Árás á bandaríska þinghúsið Búið að ákæra sjötíu og búist við hundruð ákæra til viðbótar Búið er að ákæra rúmlega 70 manns vegna árásarinnar á þinghús Bandaríkjanna í síðustu viku en líklegt er að hundruð eða jafnvel þúsundir verði að endingu ákærðir. Meðal annars stendur til að ákæra fólk fyrir uppreisnaráróður, fyrir að fara inn í þinghúsið í leyfisleysi og morð. Erlent 12.1.2021 22:21 Evrópskir ráðamenn neituðu að hitta Pompeo Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hætti í skyndi við síðustu embættisferð sína í dag, eftir að ráðamenn og embættismenn í Evrópusambandsinu neituðu að hitta hann. Ástæðan er sögð vera árásin á þinghús Bandaríkjanna í síðustu viku og aðkoma Donalds Trump, forseta, að henni. Erlent 12.1.2021 20:34 Segist enga ábyrgð bera Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir gífurlega reiði í Bandaríkjunum vegna þess að fulltrúadeild þingsins undirbúi að kæra hann aftur fyrir embættisbrot. Að þessu sinni er verið að kæra hann fyrir að hvetja fólk til uppreisnar. Erlent 12.1.2021 18:05 Þingmaður smitaður eftir árásina á þinghúsið Pramila Jayapal, þingmaður demókrata í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, hefur smitast af kórónuveirunni. Jayapal segir frá því á Twitter að hún hafi smitast í kjölfar þess að hafa ásamt öðrum þingmönnum verið flutt í skjól, í lokað herbergi, þegar múgur réðst á bandaríska þinghúsið í síðustu viku. Erlent 12.1.2021 08:48 FBI varar við mótmælum og ofbeldi víða um Bandaríkin Starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna hafa áhyggjur af því að hópar vopnaðra manna ætli sér að mótmæla embættistöku Joe Bidens, verðandi forseta Bandaríkjanna, þann 20 janúar. Mótmælin eru sögð eiga að hefjast seinna í þessari viku og standa yfir þar til Biden tekur við embætti og jafnvel lengur. Erlent 11.1.2021 22:30 Lögðu fram frumvarp um aðra kæru gegn Trump Demókratar í fulltrúadeild Bandaríkjaþings hafa lagt formlega fram frumvarp um að kæra Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, í annað sinn fyrir embættisbrot. Það felur í sér að kæra hann sérstaklega fyrir að hvetja fólk til uppreisnar og þá fyrir hlutverk hans í því að æsa fólk upp, sem á endanum braut sér leið inn í þinghús Bandaríkjanna til að stöðva formlega staðfestingu úrslita forsetakosninganna í nóvember. Erlent 11.1.2021 17:51 Sjálfstæðismenn vilja leggja búsáhaldabyltingu og árásina á þinghúsið í Bandaríkjunum að jöfnu Fjölmargir flokksbundnir Sjálfstæðismenn hafa stigið fram að undanförnu og lýst því yfir að búsáhaldabyltingin og óeirðirnar við þinghúsið í Bandaríkjunum séu á margan hátt hliðstæðir atburðir. Innlent 11.1.2021 13:51 Parler ekki lengur aðgengileg Vefsíða Parler, sem hefur verið lýst sem valkostur við Twitter, liggur nú niðri. Það gerist eftir að Amazon greindi frá því um helgina að fyrirtækið myndi frá og með deginum í dag hætta að hýsa síðuna vegna ítrekaðra brota á notendaskilmálum. Viðskipti erlent 11.1.2021 08:39 Hætta við að halda risamót á velli Trumps Samtök atvinnukylfinga í Bandaríkjunum, PGA of America, hafa ákveðið að hætta við að halda PGA meistaramótið á næsta ári á golfvelli í eigu Donalds Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseta. Er