Ástin á götunni
273 274 275 276 277 278 279 280 281 … 334 ›
Eiður Smári gerir upp ferilinn hjá Chelsea Kl. 20:15 í kvöld verður sýndur þáttur á sjónvarpsstöðinni Sýn um feril Eiðs Smára Guðjohnsen hjá Chelsea. Sem kunnugt er gekk Eiður Smári í raðir Barcelona í sumar eftir að hafa spilað í sex ár með Chelsea. Íslenski boltinn 6.11.2006 17:10
Hefur rætt við stjórnarformann West Ham Eggert Magnússon, formaður KSÍ, ræddi við Terry Brown, stjórnarformann West Ham, í gær um hugsanlega yfirtöku fjárfestingarhóps undir hans stjórn á Lundúnarfélaginu. Fundurinn þykir gefa sterkar vísbendingar um að Eggert sé ennþá með í baráttunni um yfirtöku á félaginu. Íslenski boltinn 4.11.2006 13:38
Þór/KA áfrýjar til ÍSÍ Enn liggur ekki fyrir hvort það verður Þór/KA eða ÍR sem tekur sæti í Landsbankadeild kvenna á næsta tímabili eftir að forráðamenn kvennaliðs Þórs/KA áfrýjuðu í dag niðurstöðu áfrýjunardómstóls KSÍ til áfrýjunardómstóls ÍSÍ, þar sem endanlegrar niðurstöðu er að vænta eftir um það bil 10 daga. Íslenski boltinn 3.11.2006 19:22
Valur semur við fjóra leikmenn Valsmenn héldu blaðamannafund í hádeginu þar sem kynntir voru fjórir nýjir leikmenn sem spila munu með liðinu í Landsbankadeildinni næsta sumar. Þetta eru þeir Hafþór Ægir Vilhjálmsson úr ÍA, Daníel Hjaltason úr Víkingi, Jóhann Helgason frá Grindavík og Gunnar Einarsson sem áður lék með KR. Íslenski boltinn 3.11.2006 14:14
Pétur Marteinsson í KR Landsliðsmaðurinn Pétur Marteinsson sem leikið hefur með Hammarby í Svíþjóð síðustu ár hefur ákveðið að snúa aftur heim til Íslands og ætlar að ganga í raðir KR. Pétur mun einnig starfa með Akademíu KR þar sem hann mun vinna með ungum knattspyrnumönnum. Íslenski boltinn 1.11.2006 18:11
Matthías skrifaði undir þriggja ára samning við FH Eins og fram kom í Fréttablaðinu í morgun hefur Valsmaðurinn Matthías Guðmundsson nú skrifað undir þriggja ára samning um að leika með Íslandsmeisturum FH. Matthías skrifaði undir hjá FH í hádeginu. Íslenski boltinn 1.11.2006 18:06
Fylkir fær góðan liðsstyrk Fylkismenn hafa fengið góðan liðsstyrk fyrir átökin næsta sumar en í dag gekk félagið frá samningi við þrjá nýja leikmenn, þá David Hannah, Kristján Valdimarsson og Frey Guðlaugsson. Hörður Magnússon greindi frá þessu í íþróttafréttum Stöðvar 2 í kvöld. Íslenski boltinn 26.10.2006 17:19
Hafþór Ægir semur við Val Hafþór Ægir Vilhjálmsson mun að öllum líkindum spila með Val í Landsbankadeildinni á næsta ári en í dag hafnaði hann tilboði frá sænska félaginu Norrköping. Umboðsmaður Hafþórs staðfesti í samtali við NFS í dag að leikmaðurinn myndi í kvöld ganga frá þriggja ára samningi við Val. Hafþór losnar undan samningi við ÍA í næstu viku. Íslenski boltinn 24.10.2006 16:19
ÍR fer upp Áfrýjunardómstóll KSÍ komst í dag að niðurstöðu í leiðindamáli Þórs/KA og ÍR í 1. deild kvenna og var niðurstaðan sú að ÍR leikur í Landsbankadeild kvenna að ári en ekki Þór/KA. ÍR vann sér sæti í deildinni með sigri á norðanliðnu í umspili, en ÍR tefldi fram ólöglegum leikmanni og kærði Þór/KA það til KSÍ. Það var hinsvegar knattspyrnusambandið sem gaf grænt ljós á að leikmaðurinn spilaði og því standa úrslitin og ÍR fer upp um deild. Íslenski boltinn 24.10.2006 14:00
Arnar og Bjarki semja við FH Tvíburabræðurnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir gerðu í dag eins árs samning við Íslandsmeistara FH í knattspyrnu. Bræðurnir eru 33 ára gamlir og léku sem kunnugt er með uppeldisfélagi sínu ÍA á síðustu leiktíð, þar sem þeir gegndu einnig þjálfarastarfi. Íslenski boltinn 20.10.2006 16:02
