Ástin á götunni
284 285 286 287 288 289 290 291 292 … 334 ›
Woodgate þakkaði sjúkraþjálfaranum Varnarmaðurinn Jonathan Woodgate fagnaði marki sínu fyrir Real Madrid í Meistaradeildinni í gær með því að stökkva í fangið á sjúkraþjálfaranum sínum sem stóð á hliðarlínunni og segir að hann sé maðurinn á bak við endurkomu sína úr meiðslum. Sport 23.10.2005 17:51
Tottenham fær ekki Ólympíuleikvang Vonir forráðamanna Tottenham Hotspur um að flytja heimavöll liðsins á frjálsíþróttaleikvanginn sem reistur verður fyrir Ólympíuleikana árið 2012 eru að engu orðnar, eftir að aðilar sem standa að byggingunni tilkynntu að leikvangurinn yrði áfram notaður undir frjálsar íþróttir eftir að leikunum líkur. Sport 23.10.2005 17:51
Giggs fer í aðgerð Ryan Giggs, leikmaður Manchester United, þarf að fara í aðgerð vegna kinnbeinsbrotsins sem hann hlaut í leiknum gegn Lille í Meistaradeildinni á þriðjudaginn og óvíst er hversu lengi kappinn verður frá keppni í kjölfarið, en það verða væntanlega nokkrar vikur. Sport 23.10.2005 17:51
Torres orðaður við Arsenal Breska dagblaðið Daily Mirror greinir frá því í dag að Arsenal sé á höttunum eftir spænska landsliðsmanninum Fernando Torres hjá Atletico Madrid, en talið er að hann myndi kosta enska liðið um 15 milljónir punda. Sport 23.10.2005 17:51
Jol í vandræðum með Keane Martin Jol, knattspyrnustjóri Tottenham, viðurkennir fúslega að það sé óréttlátt að maður eins og Robbie Keane skuli þurfa að sitja á varamannabekk liðsins leik eftir leik, en segir að í sínum augum sé hann hluti af byrjunarliði sínu. Sport 23.10.2005 17:51
Mark Gonzalez til Liverpool Liverpool hefur gengið frá kaupum á miðjumanninum Mark Gonzalez frá Chile, en hann er 21 árs og kemur frá spænska liðinu Albacete. Liverpool reyndi að kaupa hann í sumar, en ekkert varð af því eftir að félaginu mistókst að fá atvinnuleyfi fyrir hann. Það mun nú vera í vinnslu, þó þess verði nokkuð að bíða að hann gangi í raðir félagsins. Sport 23.10.2005 17:51
Cudicini vill framlengja Ítalski markvörðurinn Carlo Cudicini segist vilja framlengja samning sinn við Chelsea til ársins 2009, jafnvel þó hann hafi vermt varamannabekk liðsins allt frá því Petr Cech kom til Chelsea á sínum tíma. Sport 23.10.2005 17:51
Fjöldi leikja í UEFA bikarnum Margir leikir verða á dagskrá í riðlakeppni Evrópukeppni félagsliða í kvöld og nokkrir eru þegar hafnir. Kristinn Jakobsson dæmir leik CSKA Moskvu og Marseille, sem er nýhafinn og er í beinni útsendingu á Eurosport. Þá eru Gunnar Heiðar Þorvaldsson og félagar í eldlínunni, sem og nokkur ensk lið. Sport 23.10.2005 17:51
Christianval meiddur Hrakfallabálkurinn Philippe Christanval hjá Fulham verður frá í þrjár vikur vegna meiðsla á læri, sem hann varð fyrir eftir aðeins 35 mínútna leik með nýja liðinu sínu á mánudagskvöldið. Ferill Christanval hefur einkennst af miklum meiðslum, en engum dyljast hæfileikar þessa fyrrum landsliðsmanns Frakka. Sport 23.10.2005 17:51
Gunnar fékk úr litlu að moða Gunnar Heiðar Þorvaldsson sagði í samtali við Vísi nú áðan að hann hefði fengið úr litlu að moða í Evrópuleiknum gegn Hertha Berlin áðan, en lið hans Halmstad tapaði 1-0 á heimavelli fyrir þýska liðinu. Sport 23.10.2005 17:51