það vegna atburðanna í síðustu viku þegar stuðningsmenn Trumps réðust inn í bandaríska þinghúsið. Golf 11.1.2021 07:55 Fulltrúadeildin ætlar að leggja fram ákæru á hendur Trump Fulltrúadeild Bandaríkjaþings mun á næstu dögum ákæra Donald Trump Bandaríkjaforseta fyrir embættisbrot. Þetta sagði Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildarinnar, í bréfi til þingmanna á sunnudag. Erlent 11.1.2021 00:50 Elliði segir talsmenn Stjórnarskrárfélagsins nota sömu aðferð og Trump Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, sakar forsvarsmenn Stjórnarskrárfélagsins um að nota sömu aðferð og Donald Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseti, í baráttu sinni fyrir upptöku nýrrar stjórnarskrár. Innlent 10.1.2021 21:02 Árás á lýðræðið á Íslandi og Bandaríkjunum Skoðun 10.1.2021 20:01 Búið að handtaka áberandi þátttakendur í óeirðunum Alríkissaksóknarar hafa ákært tvo einstaklinga til viðbótar í tengslum við óeirðirnar í bandaríska þinghúsinu sem fram fóru á miðvikudag. Um er að ræða tvo karlmenn sem vakið hafa mikla athygli fyrir þátt sinn í atburðunum en ljósmyndir af þeim á göngum þinghússins komust fljótt í mikla dreifingu um allan heim. Erlent 9.1.2021 20:42 „Á þessum tímapunkti hélt ég að ég yrði drepin“ Fjöldi blaðamanna og ljósmyndara var í og við bandaríska þinghúsið á miðvikudag og upplifði þá ótrúlegu atburðarás þegar æstur múgur, stuðningsmenn Donalds Trump fráfarandi Bandaríkjaforseta, réðst inn í húsið. Erlent 9.1.2021 19:31 Vildi „setja kúlu í hausinn á Pelosi“ í beinni Saksóknarar í Bandaríkjunum hafa greint frá upplýsingum úr rannsókn yfirvalda, sem snýr að árás stuðningsmanna Donalds Trump Bandaríkjaforseta á þinghúsið síðastliðinn miðvikudag. Frá þessu er greint á vef CNN. Erlent 9.1.2021 14:22 Demókratar undirbúa ákæru fyrir embættisbrot Demókratar á bandaríska þinginu hyggjast gefa út ákæru á hendur Donald Trump Bandaríkjaforseta fyrir hans þátt í óeirðunum sem urðu í og við þinghúsið á miðvikudag ef forsetinn segir ekki tafarlaust af sér. Erlent 9.1.2021 08:01 Twitter reikningi Trump lokað til frambúðar Twitter hefur lokað reikningi Donalds Trump til frambúðar. Erlent 8.1.2021 23:38 Maðurinn sem kom sér fyrir í stól Pelosi handtekinn Maðurinn sem kom sér fyrir í stól Pelosi þegar múgur réðst inn í þinghúsið hefur verið handekinn og ákærður fyrir brot á alríkislögum. Erlent 8.1.2021 19:38 Trump verður ekki viðstaddur innsetningu Bidens Donald Trump fráfarandi Bandaríkjaforseti ætlar ekki að mæta á vígsluathöfn Joes Biden þann 20. janúar. Frá þessu greinir Trump á Twitter en nefnir ekki ástæðu þess að hann ætlar ekki að mæta. Erlent 8.1.2021 16:03 Trump sagður íhuga að náða sjálfan sig Donald Trump, fráfarandi forseti Bandaríkjanna, er sagður hafa lagt til við ráðgjafa sína að hann hafi áhuga á að veita sjálfum sér forsetanáðun á lokadögum forsetatíðar sinnar. Forsetinn mun vera sannfærður um að óvinir sínir muni beita dómskerfinu gegn sér eftir að hann fer úr Hvíta húsinu. Erlent 8.1.2021 11:40 Lögreglan hafnaði boðum um aðstoð Nokkrum dögum fyrir óeirðirnar í þinghúsi Bandaríkjanna höfðu embættismenn í varnarmálaráðuneytinu samband við lögreglu þingsins og buðu þeim aðstoð þjóðvarðliðs