Lög og regla
Vilja vita hvaða lögreglumenn áttu í hlut
Lögreglan reynir að hindra að upplýsingar um lögreglumenn, sem handtóku mann, sem lést í vörslu þeirra, komist til ofbeldismanna sem hafa hótað lífláti.

Sjö teknir ölvaðir í borginni á síðasta sólarhring
Sjö ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar í Reykjavík á síðasta sólarhring og segir lögregla það óvenju mikið á virkum degi. Aðallega var um að ræða karlmenn á fertugs- og fimmtugsaldri en sá elsti var á áttræðisaldri og kom nú við sögu lögreglunnar í fyrsta sinn.
Sýndu enga biðlund á slysstað
Ótrúleg óþolinmæði og dónaskapur vegfarenda mætti lögreglumönnun og þeim sem komu fyrstir á vettvang að banaslysi sem varð á Vesturlandsvegi í gær. Fólk ók jafnvel í gegnum vettvanginn áður en lögregla kom á staðinn.

Báru skotheld vesti vegna líflátshótana
Allir lögreglumenn, á vakt í miðborginni um helgina, báru skotheld vesti og sérstakar kylfur vegna margítrekaðra líflátshótana. Hótanirnar eru teknar alvarlega, en þær berast í kjölfar þess að maður lést í vörslu lögreglu í lok nóvember.

Bíll sem stolið var á Akranesi fannst í Mosfellsbæ
Ungur maður lenti í heldur óskemmtilegri reynslu síðastliðinn föstudag á Akranesi. Þá brá hann sér inn á bensínstöð í bænum en skildi bílinn sinn eftir í gangi fyrir utan. Einhver notfærði sér það því bíllinn var horfinn þegar maðurinn kom aftur út. Eigandinn fann bílinn þó sjálfur tveimur dögum síðar en þá var hann í Mosfellsbæ.

Framúrakstur talinn orsök banaslyss
Nær fullvíst þykir að framúrakstur hafi verið orsök banaslyssins sem varð á Vesturlandsvegi undir kvöld í gær. Framúrakstur var einnig orsök banaslyssins á Suðurlandsvegi fyrir rúmri viku, þar sem tveir létust.

78 kærðir fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna
78 ökumenn hafa verið kærðir fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna á landinu öllu frá því að ný lög þar að lútandi tóku gildi síðastliðið vor.

Tvítug kona kærði nauðgun á Selfossi
Tæplega fertugur karlmaður er grunaður um að hafa naugað rúmlega tvítugri stúlku á Selfossi aðfaranótt laugardagsins. Konan og maðurinn höfðu verið á skemmtistað á Selfossi og farið heim saman til konunnar.
Hafði fimm hangikjötslæri á brott með sér
Lögreglan í Reykjavík leitar nú að stórtækum hangikjötsþjófi í einni af matvöruverslunum borgarinnar og segir lögregla engu líkara en sjálfur Ketkrókur hefði verið á ferðinni. Svo reyndist þó ekki vera enda mun jólasveinninn sá ekki vera væntanlegur til byggða fyrr en á Þorláksmessu.

Lögregluskólinn útskrifar þrjátíu og fimm nemendur
Lögregluskóli ríkisins útskrifar í dag þrjátíu og fimm nemendur frá grunnnámsdeild skólans. Útskriftin fer fram í Bústaðarkirkju og syngur meðal annars Lögreglukórinn fyrir útskriftarhópinn.
Tók fimm stráka fyrir veggjakrot
Fimm ungir skemmdarvargar voru gripnir í austurborg Reykjavíkur um hálfníuleytið í gærkvöld en þeir eru grunaðir um veggjakrot. Þetta kemur fram á vef lögreglunnar. Um var að ræða stráka á grunnskólaaldri og fann lögregla í kjölfarið nokkuð af sprebrúsum og pennum.

Gæsluvarðhaldsúrskurður í hnífstungumáli felldur úr gildi
Hæstiréttur Íslands hefur fellt úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir pilti, sem stakk annan pilt með hnífi, í Kópavogi um síðustu helgi. Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness fyrr í vikunni.

Grunaður um að hafa aftur nauðgað
Maður á sextugsaldri situr í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa nauðgað konu á föstudag. Í október var sami maður dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir hrottfengið ofbeldi og nauðganir.

Meiddist í andliti vegna öryggispúða
Tíu ára drengur var fluttur á slysadeild í gær eftir árekstur tveggja bifreiða í borginni. Fram kemur á vef lögreglunnar að drengurinn hafi verið farþegi í bíl sem ekið var aftan á annabn bíl en við áreksturinn blés út öryggispúði í bílnum og meiddi hann í andliti.

Ók á ljósastaur við Hafnarfjarðarveg
Ökumaður sendibíls slapp án teljandi meiðsla þegar bifreið hans lenti á ljósastaur á mótum Fífuhvamsvegar og Hafnarfjarðarvegar í Kópavogi nú eftir hádegið. Ökumaðurinn var að beygja af Fífuhvamssvegi og inn á Hafnarfjarðarveg þegar slysið varð en talið er að bíllinn hafi runnið til vegna mikillar hálku

Safnað fyrir fíkniefnahundi fyrir lögregluna á Selfossi
Sunnlendingar, og þá sérstaklega sunnlenskar konur, eru að verða búnir að safna fyrir fíkniefnahundi fyrir lögregluna á Selfossi. Hún hefur hingað til orðið að stóla á lánshunda við rannsókn fíkniefnamála.

