
Heimilisofbeldi

Óttaðist um líf sitt
Kona sem lýsir heimilisofbeldi af hálfu manns, sem nú situr í gæsluvarðhaldi, segir réttarkerfið og lögreglu hafa brugðist í baráttu við manninn. Til marks um það er höfnun á nálgunarbanni gagnvart honum, nokkrum klukkustundum áður en hann veittist að henni á lífshættulegan hátt. Hann losnar úr gæsluvarðhaldi eftir tvo sólarhringa.

Stigmögnun ofbeldis í nánum samböndum
Betur má ef duga skal, margt hefur áunnist í málefnum sem snúa að ofbeldi og ofbeldismenningu. Því miður er þó víða pottur brotinn og sýna rannsóknir UN Women nú, árið 2024, að ofbeldi gegn konum hefur aukist og að á hverjum 10 mínútum er kona myrt af einhverjum sem hún þekkir.

Linda Dröfn á lista BBC um 100 áhrifamestu konur heims
Linda Dröfn Gunnarsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins, er samkvæmt breska ríkisútvarpinu, BBC, ein þeirra hundrað kvenna sem þau telja hafa haft mest áhrif í heiminum. Listi þeirra um 100 áhrifamestu konur heims var birtur í gær.

Réðst á konuna því hún var ekki búin að elda
Karlmaður hefur hlotið sextíu daga fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjaness vegna líkamsárásar gegn eiginkonu sinni.

Hálft líf heimilislausra kvenna
Leið kvenna inn í heimilisleysi er oftar en ekki afleiðing af ofbeldi í nánum samböndum. Erlendar rannsóknir sýna að 40-100% kvenna sem eru heimilislausar hafa búið við ofbeldi í nánum samböndum.

Nándarhryðjuverk er mannréttindabrot sem fær lítil viðbrögð frá samfélaginu
Á Íslandi og víðar hefur hugtakið „heimilisofbeldi“ verið notað til að lýsa ofbeldi í nánum samböndum. Nýrra hugtak, „nándarhryðjuverk“ hefur risið upp til að lýsa alvarlegum afleiðingum þessa ofbeldis betur.

Konur í mestri hættu innan veggja heimilisins
Heimilið er hættulegasti staðurinn fyrir konur, samkvæmt nýrri skýrslu UN Women. Samkvæmt skýrslunni eru 140 konur drepnar af maka eða fjölskyldumeðlimi á hverjum degi.

Sá hvítt eftir árás með járnkarli
Karlmaður sem er í gæsluvarðhaldi grunaður um líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni á Vopnafirði er talin hafa ráðist á konuna með hættulegu verkfæri, járnkarli eða rúllubaggateini.

Ógnaði barnsmóður sinni með haglabyssu
Karlmaður á Vesturlandi hefur verið dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir brot í nánu sambandi og vopnalagabrot, meðal annars með því að hafa ógnað barnsmóður sinni með haglabyssu. Konan kvaðst fyrir dómi hafa verið búin að kveðja börnin sín í huganum umrætt sinn.

Í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar líkamsárásar á Vopnafirði
Héraðsdómur Austurlands hefur fallist á kröfu lögreglustjórans á Austurlandi um gæsluvarðhald yfir sakborningi sem grunaður er um líkamsárás gegn fyrrum sambýliskonu á Vopnafirði á miðvikudag.

Grunaður um alvarlega líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu
Einstaklingur var handtekinn á Vopnafirði síðastliðinn miðvikudag grunaður um alvarlega líkamsárás gegn fyrrum sambýliskonu.

„Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“
Aþena Sól Magnúsdóttir var einungis sautján ára gömul og djúpt sokkin í fíkniefnaneyslu þegar hún tók upp samband við dæmdan ofbeldismann sem á þeim tíma var á skilorði vegna fyrri brota. Sambandið einkenndist af hrottalegu ofbeldi og átti eftir að hafa hrikalegar afleiðingar.

Réðst á fyrrverandi kærustur og aðstoðarslökkviliðsstjóra
Karlmaður á fertugsaldri hefur hlotið tíu mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til þriggja ára, í Héraðsdómi Austurlands fyrir brot gegn tveimur fyrrverandi kærustum sínum og gegn slökkviliðsmanni.

Akureyrarbær greiðir götu kvennaathvarfs á Akureyri eins og kostur er
Frá því undirbúningur að opnun kvennaathvarfs á Akureyri hófst sumarið 2020 hefur Akureyrarbær greitt götu þess eftir mætti, enda er okkur fyllilega ljóst mikilvægi þess góða starfs sem Samtök um kvennaathvarf vinna.

Draumar rætast: „Konur þurfa ekki alltaf að vera á skrilljón“
„Viðburðurinn hófst ekki fyrr en klukkan átta um kvöldið en klukkan rétt rúmlega sjö streymdu konur einfaldlega á staðinn þannig að við hugsuðum bara með okkur Vá! Hvað mætingin er góð,“ segir Sóley Björg Jóhannsdóttir varaformaður UAK um viðburð sem félagið stóð fyrir síðastliðið þriðjudagskvöld.

Segir Sigurjón Kjartansson ekki ofbjóða sér
Eiríkur Örn Norðdahl rithöfundur fettir fingur út í það sem honum þykir einfeldningsleg nálgun á gríni. Hann segist hafa rekið augu í að enn og aftur sé hún hafin umræðan um hvort gera megi grín að hræðilegum hlutum.