Washington DC við að halda aftur af mótmælendum. Þegar þúsundir stuðningsmanna Donalds Trump, fráfarandi forseta Bandaríkjanna, umkringdu húsið á miðvikudaginn bauð dómsmálaráðuneytið aðstoð Alríkislögreglu Bandaríkjanna. Erlent 8.1.2021 08:54 Annar ráðherra í ríkisstjórn Trumps segir af sér Betsy DeVos, menntamálaráðherra Bandaríkjanna, hefur skilað inn afsögn sinni til Donalds Trump Bandaríkjaforseta, þrettán dögum fyrir embættistöku nýs forseta. DeVos segir að aðkoma Trumps hafi skipt sköpum varðandi það að æstur múgur hafi ráðist inn í bandaríska þinghúsið á miðvikudag. Erlent 8.1.2021 08:20 Lögreglumaður lést af sárum sínum eftir árásina á þinghúsið Lögreglumaður sem starfaði í þinghúsi Bandaríkjanna, Capitol Hill, er látinn. Hann lést af sárum sem hann hlaut þegar æstur múgur réðst inn í þinghúsið síðastliðinn miðvikudag og truflaði þingfund þar sem átti að staðfesta kjör Joes Biden í embætti forseta Bandaríkjanna. Erlent 8.1.2021 06:45 Trump kominn aftur á Twitter og fordæmir árásina í myndbandi Donald Trump, fráfarandi forseti Bandaríkjanna, er kominn aftur með aðgang að Twitter-reikningi sínum eftir að lokað var á hann í gærkvöldi. Hann birti nú skömmu eftir miðnætti myndband, þar sem hann fordæmir árásina á þinghúsið. Erlent 8.1.2021 00:22 Útiloka ekki að Trump verði ákærður Saksóknarinn Michael Sherwin segir rannsóknina á þeirri árás sem var gerð á þinghúsið í gær fyrst og fremst snúa að því að rannsaka hverjir stuðluðu að ofbeldi og óeirðum innan veggja hússins. Á þessu stigi sé það forgangsmál, þó ekki sé útilokað að fleiri verði ákærðir fyrir sinn þátt. Erlent 7.1.2021 23:34 Sagði atburði gærdagsins afleiðingu valdatíðar Trump Joe Biden, verðandi forseti Bandaríkjanna, hefur gagnrýnt viðbrögð lögreglu við árásinni á þinghúsið í gær harðlega. Hann segir óásættanlegt að hugsa til þess að lögregla hefði brugðist við af meiri hörku ef um Black Lives Matter mótmæli væri að ræða. Erlent 7.1.2021 21:41 Pelosi biðlar til Pence að svipta Trump völdum Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, hefur óskað eftir því að Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, og ríkisstjórnin svipti Donald Trump Bandaríkjaforseta völdum. Erlent 7.1.2021 19:38 Samgönguráðherra Bandaríkjanna segir af sér Elaine Chao, samgönguráðherra Bandaríkjanna, hefur sagt af sér. Hún segir í tilkynningu sem hún birti á Twitter að hún sé þjökuð vegna atburða gærdagsins. Erlent 7.1.2021 19:22 Forsætisráðherra segir áhlaupið í gær árás á lýðræðið Minnst fjórir eru látnir eftir að stuðningsmenn Donalds Trump Bandaríkjaforseta gerðu áhlaup á þinghúsið í Washington í gær. Erlent 7.1.2021 18:45 Geta ekki beðið í þrettán daga Fleiri þingmenn hafa kallað eftir því að 25. viðauki bandarísku stjórnarskrárinnar verði virkjaður og að Donald Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseta, verði vikið úr embætti. Aðeins þrettán dagar eru eftir af valdatíð Trump en Joe Biden tekur formlega við embættinu þann 20. janúar næstkomandi. Erlent 7.1.2021 17:39 « ‹ 4 5 6 7 8 ›
