
Lög og regla
Tilkynnt um skothríð við Grindavík
Lögreglunni í Keflavík var í gærkvöldi gert viðvart um skothríð í grennd við Grindavík og voru lögreglumenn þegar sendir á vettvang. Þar var hópur ungra manna að skjótast á með sjö litboltabyssum og var lagt hald á þær allar.
Mótmæltu við hús Leoncie
Hópur ungmenna stóð fyrir mótmælum fyrir utan hús söngkonunnar Leoncie og eiginmanns hennar í Sandgerði í gærkvöldi og hrópuðu til söngkonunnar.
Meintum dópsala sleppt
Ekki var farið fram á frekara gæsluvarðhald yfir manni sem lögregla handtók um mánaðamótin síðustu, en við húsleit hjá honum fundust þrjú kíló af hassi og 400 grömm af amfetamíni, og var hann því látinn laus í gær.

Dæmd fyrir stórfelld fíkniefnabrot
32 ára maður var í gær dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi fyrir stórfelld fíkniefnabrot og fleiri brot. Þá var í sama dómi 26 ára gömul kona dæmd í hálfsársfangelsi. Dómarnir voru upp kveðnir í Héraðsdómi Reykjaness, en þeir eru skilorðsbundnir að hluta.
Hert landamæraeftirlit
Ríkislögreglustjóri hefur óskað eftir hertri landamæragæslu af ótta við að mótmælendur frá G8- fundinum í Skotlandi komi hingað til lands og mótmæli virkjanaframkvæmdum. Frést hefur af íslenskum mótmælendum þar og þá hefur verið sett upp heimasíða með ferðaleiðbeiningum fyrir mótmælendur. RÚV greindi frá þessu.

Lést af völdum byssuskots í höfuð
Krufning leiddi í gær í ljós að Gísli Þorkelsson, sem myrtur var í Suður-Afríku fyrir rúmum fimm vikum síðan, lést af völdum byssuskots í höfuðið. Lík Gísla fannst 10. júlí falið í tunnu sem fyllt hafði verið með steypu þannig að aðeins sá í fætur þess.
Starfsleyfi Alcoa dregið í efa
Ólöglegt er að halda áfram framkvæmdum við álverksmiðju Alcoa í Reyðarfirði þar til nýtt mat á umhverfisáhrifum hefur farið fram. Þessu heldur Hjörleifur Guttormsson fyrrverandi alþingismaður og náttúrufræðingur fram.
Reiddist eftir lokun apóteks
Frestað var í tvö ár fullnustu tveggja mánaða fangelsisdóms sem kveðinn var upp í Héraðsdómi Reykjaness í gær yfir 25 ára gömlum manni sem réðist á starfsmann apóteks.

Eitt og hálft ár fyrir nauðgun
Maður var dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Vestfjarða í gær fyrir að nauðga ungri stúlku á heimili hennar á Ísafirði eftir samkvæmi síðasta sumar. Stúlkan hafði lagst til svefns með vini sínum, en maðurinn vakti hann og vísaði burt áður en hann hóf að samfarir við stúlkuna sem þá vaknaði.

Kona játaði aðild að morðinu
Tvennt er í haldi lögreglu vegna morðsins á Gísla Þorkelssyni, 54 ára gömlum athafnamanni, í Suður-Afríku, 28 ára gamall maður og 43 ára gömul kona. Réttað verður í máli þeirra í lok ágúst. Dánarorsök Gísla er enn ókunn en hann verður krufinn í dag.

Heilbrigðisstofnun sýkn saka
Heilbrigðisstofnun Suðurlands var í gær sýknuð fyrir Héraðsdómi Suðurlands af rúmlega 28 milljón króna bótakröfu læknis sem þar starfaði en var sagt upp störfum vegna samskiptaörðugleika og endurtekinna kvartana sjúklinga.

Var myrtur við komuna frá BNA
Gísli Þorkelsson, sem myrtur var í Suður-Afríku fyrir rúmum fimm vikum, var að koma úr heimsókn til systur sinnar í Bandaríkjunum. Þar hitti hann uppkominn son sinn, sem hann hafði boðið út að hitta sig. Lík Gísla verður flutt til Íslands til jarðsetningar.
Varðhald fellt úr gildi
Hæstiréttur felldi í gær úr gildi úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá 8. júlí þess efnis að meintur kynferðisglæpamaður skyldi sæta gæsluvarðhaldi til 15. júlí eins og Lögreglustjórinn í Reykjavík hafði farið fram á.
Á 164 kílómetra hraða
Ökumaður á yfir höfði sér sviptingu ökuréttinda eftir að bifreið hans mældist á 164 kílómetra hraða á Reykjanesbraut við Bústaðaveg á ellefta tímanum í fyrrakvöld. Hámarkshraði þar er 70 kílómetrar á klukkustund og keyrði ökumaðurinn því meira en níutíu kílómetrum á klukkustund of hratt.
Ríkið sýknað í héraðsdómi
Ríkið var í gær sýknað af kröfum manns sem taldi sig hafa orðið fyrir ólögmætri gjaldtöku, en skattstjórinn í Reykjavík lagði á hann iðnaðarmálagjald á árunum 2001 til 2004.
Höfðaborg er morðhöfuðborg
Eftir að lyfjagagnagrunnur Landlæknisembættisins var tekinn í gagnið hefur tekist að sjá út að einhverju leyti hverjir eru stórneytendur á ávanabindandi, ávísunarskyld lyf og gera læknum viðvart.
Gæsluvarðhald staðfest
Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð yfir síbrotamanni sem farið hafði fram á að gæsluvarðhald þða er hann var dæmdur í til 15. júlí yrði fellt niður eða stytt.
Líkið talið vera af Íslendingi
Lík af karlmanni, sem talinn er vera Íslendingur, fannst í tunnu fullri af steinsteypu í húsagarði í Boksburg í Suður-Afríku í vikunni. Mbl.is greinir frá þessu. Að sögn suður-afrískra fjölmiðla er talið að um sé að ræða mann sem hafði búið undanfarinn áratug þar í landi en hvarf fyrir um fimm vikum.

