Lög og regla

Rýmt á Tálknafirði - Snjóflóð féll
Almannavarnarnefnd á Tálknafirði ákvað í kvöld að rýma tíu innstu íbúðarhúsin í bænum, neðan svonefnds Geitárhorns, eftir að Veðurstofa Íslands gaf út tilkynningu um hættustig vegna snjóflóðahættu. Snjóflóð féll á svæðinu fyrr í kvöld en olli ekki tjóni á mönnum eða mannvirkjum.

Eldur í Mosfellsbæ
Eldur kviknaði í íbúðarhúsnæði í Krókabyggð 14 í Mosfellsbæ í gær.

Eldur í íbúðarhúsi í Mosfellsbæ
Eldur varð laus í íbúðarhúsi að Krókabyggð 14 í Mosfellsbæ síðdegis og voru þrír slökkviliðsbílar sendir á staðinn. Mikill eldur logaði á efri hæð hússins, sem er tvílyft parhús, þegar slökkviliðið kom á staðinn en það hefur nú náð að ráða niðurlögum eldsins. Tveir drengir voru í húsinu þegar kviknaði í og voru þeir fluttir á slysadeild vegna gruns um reykeitrun.

Áramótin í Reykjavík
Áramótin fóru vel fram í Reykjavík líkt og um síðustu áramót. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík var talsverð ölvun á gamlárskvöld og mikið fólk á ferli. Eitthvað var um ryskingar en allt minniháttar.

Áfallið sýnir styrk baklandsins
Full starfsemi er fyrir nokkru komin í gang hjá endurvinnslufyrirtækinu Hringrás við Sundahöfn í Reykjavík, en þar varð stórbruni 22. nóvember síðast liðinn þannig að flytja varð um sex hundruð íbúa í nágrenninu neyðarflutningum út af hættusvæði brunans.

Eldur á Ásólfsstöðum
Eldur kviknaði á bænum Ásólfsstöðum í Gnúpverjahreppi í gær.

Átta augnslys eftir fikt
Augnslys á börnum koma upp á hverju ári. Í ár eru fjögur slysanna alvarleg en fjögur þar sem um minniháttar meiðsl er að ræða. Sérfræðingur í augnlækningum segir slysin gerast þegar drengir fikta með flugelda og reyna að búa til öflugari sprengjur.

Rifrildi um ökugjald
Leigubílstjóri var bitinn í hálsinn af farþega í miðbæ Reykjavíkur á þriðja tímanum aðfaranótt sunnudags.

Úðaði maze-úða í andlit manns
Karlmaður var handtekinn í Reykjavík á sjöunda tímanum í morgun fyrir að úða svokölluðum maze-úða í andlit annars karlmanns í miðborg Reykjavíkur. Við handtöku reyndist hann vera með úðabrúsann á sér, sem og kasthníf. Hann er einnig grunaður um að hafa úðað framan í annan karlmann á skemmtistað í borginni fyrr um nóttina.

Íslensk neyðarsveit til Tælands?
Til stendur að Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin fari til hamfarasvæðanna í dag til að sækja Svía. Lið lækna, hjúkrunarfræðinga og bjögunarsveitarmanna er ferðbúið. Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra bauð sænskum stjórnvöldum aðstoðina og er beðið svara þaðan.

Met í lögregluútköllum
Nýtt met var slegið á aðfangadag jóla í tilkynningum til lögreglu um ölvun, hemiliserjur og almenn leiðindi. Geirjón Þórisson yfirlögregluþjónn segir að þetta sé því miður alþekkt fyrirbæri á aðfangadag þótt nú hafi verið slegið nýtt met. Það kom lögreglu á óvart hve útköllin voru mörg. Geirjón segist ekki geta sagt til um hvað valdi.

Hleypti af haglabyssu í heimahúsi
Karlmaður er í haldi lögreglunnar í Reykjavík eftir að hafa hleypt af haglabyssu í íbúð sinni í austurbæ Reykjavíkur. Maðurinn var ekki að ógna með byssunni en þar sem fleira fólk var í íbúðinni skapaðist augljós hætta.

Álagning á flugelda misjöfn
Verð á flugeldum er mjög mismunandi eftir því í hvaða tilgangi þeir eru seldir. "Við höfum ekki verið í samkeppni um ódýra flugelda," segir Ævar Aðalsteinsson hjá Hjálparsveit Skáta í Reykjavík. Hann treystir sér ekki til að gefa upp nákvæmar álagningatölur hjá björgunarsveitunum.

Alvarlega slösuðum fækkar mest
Banaslysum hefur ekki fjölgað þrátt fyrir aukna umferð síðustu tuttugu ár. 23 hafa látist í umferðinni það sem af er árinu, jafnmargir og í fyrra. Mestur árangur er að fækka þeim slasast alvarlega en þeir voru 419 fyrir tuttugu árum. </font /></b />

Skýt enn upp flugeldum
Á hverju ári verða slys vegna flugelda. Þorsteinn Haraldsson fékk brot frá flugeldi í augað þegar hann var þrettán ára og hefur ekki haft sjón á því síðan.

