
Ástin á götunni
Ísland komið í 2-0
Íslenska liðið hefur bætt við öðru marki á 16. mínútu leiksins, en þar var að verki Hermann Hreiðarsson sem skoraði með glæsilegum skalla eftir aukaspyrnu frá hægri.
Búlgarar komnir yfir 3-2
Búlgarar eru komnir yfir 3-2 á móti Íslendingum í Sofia og útlitið dökkt hjá okkar mönnum, sem komust í 2-0 snemma leiks. Það var Petrov sem skoraði mark heimamanna fjórum mínútum fyrir leikslok.
Leikur Íslands og Búlgaríu hafinn
Leikur Íslendinga og Búlgara í undankeppni HM er hafinn í Sofia í Búlgaríu. Fylgst verður með gangi mála hér á Vísi meðan leikurinn stendur yfir, en þess má geta að leikurinn er sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn.

Perrin hefur ekki áhyggjur
Franski knattspyrnustjórinn Alain Perrin hjá Portsmouth segist ekki hafa stórar áhyggjur af döpru gengi liðsins í upphafi leiktíðar og segist sjá batamerki á leik liðsins.

Plymouth rekur þjálfarann
Plymouth Argyle, félag Bjarna Guðjónssonar í ensku fyrstu deildinni, rak í gærkvöld knattspyrnustjóra sinn Bobby Williamson eftir að liðið hafði tapað fjórum leikjum í röð í deildinni og hefur strax ráðið Jocky Scott í hans stað tímabundið.

Byrjunarlið Íslands gegn Búlgaríu
Nú rétt í þessu tilkynntu Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson hvaða leikmenn yrðu í byrjunarliðinu í leiknum við Búlgaríu í undankeppni HM, sem fram fer í Búlgaríu klukkan 16 síðdegis.
Búlgaría minnkar muninn í 2-1
Búlgaría hefur minnkað muninn í 2-1 gegn Búlgaríu í Sofia og þar var að verki hinn magnaði framherji Dimitar Berbatov úr fyrstu alvöru sókn Búlgara. Þeir fengu svo sannkallað dauðafæri mínútu síðar, en Árni Gautur sá við þeim í markinu. Heimamenn ráða nú lögum og lofum á vellinum og gera sig líklega til að jafna leikinn.

Benitez framherjavanda
Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, er kominn í gamalkunn vandræði með lið sitt fyrir leikinn við Tottenham Hotspur á laugardaginn. Mikil meiðsli eru á meðal framherja liðsins, en aðeins tíminn mun leiða í ljós hvort Benitez mun ná að stilla upp tveimur heilum framherjum í leiknum.

Ísland tapaði fyrir Búlgaríu
Íslenska landsliðið í knattspyrnu tapaði 3-2 fyrir Búlgaríu í Sofia, eftir að hafa náð tveggja marka forystu í leiknum. Íslenska liðið átti nokkra lipra spretti í leiknum og fékk fleiri dauðafæri í honum en í nokkrum öðrum leik í þessari undankeppni, en allt kom fyrir ekki.

Vieira ber virðingu fyrir Keane
Franski landsliðsmaðurinn Patrick Vieira, sem leikur með Juventus á Ítalíu, sagði í viðtali í gærkvöldi að hann bæri mikla virðingu fyrir Roy Keane, fyrirliða írska landsliðsins. Þjóðirnar mætast í undankeppni HM í dag og þar rifja þeir félagar upp gamla takta frá því þeir mættust reglulega í leikjum Arsenal og Manchester United.

Mál John Obi Mikel að leysast
Norska blaðið Verdens Gang hefur greint frá því að hinn umdeildi John Obi Mikel muni líklega ganga til liðs við Manchester United um áramótin eins og til stóð, en hann hefur verið týndur undanfarið eftir að verða miðpunktur rifrildis Chelsea og Manchester United um kaup á honum.

Ronaldo spilar þrátt fyrir áfall
Miðjumaðurinn knái hjá Manchester United, Cristiano Ronaldo, ætlar að leggja sig allan fram með landsliði Portúgal í leiknum við Rússa í dag, þrátt fyrir að faðir hans hafi látist vegna veikinda á mánudaginn.
Comolli til Tottenham
Tottenham Hotspurs hefur ráðið til sín Frakkann Damien Comolli, sem gegna mun starfi yfirmanns knattspyrnumála hjá félaginu og tekur við starfi Danans Frank Arnesen, sem var rekinn frá félaginu fyrir óhollustu á sínum tíma.

Cole dettur úr byrjunarliði enskra
Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga, áformar að spila áfram leikkerfið 4-5-1 í leiknum við Norður-Íra í undankeppni HM í kvöld, en endurkoma Michael Owen inn í byrjunarliðið þýðir sennilega að Joe Cole missi sæti sitt frá síðasta leik.
Eiður Smári misnotaði dauðafæri
Eiður Smári Guðjohnsen fór illa að ráði sínu nú rétt áðan, þegar hann misnotaði sannkallað dauðafæri fyrir framan mark Búlgara. Hann fékk góða sendingu fyrir markið frá hægri frá Heiðari Helgusyni, en skaut yfir markið.

