Ástin á götunni
300 301 302 303 304 305 306 307 308 … 334 ›
Neyðarfundur vegna stöðu deildar Neyðarfundur hefur verið boðaður hjá forráðamönnum ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu vegna minnkandi aðsóknar, lítils skemmtanagildis, minni spennu og hækkandi miðaverðs. Stjórnarformenn liða í úrvalsdeildinni hittast í nóvember næstkomandi. Í ítarlegri úttekt <em>BBC</em> kemur m.a. fram að of margar beinar útsendingar í sjónvarpi, hækkun miðaverðs og varfærni í leikskipulagi liða sé hugsanleg ástæða minnkandi aðsóknar. Sport 17.10.2005 23:46
Andri til reynslu hjá Öster Vestmannaeyingurinn Andri Ólafsson heldur nú í vikunni til Svíþjóðar þar sem hann mun vera til reynslu hjá 1. deildarfélaginu Östers IF. Andri hefur verið einn af fastamönnum ÍBV í sumar en hann hefur leikið fimmtán leiki og skorað í þeim þrjú mörk. Forráðamenn Öster hafa fylgst með Andra í nokkurn tíma og hafa nú boðið honum að æfa með félaginu um skeið. Sport 17.10.2005 23:45
Góð tíðindi fyrir Boro Steve McClaren, stjóri Middlesbrough fagnar því um þessar mundir að fimm leikmenn liðsins sem hafa verið meiddir eru að snúa til baka og verða væntanlega í leikmannahóp liðsins um helgina þegar það mætir Sunderland. Sport 17.10.2005 23:45
Ragnar og Helgi til Noregs Norsku liðin Viking og Odd Grenland hafa boðið Fylkismanninum Helga Val Daníelssyni reynslusamning en þau vilja ólm fá hann í sínar raðir. Að sögn Ólafs Garðarssonar, umboðsmanns Helga Vals, er ætlunin að hann fari til Noregs á næstunni. Sport 17.10.2005 23:45
Dramatík í enska deildarbikarnum Það er jafnan mikið um dramatík og óvænt úrslit í enska deildarbikarnum og keppnin stóð fyllilega undir væntingum í þeim efnum í kvöld. Úrvalsdeildarlið Tottenham Hotspurs féll úr leik þegar það tapaði 1-0 fyrir fjórðudeildarliði Grimsby og Aston Villa rótburstaði Wycombe 8-3, eftir að hafa verið undir í hálfleik, 3-1. Sport 17.10.2005 23:45
Góð sala á Ísland-Svíþjóð Það er mikil spenna á meðal sænskra knattspyrnáhugamanna fyrir leik liðsins við Íslendinga. Alls hafa 28 þúsund miðar verið seldir á leikinn sem er liður í undankeppni HM en hann fer fram á Råsunda leikvanginum í Stokkhólmi miðvikudaginn 12. október næstkomandi. Sport 17.10.2005 23:45
Kári og félagar í góðum málum "Síðustu tveir leikir hafa verið algerir úrslitaleikir og unnust þeir báðir, fyrst 2-0 gegn Malmö og svo í kvöld," sagði Kári við Fréttablaðið í gær en hann var í byrjunarliðinu í báðum leikjum, rétt eins og í flestum leikjum tímabilsins með Gautaborg. Sport 17.10.2005 23:45
Aðsókn minnkar í úrvalsdeildinni Forráðamenn ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu hafa nú boðað til sérstaks fundar til að ræða framtíð deildarkeppninnar, í ljósi þess að aðsókn hefur minnkað nokkuð það sem af er leiktíðinni frá því sem var í fyrra. Sport 17.10.2005 23:45
Fjórir leikir í Þýskalandi Fjórir leikir voru á dagskrá í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.Monchengladbach vann góðan sigur á Werder Bremen á heimavelli 2-1 og þá vann Bayern Munchen enn einu sinni, nú gegn Frankfurt á útivelli, 1-0 með marki frá varamanninum Paolo Guerrero. Sport 17.10.2005 23:45
