Tækni
72 73 74 75 76 77 78 79 80 … 84 ›
Borgaði Apple fyrir iPhone nafnið? Nú eru uppi kenningar um að Apple hafi borgað Cisco milljónir dala fyrir afnot af iPhone nafninu. Fyrirtækin hafa rifust um nafnið í nokkrar vikur þar til í dag að þau náðu samkomulagi um að Apple mætti nota nafnið. Cisco hefur notað iPhone sem vörumerki á internet símaþjónustu í nær sjö ár. Viðskipti erlent 22.2.2007 20:50
Canon kynnir nýjar gerðir myndavéla Canon kynntu í dag til sögunnar fimm nýjar gerðir af stafrænum myndavélum fyrir almenning. Þá kynntu þeir einnig nýja gerð af stafrænni vél fyrir atvinnumenn, 10.1 megapixla 1D Mark III D-SLR. Viðskipti erlent 22.2.2007 16:14
Risarnir saman á sviði Steve Jobs forstjóri Apple og Bill Gates forstjóri Microsoft munu stíga saman á svið í vor á tækniráðstefnu sem haldin verður á vegum Wall Street Journal í Kaliforníu. Jobs og Gates hafa verið aðalleikarar á tölvuöld í meira en þrjátíu ár. Þeir munu saman fjalla um stafræna byltingu undanfarinna ára og framtíð tækninnar. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Jobs og Gates stíga saman á svið en það gerðu þeir síðast á samskonar ráðstefnu fyrir tveimur árum. Viðskipti erlent 21.2.2007 17:43
Afrita auðveldlega af Blue Ray og HD-DVD Það er orðið alþekkt að eftir því sem framleiðendur DVD og geisladiska búa til betri afritunarvarnir finna tölvuþrjótar leiðir til að komast í kringum þær. Nú er þegar kominn í umferð lykill sem fer framhjá afritunarvörnum á bæði Blue-Ray og HD-DVD diskum, öllum. Áður þurfti sérstakan lykil fyrir hvern einstakan Blue-Ray eða HD-DVD disk. Viðskipti erlent 14.2.2007 12:06
Google dæmdir fyrir höfundarréttarbrot Google-fyrirtækið hefur verið dæmt fyrir brot á höfundarréttarlögum fyrir að hafa birt greinar og fyrirsagnir belgískra dagblaða án leyfis. Dómurinn gæti orðið til fordæmis um hvernig leitarvélar tengja á höfundarréttarvarið efni og fréttir á vefnum. Google ætla að áfrýja og segja þjónustu sína Google News algjörlega löglega. Belgíski dómarinn var þeim ekki sammála og sagði fyrirtækið endurvinna og birta efni án leyfis og slíkt væri höfundarréttarbrot. Viðskipti erlent 14.2.2007 08:47
Heimabíóhljómur úr einum hátalara Yamaha YSP-1100 er einn hátalari sem skilar raunhæfum heimabíóhljómi. Tækið endurvarpar hljóði af veggjum og gefur þannig þá tálheyrn að hljóðið komi aftan frá. Viðskipti erlent 12.2.2007 14:12
Kaupa tölvur vegna Vista Sprenging hefur orðið í sölu á nýjum heimilistölvum eftir að Windows Vista kom út. Samkvæmt sölutölum í Bandaríkjunum jókst salan um heil 173% á milli vikna eftir að stýrikerfið nýja kom út í lok janúar. Viðskipti erlent 10.2.2007 15:19
YouTube að ganga af netinu dauðu? Vefsíður á borð við YouTube gætu gengið af internetinu dauðu. Internetfyrirtæki í Bandaríkjunum hafa ráðist í gríðarlegar fjárfestingar til að anna því stóraukna gagnamagni sem flæðir um internetið eftir að myndbandasíður á netinu öðluðust stórauknar vinsældir. Viðskipti erlent 10.2.2007 14:53
Geta lesið hugsanir Vísindamenn hafa þróað tækni sem getur séð fyrir hvað fólk ætlar sér að gera. Tækið greinir virkni heilans og fylgist með breytingum sem í honum verða eftir því hvað fólk hugsar um. Þannig er hægt að kortleggja aðgerðir í heilanum og því hægt að spá fyrir um hvað fólk er að hugsa. Aðferðin virkar nú í um 70% tilfella. Erlent 9.2.2007 21:52
Eltu vekjaraklukkuna Nú er komin lausn fyrir þá sem aldrei vakna við vekjaraklukkuna á morgnanna. Þetta er vekjaraklukka sem ekki aðeins skapar svakalegan hávaða heldur rúllar hún af stað um leið og hún hringir. Sá sem sefur á sínu græna eyra þarf því að vakna og elta vekjaraklukkuna uppi til að slökkva á henni. Má þá gera ráð fyrir að flestir séu vaknaðir. Viðskipti erlent 8.2.2007 20:03
