Fylkir

Fylkir vann annan sigurinn í röð
Fylkir vann sinn annan leik í röð gegn Fjölni í Grafarvoginum í dag. Lokatölur 1-2 Fylki í vil.

Arnar Sveinn úr Kópavoginum í Árbæinn
Arnar Sveinn Geirsson hefur verið lánaður frá Breiðablik til Fylkis út þessa leiktíð.

Fótbrotið sem markar lok ferilsins: „Fórum báðir inn af fullum krafti og minn fótur gaf sig“
„Það er ekki líklegt að ég spili fótbolta í efstu deild aftur,“ segir Helgi Valur Daníelsson, leikmaður Fylkis í fótbolta og elsti útileikmaður Pepsi Max-deildarinnar, sem fjórfótbrotnaði í sigrinum á Gróttu í gær.

Sjáðu þrennuna hjá Óttari, afgreiðsluna frá Valdimar og mörkin úr Kópavogi
Ellefu mörk voru skoruð í leikjunum þremur í Pepsi Max-deild karla í gærkvöldi en flest mörk voru skoruð í Víkinni er Víkingur skoraði fjögur mörk gegn einu marki FH.

Umfjöllun og viðtöl: Fylkir - Grótta 2-0 | Fyrstu stig Fylkis komu gegn nýliðunum
Fylkir eru komnir á blað í Pepsi Max deild karla eftir 2-0 sigur á nýliðum Gróttu.

Ólafur Stígsson: Gáfu okkur heldur betur leik
,,Við erum alsælir, hörkuleikur, þeir gáfu okkur heldur betur leik og við þurftum að hafa mikið fyrir þessu. Sýndum mikinn karakter í seinni hálfleik að rífa okkur í gang. Svo voru þetta auðvitað þrjú stig fyrir Helga,“ sagði Ólafur Stígsson, annar þjálfara Fylkis, eftir leik.

Leikmenn Fylkis mættu ekki í viðtöl eftir fyrsta sigur sumarsins
Sigur Fylkis á Gróttu í kvöld var fyrsti sigur liðsins í Pepsi Max deild karla í sumar. Leikmenn Fylkis mættu ekki í viðtöl eftir leik.

Helgi Valur borinn af velli | Ferlinum lokið?
Helgi Valur Daníelsson meiddist illa í leik Fylkis og Gróttu í kvöld. Hafði það engin áhrif á lokatölur leiksins en miðjumaðurinn reyndi verður eflaust lengi frá.

„Hrikaleg staða“ en ef að við spilum verður mótið að telja
Þegar eitt lið þarf að bíða heima í sóttkví í tvær vikur á meðan að önnur geta æft og spilað samkvæmt áætlun, er þá ekki búið að gjaldfella Íslandsmótið í fótbolta 2020? Talsmenn liða sem orðið hafa fyrir barðinu á afleiðingum kórónuveirufaraldursins bera sig ágætlega þó að vandinn sé augljós.

Allt Fylkisliðið í sóttkví og næstu tveimur leikjum frestað
Kvennalið Fylkis í Pepsi Max-deild kvenna er komið í sóttkví eftir að kórónuveirusmit greindist í leikmannahóp liðsins um helgina.

Leikmaður Fylkis með kórónuveiruna
Leikmaður í kvennaliði Fylkis hefur verið greind með kórónuveiruna.

,,Mér finnst þessi stelpa ekta senter“
Bryndís Arna Níelsdóttir, framherji Fylkis í Pepsi Max deildinni, hefur byrjað tímabilið vel og er komin með þrjú mörk í fyrstu þremur leikjum mótsins. Hún er fædd árið 2003 og því einungis 17 ára.

Fylkir fær slóvenska landsliðskonu
Fylkir hefur gengið frá félagaskiptum fyrir slóvensku landsliðskonuna Tjasa Tibaut sem kemur í Árbæinn eftir að hafa síðast verið á mála hjá félagi í ítölsku A-deildinni.

Þrír Arnórar skoruðu samtals sex mörk fyrir Fylki | Sjáðu mörkin
Fylkir vann 8-0 stórsigur á 4. deildarliði ÍH í gær og nafnarnir Arnór Borg Guðjohnsen, Arnór Gauti Ragnarsson og Arnór Gauti Jónsson fóru mikinn í liði Fylkis.

Fylkir vann stórsigur en ÍA þurfti framlengingu
Þá er öllum leikjum í Mjólkurbikarnum lokið í kvöld. Fylkir og ÍA eru komin í 16-liða úrslit.

Dramatískur uppbótatími í Árbænum, Selfoss komið á blað og Breiðablik skoraði sex | Sjáðu öll mörkin
Þrír leikir voru á dagskrá Pepsi Max-deildar kvenna í gærkvöldi. Selfoss náði í sín fyrstu stig í sumar er þær unnu 2-0 sigur á FH, Breiðablik rúllaði yfir KR 6-0 og Fylkir og Þróttur gerði dramatískt 2-2 jafntefli.

Castillion kemur ekki: „Skrýtið að knattspyrnusamband geti ekki svarað“
Sóknarmaðurinn Geoffrey Castillion mun ekki spila með Fylki í sumar eins og vonir stóðu til. Málið strandar á indónesíska knattspyrnusambandinu.

Umfjöllun og viðtöl: Fylkir - Þróttur 2-2 | Þróttur náði í óvænt stig í Lautinni
Þróttur náði í óvænt stig í Lautinni í kvöld. Lokatölur 2-2 en bæði lið skoruðu í uppbótartíma.

Nálægt því að byrja á draumamarki: „Verð alltaf jafn pirraður þegar ég horfi á þetta“
Arnór Borg Guðjohnsen, sem eins og nafnið gefur til að kynna, er af mikilli fótboltafjölskyldu en hann lék í gær sinn fyrsta leik í íslenska boltanum er hann kom inn á sem varamaður er Fylkir tapaði 1-0 fyrir Breiðabliki á heimavelli.

Umfjöllun og viðtöl: Fylkir - Breiðablik 0-1 | Baráttusigur Blika í Lautinni
Damir Mumonovic reyndist hetja Breiðabliks er liðið vann 1-0 útisigur á Fylki í Árbænum í 2. umferð Pepsi Max deildarinnar í kvöld.

Ragnar eftir kinnbeinsbrotið: Af hverju er ekki refsað eins fyrir brot í lofti?
Ragnar Bragi Sveinsson, fyrirliði Fylkis, kinnbeinsbrotnaði í fyrsta leik tímabilsins og verður frá keppni næstu vikurnar. Hann er ekki argur út í Daníel Laxdal vegna brotsins en spyr sig hvort rauða spjaldið hefði átt að fara á loft, og gagnrýnir ummæli þjálfara Stjörnunnar.

Katla María og Íris Una: Langaði að sýna þeim að við værum lið sem ætlaði sér langt | Myndband
Tvíburarnir Katla María Þórðardóttir og Íris Una eru með skýr markmið fyrir sumarið.

Segir kvenna fótbolta „ekki það einfaldan og barnalegan að þú getur bara hlaupið og skorað“
Jóhannes Karl Sigursteinsson, þjálfari KR, segir að kvennafótbolti sé ekki það einfaldur og barnalegur að það sé bara hægt að hlaupa og skora.

Ólafur Ingi um Rúnar Pál: Með krónískt hæsi eftir að hafa gargað samfleytt á íslenska dómara í sex ár
Ólafur Ingi Skúlason, aðstoðarþjálfari og fyrirliði Fylkis, lét gamminn geisa á Twitter í gær en Ólafur Ingi fékk rautt spjald í leik Fylkis og Stjörnunnar fyrr í vikunni.

Umfjöllun og viðtöl: KR - Fylkir 1-3 | Fylkir með verðskuldaðan sigur í Vesturbæ
Fylkir bar sigurorð af KR í Vesturbænum í Pepsi Max deild kvenna í kvöld. Lokatölur 3-1 fyrir Árbæingum.

Kjartan: Réðum illa við boltann á grasinu
Fylkir vann góðan 3-1 útisigur á KR í Frostaskjólinu, í Pepsi Max deild kvenna í kvöld.„Við fengum draumabyrjun. Við skoruðum á fyrstu mínútu og þetta var bara mjög góð byrjun, ” sagði Kjartan Stefánsson þjálfari Fylkis sáttur um byrjun leiksins.

Bara ef Rúnar Páll fengi Fylki í hverri umferð: 33 stig af 33 mögulegum
Rúnar Páll Sigmundsson er búinn að stýra Stjörnumönnum til sigurs í öllum ellefu deildarleikjum sínum á móti Fylki síðan að hann tók við í Garðabænum.

Sjáðu þegar hola myndaðist í andliti Ragnars Braga - Frá keppni næstu vikurnar
Ragnar Bragi Sveinsson verður ekki með Fylki næstu vikurnar eftir að hann skall illa með höfuðið saman við Daníel Laxdal í 2-1 tapinu gegn Stjörnunni í Pepsi Max deildinni í fótbolta í gærkvöld.

Segir brot Ólafs Inga ótrúlega heimskulegt: „Þetta er bara árás“
„Þetta er bara árás. Alveg hrikalega gróft,“ sagði Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, um tæklingu Ólafs Inga Skúlasonar í Fylki sem fékk rautt spjald fyrir brot í leik liðanna í Pepsi Max-deildinni í fótbolta í gær.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Fylkir 2-1 | Dramatík í Garðabæ
Stjarnan vann Fylki á dramatískan hátt í Pepsi Max deild karla í kvöld. Lokatölur 2-1, en sigurmarkið kom undir lok leiksins í uppbótartíma.