Sport

Fjögur lið með fullt hús

Njarðvíkingar gerðu góða ferð í Vesturbæinn í kvöld og sigruðu þar KRinga 69-59. Jeb Ivey var stigahæstur í liði Njarðvíkur með 21 stig, en Ashley Champion skoraði 19 stig hjá KR og reyndar flest þeirra snemma leiks. Njarðvíkingar voru skrefinu á undan lengst af, en segja má að Jeb Ivey hafi gert út um leikinn í fjórða leikhluta þegar hann fór mikinn í sókninni. Önnur úrslit kvöldsins: ÍR 106 - Snæfell 94 Hamar/Selfoss 90 - Höttur 76 Haukar 78 - Fjölnir 86 Þór Ak. 90 - Grindavík 94 Keflavík 105 - Skallagrímur 96 Grindavík, Keflavík, Hamar/Selfoss og Njarðvík hafa öll fullt hús stiga eftir tvær umferðir, en Skallagrímur, Snæfell, Höttur og Haukar eru án stiga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×