Ástin á götunni
Carvalho þarf í greindarpróf
Jose Mourinho brást ókvæða við ummælum Ricardo Carvalho nýverið, þar sem hann gagnrýndi ákvarðanir þjálfarans að hafa sig á varamannabekk Chelsea um síðustu helgi.
Sá besti sem við gátum fengið
Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea segir að miðjumaðurinn Michael Essien fullkomni Chelsea liðið og hann sé besti leikmaður í sinni stöðu sem hægt hafi verið að fá. Essien er 22 ára og kostaði Chelsea 24,4 milljónir punda sem er félagsmet.
Heiðar verður að vera þolinmóður
Chris Coleman, knattspyrnustjóri Fulham, gaf það í skyn í viðtali í morgun að Heiðar Helguson gæti þurft að vera þolinmóður á að fá tækifæri í byrjunarliði Fulham, því hann segist nokkuð ánægður með framherja sína.
Jol hefur augastað á Kuyt
Martin Jol, knattspyrnustjóri Tottenham, hefur mikinn augastað á landa sínum Dirk Kuyt hjá Feyenoord í Hollandi, en hann er að leita sér að sterkum framherja í stað Fredi Kanoute sem seldur var til Sevilla á Spáni í vikunni.
Jafnt á Ásvöllum
Haukar og Víkingur Ólafsvík gerðu 2-2 jafntefli á Ásvöllum í Hafnarfirði í fyrstu deild karla í kvöld. Kristján Ómar Björnsson og Hilmar Rafn Emilsson gerðu mörk Hauka en mörk Ólafsvíkinga gerðu þeir Alexander Linta úr víti og Hermann Geir Þórisson.
Stærsti ósigur Breta í 25 ár
Sven Göran Eriksson landsliðsþjálfari Englands var æfur út í sína menn og vandaði þeim ekki kveðjurnar á Sky sjónvarpstðinni í gærkvöld eftir 4 - 1 tap enskra fyrir Dönum á Parken í Kaupmannahöfn. Danir léku Englendinga grátt í síðari hálfleik og það tók þá aðeins sjö mínútur að skora þrjú mörk.
Vináttulandsleikir í gær
Fjölmargir vináttulandsleikir fóru fram í gær. Króatar og Brasilíumenn gerðu jafntefli 1 - 1 í Split , Svíar lögðu Tékka 2 - 1. Holland og Þýskaland gerðu jafntefli 2 - 2 í Hollandi en heimamenn komust í 2 - 0.
Nakata hæstánægður
Hidetoshi Nakata er genginn til liðs við Bolton frá Fiorentina á eins árs lánssamningi. Hann er viss um að enska úrvalsdeildin hennti honum vel en hann hefur leikið í sjö ár í efstu deild á Ítalíu.
Dramatík á Akureyri
Norðfirðingurinn Jón Gunnar Eysteinsson jafnaði metin fyrir KA gegn Víkingum á síðustu mínútu á Akureyri í 1.deild karla í kvöld í leik sem lauk 1-1. Mark Víkinga gerði Andri Steinn Birgisson á upphafsmínútum leiksins. Við þessi úrslit er það ljóst að Breiðablik er komið í úrvalsdeild.
Ókeypis á sunnudag
Ísland mætir Hvíta-Rússlandi í undankeppni HM 2007 í kvennaknattspyrnu á Laugardalsvelli á sunnudag kl. 14:00. Um er að ræða fyrsta leik liðsins í riðlinum og eina heimaleikinn á árinu. Aðgangur á leikinn er ókeypis og er fólk því hvatt til að mæta og styðja við bakið á íslenska liðinu.
Denilson til Vestel Manisaspor
Brasilíski knattspyrnumaðurinn Denilson sem eitt sinn var álitinn einn efnilegasti leikmaður heims er genginn til liðs við nýliða Vestel Manisaspor, í tyrknesku úrvalsdeildinni að láni frá spænska liðinu Real Betis. Denilson gekk til liðs við Betis eftir heimsmeistarakeppnina 1998 en aldrei staðið undir þeim væntingum sem til hans voru gerðar.
Morrison til Norwich
Sóknarmaðurinn Clinton Morrison er genginn til liðs við Norwich í Championship deildinni frá úrvalsdeildarliði Birmingham fyrir 2 milljónir punda. Morrison taldi sig ekki fá sanngjarna meðferð frá Steve Bruce, knattspyrnustjóra Birmingham og bað um sölu.
Owen á leið til Liverpool?
Breskir fjölmiðlar kepptust um það í morgun að greina frá því að Michael Owen væri á leið aftur til Liverpool eftir allt saman.
Pearce stendur með sínum manni
Stuart Pearce, knattspyrnustjóri Man. City, hefur komið markverði sínum David James til varnar, en hann átti hörmulegan leik með Englandi gegn Dönum í gær og hefur þurft að þola mikil skítköst frá breskum fjölmiðlum.
Toppslagur í 1.deild
KA og Víkingur mætast í 1.deild karla í kvöld. Víkingur er í öðru sæti á eftir Breiðablik en KA er í því þriðja sæti tveimur stigum á eftir Víking. Úrslit leiksins munu því líklega hafa mikil áhrif á það hvað lið kemst í úrvalsdeildina í haust. Þá munu Fjölnismenn taka á móti HK í botnslag í Grafarvogi og Völsungar fá Þórsara...