Beckham blæs á gagnrýni
David Beckham, fyrirliði enska landsliðsins í knattspyrnu, var ekki sáttur við þá gagnrýni sem hann fékk frá knattspyrnuspekingum á Englandi í gær, en þeir Terry Butcher og Alan Hansen létu báðir hafa eftir sér í gær að dagar fyrirliðans væru brátt taldir í liðinu.

Brassar heppnir gegn Sevilla
Stjörnum prýtt lið heimsmeistara Brasilíu slapp með 1-1 jafntefli í leik við spænska liðið Sevilla, í leik sem spilaður var í gærkvöld í tilefni af aldarafmæli spænska félagsins.
Reynir og Sindri í aðra deild
Reynir Sandgerði og Sindri frá Höfn í Hornafirði tryggðu sér í gærkvöld sæti í annari deild karla í knattspyrnu að ári eftir síðari leikina í umspili.
Síðari hálfleikurinn byrjaður
Síðari hálfleikurinn í leik Búlgaríu og Íslands er hafinn og hann byrjar ekki ósvipað og sá fyrri. Heiðar Helguson fékk glæsilega sendingu inn fyrir vörnina frá Grétari, en skaut yfir markið einn á móti markverðinum. Sannkallað dauðafæri.
Bæði lið í dauðafærum
Ísland og Búlgaría hafa bæði fengið dauðafæri, nú þegar um rúmur hálftími er liðinn af leiknum. Hermann Hreiðarsson á eflaust eftir að naga sig lengi í handarbökin eftir að hafa skallað boltann yfir á markteig heimamanna nú fyrir stundu.
Grétar kemur Íslandi yfir
Íslenska liðið byrjar mjög vel í leiknum við Búlgaríu og það tók liðið aðeins níu mínútur að ná forystu í leiknum, en þar var að verki Grétar Rafn Steinsson sem skoraði eftir varnarmistök heimamanna.

Neville vill meiri hörku
Gary Neville, leikmaður Manchester United, þykir nauðsynlegt að félagar hans í liðinu sýni meiri hörku ef þeir ætla sér að veita Chelsea harða samkeppni um meistaratitilinn á Englandi í vor.

Nokkur meiðsli í landsliðinu
Íslenska landsliðið í knattspyrnu mætir Búlgörum á morgun í Sofiu í undankeppni fyrir heimsmeistaramótið. Auðun Helgason og Heiðar Helguson tóku ekki þátt á fullu á æfingu í gær og Auðun er tæpur fyrir morgundaginn vegna meiðsla í hné. <font face="Tms Rmn"></font>
Úrslitakeppni 3. deildar í dag
Síðari leikirnir í undanúrslitum þriðju deildar karla í knattspyrnu um laust sæti í annarri deild að ári fara fram í dag og hefjast þeir báðir klukkan 17:30.

Góður sigur Íslands á Búlgaríu
Íslenska landsliðið, skipað leikmönnum 21 árs og yngri, vann frækinn sigur á Búlgörum 3-1 í Sofia í dag. Búlgarska liðið tók forystu í leiknum eftir um klukkutíma leik, þrátt fyrir að vera einum leikmanni færri frá 44. mínútu.

Reid hræðist ekki Zidane
Andy Reid, miðjumaður Tottenham Hotspur og írska landsliðsins, segist hlakka til að mæta Frökkum í landsleik annað kvöld og segist hvergi banginn við að mæta goðsögninni Zinedine Zidane, sem eins og kunnugt er hóf að leika með Frökkum á ný á dögunum.

Beckham varar við vanmati
David Beckham, fyrirliði enska landsliðsins, hefur varað félaga sína við því að vanmeta Norður-Íra, en liðin mætast í undankeppni HM annað kvöld.

Klinsmann á undir högg að sækja
Það er ekki auðvelt starf að vera landsliðsþjálfari Þýskalands og nú hefur "Keisarinn" Franz Beckenbauer gagnrýnt störf landsliðsþjálfarns Jurgen Klinsmann harðlega, eftir að þýska liðið tapaði 2-0 fyrir Slóvökum á dögunum.

Young fetar í fótspor Neville
Luke Young, leikmaður Charlton, vill feta í fótspor Gary Neville með enska landsliðinu, en vill ekki gera sér of miklar vonir um að eiga sæti í enska landsliðinu ef það fer á HM í Þýskalandi næsta sumar.

Guðjón smalar fólki á völlinn
Guðjón Þórðarson, knattspyrnustjóri Notts County, hefur sent út skilaboð til stuðningsmanna liðsins á heimasíðu félagsins, þar sem hann hvetur alla sem vettlingi geta valdið til að mæta á völlinn á laugardaginn til að verða vitni að toppslag í deildinni.