Körfubolti

Fréttamynd

Fimm æfingaleikir í NBA í nótt

Átta æfingaleikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt, þar sem liðin sem mættust í úrslitunum í fyrra, San Antonio Spurs og Detroit Pistons, töpuðu bæði leikjum sínum.

Sport
Fréttamynd

Fjórir æfingaleikir í NBA í nótt

Fjórir æfingaleikir fóru fram í NBA í nótt, en áskrifendur Sportpakkans á Digital Ísland fengu einmitt að sjá skemmtilegan leik Houston Rockets og Seattle Supersonics í beinni útsendingu. Houston var án þeirra Yao Ming og Tracy McGrady, en það kom ekki að sök, því liðið hafði sigur, 93-85.

Sport
Fréttamynd

Divac formlega hættur

Serbneski miðherjinn Vlade Divac hjá Los Angeles Lakers tilkynnti í gærkvöldi formlega að hann væri búinn að leggja skóna á hilluna. Hann mun þó ekki hætta afskiptum sínum af körfuknattleik, því hann hefur verið ráðinn útsendari Lakers í heimalandi sínu.

Sport
Fréttamynd

Larry Brown hellti sér yfir nýliða

Larry Brown, nýráðinn þjálfari New York Knicks, las nýliðanum Nate Robinson pistilinn um helgina þegar hann reyndi að kasta boltanum af spjaldinu og troða í leik gegn New Jersey Nets, með sinni fyrstu snertingu í leik með New York Knicks.

Sport
Fréttamynd

Þrír æfingaleikir í NBA í nótt

Þrír æfingaleikir voru á dagskrá í NBA í nótt. Larry Brown tapaði fyrsta leik sínum með New York Knicks í Madison Square Garden, þegar liðið lá fyrir Dallas Mavericks, 104-102. Detroit lagði Minnesota 91-80 og Sacramento sigraði Golden State 114-99.

Sport
Fréttamynd

Allan Houston hættur

Skotbakvörðurinn Allan Houston hjá New York Knicks, ákvað í gærkvöldi að leggja skóna á hilluna vegna þrálátra hnémeiðsla. Houston er 34 ára gamall og lék í tólf ár í deildinni, lengst af með New York, þar sem hann skrifaði undir samning upp á 100 milljónir dollara árið 2001, en náði aldrei að vinna fyrir broti af þeirri upphæð, stuðningsmönnum liðsins til mikils ama.

Sport
Fréttamynd

Baldur kominn aftur í KR

Miðherjinn Baldur Ólafsson er kominn aftur í KR og hefur hug á að byrja að leika körfuknattleik á ný eftir eins og hálfs árs fjarveru frá leiknum. Baldur lagði skóna tímabundið á hilluna vegna álagsmeiðsla, en hefur nú snúið aftur til síns gamla liðs.

Sport
Fréttamynd

Curry með hjartað á réttum stað

Miðherjinn Eddy Curry, sem nýverið gekk í raðir New York Knicks frá Chicago Bulls, skoraði 16 stig í fyrsta æfingaleik sínum með liðinu um helgina, eftir að hafa fengið grænt ljós á að spila þrátt fyrir að hafa tvisvar greinst með óreglulegan hjartslátt á ferlinum.

Sport
Fréttamynd

Fjögur lið með fullt hús

Njarðvíkingar gerðu góða ferð í Vesturbæinn í kvöld og sigruðu þar KRinga 69-59. Jeb Ivey var stigahæstur í liði Njarðvíkur með 21 stig, en Ashley Champion skoraði 19 stig hjá KR og reyndar flest þeirra snemma leiks. Njarðvíkingar voru skrefinu á undan lengst af, en segja má að Jeb Ivey hafi gert út um leikinn í fjórða leikhluta þegar hann fór mikinn í sókninni.

Sport
Fréttamynd

Drungi á æfingum Atlanta Hawks

"Ég hef lent í ýmsu á 23 ára ferli sem þjálfari, en ekkert getur búið mann undir svona lagað," sagði Mike Woodson, þjálfari Atlanta Hawks, sem í gær stýrði fyrstu æfingu liðsins eftir að miðherjinn Jason Collier lét lífið á heimili sínu um helgina.

Sport
Fréttamynd

Heil umferð í körfunni í kvöld

Heil umferð er á dagskrá Iceland Express-deildar karla í körfubolta í kvöld og hefjast leikirnir allir kl. 19:15. Stórleikur umferðarinnar er án efa viðureign KR og Njarðvíkur í DHL-höllinni en þessum liðum er spáð góðu gengi í vetur af forsvarsmönnum, þjálfurum og fyrirliðum félaganna. Njarðvík er spáð meistaratitlinum en KR fjórða sæti.

Sport
Fréttamynd

NBA TV komið á fullt

Ný sjónvarpsstöð, NBA TV, er farin í loftið á Digital Ísland. NBA TV er gríðarlega stór sjónvarpsstöð sem sérhæfir sig í NBA körfuboltanum.  Á stöðinni eru yfir 250 beinar útsendingar frá NBA á ári auk fjölda NBA-sjónvarpsþátta á hverjum degi. NBA TV er á Digital Ísland og er í sportpakkanum. Ráðgerðar eru 36 beinar útsendingar í nóvember.

Sport
Fréttamynd

Leikmaður Atlanta Hawks lést

Miðherjinn Jason Collier hjá Atlanta Hawks í NBA deildinni lést í sjúkrabifreið í dag eftir að hafa átt erfitt með andardrátt og hnigið niður á heimili sínu. Hann var 28 ára gamall og lætur eftir sig eiginkonu og unga dóttur, en dánarorsök er enn óljós.

Sport
Fréttamynd

LeBron James laus af spítala

Undrabarnið LeBron James hjá Cleveland Cavaliers losnaði af sjúkrahúsi í gærkvöldi eftir að hafa gengist undir fjölda rannsókna vegna sársauka sem hann hafði fyrir brjósti. Skelfing greip um sig meðal forráðamanna liðsins þegar tíðindin bárust, en James hefur nú verið að fullu útskrifaður.

Sport
Fréttamynd

Sex æfingaleikir í NBA í nótt

Æfingatímabilið í NBA deildinni í körfubolta er nú komið á fullan skrið og í nótt voru sex leikir á dagskrá. Golden State burstaði Los Angeles Lakers á Hawaii og meistarar San Antonio töpuðu öðrum leiknum í röð, nú gegn Washington.

Sport
Fréttamynd

Keflvíkingar lögðu ÍR

Íslandsmeistarar Keflavíkur áttu ekki í teljandi vandræðum með ÍRinga í Seljaskóla í fyrsta leiknum í úrvalsdeild karla í körfuknattleik í kvöld. ÍRingar höfðu reyndar forystu eftir fyrsta leikhlutann, 25-23, en eftir það var leikurinn eign Íslandsmeistaranna, sem sigruðu 98-81.

Sport
Fréttamynd

Sex æfingaleikir í NBA í nótt

Sex æfingaleikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt. Andrew Bogut skoraði 9 stig og hirti 9 fráköst í fyrsta leik sínum með Milwaukee Bucks og Allen Iverson skoraði 27 stig í góðum sigri Philadelphia á meisturum San Antonio Spurs.

Sport
Fréttamynd

Sjö leikir í körfunni í kvöld

Iceland Express deildin, eða úrvalsdeild karla í körfubolta hefst í kvöld þar sem spiluð verður heil umferð, eða sex leikir. Þá verður einn leikur í úrvalsdeild kvenna. Haukar taka á móti Grindavík á Ásvöllum. Allir leikir kvöldsins hefjast klukkan 19:15.

Sport
Fréttamynd

Tvöfaldur sigur Grindvíkinga

Karla og kvennalið Grindavíkur unnu bæði leiki sína gegn Haukum í Iceland Express deildinni í kvöld. Kvennaliðið lagði Hauka að Ásvöllum 82-70, en karlaliðið vann Haukana 103-73. Þá voru nokkrir aðrir leikir á dagskrá í karlaflokki.

Sport
Fréttamynd

Keflavíkurstúlkur lögðu ÍS

Íslandsmeistarar Keflavíkur hófu titilvörnina með sigri í Iceland Express deildinni í körfuknattleik kvenna í gærkvöld, þegar liðið lagði Stúdínur með 77 stigum gegn 61. Reshea Bristol var stigahæst í liði Keflavíkur með 16 stig og Signý Hermannsdóttir skoraði sömuleiðis 16 fyrir ÍS.>

Sport
Fréttamynd

Tekur Krzyzewski við liði USA?

Körfuboltaþjálfarinn góðkunni, Mike Krzyzewski, sem þjálfað hefur lið Duke-háskólans við góðan orðstír síðustu ár, verður næsti aðalþjálfari bandaríska landsliðsins í körfubolta, ef marka má frétt í USA Today. >

Sport
Fréttamynd

Artest eins og dýr í búri

Ron Artest hefur gefið það út að þó hann hafi lofað bót og betrun eftir leikbannið sitt langa síðasta vetur, muni hann ekki verða eins og engill inni á vellinum á komandi leiktíð, heldur spila eins og "villidýr sem ætti að vera lokað inni í búri.">

Sport
Fréttamynd

Blikastúlkur burstuðu KR

Nýliðar Breiðabliks unnu auðveldan sigur á KRingum í úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi, 89-58, en leikið var í DHL-Höllinni í Vesturbænum. Staðan í hálfleik var jöfn 31-31, en Blikastúlkur unnu síðari hálfleikinn 58-27.>

Sport
Fréttamynd

NBA leikmenn söfnuðu milljón

Miami Heat og San Antonio Spurs mættust í gærkvöld í sérstökum fjáröflunarleik fyrir fórnarlömb fellibylsins Katrínar. Miami hafði betur 103-101, en leikurinn var einnig liður í æfingatímabili liðanna tveggja. Yfir ein milljón Bandaríkjadala safnaðist í kjölfar leiksins.

Sport
Fréttamynd

Njarðvík spáð sigri í körfunni

Njarðvíkingum er spáð efsta sætinu í IcelandExpress deildinni í körfubolta karla í vetur, en Keflvíkingum í kvennaflokki. Þetta kom fram á blaðamannafundi í dag, þar sem þjálfarar og leikmenn kunngerðu spá sína um niðurröðun liða í efstu deild í vetur.

Sport
Fréttamynd

Hughes fékk óblíðar móttökur

Larry Hughes, fyrrum leikmaður Washington Wizards og núverandi leikmaður Cleveland Cavaliers, fékk óblíðar móttökur í gærkvöldi  þegar hann lék sinn fyrsta leik með nýja liðinu sínu í MCI Center í Washington.

Sport
Fréttamynd

Spáin kom Einari á óvart

Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur í úrvalsdeildinni í körfubolta, segir að nýútkomin spá forráðamanna, þjálfara og leikmanna hafi komið sér nokkuð á óvart, en eins og greint var frá hér á Vísi í dag, var Njarðvíkingum spáð efsta sæti í deildinni í vetur.

Sport
Fréttamynd

Stoudemire frá í fjóra mánuði

Lið Phoenix Suns varð fyrir gríðarlegu áfalli í dag þegar í ljós kom að lykilmaður liðsins, Amare Stoudemire, verði frá í allt að fjóra mánuði eftir að hann gekkst undir uppskurð á hné. Stoudemire er ein skærasta stjarnan í NBA deildinni í dag og skemmst er að minnast tilþrifa hans í úrslitakeppninni í vor.

Sport
Fréttamynd

Auðveldur sigur Keflavíkurstúlkna

Kvennalið Keflavíkur vann auðveldan sigur á Haukum í meistarakeppninni í körfubolta í dag. Eftir að staðan var 38-19 í hálfleik fyrir Keflavík, unnu þær auðveldan sigur, 76-47.

Sport
Fréttamynd

Njarðvík vann meistarakeppnina

Njarðvíkingar báru sigurorð af grönnum sínum í Keflavík í meistarakeppni KKÍ í Keflavík í kvöld, 94-79, eftir að hafa verið yfir í hálfleik 46-42. Jeb Ivey var stigahæstur í liði Njarðvíkur með 33 stig, en hirti auk þess átta fráköst og gaf fimm stoðsendingar.

Sport