem fram fer í Svíþjóð. Birgir Leifur lauk keppni í dag á höggi undir pari samtals, en komst ekki í gegn um niðurskurðinn frekar en Heiðar Davíð, sem lauk keppni á fjórum höggum yfir pari. Golf 1.9.2006 20:34
Tap fyrir Ítölum Íslenska U-21 árs landslið karla í knattspyrnu tapaði 1-0 fyrir Ítölum í leik liðanna í undankeppni EM á Laugardalsvellinum í kvöld. Leikurinn var ekki sérlega skemmtilegur, en sigurmarkið skoraði Riccardo Montolivo eftir 57 mínútna leik. Gunnar Þór Gunnarsson fékk að líta rauða spjaldið undir lokin líkt og einn leikmanna ítalska liðsins eftir að kom til handalögmála á hliðarlínunni. Sport 1.9.2006 21:03
Jafnt í hálfleik á Laugardalsvelli Staðan í leik Íslands og Ítalíu er 0-0 þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureign liðanna í undankeppni EM. Leikurinn hefur satt best að segja ekki verið mikið fyrir augað til þessa, en vonandi hressist Eyjólfur eitthvað í síðari hálfleik. Sport 1.9.2006 19:50
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti