Fíkn

Fundu um 40 kíló af kókaíni í bananasendingu
Um 40 kíló af kókaíni fundust í bananasendingum til franskrar verslunarkeðju í vikunni. Efnin fundust í þremur ólíkum verslunum. Lögreglan rannsakar nú hver viðtakandinn var.

„Eins og eitt stórt þvagpróf af Reykjavík“
Fyrstu niðurstöður mælinga á ópíóíðum í fráveituvatni á Íslandi sýna að neysla þeirra er nokkuð jöfn alla daga vikunnar. Meiri sveiflur er að finna í neyslu á hefðbundnari vímuefnum eins og MDMA, kókaíni, amfetamíni og kannabis.

Ekki hægt að fara í skurðaðgerð til að losna við fíknisjúkdóminn
Ragnheiður Hulda Friðriksdóttir forstjóri SÁÁ segir nýjan samning samtakanna við Sjúkratryggingar Íslands tímamótasamning. Samningurinn felur í sér fimmfalda aukningu á aðgengi að lyfjameðferð hjá SÁÁ fyrir einstaklinga með alvarlega ópíóðafíkn.

Börnin sem borðuðu kannabis-bangsana enn á spítala
Börnin sem flutt voru á slysadeild eftir að hafa borðað gúmmíbangsa með THC eða kannabis eru enn á spítala en ekki talin í lífshættu. Börnin eru yngri en tíu ára gömul. Valtýr Stefánsson Thors yfirlæknir barnalækninga við Landspítalann segir þau vita hvernig börnin komust í bangsana. Hann á von á því að börnin verði útskrifuð fljótlega.

Tímamótadagur
Þann 2.september sl. var tímamótadagur í þjónustu við fólk með fíknsjúkdóma. Heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórsson staðfesti viðauka við samning Sjúkratrygginga Íslands og SÁÁ um flýtiþjónustu vegna fíknsjúkdóma og snemminngrip fyrir einstaklinga með alvarlega ópíóíðafíkn.

Viðauki við samning SÍ og SÁÁ hluti af aðgerðum gegn ópíóðavandanum
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra staðfesti í dag viðauka við samning Sjúkratrygginga Íslands og SÁÁ um flýtiþjónustu vegna fíknisjúkdóma og snemminngrip fyrir einstaklinga með alvarlega ópíóíðafíkn. Samningurinn er liður í aðgerðum stjórnvalda til að sporna við skaða af völdum ópíóðafíknar.

„Fína konan“ skyndilega umkringd fyllibyttum
Jóhanna Guðmundsdóttir var þriggja barna útivinnandi móðir og eiginkona í Bandaríkjunum þegar hún vaknaði upp við vondan draum. Eftir áralanga áfengisneyslu sem hafði undið upp á sig var hún komin á róandi lyf og hrædd um að missa börnin. Í dag leikur lífið við hana.

Lýst yfir hættustigi vegna áfengisdrykkju
Hættustigi vegna áfengisdrykkju var nýlega lýst í svari heilbrigðisráðherra á Alþingi um áfengisneyslu og -fíknar Íslendinga.

Persónur og leikendur í leikriti fáránleikans
Þegar ég vaknaði í morgun drakk ég mitt morgun kaffi að venju og las net miðlana. Á visi.is rakst ég á grein með fyrirsögninni

Fimm ákærðir í tengslum við andlát Perry
Fimm hafa verið handteknir og ákærðir í tengslum við andlát leikarans Matthew Perry. Meðal þeirra eru þrír læknar en allir ákærðu eru sagðir hafa selt Perry ketamín og lagt sig fram um að leyna því hvað dró hann til dauða.

„Landsliðið“ búið að skila tillögu og von á vímuefnastefnu
„Skaðaminnkandi nálgun er það sem að mun umvefja alla stefnumótun. Við erum með í ráðuneytinu núna landsliðið, má segja, í þessari hugmyndafræði og á þessum vettvangi. Það eru mjög margir sem koma að þessu verkefni með okkur í ráðuneytinu að formgera skaðaminnkunarstefnu sem mun fara inn í stærri vímuefnastefnu sem er í endurskoðun.“

Nýtt neyslurými opnar í Borgartúni: Skoða að bjóða gestum upp á vímuefni til skaðaminnkunar
Rauði kross Íslands opnaði í dag nýtt neyslurými í Borgartúni undir nafninu Ylja. Notendur vímuefna geta leitað þangað og sprautað sig eða reykt vímuefni undir eftirliti og aðstoð heilbrigðisstarfsfólks.

Staðbundið neyslurými: Stórt skref í skaðaminnkun
Í nokkur ár hefur Rauði Krossinn rekið færanlegt skaðaminnkandi úrræði í bíl, Frú Ragnheiði, sem þjónustað hefur fjölda fólks sem glímt hefur við fíknisjúkdóma. Markmið Frú Ragnheiðar, sem ekur um götur borgarinnar og sækir fólk heim, er að fyrirbyggja þann skaða og þá áhættu sem kann að hljótast af notkun vímuefna fremur en að fyrirbyggja notkunina sjálfa og koma í veg fyrir ótímabær dauðsföll og óafturkræfan skaða.

Full ástæða til að vara foreldra við
Starfsfólk Foreldrahúss hefur séð aukningu í vímuefnavanda ungmenna síðustu ár og hefur áhyggjur af stöðu mála. Mjög auðvelt sé fyrir unglinga að nálgast vímuefni á samfélagsmiðlum og það sé liðin tíð að einungis börn sem búi við erfiðar aðstæður glími við fíkniefnavanda.

Segir tímabært að Ísland stokki spilin upp á nýtt
Maarten Haijer, framkvæmdastjóri hagsmunasamtaka evrópskra veðmálafyrirtækja, tekur til varna fyrir erlend veðmálafyrirtæki sem hafa verið áberandi í umræðunni hér á landi undanfarnar vikur. Það gerir hann í skoðanagrein sem birtist á Vísi í morgun þar sem hann segir regluverk á Íslandi varðandi fjárhættuspil vera fast í fortíðinni.

„Þetta eru ekki bara viðvörunarbjöllur heldur rauð ljós“
Aukna áhættuhegðun og vímuefnanotkun barna ber að taka alvarlega og gefur þróunin tilefni til að taka enn betur utan um málefni barna. Þetta segir formaður velferðarnefndar Alþingis sem gerir ráð fyrir að málið verði tekið fyrir í nefndinni þegar þing kemur saman í haust.

Þróunin sé merki um að afleiðingar Covid séu betur að koma í ljós
Nauðsynleg úrræði og bráðaþjónustu skortir fyrir börn sem sýna af sér áhættuhegðun og eiga við fíknivanda að mati framkvæmdastjóra Barnaheilla.

„Þetta er ekki spurning hvort hann deyi heldur hvenær“
Í nýjasta þætti af Lífið af biðlista, sem er í umsjón Gunnars Ingi Valgeirssonar, er rætt við ungan mann sem hefur verið í neyslu í tíu ár. Hann býr á Akureyri með móður sinni sem er virkur alkahólisti. Maðurinn hefur verið á biðlista eftir meðferð í fjóra mánuði.

Lárus skuli fyrst taka til í „eigin veðmálastarfsemi“
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður veðmálafyrirtækisins Betsson skýtur föstum skotum á Íþrótta og Ólympíusamband Íslands og Lárus Blöndal formann sambandsins, í aðsendri grein á Vísi í dag. Hann segir Lárus þurfa að taka til í eigin veðmálastarfsemi áður en hann fari að tala fyrir því að banna erendar veðmálasíður.

Ná að stytta biðlista og kynjaskipta meðferðinni
Framkvæmdastjóri Krýsuvíkursamtakanna, Elías Guðmundsson, segir það afar ánægjulegt að geta fjölgað meðferðarrýmum hjá sér í 29 á meðferðarheimilinu Krýsuvík. Með því verði hægt að styrkja kvennastarf samtakanna og kynjaskipta meðferðinni.

