Ástin á götunni
318 319 320 321 322 323 324 325 326 … 334 ›
Saha verður frá næstu vikurnar Louis Saha, framherji Man. Utd, verður frá næstu vikurnar og gæti farið svo að hann yrði ekki leikfær fyrr en í nóvember. Sport 13.10.2005 19:38
Pandiani til Birmingham Birmingham hefur loksins gengið formlega frá kaupum á sóknarmanni Uruguay, Walter Pandiani, sem eyddi stórum hluta síðasta tímabils á láni hjá félaginu og stóð sig mjög vel. Hinn 29 ára gamli Pandiani skrifaði undir þriggja ára samning við Birmingham og er kaupverðið talið vera um þrjár milljónir punda, en Pandiani kemur frá Deportivo á Spáni. Sport 13.10.2005 19:38
Figo orðinn leikmaður Inter Portúgalski miðjumaðurinn Luis Figo hefur skrifað undir tveggja ára samning við ítalska félagið Inter Milan en hann kemur frá spænska risaliðinu Real Madrid. Figo segist eiga nóg eftir í boltanum og hlakkar til að takast á við komandi verkefni hjá Inter. Sport 13.10.2005 19:38
U17 tapaði fyrir Noregi í dag U17 landslið Íslands í knattspyrnu karla lenti í neðsta sæti síns riðils á Norðurlandamótinu. Það tapaði 1-0 fyrir Noregi á Kaplakrikavelli í dag. Íslensku strákarnir töpuðu þar með öllum þremur leikjum sínum í riðlinum, skoruðu ekkert mark en fengu sjö á sig. Sport 13.10.2005 19:38
Essien neitar að spila fyrir Lyon Farsinn í kringum Mickael Essien og deilu hans við lið sitt Lyon heldur áfram og nú hefur hann tilkynnt forráðamönnum félagsins að hann muni ekki spila fyrir liðið á meðan þeir neiti honum um sölu til Chelsea. Sport 13.10.2005 19:38
Leikið við Norðmenn á NM Riðlakeppni opna Norðurlandamótsins í knattspyrnu hjá leikmönnum 17 ára og yngri lýkur í dag. Íslendingar mæta Norðmönnum á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði klukkan 14.30. Bæði lið eru án stiga en Írar og Danir leika til úrslita um sigur í riðlinum. Leikurinn verður á Kópavogsvelli. Í hinum riðlinum keppa Englendingar og Svíar á Akranesi og Finnar og Færeyingar í Borgarnesi. Sport 13.10.2005 19:38
Stoke fær Luke Chadwick Enska knattspyrnuliðið Stoke City hefur fengið lánaðan kantmanninn Luke Chadwick frá úrvalsedildarliði West Ham. Chadwick sem er fyrrverandi leikmaður Man Utd hefur gert 6 mánaða lánssamning við Íslendingafélagið til að byrja með en hann er samningsbundinn West Ham til ársins 2007. Sport 13.10.2005 19:37
Solskjær með ManUtd í fyrsta leik? Stuðningsmönnum Manchester United hlýnar nú um hjartarætur því einn vinsælasti leikmaður félagsins, Norðmaðurinn Ole Gunnar Solskjær, er við það að snúa aftur eftir meðsli sem hafa haldið honum utan vallar í tæp tvö ár. Ekki var búist við því Solskjær myndi byrja að leika aftur með aðalliðinu fyrr en í október. Sport 13.10.2005 19:37
Rangers á eftir Bostjan Cesar Forsvarsmenn Glasgow Rangers reyna nú að næla í Bostjan Cesar, varnarmann Dinamo Zagreb og slóvenska landsliðsins. Cesar segir forráðamenn skosku meistarana hafa rætt við sig eftir landsleikleik fyrir skömmu. Sport 13.10.2005 19:37
Tryggði Víkingum sigur á 90. mín. Einn leikur fór fram í 1 deild karla í kvöld en þá hófst 13. umferð. Víkingur úr Reykjavík vann nauman sigur á KS, 2-1. Einar Oddsson tryggði heimamönnum sigur þegar 90 mínútur sléttar voru komnar á klukkuna. Víkingar er þar með komnir í 28 stig í 2. sæti deildarinnar, sjö stigum á undan KA sem er í 3. sæti og á leik til góða. Sport 13.10.2005 19:37
Wenger: Á ég að fara í spilavítið? Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal segir að Chelsea sé að borga tvöfalt markaðsverð á þeim leikmönnum sem þeir kaupa. Wenger hefur verið undir pressu undanfarna daga frá stuðningsmönnum sem vilja að hann kaupi nýja leikmenn á meðan ríku félögin Real Madrid og Chelsea eru að hrifsa hvern leikmanninn á fætur öðrum sem Wenger ætlaði að kaupa. Sport 13.10.2005 19:37
