Ástin á götunni
298 299 300 301 302 303 304 305 306 … 334 ›
Jewell sló á létta strengi Paul Jewell, stjóri Wigan, sló á létta strengi í viðtali eftir sigurinn á Everton í gær, en Wigan hefur byrjað leiktíðina betur en nokkur þorði að vona. Hann lét menn sína heyra það í hálfleik og uppskar enn einn óvæntan sigur á tímabilinu. Sport 23.10.2005 14:59
Start lagði topplið Valerenga Start vann nú áðan góðan sigur á Valerenga, 3-0 í toppslag norska fótboltans. Jóhannes Harðarson lék allan leikinn fyrir Start og Árni Gautur Arason stóð í marki Valerenga. Með sigrinum lyftir Start sér í toppsætið í deildinni á kostnað Valerenga á betri markatölu, en bæði lið hafa hlotið 44 stig eftir 22 leiki. Sport 23.10.2005 14:59
Wenger vill stig fyrir mörk Arsene Wenger hefur fundið lausnina á dræmri aðsókn á leiki í ensku knattspyrnunni og segir að umbuna ætti liðum sem spila sóknarknattspyrnu með því að gefa þeim stig fyrir að skora mörg mörk. Sport 23.10.2005 14:59
Maldini með met og sigur Varnarmaðurinn ótrúlegi Paolo Maldini hjá AC Milan fagnaði tvöfalt þegar lið hans vann sigur á botnliði Treviso 2-0 í ítalska boltanum í dag. Maldini hefur nú leikið flesta leiki allra í sögu deildarinnar og bætti met Dino Zoff, sem spilaði 570 á ferlinum í ítölsku deildinni. Sport 23.10.2005 14:59
Willum Þór var í skýjunum Willum Þór Þórsson, þjálfari Vals, var í skýjunum eftir sigurinn á Fram. Kópavogsbúinn geðþekki hefur nú unnið nánast allt sem hægt er að vinna í íslenskri knattspyrnu, allar deildirnar fjórar og nú bikarinn eftirsótta. Sport 23.10.2005 14:59
Leikjum lokið á Englandi Leikjunum sex í ensku úrvalsdeildinni er lokið, en þar ber hæst að Manchester United tapaði á heimavelli fyrir Blackburn og Chelsea hélt sigurgöngu sinn áfram með sigri á Aston Villa á heimavelli sínum. Sport 23.10.2005 14:59
Bikarúrslitin á Boltavaktinni Bikarúrslitaleikur Fram og Vals á Laugardalsvelli hefst nú klukkan 14 og þeir sem ekki komast á völlinn geta fylgst vel með gangi mála á Boltavaktinni hér á íþróttasíðu Vísis.is. Sport 23.10.2005 14:59
Hálfleikur á Laugardalsvelli Nú er hálfleikur í bikarúrslitaviðureign Vals og Fram á Laugardalsvelli og skemmst frá því að segja að leikurinn er hundleiðinlegur. Hvorugt lið hefur þorað að taka áhættu í leiknum eða sækja af neinu viti og því hafa áhorfendur ekki fengið mikið fyrir sinn snúð. Sport 23.10.2005 14:59
Jafntefli hjá Luton og Sheffield Einn leikur var á dagskrá í ensku fyrstu deildinni í knattspyrnu í gær. Luton og Sheffield Wednesday gerðu jafntefli, 2-2. Luton er í þriðja sæti í deildinni með 18 stig en Sheffield Wednesday í þriðja neðsta sæti með 7 stig. Sport 23.10.2005 14:59
Ótrúlegt að við skyldum tapa Ólafur Kristjánsson, þjálfari Fram, var mjög svekktur eftir tap liðsins gegn Val í bikarúrslitunum. „Við áttum mikið fleiri færi en þeir og svo kemur ein helvítis fyrirgjöf og hún endar í markinu. Það er alveg ótrúlegt að við skyldum tapa þessum leik." Sport 23.10.2005 14:59
