Innlent Milestone gerir 70 milljarða yfirtökutilboð í Invik í Svíþjóð Fjárfestingafélagið Milestone hefur lagt fram 70 milljarða króna yfirtökutilboð í sænska fjármálafyrirtækið Invik og Co. eftir kaup á 26 prósenta hlut í dag sem tryggir Milestone 63 prósent atkvæða í Invik. Stjórn Invik mælir með að hluthafar taki tilboðinu, en þetta er ein stærstu fyrirtækjakaup Íslandssögunnar. Kaupin eru háð blessun fjármálayfirvalda í þremur löndum. Viðskipti innlent 25.4.2007 23:35 Starfsmenn Milestone verða um 900 Gangi áform Milestone eftir um yfirtöku á sænska fjármálafyrirtækinu Invik & Co. verða starfsmenn innan samstæðunnar um 900 talsins. Ríflega helmingur eigna Milestone verður erlendis og vægi tryggingastarfsemi og sérhæfðrar fjármálaþjónustu mun aukast til muna. Heildareignir Milestone verða um 341 milljarður króna. Viðskipti innlent 25.4.2007 23:44 Flest brunaslysin vegna heits vatns á baðherbergjum Nær 75 % brunaslysa vegna heits vatns eiga sér stað inn á baðherbergi. Börnum undir fimm ára aldri er hættast við brunum og hljóta þau alvarlegustu áverkana samkvæmt nýrri rannsókn. Herferð gegn slíkum slysum er nú hafin. Innlent 25.4.2007 19:14 Sjálfkjörið í stjórn Glitnis Framboðsfrestur til setu í stjórn Glitnis banka hf. rann út í dag. Nokkrar breytingar verða á stjórninni, sem er sjálfkjörin, en einungis tveir af fyrrum stjórnarmönnum bankans gáfu kost á sér að nýju eftir sviptingar í hluthafahópi bankans um páskana. Ný stjórn tekur við á hluthafafundi bankans á mánudag í næstu viku. Viðskipti innlent 25.4.2007 16:03 Þrjú fíkniefnamál á höfuðborgarsvæðinu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af þremur fíkniefnamálum í gær. Kona á þrítugsaldri var handtekin í austurborginni þegar hún framvísaði fölsuðum lyfseðli. Kalmaður á fertugsaldri sem tengdist málinu var síðan færður á lögreglustöð. Í íbúð hans fundust ætluð fíkniefni. Innlent 25.4.2007 15:37 Þjóðarbúskapurinn aldrei næmari en nú Íslenskur þjóðarbúskapur hefur aldrei jafn næmur fyrir breytingum á alþjóðlegum mörkuðum og nú. Þetta sést á tengslum á milli gengis íslensku krónunnar, annarra hávaxtagjaldmiðla og erlendrar vaxtaþróunar. Tengslin má rekja til mikils viðskiptahalla,sem erlendir fjárfestar og lánardrottnar fjármagna að nokkru leyti. Þetta kemur fram í riti Seðlabanka Íslands um fjármálastöðugleikann á þessu ári, sem kom út fyrir stundu. Viðskipti innlent 25.4.2007 15:32 Tveir karlmenn í vinnuslysum í Kópavog Tveir karlmenn á þrítugsaldri lentu í vinnuslysum í Kópavogi í gær. Annar var að taka steypumót utan af veggjum þegar hann féll aftur fyrir sig. Fallið var ekki mjög hátt en maðurinn fann fyrir eymslum í baki. Innlent 25.4.2007 15:22 Penninn og Te&kaffi fjárfesta í Lettlandi Penninn og Te&kaffi hafa gengið frá kaupum á Melna Kafija Ltd., leiðandi fyrirtæki á sviði kaffiframleiðslu í Lettlandi og einum stærsta kaffiframleiðanda í Eystrasaltslöndunum. Viðskipti innlent 25.4.2007 14:10 Rannsókn á peningafölsunum langt komin Rannsókn lögreglu á fölsuðu peningaseðlunum sem nú eru í umferð hér á landi er komin vel á veg. Að sögn aðstoðaryfirlögregluþjóns kemst lögregla undantekningarlaust að því hverjir eiga hlut að máli. Innlent 25.4.2007 12:32 Skipulagsbreytingar hjá FL Group FL Group hefur ákveðið að gera breytingar á skipulagi félagsins. Þannig verður starfssvið eigin viðskipta félagsins útvíkkað, heiti þess breytt og mun það eftirleiðis hafa umsjón með skammtíma fjárfestingum á verðbréfamörkuðum um heim allan og stöðutöku félagsins í gjaldeyri. Á sama tíma hafa mannabreytingar orðið í stjórnendastöðu starfssviðsins. Viðskipti innlent 25.4.2007 11:13 Kópavogur skilaði 4,3 milljörðum í rekstrarafgang Kópavogsbær skilaði tæplega 4,3 milljarða króna rekstrarafgangi á síðasta ári. Þetta er tæplega tvöfalt betri afkoma en áætlanir bæjarstjórnar höfðu gert ráð fyrir. Mestu munar umhagnað af sölu byggginarréttar umfram væntingar auk þess sem skatttekjur voru hærri en gert hafði verið ráð fyrir. Hærri lífeyrisskuldbindingar og aðrir fjármagnsliðir vega á móti. Viðskipti innlent 25.4.2007 10:13 Þúsundum fugla fargað á æfingu Tvöþúsund og fimmhundruð fuglum var fargað í fyrstu viðbragðsæfingu Landbúnaðarstofnunar vegna fuglaflensu, í gær. Fuglarnir voru í fuglabúinu að Miklaholtshelli. Innlent 25.4.2007 06:41 Samið við Dani og Norðmenn, enn rætt við Breta og Kanadamenn Samningar um samstarf Íslendinga við Dani og Norðmenn í varnar- og öryggismálum á friðartímum verða undirritaðir á fimmtudaginn á NATO fundi í Ósló. Ekki fæst gefið upp hvað felst í þeim fyrr en eftir undirritun. Utanríkisráðherra segir Breta og Kanadamenn einnig áhugasama um samstarf en einhverjar vikur eða mánuði taki að ljúka samningum við þá. Innlent 24.4.2007 18:28 Lygi að matarskortur sé á Kárahnjúkum Verkamennirnir fjörutíu á Kárahnjúkum sem fengu magakveisu fyrir helgi hafa náð sér, segir Ómar R. Valdimarsson, talsmaður Impregilos. Hann segir ummæli fyrrum starfsmanns um að mennirnir hafi unnið tólf tíma samfleytt neðanjarðar án matar eða drykkjar í besta falli ósönn en í versta falli hreinar lygar. Innlent 24.4.2007 18:16 Hjóluðu 172 hringi í kringum landið Fyrirtækjakeppnin „Hjólað í vinnuna“ fer fram um land allt dagana 2.-22. maí. Þetta er fimmta árið sem hvatningarverkefnið fer fram, en þáttakan hefur tífaldast á tímabilinu. Í fyrra voru farnir rúmlega 230 þúsund kílómetrar. Það samsvarar 172 hringjum í kringum landið eða tæplega sex hringjum í kringum hnöttinn. Innlent 24.4.2007 16:40 Norðurlönd efst í samkeppnisfærni Innlent 24.4.2007 16:29 Dagur umhverfisins - hrein orka og loftslagsmál Dagur umhverfisins verður haldinn hátíðlegur í níunda sinn á morgun. Að þessu sinni er hann tileinkaður hreinni orku og loftslagsmálum. Í tilefni dagsins verður samkoma á Kjarvalsstöðum í hádeginu. Þar verða meðal annars veittar viðukenningar í verkefnasamkeppni grunnskólanna, Varðliðum umhverfisins. Innlent 24.4.2007 15:40 Vinnueftirlitið lokaði aðrennslisgöngum Kárahnjúka Vinnueftirlitið hefur stöðvað vinnu í aðrennslisgöngum Kárahnjúkavirkjunar vegna loftmengunar í göngunum, og hefur þeim verið lokað. Í tvígang í síðustu viku komu menn úr göngunum með veruleg eitrunareinkenni vegna eiturefna í loftinu; fjórir menn í hvort skipti. Vegna ólofts glíma menn við andþyngsli og asma. Innlent 24.4.2007 15:36 Nærri tvöfalt meiri hagnaður hjá Nýherja Nýherji skilaði 105 milljóna króna hagnaði á fyrsta fjórðungi þessa árs. Á sama tíma í fyrra nam hagnaður fyrirtækisins 54,3 milljónum króna. Tekjur fyrirtækisins voru umfram áætlanir. Vöxtur var mikill í sölu á netþjónum undir merkjum IBM, hugbúnaði, símkerfum og vörum frá Canon og fartölvum Lenovo, sem keypti fartölvuframleiðslu IBM árið 2004. Viðskipti innlent 24.4.2007 15:00 FME setur tryggingasölumönnum skýrar reglur Fjármálaeftirlitið hefur sent frá sér umræðuskjal með drögum að leiðbeinandi tilmælum um starfshætti vátryggingasölumanna, vátryggingamiðlara, vátryggingaumboðsmanna og vátryggingafélaga. Tilmælin eru til að tryggja ýmsar skyldur tryggingasölumanna. Þar á meðal til að koma í veg fyrir að tryggingasölumenn fari með ónákvæmar upplýsingar og setji fram ósanngjarnar fullyrðingar í garð annarra vátryggingaaðila. Viðskipti innlent 24.4.2007 14:50 Amtsbókasafnið á Akureyri 180 ára Amtsbókasafnið á Akureyri er 180 ára á morgun. Í tilefni þess verður boðið upp á ýmislegt góðgæti, útlán verða frí auk þess sem morgundagurinn verður sektarlaus dagur. Amtbókasafnið var stofnað árið 1827 af Grími Jónssyni amtmanni á Möðruvöllum. Hann fékk dyggan stuðning frá ýmsum aðilum bæði hérlendis og í Danmörku. Innlent 24.4.2007 14:28 Pétur Pétursson þulur látinn Pétur Pétursson fyrrverandi þulur á Ríkisútvarpinu lést í gær. Hann varð 88 ára. Hann hóf störf sem þulur hjá Útvarpinu árið 1941 og starfaði þar samfleytt til ársins 1955. Eftir 15 ára hlé hóf hann aftur störf hjá RUV og starfaði þar meðan aldur leyfði. Á fréttavef RUV kemur fram að Pétur hafi stundað nám í Svíþjóð og á Bretlandi á fjórða áratugnum. Innlent 24.4.2007 13:38 Metafkoma hjá OMX Kauphallarsamstæðan OMX, sem rekur kauphallir víða á Norðurlöndunum, meðal annars hér, og í Eystrasaltslöndunum, skilaði hagnaði upp á 257 milljónir sænskra króna, jafnvirði 2,4 milljarða íslenskra króna, eftir skatta og gjöld á fyrstu þremur mánuðum ársins. Rekstrarhagnaður samstæðunnar á fyrsta árfjórðungi hefur aldrei verið betri í sögu OMX. Viðskipti erlent 24.4.2007 12:47 Einmana börn frekar fórnarlömb kynferðisbrota Á síðustu fimmtán mánuðunum hefur tuttugu og eitt kynferðisbrotamál verið kært þar sem gerandi komst í kynni við fórnarlambið í gegnum netið. Sérfræðingur Barnahúss telur einmana börn frekar verða fórnarlömb í slíkum málum þar sem þau hafi oft lága sjálfsmynd og eigi erfitt með að segja nei. Einmana börn voru umræðuefnið á morgunverðarfundi á Grand hóteli í morgun. Innlent 24.4.2007 11:30 Háhýsi í stað gömlu húsanna í miðbænum Lítið lát er á hugmyndum landsmanna um húsakost við Lækjartorg og sýnist sitt hverjum hvort varðveita eigi gömlu húsin á horni Lækjargötu og Austurstrætis eða byggja þar ný hús. Arkitektar og skipulagsfræðingar kasta nú á milli sín margskonar hugmyndum í þessu efni. Þær byggja meðal annars á hugmyndum Hrafns Gunnlaugssonar um stórhýsi á grunnum brunarústanna við Lækjartorg. Innlent 24.4.2007 11:06 Of mikil skerðing á þjónustu Strætós Fulltrúar minnihluta borgarstjórnar telja að skerðing á þjónustu Strætós næstkomandi sumar muni leiða til fækkunar farþega. Til stendur að lengja tíma milli ferða upp í 30 mínútur. Breytingarnar taka gildi 1. júní næstkomandi. Fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna eru alfarið á móti breytingunum og telja of langt gengið. Innlent 24.4.2007 10:48 Fækka þarf apótekum um þriðjung Fækka þarf apótekum á Íslandi um þriðjung til að lækka lyfjaverð, segir formaður Lyfjagreiðslunefndar. Lyf á Íslandi eru sextíu prósentum dýrari en lyf að meðaltali á Evrópska efnahagssvæðinu. Þetta kemur fram í nýútkominni könnun Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. Innlent 23.4.2007 18:57 Varnarsamkomulag mögulega í höfn Líklegt má telja að samkomulag um varnarsamstarf Íslands og Noregs á Norður-Atlantshafi takist á fundi Atlantshafsbandalagsþjóða sem haldinn verður í Ósló í Noregi í lok vikunnar. Þá munu Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, og Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, eiga tvíhliða fund. Innlent 23.4.2007 18:56 Vilja stýrimannanám til Vestmannaeyja Elliði Vignisson bæjarstjóri Vestmannaeyja vill hefja stýrimannanám í Vestmannaeyjum. Þannig yrði samstarf milli Fjöltækniskólans í Reykjavík og Framhaldsskóla Vestmannaeyja, en námið yrði hluti af stúdentsprófi. Nú er einungis hægt að sækja skipstjórnarnám í Fjöltækniskólanum í Reykjavík. Elliði segir að það hafi orðið til þess að stöðugt hafi dregið úr aðsókn í námið. Innlent 23.4.2007 15:20 Fer gaumgæfilega yfir húsnæðismál ríkisins Árni Mathiesen fjármálaráðherra segir skýrslu Viðskiptaráðs Íslands um hagkvæmni af sölu á fasteignum ríkisins afar athyglisverða. Hann segir að farið verið gaumgæfilega yfir niðurstöður skýrslunnar. Breytingar verði þó ekki gerðar á skömmum tíma eða umhugsunarlaust. Auk þess myndu þær kalla á breytingar á fjárlögum. Innlent 23.4.2007 12:18 « ‹ 87 88 89 90 91 92 93 94 95 … 334 ›
Milestone gerir 70 milljarða yfirtökutilboð í Invik í Svíþjóð Fjárfestingafélagið Milestone hefur lagt fram 70 milljarða króna yfirtökutilboð í sænska fjármálafyrirtækið Invik og Co. eftir kaup á 26 prósenta hlut í dag sem tryggir Milestone 63 prósent atkvæða í Invik. Stjórn Invik mælir með að hluthafar taki tilboðinu, en þetta er ein stærstu fyrirtækjakaup Íslandssögunnar. Kaupin eru háð blessun fjármálayfirvalda í þremur löndum. Viðskipti innlent 25.4.2007 23:35
Starfsmenn Milestone verða um 900 Gangi áform Milestone eftir um yfirtöku á sænska fjármálafyrirtækinu Invik & Co. verða starfsmenn innan samstæðunnar um 900 talsins. Ríflega helmingur eigna Milestone verður erlendis og vægi tryggingastarfsemi og sérhæfðrar fjármálaþjónustu mun aukast til muna. Heildareignir Milestone verða um 341 milljarður króna. Viðskipti innlent 25.4.2007 23:44
Flest brunaslysin vegna heits vatns á baðherbergjum Nær 75 % brunaslysa vegna heits vatns eiga sér stað inn á baðherbergi. Börnum undir fimm ára aldri er hættast við brunum og hljóta þau alvarlegustu áverkana samkvæmt nýrri rannsókn. Herferð gegn slíkum slysum er nú hafin. Innlent 25.4.2007 19:14
Sjálfkjörið í stjórn Glitnis Framboðsfrestur til setu í stjórn Glitnis banka hf. rann út í dag. Nokkrar breytingar verða á stjórninni, sem er sjálfkjörin, en einungis tveir af fyrrum stjórnarmönnum bankans gáfu kost á sér að nýju eftir sviptingar í hluthafahópi bankans um páskana. Ný stjórn tekur við á hluthafafundi bankans á mánudag í næstu viku. Viðskipti innlent 25.4.2007 16:03
Þrjú fíkniefnamál á höfuðborgarsvæðinu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af þremur fíkniefnamálum í gær. Kona á þrítugsaldri var handtekin í austurborginni þegar hún framvísaði fölsuðum lyfseðli. Kalmaður á fertugsaldri sem tengdist málinu var síðan færður á lögreglustöð. Í íbúð hans fundust ætluð fíkniefni. Innlent 25.4.2007 15:37
Þjóðarbúskapurinn aldrei næmari en nú Íslenskur þjóðarbúskapur hefur aldrei jafn næmur fyrir breytingum á alþjóðlegum mörkuðum og nú. Þetta sést á tengslum á milli gengis íslensku krónunnar, annarra hávaxtagjaldmiðla og erlendrar vaxtaþróunar. Tengslin má rekja til mikils viðskiptahalla,sem erlendir fjárfestar og lánardrottnar fjármagna að nokkru leyti. Þetta kemur fram í riti Seðlabanka Íslands um fjármálastöðugleikann á þessu ári, sem kom út fyrir stundu. Viðskipti innlent 25.4.2007 15:32
Tveir karlmenn í vinnuslysum í Kópavog Tveir karlmenn á þrítugsaldri lentu í vinnuslysum í Kópavogi í gær. Annar var að taka steypumót utan af veggjum þegar hann féll aftur fyrir sig. Fallið var ekki mjög hátt en maðurinn fann fyrir eymslum í baki. Innlent 25.4.2007 15:22
Penninn og Te&kaffi fjárfesta í Lettlandi Penninn og Te&kaffi hafa gengið frá kaupum á Melna Kafija Ltd., leiðandi fyrirtæki á sviði kaffiframleiðslu í Lettlandi og einum stærsta kaffiframleiðanda í Eystrasaltslöndunum. Viðskipti innlent 25.4.2007 14:10
Rannsókn á peningafölsunum langt komin Rannsókn lögreglu á fölsuðu peningaseðlunum sem nú eru í umferð hér á landi er komin vel á veg. Að sögn aðstoðaryfirlögregluþjóns kemst lögregla undantekningarlaust að því hverjir eiga hlut að máli. Innlent 25.4.2007 12:32
Skipulagsbreytingar hjá FL Group FL Group hefur ákveðið að gera breytingar á skipulagi félagsins. Þannig verður starfssvið eigin viðskipta félagsins útvíkkað, heiti þess breytt og mun það eftirleiðis hafa umsjón með skammtíma fjárfestingum á verðbréfamörkuðum um heim allan og stöðutöku félagsins í gjaldeyri. Á sama tíma hafa mannabreytingar orðið í stjórnendastöðu starfssviðsins. Viðskipti innlent 25.4.2007 11:13
Kópavogur skilaði 4,3 milljörðum í rekstrarafgang Kópavogsbær skilaði tæplega 4,3 milljarða króna rekstrarafgangi á síðasta ári. Þetta er tæplega tvöfalt betri afkoma en áætlanir bæjarstjórnar höfðu gert ráð fyrir. Mestu munar umhagnað af sölu byggginarréttar umfram væntingar auk þess sem skatttekjur voru hærri en gert hafði verið ráð fyrir. Hærri lífeyrisskuldbindingar og aðrir fjármagnsliðir vega á móti. Viðskipti innlent 25.4.2007 10:13
Þúsundum fugla fargað á æfingu Tvöþúsund og fimmhundruð fuglum var fargað í fyrstu viðbragðsæfingu Landbúnaðarstofnunar vegna fuglaflensu, í gær. Fuglarnir voru í fuglabúinu að Miklaholtshelli. Innlent 25.4.2007 06:41
Samið við Dani og Norðmenn, enn rætt við Breta og Kanadamenn Samningar um samstarf Íslendinga við Dani og Norðmenn í varnar- og öryggismálum á friðartímum verða undirritaðir á fimmtudaginn á NATO fundi í Ósló. Ekki fæst gefið upp hvað felst í þeim fyrr en eftir undirritun. Utanríkisráðherra segir Breta og Kanadamenn einnig áhugasama um samstarf en einhverjar vikur eða mánuði taki að ljúka samningum við þá. Innlent 24.4.2007 18:28
Lygi að matarskortur sé á Kárahnjúkum Verkamennirnir fjörutíu á Kárahnjúkum sem fengu magakveisu fyrir helgi hafa náð sér, segir Ómar R. Valdimarsson, talsmaður Impregilos. Hann segir ummæli fyrrum starfsmanns um að mennirnir hafi unnið tólf tíma samfleytt neðanjarðar án matar eða drykkjar í besta falli ósönn en í versta falli hreinar lygar. Innlent 24.4.2007 18:16
Hjóluðu 172 hringi í kringum landið Fyrirtækjakeppnin „Hjólað í vinnuna“ fer fram um land allt dagana 2.-22. maí. Þetta er fimmta árið sem hvatningarverkefnið fer fram, en þáttakan hefur tífaldast á tímabilinu. Í fyrra voru farnir rúmlega 230 þúsund kílómetrar. Það samsvarar 172 hringjum í kringum landið eða tæplega sex hringjum í kringum hnöttinn. Innlent 24.4.2007 16:40
Dagur umhverfisins - hrein orka og loftslagsmál Dagur umhverfisins verður haldinn hátíðlegur í níunda sinn á morgun. Að þessu sinni er hann tileinkaður hreinni orku og loftslagsmálum. Í tilefni dagsins verður samkoma á Kjarvalsstöðum í hádeginu. Þar verða meðal annars veittar viðukenningar í verkefnasamkeppni grunnskólanna, Varðliðum umhverfisins. Innlent 24.4.2007 15:40
Vinnueftirlitið lokaði aðrennslisgöngum Kárahnjúka Vinnueftirlitið hefur stöðvað vinnu í aðrennslisgöngum Kárahnjúkavirkjunar vegna loftmengunar í göngunum, og hefur þeim verið lokað. Í tvígang í síðustu viku komu menn úr göngunum með veruleg eitrunareinkenni vegna eiturefna í loftinu; fjórir menn í hvort skipti. Vegna ólofts glíma menn við andþyngsli og asma. Innlent 24.4.2007 15:36
Nærri tvöfalt meiri hagnaður hjá Nýherja Nýherji skilaði 105 milljóna króna hagnaði á fyrsta fjórðungi þessa árs. Á sama tíma í fyrra nam hagnaður fyrirtækisins 54,3 milljónum króna. Tekjur fyrirtækisins voru umfram áætlanir. Vöxtur var mikill í sölu á netþjónum undir merkjum IBM, hugbúnaði, símkerfum og vörum frá Canon og fartölvum Lenovo, sem keypti fartölvuframleiðslu IBM árið 2004. Viðskipti innlent 24.4.2007 15:00
FME setur tryggingasölumönnum skýrar reglur Fjármálaeftirlitið hefur sent frá sér umræðuskjal með drögum að leiðbeinandi tilmælum um starfshætti vátryggingasölumanna, vátryggingamiðlara, vátryggingaumboðsmanna og vátryggingafélaga. Tilmælin eru til að tryggja ýmsar skyldur tryggingasölumanna. Þar á meðal til að koma í veg fyrir að tryggingasölumenn fari með ónákvæmar upplýsingar og setji fram ósanngjarnar fullyrðingar í garð annarra vátryggingaaðila. Viðskipti innlent 24.4.2007 14:50
Amtsbókasafnið á Akureyri 180 ára Amtsbókasafnið á Akureyri er 180 ára á morgun. Í tilefni þess verður boðið upp á ýmislegt góðgæti, útlán verða frí auk þess sem morgundagurinn verður sektarlaus dagur. Amtbókasafnið var stofnað árið 1827 af Grími Jónssyni amtmanni á Möðruvöllum. Hann fékk dyggan stuðning frá ýmsum aðilum bæði hérlendis og í Danmörku. Innlent 24.4.2007 14:28
Pétur Pétursson þulur látinn Pétur Pétursson fyrrverandi þulur á Ríkisútvarpinu lést í gær. Hann varð 88 ára. Hann hóf störf sem þulur hjá Útvarpinu árið 1941 og starfaði þar samfleytt til ársins 1955. Eftir 15 ára hlé hóf hann aftur störf hjá RUV og starfaði þar meðan aldur leyfði. Á fréttavef RUV kemur fram að Pétur hafi stundað nám í Svíþjóð og á Bretlandi á fjórða áratugnum. Innlent 24.4.2007 13:38
Metafkoma hjá OMX Kauphallarsamstæðan OMX, sem rekur kauphallir víða á Norðurlöndunum, meðal annars hér, og í Eystrasaltslöndunum, skilaði hagnaði upp á 257 milljónir sænskra króna, jafnvirði 2,4 milljarða íslenskra króna, eftir skatta og gjöld á fyrstu þremur mánuðum ársins. Rekstrarhagnaður samstæðunnar á fyrsta árfjórðungi hefur aldrei verið betri í sögu OMX. Viðskipti erlent 24.4.2007 12:47
Einmana börn frekar fórnarlömb kynferðisbrota Á síðustu fimmtán mánuðunum hefur tuttugu og eitt kynferðisbrotamál verið kært þar sem gerandi komst í kynni við fórnarlambið í gegnum netið. Sérfræðingur Barnahúss telur einmana börn frekar verða fórnarlömb í slíkum málum þar sem þau hafi oft lága sjálfsmynd og eigi erfitt með að segja nei. Einmana börn voru umræðuefnið á morgunverðarfundi á Grand hóteli í morgun. Innlent 24.4.2007 11:30
Háhýsi í stað gömlu húsanna í miðbænum Lítið lát er á hugmyndum landsmanna um húsakost við Lækjartorg og sýnist sitt hverjum hvort varðveita eigi gömlu húsin á horni Lækjargötu og Austurstrætis eða byggja þar ný hús. Arkitektar og skipulagsfræðingar kasta nú á milli sín margskonar hugmyndum í þessu efni. Þær byggja meðal annars á hugmyndum Hrafns Gunnlaugssonar um stórhýsi á grunnum brunarústanna við Lækjartorg. Innlent 24.4.2007 11:06
Of mikil skerðing á þjónustu Strætós Fulltrúar minnihluta borgarstjórnar telja að skerðing á þjónustu Strætós næstkomandi sumar muni leiða til fækkunar farþega. Til stendur að lengja tíma milli ferða upp í 30 mínútur. Breytingarnar taka gildi 1. júní næstkomandi. Fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna eru alfarið á móti breytingunum og telja of langt gengið. Innlent 24.4.2007 10:48
Fækka þarf apótekum um þriðjung Fækka þarf apótekum á Íslandi um þriðjung til að lækka lyfjaverð, segir formaður Lyfjagreiðslunefndar. Lyf á Íslandi eru sextíu prósentum dýrari en lyf að meðaltali á Evrópska efnahagssvæðinu. Þetta kemur fram í nýútkominni könnun Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. Innlent 23.4.2007 18:57
Varnarsamkomulag mögulega í höfn Líklegt má telja að samkomulag um varnarsamstarf Íslands og Noregs á Norður-Atlantshafi takist á fundi Atlantshafsbandalagsþjóða sem haldinn verður í Ósló í Noregi í lok vikunnar. Þá munu Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, og Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, eiga tvíhliða fund. Innlent 23.4.2007 18:56
Vilja stýrimannanám til Vestmannaeyja Elliði Vignisson bæjarstjóri Vestmannaeyja vill hefja stýrimannanám í Vestmannaeyjum. Þannig yrði samstarf milli Fjöltækniskólans í Reykjavík og Framhaldsskóla Vestmannaeyja, en námið yrði hluti af stúdentsprófi. Nú er einungis hægt að sækja skipstjórnarnám í Fjöltækniskólanum í Reykjavík. Elliði segir að það hafi orðið til þess að stöðugt hafi dregið úr aðsókn í námið. Innlent 23.4.2007 15:20
Fer gaumgæfilega yfir húsnæðismál ríkisins Árni Mathiesen fjármálaráðherra segir skýrslu Viðskiptaráðs Íslands um hagkvæmni af sölu á fasteignum ríkisins afar athyglisverða. Hann segir að farið verið gaumgæfilega yfir niðurstöður skýrslunnar. Breytingar verði þó ekki gerðar á skömmum tíma eða umhugsunarlaust. Auk þess myndu þær kalla á breytingar á fjárlögum. Innlent 23.4.2007 12:18