Dæmdur fyrir að hindra lögreglu að störfum
Karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Suðurlands fyrir að brot gegn valdstjórninni með því að hafa hindrað lögreglu að störfum.
Lögregla kölluð í heimahús vegna deilna um tölvunotkun
Lögreglan í Reykjavík var kölluð út nokkrum sinnum í gær vegna heimiliserja. Ágreiningurinn var af ýmsum toga en í einu tilfelli var rifist um tölvunotkun unglingsins á heimilinu. Þar hafði ástandið farið úr böndunum en lögregla segir ekki um einsdæmi að ræða.

Hæstiréttur verður við kröfu Opinna kerfa um lögbann
Hæstiréttur hefur orðið við kröfu Opinna kerfa um lögbann á það að þrír fyrrverandi starfsmenn fyrirtækisins starfi fyrir fyrirtækið Títan fyrr en um áramót.

Tveir í haldi vegna fólskulegrar árásar í Keflavík
Tveir kalrmenn eru í haldi lögreglunnar í Keflavík, grunaðir um húsbrot og fólskulega árás á húsráðanda.

Ók ölvaður inn á flugvélaplanið á Keflavíkurflugvelli
Ölvaður ökumaður, sem var seinn fyrir í flug til útlanda í morgun, ók á fullri ferð í gegnum háa girðingu við Leifsstöð og inni á flugvélaplanið með fjóra lögreglubíla á hælunum. Þar stökk hann úr úr bílnum og ætlaði að hlaupa um borð í næstu vél þegar lögreglumenn hlupu hann uppi og handtóku hann umsvifalaust.

180 þúsund króna sekt fyrir vörslu og sölu fíkniefna
Karlmaður hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdur til að greiða 180 þúsund króna sekt og til upptöku á nærri átta grömmum af amfetamíni fyrir sölu og vörslu fíkniefna. Þá var kona dæmd til greiðslu 30 þúsund króna vegna vörslu amfetamíns í sama máli.

Töluvert um þjófnaði í borginni um helgina
Töluvert var um þjófnaði í borginni um helgina en lögreglunni í Reykjavík bárust allmargar tilkynningar þess efnis eftir því sem segir á vef hennar. Voru það ekki síst verslunareigendur sem urðu fyrir barðinu á fingralöngum. L

Maður á níræðisaldri handtekinn fyrir akstur undir áhrifum
Lögreglan í Reykjavík hafði afskipti af tólf ökumönnum vegna ölvunaraksturs og eins vegna aksturs undir áhrifum lyfja um helgina. Flestir hinna teknu voru á þrítugs- og fertugsaldri en sá elsti er á tíræðisaldri.

Sigríður Björk verður aðstoðarríkislögreglustjóri
Sigríður Björk Guðjónsdóttir, sýslumaður á Ísafirði, hefur verið skipuð aðstoðarríkislögreglustjóri við embætti Ríkislögreglustjóra til fimm ára frá og með næstu áramótum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu.

Tekinn fimm sinnum á bíl án bílprófs
Lögreglan á Akranesi hafði afskipti af ungum ökumanni í liðinni viku þar sem hann reyndist ekki vera með bílpróf. Þetta væri varla í frásögur færandi nema fyrir það að þetta er í fimmta skiptið sem hann er tekinn án bílprófs.

Fimm fíkniefnamál í Reykjavík um helgina
Fimm fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar í Reykjavík um helgina en í þeim öllum fundust ætluð fíkniefni eins og lögregla kallar það. Á föstudagskvöld voru tveir karlmenn handteknir í miðbænum fyrir áðurnefndar sakir og aðfaranótt laugardags var þriðji karlmaðurinn stöðvaður í miðbænum af sömu ástæðu.

Pilturinn sem var stunginn fær að fara heim í dag
Sautján ára piltur, sem stunginn var með hnífi í Kópavogi aðfaranótt laugardags, hefur verið útskrifaður af gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut. Hann er nú á almennri deild og verður útskrifaður af spítalanum í dag.

Leysti upp fíkniefnapartí í Hveragerði
Lögreglan á Selfossi handtók þrjá menn í Hveragerði og færði í fangageymslu vegna fíknefnaneyslu aðfaranótt sunnudags. Lögreglu barst tilkynning um að mennirnir væru með fíkniefnapartí í húsi í Hveragerði og við leit þar fannst hass.

Ólæti og fíkniefni í umdæmi lögreglunnar í Hafnarfirði
Lögreglan í Hafnarfirði þurfti að sinna fjölda útkalla um helgina þar sem talsvert var um skemmdaverk, pústra og ölvun. Rúður í húsum og bílum voru brotnar. Fjögur fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar um helgina en í einu tilviki leikur grunur á að efnin hafi verið ætluð til sölu.