Innlent
210 211 212 213 214 215 216 217 218 … 334 ›
Vier Minuten hlaut Kvikmyndaverðlaun Þjóðkirkjunnar Kvikmyndin Vier Minuten eftir Chris Kraus hlaut Kvikmyndaverðlaun Þjóðkirkjunnar en verðlaunin er nú veitt í fyrsta sinn á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík 2006. Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands veitti verðlaunin. Innlent 8.10.2006 12:59
Mercedes Benz sigraði í sparaksturskeppni Mercedes Benz 180 CDI sigraði í sparaksturkeppni sem haldin var í gær. Þessi fólksbíll frá Benz eyddi rétt rúmum þremur lítrum á hundraði, sem þykir einkar góður árangur. Innlent 8.10.2006 12:26
Verið að ljúka við tvöföldun Reykjanesbrautar í Hafnarfiði Næstu daga verður lokið við nýja tvöfalda Reykjanesbraut í Hafnarfirði norður fyrir mislæg gatnamót við Urriðaholt. Á fjórða ár eru liðið frá því framkvæmdir hófust við breikkun Reykjanesbrautar. Innlent 8.10.2006 11:54
Keyrði ölvaður á stólpa Rúmlega tvítugur karlmaður var fluttur á slysadeild Landspítala-Háskólasjúkrahús á áttunda tímanum í morgun eftir að hafa ekið á stólpa við Breiðhöfða. Maðurinn er grunaður um ölvun við akstur. Innlent 8.10.2006 10:07
Bílvelta á Reykjanesbraut Beita þurfti klippum til að ná ökumanni fólksbíls, sem valt á Reykjanesbrautinni í nótt, út úr bílnum. Maðurinn var einn í bílnum og reyndist hann lítið slasaður. Innlent 8.10.2006 10:04
Vöknuðu við hávaðann í reykskynjara Reykskynjari gæti hafa bjargað lífi hjóna á fimmtugsaldri þegar eldur kom upp í íbúðarhúsinu Búlandi, skammt sunnan Hjalteyrar við Eyjafjörð, laust fyrir klukkan sjö í morgun. Hjónin, sem eru 45 og 47 ára, vöknuðu við hávaðann í reykskynjaranum. Þau komust sjálf út úr brennandi húsinu og hringdu síðan eftir hjálp. Innlent 8.10.2006 10:00
Liggur þungt haldin eftir bílveltu Karlmaður á fimmtugsaldri liggur þungt haldin eftir bílveltu á Kringlumýrarbrautinni í gærkvöldi. Honum er haldið sofandi í öndunarvél, ástand hans er stöðugt í augnablikinu og hann er ekki talinn í bráðri lífshættu. Innlent 8.10.2006 09:44
Rússneska fánanum stolið Þrír ungir menn stálu rússneska fánanum úr garði rússneska sendiráðsins við Garðastræti 33 í Reykjavík í fyrrinótt. Lögreglan í Reykjavík fékk tilkynningu um þjófnaðinn um níu leytið í gær og hóf strax að rannsaka málið. Innlent 7.10.2006 21:59
Milljóna fjárveiting vegna Baugsmálsins Óskað er eftir rúmlega tuttugu milljóna króna aukafjárveitingu vegna Baugsmálsins. Álitamál hvort réttlætanlegt sé að eyða meiri fjármunum í þetta mál, segir Björgvin G. Sigurðsson. Mikil vinna við þetta mál, segir Björn Bjarnason. Innlent 7.10.2006 22:00
Fór yfir á gagnstæðan vegarhelming Ökumaður fólksbifreiðar fótbrotnaði illa á báðum fótum í hörðum árekstri tveggja bifreiða á Kringlumýrarbraut rétt sunnan við Bústaðabrú um sjö leytið í gærkvöldi. Umferð var lokað um Kringlumýrarbraut um tíma vegna slyssins. Innlent 7.10.2006 22:00