Atli og Óskar til KR Eins og fyrst kom fram í Fréttablaðinu í morgun var haldinn blaðamannafundur hjá KR í dag þar sem tilkynnt var að félagið hefði gert þriggja ára samning við þá Atla Jóhannsson frá ÍBV og Óskar Örn Hauksson frá Grindavík. Þessir ungu leikmenn eiga vafalítið eftir að styrkja vesturbæjarliðið verulega fyrir átökin næsta sumar, enda voru þeir tveir eftirsóttustu leikmennirnir á markaðnum í haust. Íslenski boltinn 20.10.2006 15:49
Arsenal lagði Breiðablik Arsenal vann í kvöld 4-1 sigur á Breiðablik í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum Evrópukeppni kvenna í knattspyrnu. Enska liðið vann fyrri leikinn 5-0 hér heima á dögunum og því eru Blikar úr leik. Það var Laufey Björnsdóttir sem skoraði mark íslenska liðsins í kvöld. Íslenski boltinn 19.10.2006 21:16
Pesic semur við Fram Miðjumaðurinn Igor Pesic, sem leikið hefur með Skagamönnum undanfarin tvö ár, hefur gengið frá þriggja ára samningi við nýliða Fram í Landsbankadeildinni. Pesic leikur því á ný undir stjórn Ólafs Þórðarsonar sem þjálfaði hann hjá ÍA lengst af. Íslenski boltinn 16.10.2006 15:01
Baldur Bett semur við Val Knattspyrnudeild Vals hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem fram kemur að félagið hafi gert þriggja ára samning við FH-inginn Baldur Bett. Baldur hefur leikið með FH síðan árið 2000 og á að baki 99 leiki í efstu deild. Íslenski boltinn 16.10.2006 14:35
Viktor Bjarki og Margrét Lára leikmenn ársins Viktor Bjarki Arnarsson úr Víkingi og Margrét Lára Viðarsdóttir úr Val voru í gær valin leikmenn ársins í karla- og kvennaflokki á Íslandsmótinu í knattspyrnu á lokahófi HSÍ sem haldið var á Hótel Íslandi. Íslenski boltinn 15.10.2006 15:00
Stórsigur Arsenal Arsenal vann í dag sannfærandi 5-0 sigur á Breiðablik í fyrri viðureign liðanna í 8-liða úrslitum Evrópukeppninnar á Kópavogsvelli. Enska liðið var einfaldlega of stór biti fyrir Blika, en eftir að staðan hafði verið 1-0 í hálfleik, skoraði Arsenal fjögur mörk á 15 mínútum um miðjan síðari hálfleik og gerði út um leikinn. Íslenski boltinn 12.10.2006 17:46
Formaður UMFG kallar Sigurð Jónsson aumingja Gunnlaugur Hreinsson, formaður aðalstjórnar Ungmennafélags Grindavíkur, vandar Sigurði Jónssyni fyrrum þjálfara meistaraflokks félagsins í knattspyrnu ekki kveðjurnar í pistli á heimasíðu UMFG í dag. Gunnlaugur kallar Sigurð meða annars aumingja. Íslenski boltinn 12.10.2006 17:00
Arsenal hefur forystu gegn Blikum Nú er kominn hálfleikur í fyrri viðureign Breiðabliks og Arsenal í 8-liða úrslitum Evrópukeppninni í knattspyrnu og hefur enska stórliðið 1-0 forystu. Það var enski landsliðsmaðurinn Kelly Smith sem skoraði mark Lundúnaliðsins eftir hálftíma leik eftir frábært einstaklingsframtak. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu í sjónvarpinu. Íslenski boltinn 12.10.2006 16:42
Leikmenn Arsenal hitta aðdáendur í dag Leikmenn kvennaliðs Arsenal munu klukkan 16 í dag hitta áhugasama aðdáendur liðsins í Landsbankanum í Smáralindinni, en enska liðið mætir kvennaliði Breiðabliks í Evrópukeppninni á morgun. Allir eru velkomnir í Smáralindina í dag og þar verður lið Breiðabliks einnig að gefa eiginhandaráritanir. Íslenski boltinn 11.10.2006 15:17