Laporta ætlar að ná í Henry Joan Laporta, forseti Barcelona, er sagður ætla að tryggja sér áframhaldandi setu í embætti með því að ná að lokka Thierry Henry til félagsins frá Arsenal, ef marka má frétt frá The Daily Star. Sú staðreynd að Henry hefur neitað að ræða nýjan samning við Arsenal, hefur nú ýtt frekar undir sögusagnir um að hann sé á förum frá félaginu. Sport 23.10.2005 17:51
Ronaldo handtekinn Knattspyrnumaðurinn Cristiano Ronaldo hjá Manchester United hefur verið handtekinn og færður til yfirheyrslu vegna gruns um nauðgun. Forráðamenn Manchester United hafa enn ekki tjáð sig um málið, sem er í rannsókn. Sport 23.10.2005 17:50
Meistaradeildin á Sýn í kvöld Átta leikir eru á dagskrá í Meistaradeildinni í knattspyrnu í kvöld og aðalleikur kvöldsins á Sýn er viðureign Chelsea og Real Betis, síðar um kvöldið verður svo leikur Anderlecht og Liverpool á dagskrá, en sá leikur verður í beinni á Sýn Extra. Leikirnir hefjast klukkan 18:30, en þar á undan verður upphitun með Guðna Bergs. Sport 23.10.2005 17:50
Rosenborg er yfir gegn Real Madrid Nú er kominn hálfleikur í leikjunum átta í Meistaradeild Evrópu. Chelsea hefur örugga 2-0 forystu gegn Real Betis, þar sem Drogba og Carvalho skoruðu mörkin, en Real Madrid er undir 1-0 gegn Rosenborg á heimavelli. Sport 23.10.2005 17:50
Kerr ósáttur við uppsögnina Brian Kerr, fráfarandi landsliðsþjálfari írska landsliðsins í knattspyrnu, sakar stjórn knattspyrnusambandsins um skammsýni eftir að honum var sagt upp störfum á dögunum og bendir á að uppsögn hans sé á skjön við stefnu sem sett hafi verið árið 2002. Sport 23.10.2005 17:50
Auðveldur sigur Chelsea Chelsea burstaði Real Betis 4-0 á heimavelli sínum í kvöld. Ricardo Carvalho, Didier Drogba, Hernan Crespo og Joe Cole skoruðu mörk enska liðsins. Real Madrid valtaði yfir Rosenborg 4-1, eftir að hafa verið undir 1-0 í hálfleik. Sport 23.10.2005 17:50
Reyes verður ekki lengi frá Spánverjinn Jose Antonio Reyes hjá Arsenal verður ekki eins lengi frá keppni og óttast var, eftir að hann meiddist í leiknum gegn Sparta Prag í fyrrakvöld. Talið var að hann yrði frá keppni í nokkrar vikur, en meiðslin eru ekki eins alvarleg og talið var. Hann verður þó tæplega með Arsenal gegn Manchester City á laugardaginn. Sport 23.10.2005 17:50
Ísland í 92. sæti á FIFA listanum Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu stendur í stað á nýja styrkleikalistanum frá FIFA, sem gefinn var út í morgun. Brasilíumenn eru enn í efsta sæti listans en Hollendingar koma þar á eftir og Tékkar eru í þriðja sætinu. Svíar eru efstir Norðurlandaþjóðanna á listanum og sitja í fjórtánda sæti, einu sæti fyrir ofan Dani. Sport 23.10.2005 17:50
Rio tippar á Tottenham Varnarmaðurinn Rio Ferdinand segir að kannski sé tími Tottenham kominn í ensku úrvalsdeildinni og bendir á að liðið virðist loksins að ná þeim stöðugleika sem það hafi skort á undanförnum árum. Manchester United og Tottenham mætast á Old Trafford um helgina. Sport 23.10.2005 17:50
Ballack lofar ákvörðun fyrir jól Miðjumaðurinn sterki, Michael Ballack hjá Bayern Munchen, hefur lofað félaginu að hann tilkynni ákvörðun um framtíð sína fyrir jól, en hann hefur mikið verið orðaður við Manchester United eftir að samningi hans hjá þýska liðinu lýkur. Sport 23.10.2005 17:50