Dagný gefur ekki kost á sér Dagný Jónsdóttir, áttundi þingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, hefur tilkynnt að hún gefi ekki kost á sér til áframhaldandi þingsetu eftir alþingiskosningarnar næsta vor. Dagný tilkynnti þessa ákvörðun á kjördæmaþingi Framsóknarflokksins á Djúpavogi. Innlent 7.10.2006 22:00
Tuttugu og sex látnir í árásum Tuttugu og sex manns létu lífið í árásum í Írak í gær. Fjórtán þeirra létust í sjálfsvígsárás við eftirlitsstöð íraska hersins í borginni Tal Afar. Innlent 7.10.2006 21:59
Fyrsta leiguþyrlan komin til landins Ný leiguþyrla Landhelgisgæslunnar lenti á Reykjavíkurflugvelli í gær. Þyrlan er sú fyrsta af þremur sem ætlað er að fylla í skarðið sem brottför varnarliðsins skildi eftir sig. Mettími í að finna leiguþyrlu, segir forstjóri Landhelgisgæslunnar. Innlent 7.10.2006 21:59
Aukin spenna við landamærin Suðurkóreski herinn skaut fjörutíu viðvörunarskotum að hermönnum í Norður-Kóreu sem fóru yfir landamæri sem skilja ríkin að í gærmorgun. Búist er við að Norður-Kóreumenn sprengi kjarnorkusprengju í tilraunaskyni á allra næstu dögum, jafnvel í dag. Spenna á svæðinu hefur aukist jafnt og þétt eftir því sem nær dregur kjarnorkutilraununum. Erlent 7.10.2006 21:59
Fólskuleg líkamsárás kærð Danskur karlmaður á þrítugsaldri var fluttur á slysadeild Landspítalans í Fossvogi eftir að hann lenti í ryskingum við 26 ára gamlan mann um fjögur leytið í fyrri nótt. Reyndust áverkar mannsins í andliti ekki eins alvarlegir og talið var í fyrstu og fékk hann að fara af slysadeildinni að lokinni ítarlegri skoðun. Innlent 7.10.2006 22:00
Kristbjörn sigraði í sparakstri Hátt í fimmtíu bifreiðar voru skráðar til leiks í keppni í sparakstri sem fram fór í gær. Keppendur voru bæði almennir ökumenn sem og fulltrúar bifreiðaumboða og voru ökutækin allt frá smábílum til fjórhjóladrifinna ökutækja. FÍB og Atlantsolía stóðu að keppninni en eknir voru rúmir 140 kílómetrar. Innlent 7.10.2006 22:00
19 í prófkjöri í Reykjavík Nítján gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sem haldið verður dagana 27.-28. október næstkomandi. Innlent 7.10.2006 22:00
Karlmenn á Austurlandi vinna mest Vinnutími félagsmanna í Starfsgreinasambandinu er langur, eða um fimmtíu stundir á viku, og lengstur er hann á Austurlandi. Könnun staðfestir launamun kynjanna, konurnar eru ósáttari við launin en karlarnir, enda sitja þær eftir. Innlent 7.10.2006 21:59
Skafmiðar og greiðslukort Bílastæðasjóður vill taka upp greiðslukortaþjónustu í öllum greiðsluvélum og miðamælum, skipta út stöðumælum fyrir miðamæla, hefja sölu á viku- og mánaðarkortum og bjóða upp á fjölbreytt úrval skafmiða fyrir ákveðinn gildistíma á ákveðnu gjaldsvæði, með ótiltekinn upphafstíma. Innlent 7.10.2006 21:59
Fáir lásu fyrsta blaðið Aðeins þrjú prósent Dana lásu fyrsta tölublað Nyhedsavisen sem kom út á föstudag. Þetta er niðurstaða könnunar sem dagblaðið Berlingske tidende sagði frá í gær. Segir í frétt blaðsins að lesturinn sé minni en fríblöðin 24 tímar og Dato fengu þegar þau komu fyrst út í ágúst síðastliðnum. Innlent 7.10.2006 21:59
Nítján í Suðvesturkjördæmi Í Suðvesturkjördæmi gefa alls nítján einstaklingar kost á sér í prófkjörinu. Innlent 7.10.2006 22:00
Fjölgar mest á Norðurlandi Gistinóttum á hótelum í ágúst fjölgaði um tæp sex prósent á milli ára. Gistinætur á hótelum í ágúst síðastliðnum voru 162.900 en voru 154.100 í sama mánuði í fyrra. Innlent 7.10.2006 22:00
Hátt í 50 ára gömul tæki ófullnægjandi Tæki og tól á Keflavíkurflugvelli þarfnast endurnýjunar. Huga þarf að endurnýjun á 27 ára gamalli ratsjá og næstum 50 ára gömlum snjóplógi auk fleiri tækja til að uppfylla öll skilyrði, segir framkvæmdastjóri Keflavíkurflugvallar. Innlent 7.10.2006 21:59
FL Group selur allan hlut sinn í Icelandair Allt stefnir í að FL Group verði horfið úr hluthafahópi Icelandair fyrir vikulok. Glitnir hefur safnað stórum hópi fjárfesta og ný kjölfesta mun myndast í félaginu. Félagið verður skráð á markað með sölu til starfsmanna og almennings. Innlent 7.10.2006 22:00
Alvarlega slasaður eftir árekstur á Kringlumýrarbraut Ökumaður fólksbifreiðar er alvarlega slasaður eftir bílslys á Kringlumýrarbraut í kvöld. Hann er fótbrotinn á báðum fótum en er ekki talinn í lífshættu. Innlent 7.10.2006 21:08
Kringlumýrarbraut lokuð vegna slyss Vegna alvarlegs umferðarslyss hefur lögregla lokað Kringlumýrarbraut til suðurs rétt sunnan við Bústaðabrú. Um bílveltu er að ræða eftir árekstur við annan bíl og er tækjabíll með klippur á vettvangi. Lokun er við gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar til suðurs. Umferð sem kemst inn á brautina er vísað upp á Bústaðaveg eða inna á Hamrahlíð. Búast má við að brautin verði lokuð til kl. 20:30 í minnsta lagi. Lögrgela getur ekki gefið frekari upplýsingar að svo stöddu. Innlent 7.10.2006 19:33
Skilningsleysi gagnvart Sogni Magnús Skúlason, yfirlæknir á réttargæsludeildinni að Sogni sakar stjórnvöld um skilningsleysi á málefnum deildarinnar en í eitt ár hafa átta geðsjúkir afbrotamenn verið þar í vistun þó að einungis séu sjö sjúkrarúm á deildinni. Fyrir viku varð að losa eitt rúm vegna bráðainnlagnar og var þá pláss losað með því að senda vistmann í ótímabundið leyfi. Innlent 7.10.2006 19:01
Fengu ekkert í samningum við Bandaríkjastjórn Íslendingar fengu ekkert í samningum við Bandaríkjastjórn umfram það sem NATO-aðild veitir, að mati Michaels Corgans, prófessors við Boston-háskóla. Hann telur að Bandaríkjamenn hafi komið fram af mikilli óbilgirni í uppgjöri þjóðanna í varnarmálum. Innlent 7.10.2006 18:57
Sala á helmingi Icelandair Fjárfestingahópur með rætur í Sambandsarmi atvinnulífsins verður kjölfestan í nýjum eigendahópi Icelandair. Félagið hefur fengið nafnið Langflug en um helgina er unnið að því að ganga frá sölu til þess og annarra fjárfesta á meirihluta í flugfélaginu og tengdum rekstri. Innlent 7.10.2006 18:54
Sækja mannskap á nýju þyrluna frá Noregi Landhelgisgæslan fékk í dag nýja þyrlu, sem er sömu gerðar og TF-LÍF og er hún leigð frá Noregi. Tveir norskir flugmenn komu með þyrlunni og koma þeir til með að starfa hér á landi næsta árið þar sem Gæsluna skortir þjálfaðan mannskap. Innlent 7.10.2006 18:51