Sport

Fjórir æfingaleikir í NBA í nótt

Fjórir æfingaleikir fóru fram í NBA í nótt, en áskrifendur Sportpakkans á Digital Ísland fengu einmitt að sjá skemmtilegan leik Houston Rockets og Seattle Supersonics í beinni útsendingu á NBA TV. Houston var án þeirra Yao Ming og Tracy McGrady, en það kom ekki að sök, því liðið hafði sigur, 93-85. Stromile Swift var stigahæstur hjá Houston með 17 stig, en Ray Allen skoraði 14 stig hjá Seattle. Minnesota Timberwolves lagði Chicago Bulls nokkuð auðveldlega, 97-89 og voru yfir allan leikinn. Kevin Garnett skoraði 16 stig og hirti 10 fráköst fyrir Minnesota, en Kirk Hinrich skoraði 19 stig fyrir Chicago. Charlotte Bobcats vann Atlanta Hawks 94-88. Al Harrington skoraði 21 stig fyrir Atlanta, en Brevin Knight skoraði 22 stig fyrir Charlotte og gaf 7 stoðsendingar. Þá vann Phoenix Suns 106-95 sigur á Utah Jazz, þar sem fyrrum leikmaður Utah, Raja Bell, skoraði mest hjá Phoenix eða 20 stig, en Andrei Kirilenko skoraði 18 stig fyrir Utah Jazz.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×