Baldur kemur Val yfir Síðari hálfleikurinn hjá Fram og Val byrjar mun betur en sá fyrri og nú hafa Valsmenn náð forystunni með marki Baldurs Aðalsteinssonar, sem skoraði með góðu skoti á 52. mínútu leiksins. Fylgst er með gangi mála á Boltavaktinni. Sport 23.10.2005 14:59
Slæmur fyrri hálfleikur í gær Íslenska kvennalandsliðið tapaði 0–1 fyrir Tékkum í gær en þetta var fyrsta tap íslenska liðsins í undankeppni fyrir HM í Kína 2007. Sænska landsliðið vann Hvít-Rússa 6–0 á sama tíma og er komið á toppinn í riðlinum. Sport 23.10.2005 14:59
Þriðja umferð deildarbikarsins Nú hefur verið dregið í þriðju umferð deildarbikarsins á Englandi. Grimsby fær tækifæri til að slá út annað úrvalsdeildarlið, því þeir fá Newcastle í heimsókn í næstu umferð. Félagar Grimsby í fjórðu deildinni, Barnet, fara á Old Trafford og mæta þar Manchester United. Þá verða fimm viðureignir milli úrvalsdeildarfélaga. Sport 23.10.2005 14:59
Hálfleikur á Englandi Nú er hálfleikur í leikjunum sex sem standa yfir í ensku knattspyrnunni, en hægt er að fylgjast með gangi mála í leikjunum á Boltavaktinni hér á Vísi. Það vekur athygli að Manchester United er undir á heimavelli sínum gegn Blackburn og Chelsea hefur fengið á sig fyrsta markið á tímabilinu á heimavelli gegn Aston Villa. Sport 23.10.2005 14:59
Þetta var skot hjá mér „Þetta var skot! Ég sá að Gunnar stóð of framarlega þannig að ég tók þá ákvörðun að skjóta," sagði Húsvíkingurinn Baldur Aðalsteinsson strax eftir leik en hann skoraði eina mark bikarúrslitaleiksins í ár. Sport 23.10.2005 14:59
Loksins titill hjá Val eftir 13 ár Baldur Aðalsteinsson tryggði Val níunda bikarmeistaratitil félagsins þegar hann skoraði sigurmarkið gegn Fram með skoti langt utan af kanti. Framarar voru síst lakari aðilinn í leiknum en það voru nýliðar Valsmanna sem kórónuðu frábært tímabil með því að vinna bikarinn. Sport 23.10.2005 14:59
Hermann hrósar félögum sínum Hermann Hreiðarsson telur að leikmennirnir sem keyptir voru til félagsins í sumar og hreint og klárt hungur, séu ástæður þess að Charlton hefur byrjað svo vel í ensku úrvalsdeildinni í haust, en liðið hefur þegar unnið þrjá útileiki. Sport 23.10.2005 14:59
Valur bikarmeistari Valur er bikarmeistari árið 2005 eftir sigur á Fram 1-0 í úrslitaleik sem lauk nú rétt í þessu. Það var Baldur Aðalsteinsson sem skoraði eina mark leiksins á 52. mínútu og eru Valsmenn vel að sigrinum komnir eftir frábært sumar, þar sem þeir höfnuðu í öðru sæti Landsbankadeildarinnar sem nýliðar í deildinni. Sport 23.10.2005 14:59
Bolton sigraði Portsmouth Bolton Wanderers lyfti sér í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu áðan, þegar liðið bar sigurorð af slöku liði Portsmouth, sem á í stökustu vandræðum í deildinni. Það var Kevin Nolan sem skoraði sigurmark Bolton á 25. mínútu leiksins og þar við sat. Sport 23.10.2005 14:59
Ísland tapaði fyrir Tékkum Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu tapaði 1-0 fyrir Tékkum í undankeppni HM nú áðan. Þetta var fyrsta tap íslenska liðsins í riðlinum og mark tékkneska liðsins kom eftir átta mínútur. Sport 23.10.2005 14:59