Portsmouth datt út úr bikarnum Nú er leik Gillingham og Portsmouth lokið í enska bikarnum. Það var Gillingham sem hafði sigur eftir framlengdan leik 3-2, eftir að hafa lent undir 2-1 í byrjun síðari hálfleiks. Það féllu því tvö úrvalsdeildarlið úr bikarnum í kvöld, því eins og fram kom hér áðan, tapaði Tottenham fyriri Grimsby. Sport 17.10.2005 23:45
Grimsby - Tottenham beint á Sýn Enska deildarbikarkeppnin í knattspyrnu hefst í kvöld. 21 leikur verður háður en viðureign Grimsby og Tottenham verður sýnd beint á Sýn klukkan 18.45. Sport 17.10.2005 23:44
Hafði tap á tilfinningunni Guðjón Þórðarson og félagar í Notts County töpuðu sínum fyrsta leik í ensku annari deildinni um helgina þegar liðið lá 2-0 fyrir Shrewsbury. "Ég var með slæma tilfinningu fyrir þessum leik alveg frá því ég vaknaði á laugardagsmorguninn," sagði Guðjón í viðtali á heimasíðu félagsins. Sport 17.10.2005 23:45
Rússar hafa áhuga á Aston Villa Forráðamenn Aston Villa hafa staðfest að viðræður séu í gangi við rússneska fjárfesta sem hafa í huga að kaupa félagið. Orðrómi sem kominn var á kreik að því fylgdi loforð um 75 milljónir punda til leikmannakaupa hefur þó verið vísað á bug og það tekið skýrt fram að viðræður séu aðeins á frumstigi. Sport 17.10.2005 23:45
Gústaf tekur við Haukum Gústaf Adolf Björnsson er tekinn við þjálfun 1. deildarliðs Hauka í fótbolta. Gústaf Adolf var ráðinn á mánudagskvöld eftir að stjórn Hauka hafði nýtt sér uppsagnarákvæði í samningi Izudin Daða Dervic sem þjálfaði Hauka síðustu tvö sumur. Sport 17.10.2005 23:45
Rooney fær tveggja leikja bann Táningurinn skapstirði Wayne Rooney hjá Manchester United, fær tveggja leikja bann í Meistaradeild Evrópu fyrir brottvísun sína í leiknum gegn Villareal á dögunum, þar sem hann fékk að líta sitt annað gula spjald fyrir kaldhæðnisleg mótmæli við dómara leiksins. Sport 17.10.2005 23:45
Beckham sló mótherja sinn Sergio Sanches, leikmaður Espanyol á Spáni, sagði að David Beckham hefði slegið sig í göngunum þegar leikmenn gengu af velli eftir tap Real Madrid gegn Espanyol í spænsku deildinni um helgina. Sport 17.10.2005 23:45
Rafa fer ekki fet Fregnir bárust af því í morgun að spænska stórveldið Real Madrid væri að íhuga að nálgast Rafael Benitez stjóra Liverpool, sem næsta knattspyrnustjóra liðsins, en spænska liðinu hefur gengið afleitlega í síðustu leikjum. Sport 17.10.2005 23:45
Stórslagur í spænska í kvöld Barcelona og Valencia mætast í kvöld í spænsku úrvalsdeildinni. Barcelona þarf nauðsynlega á sigri að halda í kvöld eftir að hafa tapað óvænt fyrir Atletico Madrid í síðustu umferð. Víctor Valdéz, markvörður Barcelona og spænska landsliðsins, á von á erfiðum leik. Sport 17.10.2005 23:45
Mido fær ekki lengra bann Egypski framherjinn Mido hjá Tottenham verður leikfær með liði sínu í gegn Fulham í ensku úrvalsdeildinni um næstu helgi, en hann klárar að taka út þriggja leikja bann sitt gegn Grimsby í bikarnum í kvöld. Sport 17.10.2005 23:45