Fulltrúar sérhagsmuna létu formanninn einan um orðið
Engin samstaða náðist um niðurstöður innan starfshóps um veðmálastarfsemi á Íslandi. Formaður hópsins segir aðgerðarleysi ekki gagnast neinum, nema íslensku sérleyfishöfunum og erlendu fyrirtækjunum með ólöglega starfsemi hér á landi. Gríðarlegir fjárhagslegir hagsmunir séu í húfi fyrir þau.

Um 220 einstaklingar verið flaggaðir vegna ógnandi hegðunar á spítalanum
Frá árinu 2005 hafa kennitölur 220 einstaklinga verið flaggaðar á Landspítalanum vegna ógnandi hegðunar við komu á bráðamóttöku í Fossvogi, bráðamóttöku geðsviðs og Hjartagátt. Framkvæmdastjóri hjúkrunar segir fyrirkomulagið nauðsynlegt til að tryggja öryggi starfsfólks og sjúklinga.

FA gagnrýnir reglugerð Willums Þórs harðlega
Ljóst er að þeir hjá Félagi atvinnurekenda vita vart hvort þeir eiga að hlæja eða gráta vegna ákvæðis í drögum að reglugerð Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra þess efnis að pakka beri inn öllu tóbaki í einsleitar umbúðir.

Spilafíklar geti lokað á fjárhættuspil hjá Indó
Sparisjóðurinn Indó býður nú viðskiptavinum sínum að loka á fjárhættuspil. Þau sem kjósi að virkja lokunina muni ekki geta notað debetkortið sitt á veðmála- og fjárhættuspilavefsíðum né á flestum sölustöðum spilakassa.

Sláandi og óhugnanlegar staðreyndir á strimlum Aþenu
Útskriftarverkefni grafíska hönnuðarins Aþenu Elíasdóttur í Listaháskóla Íslands hefur vakið mikla athygli. Þar setur hún fram á flottan hátt sláandi og óhugnanlegar staðreyndir og tölur sem tengjast fíknivandanum sem ríkir hér á landi og algjöru úrræðaleysi og fjársvelti.

Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar
Samhjálp leitar nú að nýju húsnæði fyrir Kaffistofu Samhjálpar. Kaffistofan hefur verið rekin í Borgartúni frá árinu 2007 en opnaði upprunalega árið 1981 á Hverfisgötu og hefur Kaffistofan því verið starfrækt í meira en 40 ár. Á Kaffistofu Samhjálpar er boðið upp á heitan mat alla daga, allan ársins hring.

Verkjamóttakan hafi dregið verulega úr morfínlyfjanotkun
Linda Kristjánsdóttir, yfirlæknir Heilsugæslunnar í Urðarhvarfi, segir að verkjamóttaka heilsugæslunnar hafi dregið úr notkun opíóðalyfja hjá skjólstæðingum heilsugæslunnar um 30 prósent.

„Drekkum í dag og iðrumst á morgun!“
Í alvöru krakkar!? Ætlum við að hafa þetta svona? Að láta lýðheilsu framtíðar lönd og leið ef einhverjir geta makað krókinn í dag?

„Það eina sem ég vildi var bara að lifa“
„Ég var hræddur og ég vildi bara eiga líf. Það eina sem ég vildi var bara að lifa,“ segir tónlistarmaðurinn Ísak Morris sem hefur átt viðburðaríka ævi en segist nú loksins hafa fundið sig. Ísak hefur verið viðloðinn tónlist frá unglingsaldri og vinnur nú að plötu sem hann stefnir á að gefa út í sumar. Blaðamaður ræddi við hann um tónlistina, æskuna, fíknina, edrúmennskuna, ástina og margt fleira.

Myndi ekki syrgja brotthvarf neftóbaksins
Fjármálaráðherra segir það gleðitíðindi að sala á íslensku neftóbaki dragist saman. Skoða þurfi hvort leggja eigi gjöld á nikótínpúða.