Kennsl ekki borin strax
Að sögn talsmanns lögreglunnar í Suður-Afríku mun það taka nokkurn tíma að bera formleg kennsl á lík manns sem fannst þar í vikunni og er talið vera af Íslendingi. Reynt verður að fá vini mannsins til að bera kennsl á föt hans en hugsanlega þarf að bíða eftir að ættingjar komi til Suður-Afríku og gefi DNA-sýni.

Grunur um morð á Íslendingi
Lík af manni á fertugsaldri sem fannst í Suður-Afríku um helgina er sagt kunna vera af íslendingi sem búið hefur í Jóhannesarborg í um tíu ár. Yfirvöld hér heima hafa sent lögreglu í Suður-Afríku fyrirspurnir vegna málsins, en ekki er vitað af hverjum líkið er.

Grunur um morð á Íslendingi
Grunur leikur á að Íslendingur hafi verið myrtur í Suður-Afríku og líki hans komið fyrir í tunnu fullri af steypu. Tvennt er í haldi lögreglunnar vegna málsins.

Foreldrarnir vilja áfrýjun
Foreldrar stúlku sem beið bana þegar ekið var á hana við Bíldudal í fyrra vilja að málinu verði áfrýjað til Hæstaréttar. Héraðsdómur Vestfjarða vísaði bótakröfu þeirra frá þar sem ekki hafi verið um stórfellt gáleysi að ræða.
Ræningjans enn leitað
Lögreglan leitar enn að manni sem rændi töluverðu magni af örvandi lyfjum úr apótekinu Lyf og heilsu í Domus Medica við Egilsgötu í hádeginu í gær. Hann huldi andlit sitt og hótaði starfsfólki með veiðihnífi.

Tekinn með 402 grömm af hassi
Tvítugur maður var handekinn eftir að nokkurt magn fíkniefna fannst í bíl hans þegar hann kom til Vestmannaeyja með Herjólfi síðasliðinn föstudag. Í bílnum fundust 402 grömm af hassi, tíu grömm af amfetamíni og sex grömm af kókaíni.

6 mánuðir fyrir árásir með flösku
Tvítugur maður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að slá tvo menn með glerflösku í menningarnótt árið 2003. Fimm mánuðir af refsingunni eru skilorðsbundnir til tveggja ára.
Sló mann með brotinni glerflösku
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær tvítugan karlmann í sex mánaða fangelsi fyrir líkamsárás á menningarnótt árið 2003. Fimm mánuðir eru skilorðsbundnir. Þá skal hann greiða ákæranda 60.000 krónur í skaðabætur og lögmannskostnað. Hann sló ítrekað til kæranda með brotinni flösku og olli alvarlegum, en þó ekki lífshættulegum, áverkum.

Ræningjarnir yfirheyrðir í dag
Mennirnir tveir sem rændu lyfjum úr apótekinu í Austurveri í gær og peningum á Dominos Pizzu í Spönginni, vopnaðir hnífi og skrúfjárni, eru enn í haldi lögreglu og verða yfirheyrðir nánar í dag. Meðal annars verður kannað hvort þeir hafi fleiri afbrot á samviskunni.
Ók á 150 þegar hann sá stúlkuna
Tæplega nítján ára piltur var í Héraðsdómi Vestfjarða dæmdur í eins mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir manndráp af gáleysi. Hann ók á fjórtán ára stúlku á Bíldudalsvegi síðasta sumar. Sjálfur segist hann hafa verið á 150 kílómetra hraða þegar hann sá stúlkuna.

Í lopapeysu með grænan hatt
Lögreglan í Reykjavík leitar enn manns sem framdi vopnað rán í verslun Lyf og heilsu í Domus Medica í hádeginu í dag. Maðurinn, sem er lágvaxinn og grannur, var klæddur í rauðleita lopapeysu með röndum á ermum og með grænan hatt. Hann er talinn vera á aldrinum 20 til 30 ára.
Ræningjans enn leitað
Lögreglan leitar enn manns sem framdi vopnað rán í Lyf og heilsu í Domus Medica upp úr klukkan hálf eitt í dag. Maðurinn, sem var með klút fyrir andlitinu og hníf í hendi, kom inn í apótekið og ógnaði starfsfólki.