Owen meiddur á læri Framherjinn Michael Owen hjá Newcastle er tæpur fyrir grannaslag Newcastle og Sunderland í ensku úrvalsdeildinni um helgina vegna meiðsla á læri sem hann hlaut í æfingaleik í fyrrakvöld. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem kappinn meiðist á læri, en Shola Ameobi mun líklega taka stöðu hans um helgina. Sport 23.10.2005 17:50
Giggs verður fyrirliði Ryan Giggs er kominn inn í byrjunarlið Manchester United á ný og verður fyrirliði liðsins í leiknum gegn Lille í Meistaradeildinni nú á eftir. Manchester United mun spila kerfið 4-3-3 í leiknum og Darren Fletcher mun taka stöðu Park Ji-Sung á miðjunni. Sport 23.10.2005 17:50
Meistaradeildin á Sýn í kvöld Nokkrir leikir fara fram í Meistaradeild Evrópu í kvöld og aðalleikur kvöldsins á Sýn verður stórleikur Bayern Munchen og Juventus, en útsending hefst klukkan 18:30. Þá verður leikur Manchester United og Lille sýndur klukkan 21:20, en hann er sýndur beint á Sýn Extra klukkan 18:30. Sport 23.10.2005 17:50
Cissé líklegur gegn Anderlecht Rafael Benitez segir vel koma til greina að nýta hungur franska framherjans Djibril Cissé með því að gefa honum tækifæri í byrjunarliðinu gegn Anderlecht í Meistaradeildinni annað kvöld, en liðin eigast við í G-riðli. Sport 23.10.2005 17:50
Ótrúleg endurkoma Henry Leikjum kvöldsins í Meistaradeildinni er lokið og óhætt að segja að Thierry Henry hjá Arsenal hafi verið maður kvöldsins, en hann tryggði liði sínu 2-0 sigur í Prag með tveimur mörkum, eftir að hafa komið inná sem varamaður eftir aðeins fimmtán mínútna leik. Sport 23.10.2005 17:50
O´Leary kærður Enska knattspyrnusambandið hefur kært David O´Leary, stjóra Aston Villa, fyrir óviðeigandi hegðun eftir að lið hans vann sigur á grönnum sínum í Birmingham í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Sport 23.10.2005 17:50
Wenger hrósaði Henry Arsene Wenger er yfir sig ánægður með gengi sinna manna í Arsenal í Meistaradeildinni í ár og þá ekki síður með framherja sinn Thierry Henry, sem í gærkvöld varð markahæsti leikmaður Arsenal frá upphafi þegar hann skoraði bæði mörk liðsins í sigrinum á Sparta Prag. Sport 23.10.2005 17:50
Ferguson ekki kátur með jafnteflið Alex Ferguson var ekki par hrifinn af leik franska liðsins Lille í Meistaradeildinni í gær og sagði liðið aldrei hafa reynt að vinna leikinn. Einnig þótti honum rauða spjaldið sem Paul Scholes fékk í leiknum vera ansi strangur dómur. Sport 23.10.2005 17:50
Giggs verður frá í nokkrar vikur Ryan Giggs hjá Manchester United verður frá keppni í allt að sex vikur vegna kinnbeinsbrots sem hann hlaut í leiknum við Lille í Meistaradeildinni í gærkvöld og eykur þar með enn á ófarir liðsins, sem hefur verið einstaklega óheppið með meiðsli á leiktíðinni. Sport 23.10.2005 17:50
Melchiot meiddur Varnarmaðurinn Mario Melchiot hjá Birmingham verður frá keppni í þrjár vikur í viðbót vegna hnémeiðsla, en hann missti af leik liðsins við grannaliðið Aston Villa um helgina. Fyrir eru þeir Stephen Clemence og David Dunne meiddir og verða frá í nokkurn tíma. Sport 23.10.2005 17:50