Mjög mikilvægt fyrir félagið Íþróttafélagið ÍBV hefur gert stóran samning við Ísfélag Vestmannaeyja hf. og Vinnslustöðina hf. sem kveður á um að fyrirtækin verði styrktaraðili félagsins næstu tvö árin. Skrifað var undir samninginn á lokahófi knattspyrnudeildar ÍBV sem fram fór á föstudag en fjármununum verður skipt á milli karla- og kvennaliða félagsins í fótbolta og handbolta. Handbolti 8.10.2006 20:19
4-0 fyrir Lettum Eiður Smári misnotar góð færi og okkur er refsað um hæl. Enn ein varnarmistökin, Indriði rennur til, Visnjakovs fær frítt skot fyrir utan teig og skorar. Íslenski boltinn 7.10.2006 19:13
Martröð í Ríga 3-0 3-0 fyrir Lettum og ekki hálftími er liðinn af leiknum. Það stendur ekki steinn yfir steini í leik íslenska liðsins sem virðist vera áhorfandi af eigin útför á meðan Lettar hafa skorað þrjú mörk á 12 mínútna kafla. Íslenski boltinn 7.10.2006 18:29
Lettar komnir í 2-0 Lettar hafa skorað tvö mörk með mínútu millibili. Karlsons skoraði eftir mistök í vörinni, Eiður fékk ágætt færi en nánast í sömu andrá gerði Ívar Ingimarsson slæm mistök og Verpakovskis kom Lettum í 2-0. Aðeins eru liðnar 20 mínútur af leiknum. Íslenski boltinn 7.10.2006 18:18
Stuðningurinn metinn á 40 milljónir Ísfélag Vestmannaeyja hf. og Vinnslustöðin hf. hafa gert samstarfssamning við ÍBV íþróttafélag um stuðning við starfsemi meistaraflokka og unglingaráða karla og kvenna í knattspyrnu og handknattleik. Samningarnir gilda til ársloka 2008 og voru undirritaðir í lokahófi knattspyrnudeildar ÍBV í gærkvöld. Stuðningur fyrirtækjanna tveggja á samningstímanum er metinn á um 40 milljónir króna og skiptir í raun sköpum fyrir rekstur ÍBV íþróttafélags. Handbolti 7.10.2006 17:57
Tommy Nielsen framlengir við FH Danski varnarmaðurinn Tommy Nielsen hefur framlengt samning sinn við Íslandsmeistara FH til tveggja ára, en þetta staðfesti Pétur Stephensen framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar FH við NFS nú síðdegis. Íslenski boltinn 6.10.2006 16:38
Hópurinn sem mætir Bandaríkjamönnum Jörundur Áki Sveinsson hefur valið landsliðshóp sinn sem mætir sterku liði Bandaríkjanna í æfingaleik ytra á sunnudaginn og í hópnum er að finna einn nýliða, Helgu Sjöfn Jóhannesdóttur úr Stjörnunni. Íslenski boltinn 4.10.2006 15:26
Meiddist á æfingu hjá Norrköping Knattspyrnumaðurinn Hafþór Ægir Vilhjálmsson hjá ÍA er nú á leið heim frá Svíþjóð þar sem hann var til reynslu hjá liði Norrköping. Hafþór meiddist á æfingunni og þarf um viku til að jafna sig, en honum hefur verið boðið að koma aftur út þegar hann nær sér og mun hann þá væntanlega einnig fara til Noregs og reyna sig hjá Aalesund. Íslenski boltinn 4.10.2006 15:10
Þór/KA heldur stöðu sinni í deildinni Lið Þórs/KA frá Akureyri heldur stöðu sinni í Landsbankadeild kvenna en ÍR þarf að láta sætta sig við að vera áfram í 1. deildinni þrátt fyrir að hafa unnið sér sæti í efstu deild í umspili á dögunum. Íslenski boltinn 4.10.2006 13:54
Ætlar ekki að láta nördana skora hjá sér Varnarmaðurinn sterki Auðunn Helgason hjá Íslandsmeisturum FH á von á því að spila sinn fyrsta leik eftir meiðsli gegn KF Nörd þegar liðin eigast við á Laugardalsvellinum annað kvöld. Auðunn á ekki von á því að fá sæti í byrjunarliðinu en segir ekki koma til greina að láta nördana skora hjá sér meðan hann er innan vallar. Íslenski boltinn 3.10.2006 19:42
Lofar markaveislu annað kvöld Logi Ólafsson segist verða milli steins og sleggju þegar hans menn mæta Íslandsmeisturum FH á Laugardalsvelli á morgun í kjölfar yfirlýsinga kollega hans Ólafs Jóhannessonar, þjálfara FH, á blaðamannafundi sem haldinn var í dag. Íslenski boltinn 3.10.2006 15:52