Loksins tapaði Bayern Þýsku meistararnir í Bayern Munchen töpuðu loks sínum fyrsta leik í Bundesligunni í dag þegar liðið sótti sprækt lið Hamburger heim og tapaði 2-0. Sigur HSV var síst of stór og aðeins góður leikur Oliver Kahn í marki heimamanna bjargaði meisturunum frá stærra tapi. Sport 23.10.2005 14:59
Íslensku stelpurnar marki undir Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu er undir 1-0 í hálfleik gegn Tékkum ytra, en mark þeirra kom eftir átta mínútna leik. Leikurinn er í undankeppni HM, en íslenska liðið var í efsta sæti riðils síns fyrir leikinn. Sport 23.10.2005 14:59
Jafnt hjá Birmingham og Liverpool Birmingham og Liverpool gerðu jafntefli 2-2 á St Andrews vellinum nú áðan í æsilegum leik í ensku úrvalsdeildinni. Fyrri hálfleikurinn var ansi bragðdaufur og stefndi í enn einn markalausan leik hjá liðinu úr Bítlaborginni. Sport 23.10.2005 14:59
Það var kominn tími á þetta „Þetta er alveg meiriháttar. Það var svo sannarlega kominn tími til að lyfta alvöru bikar. Ég er kominn með góða æfingu eftir að hafa unnið 1. deildina, Reykjavíkurmótið, Canella Cup, Íslandsmótið innan hús og ég veit ekki hvað," sagði Sigurbjörn Hreiðarsson, fyrirliði Valsmanna. Sport 23.10.2005 14:59
Woodgate þakkaði stuðningsmönnum Hrakfallabálkurinn Jonathan Woodgate þakkaði stuðningsmönnum Real Madrid fyrir að standa við bakið á sér eftir ófarir sínar í leik Real og Bilbao í gær, en þessi fyrsti leikur hans með aðalliði í nær eitt og hálft ár, snerist upp í algjöra martröð eins og áhorfendur Sýnar fengu að verða vitni að í skrautlegum leik í gærkvöld. Sport 23.10.2005 14:58
Vieira aðvarar Arsenal Miðjumaðurinn Patrick Vieira hjá Juventus hefur gefið út aðvörunarorð til fyrrum félaga sinna í Arsenal og segir að félagið verði að bretta upp ermarnar í leikmannamálum ef það ætli sér að halda framherjanum snjalla Thierry Henry lengur í sínum röðum. Sport 23.10.2005 14:58
Bikarúrslitin í dag Það má búast við miklum baráttuleik í dag þegar Fram og Valur mætast í úrslitaleik VISA-bikarkeppninnar. Ólafur Kristjánsson, þjálfari Fram, hefur þurft að beita öllum ráðum til þess að fá sína leikmenn til þess að einbeita sér að leiknum eftir að hafa fallið í 1.deild um síðustu helgi. Sport 23.10.2005 14:58
Routledge fjarri bata Miðjumaðurinn Wayne Routledge hjá Tottenham á enn langt í land með að ná sér af meiðslum sínum og Martin Jol knattspyrnustjóri liðsins óttast að hann verði frá í að minnsta kosti tvo mánuði í viðbót. Sport 23.10.2005 14:58
Ísland-Tékkland í dag Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir í dag Tékklandi í undankeppni heimsmeistaramótsins sem fer fram í Kína árið 2007. Ísland er í efsta sæti síns riðils eins og staðan er nú og á ágæta möguleika á því að komast í lokakeppnina ef vel gengur í leikjunum sem eftir eru. Sport 23.10.2005 14:59
Chelsea hefur heppnina með sér Arsene Wenger segir heilladísirnar hafa verið á bandi Chelsea það sem af er leiktíðinni og spáir að þegar liðið loks tapar í úrvalsdeildinni, gæti það haft í för með sér taphrinu, ekki ósvipaða þeirri sem Arsenal lenti í þegar sigurganga þeirra var stöðvuð í deildinni í fyrra. Sport 23.10.2005 14:58