Blöskrar grín árum saman að þjáningum kvenna
Stjórnarformaður Hagsmunasamtaka brotaþola segir grín að nauðgunum ýta undir kynbundið ofbeldi. Hún tínir til dæmi frá mörgum helstu skemmtikröftum þjóðarinnar og segir tíma til kominn til að hætta að gera lítið úr ofbeldi.

Konur skipuleggi sig oft í marga mánuði áður en þær koma
Aukning hefur orðið í komum í Kvennaathvarfið síðustu mánuði og hafa rúmlega þrjátíu konur verið þar yfir sumartímann. Framkvæmdastýran telur aukningu í heimilisofbeldi ekki endilega skýringuna.

Henti barnungum „óþekkum“ sonum sínum í gólfið
Karlmaður hefur hlotið átján mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjaness, en þar af verða fimmtán mánuðir skilorðsbundnir til tveggja ára, vegna fjölda brota gegn konu og börnum.

Sagði hvorki unnustu sína né börn hennar verðskulda líf
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir stórfellda líkamsárás og stórfelld brot í nánu sambandi, en meint brot mannsins beindust að unnustu hans. Honum er gefið að sök að hafa endurtekið og á sérstaklega sársaukafullan hátt ógnað lífi og heilsu konunnar með andlegu og líkamlegu ofbeldi og hótunum.

Á sér engar málsbætur vegna hrottafenginna brota gegn eiginkonu
Landsréttur staðfesti í dag átta ára fangelsisrefsingu Heiðars Arnar Vilhjálmssonar vegna grófra brota gegn eiginkonu hans. Þó að Landsréttur hafi staðfest refsinguna sem Héraðsdómur Reykjaness lagði upp með sýknar Landsréttur hann fyrir brot sem Héraðsdómur hafði sakfellt hann fyrir.

Sparkaði í liggjandi sambýliskonu sína á gamlársdag
Karlmaður hlaut á dögunum þrjátíu daga fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir líkamsárás gagnvart þáverandi sambýliskonu hans. Árásin var framin á heimili hans aðfaranótt gamlársdags, 31. desember, árið 2022.

Sagðist ekki hafa slegið eiginkonuna heldur sjálfan sig með pönnu
Karlmaður hefur hlotið níu mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir tvær líkamsárásir gagnvart fyrrverandi eiginkonu sinni.

Nauðungarstjórnun í nánum samböndum
Nauðungarstjórnun er orð sem líklega fæstir þekkja, né vita hvað merkir. Að vita merkingu þess er hins vegar nauðsynlegt. Það þarf að auka vitund almennings um þetta mjög mikilvæga málefni. Nauðungarstjórnun er þegar einstaklingur, oftast maki eða fyrrverandi maki, tekur sér stjórn á lífi annarrar manneskju, t.d. með því að stýra aðgengi viðkomandi að samskiptum við vini og fjölskyldu, fjármálum, samfélagsmiðlum eða öðru sem eðlilegt er að frjáls manneskja hafi forræði yfir sjálf.

568 tilkynningar um heimilisofbeldi á þremur mánuðum
Lögreglunni barst 568 tilkynningar á landsvísu um heimilisofbeldi og ágreining milli skyldra eða tengdra aðila fyrstu þrjá mánuði ársins sem gerir að meðaltali rúmlega sex tilkynningar á dag. Jafnframt hefur beiðnum um nálgunarbann fjölgað á þessu ári en þær eru 33 talsins fyrir sama tímabil.

„Heiðurstengt ofbeldi er ekki okkar stærsta vandamál“
Linda Dröfn Gunnarsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins segir mál sem tengjast heiðurstengdu ofbeldi afar alvarleg, en einnig mjög fá. Greint var frá því fyrr í dag að átta hefðu verið ákærð fyrir stórfelld brot í nánu sambandi og líkamsárásir gegn konu sem tengist þeim öllum fjölskylduböndum.

Rjúfum þögnina: andlegt ofbeldi
Við skulum byrja á að segja hið augljósa – allt ofbeldi er óafsakanlegt. Það eru engar ýkjur þegar það er sagt að andlegt ofbeldi er ein versta tegund tilfinningalegs rússíbana sem fólk lendir í. Andlegt ofbeldi getur verið í formi orðaskipta eða í formi líkamstjáningar. Samskiptin einkennast oft af niðurlægingu og er yfirleitt leið annars aðilans að ná stjórn á þolandanum.

Sagður hafa slegið eiginkonu sína ítrekað með steikarpönnu
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir tvær líkamsárásir gagnvart fyrrverandi eiginkonu sinni, en meint brot áttu sér stað á heimili þeirra í Kópavogi árið 2022, þegar þau voru enn gift.

Sló aðra á heimilinu ítrekað með hleðslusnúru
Karlmaður hefur verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir brot í nánu sambandi, með því að beita fyrrverandi eiginkonu hans og börn ítrekuðu ofbeldi. Fólst það meðal annars að slá þau með hleðslusnúru.

Læknirinn mátti læsa dætur sínar inni eftir allt saman
Karlmaður, sem starfað hefur sem læknir á Vestfjörðum og Húsavík, var sýknaður af ákæru um brot í nánu sambandi og barnaverndarlagabrot á föstudag. Landsréttur leit svo á að hann hefði ekki brotið á dætrum sínum með því að slá á fingur þeirra og læsa þær inni í uppeldisskyni.