Sport

Auðveldur sigur Keflavíkurstúlkna

Kvennalið Keflavíkur vann auðveldan sigur á Haukum í meistarakeppninni í körfubolta í dag. Eftir að staðan var 38-19 í hálfleik fyrir Keflavík, unnu þær auðveldan sigur, 76-47. Birna Valgarðsdóttir var stigahæst í liði Keflavíkur með 15 stig, en Reshea Bristol skoraði 14 stig og stal 13 boltum. Kesha Tardy var atkvæðamest hjá Haukum og skoraði 14 stig og hirti 20 fráköst. Keflvíkingar og Njarðvíkingar hefja leik í karlaflokki nú klukkan 19:15



Fleiri fréttir

Sjá meira


×