Dæmdir fyrir ólöglegt verðsamráð á vinnsluminni Samsung hefur samþykkt að greiða 90 milljónir dala í stað þess að sæta dómi í umfangsmiklu máli um ólöglegt verðsamráð á vinnsluminniskubbum í tölvur. Sektir sem fyrirtæki hafa greitt vegna málsins nálgast nú milljarð bandaríkjadala. Viðskipti erlent 8.2.2007 19:44
iPod-spilarar bannaðir á akbrautum New York Íbúar New York borgar sem ganga um með iPod þurfa nú að passa sig að taka af sér heyrnartólin áður en þeir ganga yfir götu, annars eiga þeir yfir höfði sér 100 dollara sekt. Viðskipti erlent 7.2.2007 21:25
DVD spilara í sólskyggnið Nú hafa græjufíklar fengið sniðuga viðbót til að gera bílinn sinn enn nýtískulegri. Þessi græja er í raun DVD-spilari með 7 tommu LCD-skjá sem sýnir gríðarlega skýra mynd innbyggður í sólskyggni bíls. Viðskipti erlent 5.2.2007 15:29
Vefverslanir nýta sér vinsældir YouTube Þeir sem markaðsetja vörur á netinu eru nú í síauknum mæli farnir að nýta sér fádæma vinsældir myndskeiða á netinu á síðum eins og YouTube. Netverslanirnar leggja nú metnað sinn í að gera fyndna „sketsa“ og setja þá á netið sem og að bjóða viðskiptavinum sínum aðstoð við hið sama. Hvort uppátækið beri tilætlaðan árangur til lengri tíma litið skal ósagt látið en víst að það er tilraunarinnar virði. Viðskipti erlent 5.2.2007 20:15
Microsoft kynnir nýtt stýrikerfi Microsoft-hugbúnaðarfyrirtækið kynnti í gær nýjustu kynslóð Windows-stýrikerfisins og hefur kerfinu verið gefið nafnið Vista. Búist er við að innan árs hafi yfir eitt hundrað milljónir tölvunotenda um allan heim tekið kerfið í sína notkun. Erlent 30.1.2007 17:43
Windows Vista komið út Sala hófst í dag um allan heim á Windows Vista, nýjasta stýrikerfinu frá Microsoft. Um fyrirtækjaútgáfu stýrikerfisins er að ræða en útgáfan fyrir einstaklinga og heimili kemur út í lok janúar á næsta ári. Stýrikerfið hefur verið í þróun í fimm ár eða síðan Windows XP kom á markað. Viðskipti erlent 30.11.2006 09:24
CCP gleypir þekktan bandarískan leikjaframleiðanda Íslenska tölvuleikjafyrirtækið CCP hf., sem framleiðir og selur EVE Online, og bandaríska útgáfufélagið White Wolf Publishing, Inc. tilkynntu sameiningu fyrirtækjanna um helgina. Fyrirtækin halda starfsemi sinni áfram undir óbreyttum nöfnum, en bandaríska fyrirtækið verður rekið sem dótturfyrirtæki CCP. Hilmar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP, verður forstjóri og stjórnarformaður fyrirtækjanna. Í sameiginlegri tilkynningu félaganna segir að við sameininguna verði til stærsta fyirrtæki heims á sviði sýndarheima, eða Virtual Worlds, sem sé nýtt skemmtanaform, aðskilið frá hefðbundnum tölvuleikjum. Leikjavísir 13.11.2006 03:56
Samráð um verð á vinnsluminnum Samkeppnisyfirvöld í Bandaríkjunum rannsaka nú hvort suður-kóreska hátækniframleiðandinn Samsung og bandaríska fyrirtækið Cypress Semiconductor hafi haft með sér samráð um verðlagningu á vinnsluminnum af gerðinni SRAM, sem þau seldu Sony á síðasta ári. Talsmenn Sony segja að fyrirtækið muni vinna með yfirvöldum að lausn málsins. Viðskipti erlent 31.10.2006 13:43
Internet Explorer 7 vafrarinn kominn á vefinn Uppfærsa á Internet Explorer netvafrara Microsoft tölvurisans er nú aðgengileg almenningi. Internet Explorer 7 er fyrsta uppfærsla á vafraranum í rúm 5 ár. Meðal nýjunga er sá möguleiki að opna fjölmarga undirglugga í sama aðal vefglugga, að leita beint á netinu og sérstakt kerfi sem á að koma í veg fyrir ýmsar innrásir tölvuþrjóta sem ásælast upplýsingar um bankareikninga og greiðslukort tölvunotenda. Hægt er að sækja vafrarann að kostnaðarlausu á netinu en fjölmargir fá sjálfkrafa uppfærslu í næsta mánuði noti þeir Windows XP stýrikerfið í tölvum sínum. Erlent 19.10.2006 21:04
Google kaupir YouTube Netleitarfyrirtækið Google hefur keypt YouTube sem er netsíða þar sem ýmsu afþreyingar myndbandsefni er dreift. Kaupverðið er um eitt hundrað milljarðar íslenskra króna. Erlent 9.10.2006 20:27
