
Bandaríski fótboltinn

Gummi Tóta brenndi af víti þegar New York City féll úr leik
Guðmundur Þórarinsson hóf leik á varamannabekknum þegar lið hans, New York City, mætti Orlando City í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í bandarísku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Higuain bræður sameinaðir í Miami
David Beckham hefur sameinað Higuain bræðurna í Miami.

Higuain mættur til Beckham og félaga í Miami
Argentínski sóknarmaðurinn Gonzalo Higuain er að færa sig um set frá Ítalíumeisturum Juventus til nýstofnaðs félags í bandaríska fótboltanum.

Hneyksli skekur félag Gunnhildar: „Þessi ummæli eru viðbjóðsleg“
Eigandi Utah Royals, knattspyrnufélagsins sem Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er á mála hjá, hefur sett félagið á sölu eftir ásakanir um kynþáttaníð. Viðskiptastjóri þess er farinn í ótímabundið leyfi vegna óviðeigandi hegðunar í garð kvenna.

Higuaín á leið til Beckhams
David Beckham, eigandi Inter Miami, er við það að krækja í annan leikmann frá Ítalíumeisturum Juventus.

Gylfi Þór orðaður við lið í Bandaríkjunum | Rodriguez að skrifa undir
Gylfi Þór Sigurðsson er orðaður við DC United sem leikur í MLS-deildinni í Bandaríkjunum. Everton er í þann mund að ganga frá kaupum á James Rodriguez. Þá er Gonzalo Higuaín einnig orðaður við DC United.

Beckham fær fyrstu stjörnuna til Inter Miami
David Beckham ætlar að endurnýja kynnin við franska heimsmeistarann Blaise Matuidi hjá Inter Miami.

Henry lagði Guðlaug Victor í einelti en bauð honum svo í heimsókn
Guðlaugur Victor Pálsson reif eitt sinn kjaft við knattspyrnugoðsögnina Thierry Henry þegar þeir voru liðsfélagar í New York. Frakkinn lagði Victor í einelti vikurnar á eftir.

Steyttu hnefa og krupu jafn lengi og lögreglumaðurinn kraup á hálsi Floyd
MLS-deildin í fótbolta fór aftur af stað í gær. Alls tóku 200 leikmenn deildarinnar þátt í mótmælum fyrir leik Orlando City og Inter Miami.

Fá ekki að spila eftir að tíu leikmenn greindust með kórónuveiruna
FC Dallas verður ekki með í MLS-deildinni þetta tímabilið eftir að tíu leikmenn og einn meðlimur þjálfarateymisins greindust með kórónuveirusmit.

Endar Ronaldo ferilinn eftir allt í Bandaríkjunum?
Cristiano Ronaldo gæti mögulega endað ferilinn í Bandaríkjunum samkvæmt fyrrum samherja sínum.

Tilkynntu Jaap Stam en notuðu óvart mynd af öðrum sköllóttum Hollendingi
Það gekk ekki áfallalaust fyrir sig er bandaríska úrvalsdeildarliðið í knattspyrnu, FC Cincinnati, tilkynnti Jaap Stam sem næsta þjálfara liðsins.

Söngur Gumma Tóta sló í gegn hjá New York City
Það getur oft verið ansi pínlegt fyrir nýliða í knattspyrnuliðum að ganga í gegnum þá algengu vígsluathöfn að syngja einsöng fyrir nýju liðsfélagana. Fyrir Guðmund Þórarinsson er það hins vegar lítið mál.

Tap í fyrsta leik hjá liði Beckham
Nýja liðið hans David Beckham í bandarísku MLS-deildinni, Inter Miami, fékk ekki neina draumabyrjun í nótt er fyrsti leikurinn í sögu félagsins tapaðist.

Nani afgreiddi KR-inga á Flórída með tveimur mörkum
KR-ingar töpuðu 3-1 í æfingaleik sínum á móti bandaríska MLS-liðinu Orlando City í nótt en Íslandsmeistararnir eru í æfingaferð í Bandaríkjunum.

Gummi Tóta sér fyrir sér mikið ævintýri að spila í MLS-deildinni og fyrir eigendur Man City
Guðmundur Þórarinsson samdi á dögunum við bandaríska félagið New York City og mun því spila í MLS-deildinni í vetur. Guðjón Guðmundsson hitti strákinn í dag og ræddi við hann um komandi tímabil. Eigendur Manchester City eiga félagið og setja pressu á að vinna titla.

Litla baunin leysir ljónið frá Svíþjóð af hólmi
Javier Hernandez eða "Chicharito“ eins og hann er oftar en ekki kallaður er genginn til liðs við LA Galaxy í MLS deildinni í Bandaríkjunum. Þar mun hann leysa Zlatan Ibrahimovic af hólmi en Zlatan gekk til liðs við ítalska stórveldið AC Milan fyrr á þessu ári.

Beckham búinn að finna þjálfara fyrir liðið sitt
Inter Miami mætir til leiks í MLS deildinni í fótbolta á komandi leiktíð.

Zlatan yfirgefur Galaxy: „Nú getið þið farið aftur að horfa á hafnabolta“
Zlatan Ibrahimovic verður ekki áfram í herbúðum LA Galaxy.

Yfirmaður MLS-deildarinnar heldur að Zlatan sé að fara í AC Milan
Sænski knattspyrnumaðurinn Zlatan Ibrahimović er sagður vera á leiðinni aftur til ítalska liðsins AC Milan þar sem hann spilaði síðast fyrir sjö árum.

Zlatan bara næstbestur í MLS
Mexíkóinn Carlos Vela var valinn leikmaður ársins í bandarísku úrvalsdeildinni í fótbolta og hafði nokkra yfirburði yfir Svíanum Zlatan Ibrahimovic.

Zlatan kvaddi með hreðjataki
Ballið búið hjá Zlatan Ibrahimovic og félögum eftir tap í úrslitakeppni MLS-deildarinnar í nótt.

Fékk eins leiks bann fyrir að nefbrjóta Dagnýju | Myndband
Dagný Brynjarsdóttir lenti heldur betur illa í því er Portland mætti Reign í síðasta leiknum fyrir landsleikjahlé.

Schweinsteiger leggur skóna á hilluna
Þýska goðsögnin Bastian Schweinsteiger tilkynnti í dag að hann hefði ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir ákaflega farsælan feril.

Glæsimark frá Zlatan dugði ekki til sigurs í síðasta leik fyrir úrslitakeppni | Myndband
Svíinn heldur áfram að raða inn mörkunum í MLS-deildinni.

Eignaðist barn í júní en var mætt á fótboltavöllinn þremur mánuðum síðar
Sydney Leroux var mætt aftur á knattspyrnuvöllinn í gær er Orlando Pride gerði 1-1 jafntefli við Sky Blue FC í WNSL-deildinni í Bandaríkjunum.

Jafntefli hjá Ara en Dagný í tapliði
Landsliðsfólkið Ari Freyr Skúlason og Dagný Brynjarsdóttir voru í eldlínunni í kvöld.

Zlatan: Ég er besti leikmaður í sögu MLS
Zlatan Ibrahimovic var maður helgarinnar í MLS eins og stundum áður og lét gamminn geysa í kjölfarið.

Beckham vill fá Messi til Inter Miami
Fjölmiðlar á Spáni greina frá því að David Beckham hafi sett sig í samband við Lionel Messi og að Beckham vilji fá Messi í MLS-deildina.

Rooney endaði á forsíðu The Sun og var allt annað en sáttur
Wayne Rooney óhress með The Sun og lét þá ensku heyra það á Twitter í gær.