
ÍBV

Sjáðu hvernig Eyjakonur kváðu falldrauginn í kútinn og öll hin mörkin
ÍBV og Keflavík unnu afar mikilvæga sigra í botnbaráttu Pepsi Max-deildar kvenna í fótbolta í gær. Staða Tindastóls er hins vegar orðin afar erfið.

Er svo mikilvægt fyrir þetta Eyjalið að sýna Eyjahjarta
ÍBV vann góðan 3-1 sigur á Stjörnunni í Pepsi Max deild kvenna í gær. Ian Jeffs, þjálfari liðsins, var mjög sáttur með sigurinn en hann var hvað ánægðastur með Eyjahjartað sem lið hans spilaði með. „Eyjahjartað“ var rædd í Pepsi Max Mörkunum að leik loknum.

Umfjöllun: ÍBV - Stjarnan 3-1 | ÍBV kemur sér úr fallbaráttu, í bili
Það var hart barist á Hásteinsvelli í dag þegar ÍBV tók á móti Stjörnunni í 16. umferð Pepsi Max deildar kvenna. Fyrir leikinn var falldraugur yfir ÍBV en þeim tókst að bjarga sér með 3-1 sigri.

Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - ÍBV 6-2 | Stórsigur Selfoss í Suðurlandsslagnum
Selfoss vann öruggan 6-2 sigur á ÍBV í slagnum um Suðurlandið á Selfossi í Pepsi Max-deild kvenna í fótbolta í kvöld. Selfoss heldur í við Þrótt í baráttunni um þriðja sæti deildarinnar með sigrinum.

Birkir: Við erum bara í bullandi fallbaráttu
Birkir Hlynsson, aðstoðarþjálfari ÍBV, stýrði liðinu gegn Selfyssingum í kvöld. Hann var ósáttur með leik liðsins í en ÍBV tapaði 6-2. Hann segir liðið vera í bullandi fallbaráttu.

Haukar sigruðu Ragnarsmótið á Selfossi
Leikið var til úrslita á Ragnarsmótinu í handbolta á Selfossi í dag, en spilað var um fyrsta, þriðja og fimmta sætið. Ríkjandi deildarmeistarar Hauka höfðu betur gegn Fram í úrslitaliknum, 27-20.

Haukar unnu öruggan sigur á ÍBV
Haukar unnu 32-26 sigur á ÍBV á Ragnarsmótinu í handbolta karla á Selfossi í kvöld.

Sjáðu sigurmark Karenar Maríu, martröð Guðnýjar og hvernig Þróttur komst í þriðja sæti
Sex mörk voru skoruð í gærkvöld í þremur leikjum í Pepsi Max-deild kvenna í fótbolta. Keflavík vann ÍBV 2-1 í Eyjum, Þór/KA vann Norðurlandsslaginn við Tindastól 1-0 og Þróttur vann 2-0 sigur gegn Stjörnunni.

Fékk bara gult spjald þrátt fyrir að slá til andstæðings í Pepsi Max deild kvenna
Eyjakonan Liana Hinds hafði heldur betur heppnina með sér í gær þegar hún fékk að klára leik ÍBV og Keflavíkur í fjórtándu umferð Pepsi Max deildar kvenna í gær.

Tveimur leikjum ÍBV frestað vegna smita
Næstu tveimur leikjum ÍBV í Lengjudeild karla hefur verið frestað vegna fjögurra kórónuveirusmita sem greindust innan liðsins fyrr í dag.

Umfjöllun: ÍBV - Keflavík 1-2 | Keflavíkurkonur upp úr botnsætinu
Eyjakonur tóku á móti botnliði Keflavíkur á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum í 14. umferð Pepsi Max deildarinnar í kvöld. ÍBV vann fyrri leik liðanna í Keflavík 2-1 þar sem að sigurmarkið kom á 89. mínútu leiksins en þar var á ferðinni Antoinette Williams sem að byrjaði á bekknum í kvöld.

Fjórir lykilmenn ÍBV greindust með veiruna
Fjórir lykilkmenn karlaliðs ÍBV eru smitaðir af kórónaveirunni. Liðið er í öðru sæti Lengjudeildarinnar í knattspyrnu, og í harðri baráttu um sæti í efstu deild á næsta tímabili.

Elísabet sækir liðsstyrk til Vestmannaeyja
Markahæsti leikmaður ÍBV í Pepsi Max deild kvenna í sumar er gengin til liðs við Íslendingalið Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni.

ÍBV steig skref í átt að sæti í efstu deild með sigri á Kórdrengjum - fjórir leikir í Lengjudeildinni í dag
Fjórir leikir voru á dagskrá Lengjudeildar karla í dag. Stærsti leikurinn var án efa leikur Kórdrengja og ÍBV sem fram fór á Domusnova vellinum í Breiðholtinu. Þá fóru þrír aðrir leikir fram.