Kólombíumenn voru líka sviknir Það var ekki aðeins íslenska knattspyrnusambandsið sem var svikið í landsleikjamálum nýlega. Í ljós hefur komið að ástæðan fyrir því að Kólombíumenn geta komið og leikið á Íslandi með svo skömmum fyrirvara er sú að þeir urðu fyrir sömu reynslu með Ástrala. Sport 13.10.2005 19:37
"Borgvardt var munurinn" Ólafur Kristjánsson þjálfari Fram var í skýjunum með baráttu sinna manna í sigurleiknum gegn FH í gærkvöldi en þá tryggði Fram sér farseðilinn í úrslitaleik VISA bikarsins. Fram var síst lakari aðilinn í fyrri hálfleik þó þeir væru tveimur mörkum undir í hálfleik. "<em>Munurinn á liðunum í fyrri hálfleik var bara Allan Borgvardt</em>." sagði Ólafur. Sport 13.10.2005 19:37
Valur í úrslitaleikinn gegn Fram Valsmenn unnu Fylki, 2-0 og tryggðu sig í úrslitaleikinn gegn Fram í VISA bikarkeppni karla í knattspyrnu í kvöld. Garðar Gunnlaugsson skoraði bæði mörk Valsmanna í leiknum á Laugardalsvelli, það fyrra strax á 3. mínútu en seinna markið á 80. mínútu. Garðar hefur þar með skorað 8 mörk í fjórum leikjum fyrir Val í bikarkeppninni. Sport 13.10.2005 19:37
Coco í viðræðum við Newcastle Francesco Coco, fyrrverandi leikmaður AC Milan og Barcelona, á nú í viðræðum við Newcastle United. Sport 13.10.2005 19:37
Valsmenn leiða í hálfleik Valur leiðir 1-0 gegn Fylki þegar flautað hefur verið til hálfleiks í undanúrslitaleik liðanna í VISA bikar karla í knattspyrnu. Garðar Gunnlaugsson skoraði markið á 3. mínútu en leikurinn sem fer fram á Laugardalsvelli hófst kl. 19:40. Valsmenn hafa verið ögn sterkari í fyrri hálfleik og verið skynsamari. Sport 13.10.2005 19:37
Phil Neville til Everton Phil Neville er genginn til lið við Everton frá Manchester United fyrir 3 milljónir punda. Phil Neville hefur leikið með United allan sinn ferilen. Phil, sem er 28 ára, hefur leikið 52 landsleiki fyrir Englands hönd og lék 392 leiki fyrir Manchester United Sport 13.10.2005 19:37
Garðar búinn að skora fyrir Val Garðar Gunnlaugsson hefur komið Val 1-0 yfir gegn Fylki strax á 3. mínútu í undanúrslitaleik liðanna í VISA bikarnum. Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli og hófst kl. 19:40. Mark Garðars kom eftir sendingu frá Bjarna Ólafi Eiríkssyni af vinstri kanti. Þetta er sjöunda mark Garðars fyrir Val í 4 leikjum í bikarkeppninni. Sport 13.10.2005 19:37
Garðar skorar aftur fyrir Val Garðar Gunnlaugsson hefur skorað aftur fyrir Val sem er við það að tryggja sig í úrslitaleik VISA bikarkeppni karla og er nú 2-0 yfir gegn Fylkir á Laugardalsvelli. Markið kom á 82. mínútu og hefur Garðar gert bæði mörk Vals. Daninn Christian Christiansen sem kom inn sem varamaður gerði stutt stopp á vellinum og hefur fengið rautt spjald. Sport 13.10.2005 19:37
Meiðsli hjá Fylki en engin hjá Val Valsmenn eiga ekki í neinum meiðslavandræðum fyrir undanúrslitaleikinn gegn Fylki í VISA bikarkeppninni í kvöld. Willum Þór Þórsson þjálfari Vals segir tíma kominn til að hið fornfræga bikarfélag Valur láti á sér bera í keppninni. Þorlákur Árnason þjálfari Fylkis segir alla þá menn sem hafa verið að spila í undanförnum leikjum séu leikfærir. Sport 13.10.2005 19:37
Ólafur Örn fékk rautt með Brann Ólafur Örn Bjarnason hjá Brann fékk rauða spjaldið á 77. mínútu þegar Tromsø og Brann gerðu 1-1 jafntefli í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Kristján Örn Sigurðsson lék allan leikinn í vörn Brann sem er í 6. sæti deildarinnar, 9 stigum á eftir toppliði Start sem marði 1-1 jafntefli með marki á 90. mínútu gegn Stefáni Gíslasyni og félögum í Lyn. Sport 13.10.2005 19:37