Eriksson aðvarar leikmenn sína
Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englands, hefur varað leikmenn sína við því að ef þeir spila einhverntímann aftur eins og í síðari hálfleiknum gegn Dönum í gærkvöldi, geti þeir gleymt því að komast á HM næsta sumar.
Wembley á áætlun
Þrátt fyrir áhyggjur breskra fjölmiðla undanfarið, virðist sem nýji Wembley-völlurinn í Lundúnum verði tilbúinn til notkunar fyrir úrslitaleikinn í FA bikarnum í vor.
Kanoute til Sevilla
Sóknarmaðurinn Fredi Kanoute er genginn til liðs við Sevilla á Spáni frá enska liðinu Tottenham fyrir 4,4 milljónir punda. Malí búinn gerði fjögurra ára samninga við spænska liðið. Tottenham er nú sterklega orðaðir við þá Jermaine Jenas miðvallarleikmann Newcastle og Dirk Kuyt sóknartengilið PSV Eindhoven.
Ísland komið í 3-1
Ísland er að vinna Suður Afríku 3-1 á Laugardalsvelli. Þeir Arnar Þór Viðarsson, Grétar Rafn Steinsson og Heiðar Helguson hafa gert mörk Íslendinga en Delron Buckley gerði mark gestanna.
Eiður, Grétar og Kári bestir
Þeir Eiður Smári Guðjohnsen, Grétar Rafn Steinsson og Kári Árnason stóðu sig best í leiknum gegn Suður-Afríku að mati Fréttablaðsins en hér má finna dóm um frammistöðu allra leikmanna liðsins í 4-1 sigrinum á Laugardalsvellinum í gær.
Jafntefli hjá nágrönnunum
Hollendingar og Þjóðverjar gerðu jafntefli í kvöld 2-2 í vináttulandsleik í Hollandi. Arjen Robben gerði bæði mörk Hollendinga og kom þeim í 2-0 en þeir Michael Ballack og Gerald Asemoah jöfnuðu fyrir Þjóðverja.
Danir flengdu Englendinga
Danir tóku Englendinga í kennslustund í vináttuleik á Parken í Kaupmannahöfn í gærkvöld en þetta var stærsta tap enska landsliðsins í 25 ár. Englendingar binda miklar vonir við landslið sitt á HM í Þýskalandi næsta sumar, en ef marka má frammistöðu liðsins í gærkvöld þarf Sven-Göran Eriksson að lesa hressilega yfir hausamótunum á sínum mönnum.
Englendingar niðurlægðir á Parken
Danir unnu Englendinga 4-1 í vináttulandsleik í Parken í Kaupmannahöfn. Mörk Dana gerðu Dennis Rommendahl, Jon Dahl Tomsson, Sören Larsen og Mikael Gravgaard. Mark Englendinga gerði Wayne Rooney. Danir komust í 3-0 á níu mínútna kafla í seinni hálfeik.
Rooney ætlar að hemja skapið
Wayne Rooney, sóknarmaður Man. Utd. og enska landsliðsins, kveðst ætla að reyna eftir fremsta megni í vetur að láta skapið ekki hlaupa með sig í gönur, eins og það hefur stundum gert í gegnum tíðina.
Beckham ætlar sér í form
David Beckham, fyrirliði enska landsliðsins í knattspyrnu, segir að hann líti á vináttuleikinn gegn Dönum í kvöld sem kærkomið tækifæri til að koma sér í form. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn og hefst kl. 18:00.
Bellion til West Ham
David Bellion, leikmaður Manchester United er genginn til liðs við West Ham í ensku úrvalsdeildinni að láni. Fyrir hjá West Ham hittir Frakkinn Roy Carroll, markvörð og fyrrum samherja sinn hjá Manchester United. Bellion er 22 ára sóknarmaður.
Suður-Afríka átti aldrei möguleika
Íslenska landsliðið vann afar sannfærandi 4-1 sigur á arfaslöku s-afrísku liði í vináttuleik á Laugardalsvellinum í gærkvöld. Mikil batamerki voru á leik íslenska liðsins og lofar frammistaðan góðu.
Newcastle reynir að stela Kanoute
Spænska liðið Sevilla tilkynnti fyrr í dag að liðið hefði keypt framherja Tottenham, Fredi Kanoute, en umboðsmaður Kaunoute segir ekki svo vera. Nú ætlar Newcastle að reyna að kaupa Kanoute áður en hann skrifar undir hjá Sevilla.
Ég mun alltaf svara kallinu
Eiður Smári Guðjohnsen, fyrirliði íslenska landsliðsins, sagðist í samtali við Fréttablaðið eftir leikinn í gær mjög ánægður með sigurinn og að hann hefði svarað gagnrýnisröddum sem hefðu verið á stjá í allt sumar.
Stórsigur á Suður Afríku
Ísland sigraði Suður Afríku 4-1 í vináttulandsleik á Laugardalsvelli í kvöld. Arnar Þór Viðarsson, Grétar Rafn Steinsson, Heiðar Helguson og Veigar Páll Gunnarsson gerðu mörk Íslendinga. Mark Veigars Páls var sérlega glæsilegt, þrumuskot utan teigs í efri 90 gráðurnar, sjón er sögu ríkari. Mark Suður Afríku gerði Delron Buckley.