Bara Vodafone Og Vodafone heitir nú bara Vodafone. Nýr tímamótasamningur við alþjóðlega stórfyrirtækið Vodafone Group um nánara samstarf var kynntur í morgun. Vodafone á Íslandi er fyrsta sjálfstæða farsímafélagið sem fær að nota vörumerki Vodafone. Innlent 5.10.2006 11:59
Flytur fyrirlestur um framtíð alþjóðlegs flugs Dr. Assad Kotaite heldur fyrirlestur um Framtíð alþjóðlegs flugs í hátíðarsal Háskóla Íslands á morgun. Dr. Kotaite er fyrrverandi forseti fastaráðs Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (International Civil Aviation Organiztion – ICAO) en hann er hér á Íslandi á vegum, samgönguráðherra Sturlu Böðvarssonar og Flugmálastjórnar Íslands. Ásamt því að halda fyrirlesturinn mun Dr. Kotaite einnig ávarpa þinggesti á Flugþingi sem haldið verður nk. miðvikudag 4. október á Hótel Nordica. Innlent 2.10.2006 18:46
Notendum fjölgar um 66% milli vikna Vinsældir VefTV Vísis aukast stöðugt og beinar útsendingar fréttastofu NFS frá fréttnæmum viðburðum mælast greinilega vel fyrir. Notendur VefTV Vísis mældust rúmlega 29 þúsund í liðinni viku og innlitin eða heimsóknirnar rúmlega 52 þúsund. Notendum fjölgar um tæplega 66% miðað við vikuna á undan og innlitum fjölgar um tæplega 63%. Innlent 2.10.2006 17:16
Toshiba innkallar rafhlöður Japanska hátæknifyrirtækið Toshiba ætlar að innkalla um 340.000 rafhlöður fyrir tvær gerðir fartölva frá fyrirtækinu um allan heim. Sony framleiddi rafhlöðurnar og er þetta þriðja stóra innköllunin á rafhlöðum frá fyrirtækinu síðan um miðjan ágúst. Viðskipti erlent 19.9.2006 09:38
Sjónvarp og gögn flutt um raflagnir Síminn hefur um nokkurt skeið prófað sig áfram með gagnaflutning um raflagnir innan heimilanna, svokölluð heimatengi. Nú er komin á markað lausn á vegum Símans sem leysir hið eilífa snúruvandamál heimilanna. Hefðbundnar aðferðir með símalínu og ljósleiðara eru notaðar til þess að koma gögnum inn á heimilin en raflögnin er síðan notuð til að dreifa sjónvarpi og gögnum innan íbúðanna. Innlent 18.9.2006 11:01
Tvíburakort hjá Símanum Síminn hefur hleypt af stokkunum nýrri þjónustu sem nefnist Tvíburakort en það gerir viðskiptavinum Símans kleift að vera með tvö mismunandi símtæki með sama símanúmerinu. Þessi áskriftarleið er sérhönnuð fyrir þá símnotendur sem þurfa að nota tvö símtæki, t.d. GSM síma og Blackberry síma eða jafnvel GSM síma og bílasíma en vilja nota sama símanúmerið fyrir báða símana. Viðskipti innlent 14.9.2006 10:09
Eitt númer í tveimur GSM símtækjum Og Vodafone hefur tekið í notkun þjónustu sem gerir GSM notendum mögulegt að hafa eitt og sama símanúmerið í tveimur símtækjum. Þjónustan nefnist Aukakort og hentar til dæmis þeim sem eru með símtæki fyrir tölvupóstsamskipti og GSM þjónustu í vinnu en vilja hafa léttari og smærri GSM síma utan vinnutíma. Innlent 13.9.2006 22:41
Og Vodafone eflir GSM kerfið fyrir Ljósanótt Og Vodafone ætlar að stækka GSM kerfi sitt fyrir Ljósanótt í Reykjanesbæ, sem hefst á fimmtudag og stendur fram á sunnudag. Innlent 30.8.2006 21:37
Og Vodafone eflir GSM kerfi sitt Og Vodafone ætlar að efla GSM kerfið í Stykkishólmi um þessa helgi en þá fara fram Danskir dagar í bænum. Hátíðin, sem hefst í dag og lýkur á sunnudag, fer nú fram í 13. sinn. Danskir dagar hefur verið vel sóttir síðustu árin og með eflingu GSM kerfis Og Vodafone í Stykkishólmi verður hægt að tryggja viðskiptavinum enn betri þjónustu um helgina. Innlent 18.8.2006 09:25
Eigendur Dell-fartölva kanni framleiðslunúmer rafhlöðu Engin af þeim tölvum sem nú eru til sölu hjá umboðsaðila Dell hér á landi, EJS, er með rafhlöður sem kalla þarf inn en eigendur Dell-fartölva eru beðnir um að fara inn á heimasíðu EJS og kanna hvort rafhlaðan í tölvunni hafi tiltekið framleiðslunúmer. Innlent 15.8.2006 15:22
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent