
Amfetamínframleiðsla í Borgarfirði

Játaði að hafa logið til að taka skellinn í héraðsdómi
Rúmlega fertugur karlmaður hefur verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir rangan framburð fyrir dómi í umfangsmiklu fíkniefnamáli árið 2019. Með því reyndi hann að taka á sig sök í málinu.

Talinn hafa logið fíkniefnaframleiðslu í Borgarnesi upp á sjálfan sig
Karlmaður á fimmtugsaldri sem bar vitni í umfangsmiklu fíkniefnamáli árið 2019, sem varðaði meðal annars framleiðslu á amfetamíni, og tók á sig alla sök, hefur verið ákærður fyrir að bera ljúgvitni.

Fær bætur vegna einangrunar í máli tengdu amfetamínframleiðslu
Íslenska ríkið hefur verið dæmt til að greiða Einari Jökli Einarssyni, sem var sakfelldur fyrir framleiðslu á amfetamíni í Borgarfirði, 750 þúsund krónur í miskabætur vegna gæsluvarðhalds sem hann sætti í tengslum við rannsókn á öðru fíknefnamáli. Hann hafði farið fram á 3,4 milljónir króna í bætur.

Ósvöruð spurning um njósnastað ekki nóg fyrir Hæstarétt
Hæstiréttur hefur hafnað áfrýjunarbeiðni Alvars Óskarssonar í stóru fíkniefnamáli sem hann hlaut sex ára fangelsisdóm fyrir. Alvar hlaut sex ára fangelsisdóm í Landsrétti sem stytti dóm hans úr héraði um eitt ár.

Amfetamínframleiðsla í Borgarfirði: Dómar yfir Alvari, Einari og Margeiri mildaðir
Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Alvari Óskarssyni, Einari Jökli Einarssyni og Margeiri Pétri Jóhannssyni var í dag mildaður af landsrétti en þremenningarnir voru dæmdir fyrir framleiðslu á átta kílóum af amfetamíni í sumarbústað í Borgarfirði.

Mótmæltu gæsluvarðhaldskröfu með vísan í faraldurinn
Þrír karlmenn sem hlutu þunga fangelsisdóma fyrir amfetamínframleiðslu í Borgarfirði vísuðu til kórónuveirufaraldursins þegar þeir mótmælu kröfu saksóknara um að þær sæti gæsluvarðhaldi á meðan þeir bíða þess að áfrýjun þeirra verði tekin fyrir. Landsréttur staðfesti gæsluvarðhald yfir þeim öllum.

Einn hinna handteknu hlotið tvo þunga dóma fyrir fíkniefnabrot
Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er Einar Einarsson, sem hefur í tvígang fengið þunga dóma fyrir fíkniefnabrot, er á meðal þeirra sex manna sem Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í gæsluvarðhald á sunnudaginn.

Amfetamínframleiðsla í Borgarfirði: Vitnið sem tók á sig sök gat ekki lýst framleiðsluferli amfetamíns
Sakborningar í umfangsmiklu amfetamínsmáli fengu í dag þunga dóma fyrir aðild þeirra að málinu en dómur féll í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrr í dag. Mennirnir þrír voru dæmdir fyrir framleiðslu á átta kílóum af amfetamíni í sumarbústað í Borgarfirði.

Þungir dómar vegna amfetamínframleiðslu í Borgarfirði
Sakborningar í umfangsmiklu amfetamínsmáli fengu þunga dóma fyrir aðild þeirra að málinu þegar dómur var kvaðinn upp í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur nú fyrir stundu.

Krefst sex til átta ára fangelsisdóms yfir Alvari og Einari
Saksóknari í umfangsmiklu amfetamínsmáli krefst sex til átta ára fangelsis yfir Alvari Óskarssyni, Einari Jökuli Einarssyni og Margeiri Pétri Jóhannssyni sem sæta ákæru fyrir amfetamínsframleiðslu í sumarbústaði í Borgarfirði.

Engin vettvangsferð að svo stöddu
Dómari í máli sem varðar stórfellda amfetamínframleiðslu sér að svo stöddu ekki ástæðu til þess að farið verði í vettvangsferð í sumarbústaðabyggð í Borgarfirði. Þrír eru ákærðir fyrir framleiðslu á rúmum átta kílóum af amfetamíni í sumarbústaðinum.

Krefjast vettvangsferðar í bústaðinn í Borgarfirði þar sem amfetamín var framleitt
Verjendur gerðu þá kröfu til að betri skilningur fáist á aðstæðum þar.

Óvæntar vendingar í máli Pólstjörnumanna minna á mál Franklíns Steiner
Vinur Franklíns var dæmdur fyrir að hafa borið rangt fyrir dómi.

Vinur Pólstjörnumanna tekur á sig alla sök og segist plagaður af samviskubiti
Þremenningarnir sem ákærðir eru fyrir amfetamínframleiðslu í Borgarfirði neituðu allir sök við aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur. Íslendingur, sem sendi lögreglu, saksóknara og verjendum bréf þar sem hann lýsti yfir ábyrgð á amfetamínframleiðslunni, hélt frásögn sinni til streitu við aðalmeðferð málsins og segist plagaður af samviskubiti.

Sakborningar skulu víkja úr sal í amfetamínsmálinu
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á kröfu saksóknara í umfangsmiklu fíkniefnamáli þess efnis að sakborningar gæfu skýrslu hver fyrir sig við aðalmeðferð málsins. Úrskurður þess efnis var kveðinn upp í morgun. Saksóknari gerði kröfuna til að koma í veg fyrir að ákærðu gætu samræmt frásögn sína.

Steig óvænt fram og lýsti ábyrgð á allri amfetamínframleiðslunni í Borgarfirði
Karlmaður nokkur hefur stigið fram og lýst yfir ábyrgð á amfetamínframleiðslu í sumarbústað í Borgarfirði. Um er að ræða umfangsmikið mál sem komið er til kasta dómstóla.

Ræktendurnir í Þykkvabæ fengu skilorðsbundna dóma
Tveir karlmenn og ein kona fengu skilorðsbundna dóma í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir aðild að kannabisræktun við bóndabæ nærri Þykkvabæ.

Fá ekki aðgang að dagbókarfærslum lögreglu í stóra amfetamínmálinu
Landsréttur hefur hafnað kröfum þess efnis að ákæruvaldið þurfi að afhenda dagbókarfærslur lögreglu og afrit af hlustunum í umfangsmiklu fíkniefnamáli þar sem þrír menn sæta ákæru fyrir framleiðslu á rúmum átta kílóum af amfetamíni í sumarbústað í Borgarfirði.

Huldu andlit sín við þingfestingu í stóra amfetamínmálinu
Verjandi gagnrýndi ákæruvaldið harðlega fyrir að skipta málinu upp í tvo anga.

Kitchenaid-hræra og kaffipokar notuð við framleiðslu amfetamíns í bústaðnum í Borgarfirði
Þess er krafist að fjöldi tækja og tóla til fíkniefnaframleiðslu verði gerður upptækur í tengslum við umfangsmikið fíkniefnamál sem þingfest verður í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun.

Sakaðir um að framleiða átta og hálft kíló af amfetamíni í sumarbústað í Borgarfirði
Einnig grunaðir um að rækta 200 kannabisplöntur í útihúsi við bæ á Suðurlandi.

Tveir hinna dæmdu í Pólstjörnumáli sagðir grunaðir í nýju fíkniefnamáli
Tveir af þeim fjórum sem nýlega voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn lögreglu á skipulagðri glæpastarfsemi, hlutu dóma í Pólstjörnumálinu svokallaða fyrir rúmum áratug.