Á leið frá ÍBV til Íslendingaliðs Kristianstad
Hin bandaríska Delaney Baie Pridham er á leið frá ÍBV til Íslendingaliðs Kristianstad sem leikur í sænsku úrvalsdeildinni.

ÍBV og Afturelding með mikilvæga sigra í toppbaráttu
Tveir leikir fóru fram í dag í Lengjudeildum karla og kvenna. ÍBV og Afturelding unnu sitt hvorn mikilvægan sigurinn.

Kórdrengir sækja að Eyjamönnum
Kórdrengir unnu 3-0 sigur á Þrótti Reykjavík í síðari leik kvöldsins í Lengjudeild karla í fótbolta. Allt stefnir í harða baráttu þeirra við ÍBV um sæti í Pepsi Max-deild karla að ári.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - ÍBV 1-0 | Fanndís hetjan í uppbótartíma
Valur vann sinn sjötta deildarleik í röð í Pepsi Max-deild kvenna í fótbolta er liðið lagði ÍBV 1-0 að Hlíðarenda í kvöld. Fanndís Friðriksdóttir skoraði sigurmarkið á ögurstundu.

Þjóðhátíðarsigur í Vestmannaeyjum
Einn leikur fór fram í íslenskum fótbolta í dag og var hann leikinn á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum þar sem ÍBV tók á móti Aftureldingu.

ÍBV íhugar að sækja um ríkisstyrk
Formaður þjóðhátíðarnefndar segir nefndina íhuga að sækja um ríkisstyrk vegna tekjutaps ÍBV af því að fresta þurfi Þjóðhátíð annað árið í röð. Morgunblaðið greindi frá þessu í morgun.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV 2 - 1 Tindastóll | Þrjú mikilvæg stig urðu eftir í Eyjum
Tindastóll hafði unnið tvo af síðustu þremur leikjum sínum fyrir leikinn í dag og með sigri á Hásteinsvelli hefði liðið komist upp fyrir ÍBV í Pepsi Max deild kvenna.

Öruggir sigrar ÍBV og Þórs
Tveir leikir voru á dagskrá í Lengjudeild karla í fótbolta í kvöld. ÍBV og Þór unnu þar bæði örugga heimasigra.

Sjö marka sveifla milli leikja
Íslandsmeistarar Breiðabliks unnu stórsigur á ÍBV er liðin mættust á Kópavogsvelli í Pepsi Max deild kvenna í knattspyrnu. Lokatölur 7-2 sem þýðir að um sjö marka sveiflu er að ræða frá fyrri leik liðanna sem ÍBV vann 4-2 í Vestmannaeyjum.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - ÍBV 7-2 | Markaflóð á Kópavogsvelli
Breiðablik vann öruggan sigur á ÍBV, 7-2, þegar liðin áttust við á Kópavogsvelli í 11. umferð Pepsi Max-deildar kvenna í kvöld.

Allt jafnt í toppslag Lengjudeildarinnar
Fram tók á móti ÍBV í toppslag Lengjudeildar karla í kvöld. Liðin sitja enn í fyrsta og öðru sæti deildarinnar eftir 1-1 jafntefli.

Ísak Andri á láni til ÍBV
Stjarnan hefur ákveðið að senda hinn unga Ísak Andra Sigurgeirsson á láni til ÍBV sem leikur í Lengjudeildinni.

Umfjöllun og viðtöl: Þór/KA - ÍBV 1-1 | Jafnt í hörkuleik á Akureyri
Þór/KA og ÍBV eru enn hlið við hlið í Pepsi Max-deild kvenna í fótbolta eftir 1-1 jafntefli í fyrsta leik 10. umferð deildarinnar. Eftir markalausan fyrri hálfleik komst Þór/KA yfir en gestirnir jöfnuðu skömmu síðar og þar við sat.

Ian Jeffs tekur við ÍBV
Ian Jeffs er nýr þjálfari meistaraflokks kvenna í knattspyrnu hjá ÍBV. Jeffs mun stýra liðinu út leiktíðina, ásamt því að vera aðstoðarþjálfari liðsins karlamegin.

Grótta sótti þrjú stig til Eyja og stórsigur Þórs á Þrótti
ÍBV missteig sig í Lengjudeild karla er liðið tapaði 1-0 fyrir Gróttu á heimavelli í 11. umferð deildarinnar í dag.

Sautján ára stelpur með glæsimörk úr aukaspyrnum í Pepsi Max í gær: Sjáðu mörkin
Tvær 2004 stelpur skoruðu frábær mörk með skotum beint úr aukaspyrnu í Pepsi Max deild kvenna í fótbolta í gær.