Enskir vilja Mourinho sem þjálfara Sá orðrómur hefur farið fjöllunum hærra á Englandi undanfarnar vikur að portúgalski knattspyrnustjórinn Jose Mourninho hjá Chelsea muni taka við enska landsliðinu í framtíðinni. Hann hefur nú gengið svo langt að enskir fjölmiðlar slógu því upp í gær að Portúgalinn væri tilbúinn að breyta um þjóðfang til að fá starfið. Sport 17.10.2005 23:45
Real íhugar að kæra Forystumenn Real Madríd íhuga að kæra leikinn gegn Espanyol í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í fyrradag. Dómari leiksins, Julian Rodriguez Santiago, flautaði skömmu áður en Espanyol skoraði eina mark leiksins. Sport 17.10.2005 23:45
Bjarni horfir til Noregs Bjarna Ólafi Eiríkssyni, varnarmanninum sterka í Val, stendur til boða að halda til Noregs og æfa með tveimur úrvalsdeildarfélögum, Vålerenga og Odd Grenland. Sport 17.10.2005 23:45
Capello með fæturna á jörðinni Fabio Capello, þjálfari Juventus, segir að byrjun liðsins í deildarkeppninni á Ítalíu sé ekkert til að hrópa húrra fyrir þrátt fyrir fullt hús stiga eftir fyrstu þrjár umferðirnar og hefur áhyggjur af leiknum við Udinese annað kvöld. Sport 17.10.2005 23:45
Wenger hrósar Sol í hástert Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, hrósar varnarmanninum Sol Campbell í hástert fyrir það hugarfar sem hann hefur sýnt að undanförnu, en hann var lengi frá æfingum og keppni vegna meiðsla. Sport 17.10.2005 23:43
Enn skorar Gunnar Heiðar Leikjum kvöldsins í sænska og norska boltanum er lokið. Gunnar Heiðar Þorvaldsson var enn eina ferðina á skotskónum fyrir Halmstad sem gerði 1-1 jafntefli við Elfsborg á heimavelli. Kári Árnason lék 67 mínútur fyrir Djurgarden, sem sigraði IFK Gautaborg 3-1. Sport 17.10.2005 23:43
Jarosik slær í gegn hjá Birmingham Tékkinn Jíri Jarosik hefur byrjarð tímabilið frábærlega með Birmingham City, en hann kom til félagsins frá Chelsea fyrir skemmstu. "Ég er mjög ánægður með það hvernig hefur gengið hjá Birmingham. Þetta er gott félag sem ég get vel hugsað mér að vera hjá í langan tíma, ef vel gengur." Sport 17.10.2005 23:43
Enski boltinn hefur breyst Enski landsliðsmaðurinn Michael Owen hefur áhyggjur af gangi mála í ensku úrvalsdeildinni, þar sem sóknarleikur er ekki lengur aðalsmerki deildarinnar. "Deildin hefur breyst á þessu eina ári sem ég var á Spáni. Öll liðin leggja meiri áherslu á að verjast heldur en að sækja og það er erfiðara að skora mörk heldur en áður." Sport 17.10.2005 23:43
Butt kærður fyrir kjaftbrúk Nicky Butt, leikmaður Birmingham, hefur verið kærður af enska knattspyrnusambandinu fyrir að úthúða aðstoðardómara þegar hann var rekinn af velli í leiknum gegn Portsmouth um helgina. Sport 17.10.2005 23:43
Ferguson í Noregi Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United er staddur í Noregi í dag, þar sem hann er að gera allt sem í hans valdi stendur til að greiða fyrir kaupum félagsins á nígeríska unglingnum John Obi Mikel. Þetta kemur fram í norskum fjölmiðlum í dag. Sport 17.10.2005 23:43
Gardner frá í tvo mánuði Varnarmaðurinn Anthony Gardner hjá Tottenham Hotspurs, verður frá keppni í tvo mánuði vegna meiðsla á læri sem hann hlaut í leiknum gegn Aston Villa á laugardag. Þetta kom í ljós eftir að hann fór í læknisskoðun í morgun. Sport 17.10.2005 23:43