Endurskin til útivistarfólks
Sýslumannsembættin á Seyðisfirði og Eskifirði hafa hafið átak í notkun endurskinsmerkja. Reynt verður að ná til þeirra sem stunda útivist í skammdeginu.

Bandaríkjamenn gefa ekkert upp
Dómsmálaráðuneytið bandaríska gefur ekki upp rökstuðning eða bakgrunn ákvarðana sinna og lætur ekkert uppi um mögulegar fyrirætlanir sínar, segir Michael Kulstad, upplýsingafulltrúi ráðuneytisins.

Gæsluvarðhald vegna smygls á fólki
Karl og kona, bæði ættuð frá Eþíópíu, og Eþíópíumaður sem var fylgdarmaður þeirra með fullgilt sænskt vegabréf, voru í gær úrskurðuð í gæsluvarðhand vegna gruns um að fylgdarmaðurinn hafi ætlað að smygla hinum tveimur til Bandaríkjanna. Þau voru bæði með sænsk vegabréf sem að öllum líkindum eru stolin eða fölsuð.

Geymdi þýfið í kjallaranum
Brotist var inn í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti í gærkvöldi og þaðan stolið ýmsum raftækjum og skartgripum. Við nánari athugun lögreglu fannst þýfið falið í kjallara í stigagangi hússins og er talið að þjófurinn hafi ætlað að vitja þess síðar. Hann gerði það hins vegar ekki í nótt og er því ófundinn.

Æ fleiri selja flugelda
Flugeldasala nær hámarki í dag en sölustaðir flugelda eru tæplega fimmtíu í ár. Sölustöðum hefur fjölgað um fimmtung frá því í fyrra og ber æ meira á því að einkafyrirtæki keppi við björgunarsveitir og íþróttafélög um hituna.

Metár í fjölda fíkniefnabrota
Lögregla og tollayfirvöld tóku mun meira magn af amfetamíni og kókaíni heldur en í fyrra og síðustu ár þar á undan. </font /></b />

Olía lak í höfnina á Patreksfirði
Mengunarvarnargirðing var sett upp umhverfis smábátahöfnina á Patreksfirði í fyrrakvöld eftir að í ljós kom að olía hafði lekið í höfnina. Óttast er að nokkuð hundruð lítrar af olíu hafi lent í höfninni að sögn lögreglu.

Enn engar upplýsingar
Engar nýjar upplýsingar hafa borist lögreglunni í Kópavogi um brottnám níu ára stúlku í Kópavogi í nóvember að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar yfirlögregluþjóns í Kópavogi.

Milljarða kröfur í þrotabú
Kröfur í þrotabúið Vélar og þjónusta hf. nema 1.200 til 1.300 milljónum króna.

Skattrannsókn á fjármálum Baugs
Skattayfirvöld þurfa að taka ákvörðun um endurálagningu skatta á Baug í síðasta lagi á morgun annars fyrnist hluti af málinu sem snýr að ríkisskattstjóra.

Sjúkraflug vaxandi þáttur
Þrjú hundruð sjúkraflug hafa verið farin frá Akureyri það sem af er þessu ári. Í fyrra voru þau 271 en 188 árið áður.

Vara við evrópskri svikamyllu
Samtök verslunar og þjónustu vara fyrirtæki við því að borga reikninga frá European City Guide (ECG) ef þau telja sig ekki hafa efnt til skuldarinnar. Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri SVÞ, segir fimm til sex íslensk fyrirtæki hafa haft samband við SVÞ á skömmum tíma vegna málsins.

Rólegt hjá lögreglu
Mjög rólegt var yfir öllu skemmtanahaldi í gærkvöldi eftir óvenju mikinn eril hjá lögreglu víða um land í fyrrinótt vegna drykkjuláta fram eftir allri nóttu. Það virðist því vera að vinnuvikan hafi hjá mörgum hafist degi seinna en almanakið gerir ráð fyrir því ástandið í gærkvöldi og í nótt var líkara því sem gerist aðfararnætur mánudaga.

Mikið af falsaðri merkjavöru
Aukið eftirlit hefur skilað sér í því að hundruð kílóa af falsaðri merkjavöru voru haldlögð á Keflavíkurflugvelli á þessu ári. Brot á lögum um vörumerki geta varðað fangelsi allt að þrjá mánuði. Fölsun merkjavarnings er mjög víðtækur og skipulagður iðnaður í heiminum.

Sjálfstæði Gæslunnar varðveitt
Georg Lárusson, nýráðinn forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir mikilvægt að varðveita sjálfstæði hennar og telur ekki koma til greina að fella hana undir embætti Ríkislögreglustjóra eins og raunin varð með Almannavarnir.