Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024)

„Þetta eru ákveðin varnarviðbrögð við stöðunni“
Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins fagnar áformum stjórnvalda um frekari efnahagsaðgerðir.

„Þetta reynir allt mjög á þolrifin“
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segir vonbrigði að þurfa að standa í þeim sporum að tilkynna hertar aðgerðir.

„Réttindi barnanna eru fótum troðin í þessu fordæmalausa máli“
Hjónum frá Sénegal sem eiga þriggja og sex ára stelpur sem fæddust hér á landi verður að óbreyttu vísað úr landi. Þau hafa án árangurs barist fyrir dvalarleyfi hér af mannúðarástæðum eða fyrir alþjóðlegri vernd í sex ár. Lögmaður þeirra segir málið án fordæma.

Ríkisstjórnin kynnir frekari efnahagsaðgerðir til sögunnar
Ríkisstjórnin hefur samþykkt að grípa til frekari efnahagsaðgerða vegna kórónuveirufaraldursins.

Útilokar ekki harðari aðgerðir til að bjarga jólunum
Katrín boðar jafnframt frekar efnahagsaðgerðir af hálfu ríkisstjórnarinnar til að koma til móts við þá sem farið hafa illa úti úr faraldrinum.

Skólar verða opnir en með takmörkunum
Menntarmálaráðherra segir að skólar verði áfram opnir en með takmörkunum eftir að sóttvarnareglur vegna kórónuveirufaraldursins verða hertar á miðnætti. Takmarkanir á skólastarfi verða kynntar um helgina og taka gildi í næstu viku.

Kakan er lygi
Öryrkjabandalag Íslands gaf út myndband þann 11. október síðastliðinn þar sem kaka fjármálaráðherra var útskýrð frá sjónarhorni öryrkja. Skilaboðin voru einföld, það fá ekki allir að njóta.

Einhugur í ríkisstjórn um aðgerðirnar
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir að einhugur sé að baki heilbrigðisráðherra um aðgerðir vegna kórónuveirunnar. Þetta sagði hann í viðtali í beinni útsendingu fyrir utan Ráðherrabústaðinn fyrir stundu.

Tekjur námsmanna í bakvarðarsveitum koma ekki til frádráttar
Menntamálaráðherra hefur ákveðið að námsmenn á námslánum sem starfa í bakvarðarsveitum geti óskað eftir því að tekjur á þeim vettvangi komi ekki til frádráttar við útreikning á framfærslu þeirra.

Blaðamannafundurinn verður klukkan 13
Aðgerðir heilbrigðisráðherra verða kynntar á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar með fulltrúum þríeykisins klukkan 13 í Silfurbergi í Hörpu.

Blaðamannafundur í dag með ráðherrum og þríeykinu
Ríkisstjórnin fundar nú í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu þar sem minnisblað Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis er á dagskrá.

Ríkisstjórnin ræðir minnisblað Þórólfs
Ríkisstjórnin kemur saman í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu klukkan 9:30 í dag til fundar. Á dagskrá er meðal annars minnisblað Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis sem skilaði tillögum sínum að hertum aðgerðum til Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra síðdegis í gær.

Sveitarfélög og verktakar þurfi að draga úr álagningu
Ekki kemur til greina að heimila kaup á eldri íbúðum á höfuðborgarsvæðinu með hlutdeildarlánum að sögn félagsmálaráðherra. Sveitarfélög og verktakar þurfi að draga úr álagningu til að byggja megi hagkvæmar íbúðir.

Minnisblaðið fór til ráðherra síðdegis
Þórólfur Guðnason hefur sent Svandísi Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra minnisblað sitt varðandi áframhaldandi aðgerðir innanlands.

Sífellt fleiri sveitarfélög segja sig frá rekstri hjúkrunarheimila
Fjögur sveitarfélög hafa sagt upp samningum sínum við ríkið og það fimmta íhugar það vegna óánægju með framlög til starfseminnar. Heilbrigðisráðherra sem hefur verið gagnrýnd fyrir að svelta einkarekin hjúkrunaheimili, vísar því á bug.

Milljón á mánuði lágmark en 1,3 milljónir ef maki kemur með
Ríkisstjórnin hefur hrint af stað markaðsátaki og ætlar að heimila tekjuháum einstaklingum utan Evrópska efnahagssvæðisins að stunda vinnu sína hjá erlendum fyrirtækjum hér á landi í fjarvinnu í allt að sex mánuði.