Evrópudraumur Newcastle úti Evrópudraumur Newcastle United er úti eftir 2-1 tap fyrir Deportivo La Coruna á heimavelli í kvöld en þetta var seinni leikur liðanna í Intertoto keppninni. Spænska liðið vann því samanlagt 4-2 þar sem enska liðið tapaði einnig þeim fyrri á Spáni 2-1. Sport 13.10.2005 19:37
FH 2-0 yfir í hálfleik gegn Fram Allan Borgvardt hefur skorað tvívegis fyrir FH sem leiðir 2-0 í hálfleik gegn Fram á Laugardalsvelli. Síðara mark Borgvardt var einkar glæsilegt og kom eftir sendingu Jóns Þorgríms Stefánssonar af hægri kanti á lokasekúndum fyrri hálfleiks. Sport 13.10.2005 19:37
Inter Milan loks að landa Figo Portúgalski knattspyrnusnillingurinn Luis Figo virðist vera búinn að ná samkomulagi við Inter Milan á Ítalíu um að ganga til liðs við félagið ef marka má spænska fjölmiðla í kvöld. Útvarpsstöðin Marca í Madrid segir að Figo muni fljúga til Mílanóborgar á morgun fimmtudag til þess að gangast undir læknisskoðun og skrifa svo undir 2 ára samning. Sport 13.10.2005 19:37
Sigurbjörn með gegn Fylki Sigurbjörn Hreiðarsson, fyrirliði Vals má leika með liði sínu gegn Fylki á morgun í undanúrslitum Vísabikarsins. Sigurbjörn var í gær úrskurðaður í bann vegna fjögurra gulra spjalda en bannið tekur hins vegar ekki gildi fyrr en á föstudag. Sigurbjörn missir því af leiknum á mánudaginn við Fram á Laugardalsvelli í Landsbakadeildinni. Sport 13.10.2005 19:37
Tottenham í skýjunum með Davids Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham Hotspurs hafa landað einum mesta hvalreka seinni ára í sögu félagsins en hollenski landsliðsmiðjumaðurinn Edgar Davids hefur gengið í raðir liðsins. Tottenham fær Davids á frjálsri sölu frá Inter Milan þar sem hann var farinn að gróa fastur við varamannabekkinn. Sport 13.10.2005 19:37
Nokkrir tæpir fyrir Fram-FH Í kvöld mætast Fram og FH í fyrri undanúrslitaleik VISA bikarsins í knattspyrnu. Ólafur Kristjánsson þjálfari Fram segir óljóst með nokkra leikmenn í Fram-liðinu vegna meiðsla. Leifur Garðarsson aðstoðarþjálfari FH notaði tækifærið á fréttamannafundi og skaut aðeins léttilega á KSÍ fyrir að hafa undanúrslitaleikina í bikarnum á Laugardalsvelli. Sport 13.10.2005 19:37
FH komið yfir gegn Fram Allan Borgvardt hefur komið FH yfir gegn Fram, 1-0, í undanúrslitaleik liðanna í VISA bikarkeppni karla í knattspyrnu. Daninn fékk sendingu inn fyrir vörn Fram og komst einn á móti Gunnari Sigurðssyni markverði á 28. mínútu. Leikurinn sem fer fram á Laugardalsvelli hófst kl. 19:40 og er í beinni útsendingu á <a href="http://www.visir.is/UserControls/infosport/ifis_leikurHP.aspx?LeikNr=1000301&st=NS&re=00060&sy=1" target="_blank"><strong>BOLTAVAKTINNI</strong></a> hér á Vísi. Sport 13.10.2005 19:37
Vålerenga áfram í Meistaradeild Árni Gautur Arason og félagar í norska liðinu Vålerenga tryggðu sér í kvöld farseðilinn í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu þegar þeir lögðu Haka frá Finnlandi 1-4 á útivelli. Árni lék að venju allan leikinn í marki Vålerenga sem mætir Club Brugge frá Belgíu í næstu umferð forkeppninnar. Sport 13.10.2005 19:37
Houllier vill fá Owen Franska knattspyrnustórveldið Lyon lýsti því yfir í dag að félagið hafi mikinn áhuga á að fá enska landsliðsmanninn Michael Owen frá Real Madrid. Owen viðurkenndi í fjölmiðlum fyrr í dag að hann hafi átt í viðræðum við þrjú eða fjögur úrvalsdeildarlið á Englandi undanfarna daga. Sport 13.10.2005 19:37
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent