
Besta deild karla

Uppgjörið: Víkingur R. - Breiðablik 0-3 | Titillinn í Kópavog eftir meistaraframmistöðu
Breiðablik er Íslandsmeistari í knattspyrnu karla árið 2024 eftir 3-0 sigur á Víkingum í úrslitaleik. Sigur Blika var afar verðskuldaður en þetta er þriðji Íslandsmeistaratitill félagsins og annar á síðustu þremur árum.

Sjáðu mörkin sem tryggðu Blikum Íslandsmeistaratitilinn
Breiðablik varð í kvöld Íslandsmeistari karla í knattspyrnu með 3-0 sigri gegn Víkingi í lokaumferð deildarinnar.

Blikar þurftu að gera breytingu eftir slæman árekstur
Úrslitaleikur Víkings og Breiðabliks um Íslandsmeistaratitilinn í knattspyrnu er í fullum gangi. Leikurinn er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport en Blikar þurftu að gera breytingu eftir tuttugu mínútna leik vegna höfuðmeiðsla Kristins Jónssonar.

Stress og spenna hjá stuðningsmönnum fyrir úrslitaleikinn
Það var heldur betur fjör hjá stuðningsmönnum Víkings og Breiðabliks fyrir úrslitaleikinn um Íslandsmeistaratitilinn þegar Nablinn og Aron Guðmundsson kíktu á stemmninguna fyrir leik.

Byrjunarliðin í úrslitaleiknum: Oliver Ekroth mættur aftur og Nikolaj Hansen byrjar
Víkingi dugir jafntefli en Breiðablik þarf sigur í viðureign liðanna í kvöld, úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitilinn. Þjálfararnir Arnar Gunnlaugsson og Halldór Árnason hafa skipað byrjunarliðin.

Bretti í Víkinni máluð græn og Víkingar ætla að kæra Blika
Stuðningsmenn Breiðabliks fóru inn á Víkingsvöll í nótt og máluðu hluta af brettunum sem eru notuð til að mynda áhorfendaaðstöðu græn. Tjón eiganda brettanna er mikið. Víkingur og Breiðablik mætast í úrslitaleik Bestu deildar karla í kvöld.

Útilegustemmning hjá stuðningsmönnum Blika í Víkinni
Þótt aðeins 250 stuðningsmenn Breiðabliks geti verið á Víkingsvelli þegar liðið sækir Víking heim í úrslitaleik Bestu deildar karla ætla Blikar að fjölmenna í Víkina í dag.

„Feginn að okkur dugir ekki jafntefli“
Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks, segir að góður andi hafi ríkt innan raða Breiðabliks í aðdraganda úrslitaleiksins gegn Víkingi í kvöld. Blikar þurfa að vinna leikinn til að verða meistarar og hann segir að það henti liðinu mun betur en að verja jafntefli.

„Vona að þessi leikur verði epískur“
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, vonast til að úrslitaleikurinn gegn Breiðabliki um Íslandsmeistaratitilinn verði eftirminnilegur. Hann telur að Evrópuleikurinn gegn Cercle Brugge muni ekki sitja í hans mönnum í kvöld.

Stúkumenn svara stóru spurningunum fyrir úrslitaleikinn
Víkingur og Breiðablik mætast í úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í Víkinni í kvöld. Af því tilefni fékk Vísir sérfræðinga Stúkunnar, Albert Ingason, Baldur Sigurðsson, Atla Viðar Björnsson og Lárus Orra Sigurðsson, til að svara fimm spurningum um leikinn stóra.

Sjáðu markaflóðið úr Bestu deildinni í gær
Ekki vantaði mörkin í Bestu deild karla í gær. Alls voru skoruð þrjátíu mörk í fimm leikjum. Þau má sjá í fréttinni.

Benoný fékk fullkomna einkunn: „Þeir sögðu að þetta væri ekki hægt“
Benoný Breki Andrésson var maður gærdagsins þegar hann skoraði fimm mörk í 7-0 sigri KR gegn HK í lokaumferð Bestu-deildar karla.

Svona voru hinir úrslitaleikirnir um titilinn
Öll augu verða á Víkinni í kvöld þegar Víkingur og Breiðablik mætast í úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í Bestu deild karla. Þetta er í fimmta sinn á síðustu 28 árum sem lið mætast í úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn. Til að stytta biðina fram að leiknum í Víkinni rifjar Vísir upp hina fjóra úrslitaleikina.

„Er að fara út í þjálfun“
Hilmar Árni Halldórsson skoraði eitt marka Stjörnunnar þegar hann lék sinn síðasta leik fyrir félagið í 3-2 sigri á móti FH í lokaumferð Bestu deildar karla í fótbolta á Samsung-vellinum í kvöld.

Arnór eftir síðasta leikinn: „Á vart til orð“
Arnór Smárason lék sinn síðasta leik á ferli sínum er hann kom inná á 82. mínútu í stóru tapi sinna manna í ÍA á Val. Leikurinn fór 6-1 fyrir Val en þetta var síðasta umferð Bestu deildarinnar.

Túfa: Búið að ganga frá því fyrir löngu síðan að ég verð áfram
Valur endaði tímabilið í Bestu deildinni með öruggum 6-1 sigri á ÍA í mikilvægum leik fyrir Hlíðarendapilta. Sigurinn þýðir að liðið náði 3. sæti sem tryggir þáttöku í evrópukeppni á næsta ári.

„Held ég verði bara feginn að þurfa ekki að mæta á æfingar“
Daníel Laxdal spilaði sinn síðasta leik fyrir uppeldisfélag sitt, Stjörnuna, þegar liðið hafði betur gegn FH í lokaumferð Bestu deildar karla í fótbolta á Samsung-vellinum í Garðabænum í kvöld. Kveðjustundin var tilfinningarík en þessi goðsögn í Garðabænum var kvaddur á fallegan hátt.

„Lítill Birkir Már hefði ekki getað ímyndað sér þetta“
Mikil tímamót urðu á N1 vellinum í dag þegar einn dáðasti Valsari sögunnar Birkir Már Sævarsson lék sinn síðasta leik á Íslandi og lauk þar með farsælum ferli sínum. Valsarar héldu mikla dagskrá honum til heiðurs og kórónuðu svo góða kveðjustund með öruggum 6-1 sigri.

Markakóngurinn Benoný: „Þetta var bara geðveikt“
Benoný Breki Andrésson átti vægast sagt góðan leik er KR tók á móti HK í lokaumferð neðri hluta Bestu-deildar karla í knattspyrnu í dag.

Hert öryggisgæsla og 2.000 pallettur í Víkinni
Á morgun er stóri dagurinn. Víkingur og Breiðablik mætast í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í Víkinni og þar komast færri að en vilja. Skipulagsaðilar í Víkinni hafa þá haft að mörgu að huga.

Uppgjörið: Stjarnan - FH 3-2 | Hilmar Árni kvaddi Stjörnuna með marki
Stjarnan bar sigurorð af FH þegar liðin áttust við í lokaumferð Bestu deildar karla í fótbolta á Samsung-vellinum í Garðabænum í kvöld. Þetta var kveðjuleikur Daníels Laxdal, Hilmars Árna Halldórssonar og Þórarins Inga Valdimarssonar fyrir Stjörnuna.

Sjáðu Benóný Breka bæta markametið
KR-ingurinn Benóný Breki Andrésson bætti í dag markametið í efstu deild karla í fótbolta. Hann skoraði fimm mörk þegar KR kjöldró HK, 7-0, í lokaumferð Bestu deildarinnar.

„Mér finnst þetta lélegt fyrirkomulag og ég hef sagt það frá upphafi“
Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, hefur þurft að horfa á sína menn tapa fjórum leikjum í röð eftir að hafa bjargað sér frá falli. 1-4 varð niðurstaðan gegn KA í lokaleik tímabilsins.

Uppgjörið: KR - HK 7-0 | Markametið og HK-ingar féllu
HK er fallið úr Bestu deild karla eftir skell, 7-0, gegn KR í lokaumferð mótsins. HK sá aldrei til sólar í leiknum og Benóný Breki Andrésson setti nýtt markamet í efstu deild.

Uppgjörið: Vestri - Fylkir 1-3 | Vestri áfram í Bestu deildinni þrátt fyrir tap
Vestri leikur áfram í Bestu deild karla á næsta tímabili þrátt fyrir 1-3 tap fyrir Fylki á Ísafirði í dag. Á sama tíma steinlá HK fyrir KR.

Uppgjörið: Valur - ÍA 6-1 | Valur valtaði yfir Skagann í síðasta leik Vindsins
Síðasta umferð Bestu deildarinnar fór fram í dag. Á N1 vellinum á Hlíðarenda tók Valur á móti ÍA þar sem mikið var undir. Valur þurfti sigur til að tryggja þriðja sæti deildarinnar í dag en Skagamenn voru algjörlega pressulausir.

Benóný Breki valinn besti ungi og búinn að slá markametið
KR-ingurinn Benóný Breki Andrésson var valinn besti ungi leikmaður Bestu deildar karla 2024. Þá er hann búinn að slá markametið í efstu deild.

Uppgjörið: Fram - KA 1-4 | KA kláraði Fram og fær Forsetabikarinn
Fram tók á móti KA í lokaumferð Bestu deildar karla og tapaði 4-1 á heimavelli. KA menn tryggðu sér með sigrinum sjöunda sæti deildarinnar, efsta sæti neðra hlutans.

Hlakkar til að berjast við Blika: „Held að Damir vilji fara aðeins meira í mig“
Fyrirliði Víkings, Nikolaj Hansen, er klár í slaginn gegn Breiðabliki í úrslitaleik Bestu deildar karla annað kvöld. Hann er spenntur fyrir því að berjast við miðverði Blika.

Ræddi við konuna og fékk bingó: „Tími til að fara aftur til Eyja
Eftir ævintýri í Hong Kong, Portúgal og Svíþjóð er komið að næsta kafla á þjálfaraferli Þorláks Árnasonar sem hefur verið ráðinn þjálfari ÍBV sem leikur í Bestu deildinni á næsta ári. Láki, eins og hann er jafnan kallaður, er spenntur að snúa aftur til Eyja þar sem að hann átti góðar stundir sem krakki. Hann vill að ÍBV liðið sýni hinn sanna anda sem einkennir Eyjamenn.