„Þetta sem gerðist á Landakoti er auðvitað grafalvarlegt“
Heilbrigðisráðherra segir áhrif hópsmits á Landakoti grafalvarleg og treystir því að spítalinn fari í saumana á allri atburðarásinni. Næstum hundrað og tuttugu manns hafa smitast í hópsýkingunni þar.

Sér fram á hertar aðgerðir og boðar skýrar reglur
Svandís Svavarsdóttir heilbirgðisráðherra segist hafa verið í sambandi við sóttvarnalækni bæði í gær og í dag vegna fjölgunar smita í samfélaginu.

Allt að 3,5 milljarðar í tekjufallsstyrki til ferðaþjónustunnar
Áætlað er að tekjufallsstyrkir vegna kórónuveirufaraldursins til minni ferðaþjónustufyrirtækja, leiðsögumanna og fleiri geti numið um 3,5 milljörðum króna.

Bjarni segir að útgjöld til velferðarmála hafi aukist en ekki verið skert
Fjármálaráðherra segir að útgjöld til velferðarmála hafi snar aukist hér á landi og að nú fari um fjórðungur allra skatttekna og tryggingagjalda til almannatrygginga, sem sé tvöföldun frá árinu 2013.

Leyfa erlendum sérfræðingum að dvelja á Íslandi í hálft ár
Ráðherrar hafa kynnt aðgerðir til að gera fólki utan EES kleift að vinna fjarvinnu á Íslandi í allt að sex mánuði. Nýsköpunarráðherra vonar að þetta muni örva nýsköpun á Íslandi.

Bein útsending: Katrín og Guterres fjalla um faraldurinn
Antonio Guterres, aðalritari Sameinuðu þjóðanna og Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, eru meðal þeirra sem taka þátt opnum fundi um kórónuveirufaraldurinn.

Hefur áhyggjur af nýjum þungunarrofslögum
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur lýst yfir áhyggjum af nýjum þungunarrofslögum í Póllandi, sem takmarka mjög rétt kvenna þar í landi til þungunarrofs.

Telur allt í eðilegu ferli varðandi sýkinguna á Landakoti
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir forgangsmál að ná utan um hópsýkinguna sem kom upp á Landakoti.

Kristján Þór heitir stuðningi við bændur í riðubaráttunni
Ríkið mun greiða bændum, sem skera þurfa niður fé sitt vegna riðuveiki í Skagafirði, bætur og kostnað vegna riðunnar.

Ætlar að færa eftirlit með pósti á Sauðárkrók
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitastjórnarráðherra, hefur í hyggju að Byggðastofnun taki yfir póstmál, hlutverk sem Póst- og fjarskiptastofnun hefur haft með að gera hingað til.

Telur ríkisstjórnina ætla að keyra öldrunarheimilin í þrot
Forstjóri Grundarheimilanna, dvalar- og hjúkrunarheimila fyrir aldraða, segir ríkisstjórnina viljandi svelta öldrunarheimilin með það að markmiði að rekstrinum verði skilað til ríkisins. Ríkisstjórnin geri allt hvað hún geti til að keyra öldrunarheimilin í þrot.

Kynþáttafordómar séu ekki ríkjandi innan lögreglunnar en fánamálinu verði fylgt eftir
Dómsmálaráðherra segir að haturstákn séu ekki liðin innan lögreglunnar. Fánamálinu svokallaða verði fylgt eftir með aukinni fræðslu eða menntun lögreglumanna.

Fjármálaráðherra vill skoða breytingar á fjármálum sveitarfélaga
Fjármálaráðherra sagði í umræðum um fjárhagsstöðu sveitarfélaganna á Alþingi í morgun að hlutur þeirra af útgjöldum hins opinbera væri mun lægra en á hinum Norðurlöndunum. Skoða þyrfti stöðu þeirra nú í því ljósi og hvort breyta ætti tekjustofnum þeirra.

„Lögreglumanna að vera meðvitaðir um að gefa ekki nein slík merki frá sér“
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segir það alveg vera skýrt að haturstákn og sjónarmið verði ekki liðin innan lögreglunnar, ekki nú né framvegis.