Búið að ákæra sjötíu og búist við hundruð ákæra til viðbótar Búið er að ákæra rúmlega 70 manns vegna árásarinnar á þinghús Bandaríkjanna í síðustu viku en líklegt er að hundruð eða jafnvel þúsundir verði að endingu ákærðir. Meðal annars stendur til að ákæra fólk fyrir uppreisnaráróður, fyrir að fara inn í þinghúsið í leyfisleysi og morð. Erlent 12.1.2021 22:21
Evrópskir ráðamenn neituðu að hitta Pompeo Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hætti í skyndi við síðustu embættisferð sína í dag, eftir að ráðamenn og embættismenn í Evrópusambandsinu neituðu að hitta hann. Ástæðan er sögð vera árásin á þinghús Bandaríkjanna í síðustu viku og aðkoma Donalds Trump, forseta, að henni. Erlent 12.1.2021 20:34
Segist enga ábyrgð bera Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir gífurlega reiði í Bandaríkjunum vegna þess að fulltrúadeild þingsins undirbúi að kæra hann aftur fyrir embættisbrot. Að þessu sinni er verið að kæra hann fyrir að hvetja fólk til uppreisnar. Erlent 12.1.2021 18:05
Þingmaður smitaður eftir árásina á þinghúsið Pramila Jayapal, þingmaður demókrata í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, hefur smitast af kórónuveirunni. Jayapal segir frá því á Twitter að hún hafi smitast í kjölfar þess að hafa ásamt öðrum þingmönnum verið flutt í skjól, í lokað herbergi, þegar múgur réðst á bandaríska þinghúsið í síðustu viku. Erlent 12.1.2021 08:48
FBI varar við mótmælum og ofbeldi víða um Bandaríkin Starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna hafa áhyggjur af því að hópar vopnaðra manna ætli sér að mótmæla embættistöku Joe Bidens, verðandi forseta Bandaríkjanna, þann 20 janúar. Mótmælin eru sögð eiga að hefjast seinna í þessari viku og standa yfir þar til Biden tekur við embætti og jafnvel lengur. Erlent 11.1.2021 22:30
Lögðu fram frumvarp um aðra kæru gegn Trump Demókratar í fulltrúadeild Bandaríkjaþings hafa lagt formlega fram frumvarp um að kæra Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, í annað sinn fyrir embættisbrot. Það felur í sér að kæra hann sérstaklega fyrir að hvetja fólk til uppreisnar og þá fyrir hlutverk hans í því að æsa fólk upp, sem á endanum braut sér leið inn í þinghús Bandaríkjanna til að stöðva formlega staðfestingu úrslita forsetakosninganna í nóvember. Erlent 11.1.2021 17:51
Sjálfstæðismenn vilja leggja búsáhaldabyltingu og árásina á þinghúsið í Bandaríkjunum að jöfnu Fjölmargir flokksbundnir Sjálfstæðismenn hafa stigið fram að undanförnu og lýst því yfir að búsáhaldabyltingin og óeirðirnar við þinghúsið í Bandaríkjunum séu á margan hátt hliðstæðir atburðir. Innlent 11.1.2021 13:51
Parler ekki lengur aðgengileg Vefsíða Parler, sem hefur verið lýst sem valkostur við Twitter, liggur nú niðri. Það gerist eftir að Amazon greindi frá því um helgina að fyrirtækið myndi frá og með deginum í dag hætta að hýsa síðuna vegna ítrekaðra brota á notendaskilmálum. Viðskipti erlent 11.1.2021 08:39
Hætta við að halda risamót á velli Trumps Samtök atvinnukylfinga í Bandaríkjunum, PGA of America, hafa ákveðið að hætta við að halda PGA meistaramótið á næsta ári á golfvelli í eigu Donalds Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseta. Er það vegna atburðanna í síðustu viku þegar stuðningsmenn Trumps réðust inn í bandaríska þinghúsið. Golf 11.1.2021 07:55
Fulltrúadeildin ætlar að leggja fram ákæru á hendur Trump Fulltrúadeild Bandaríkjaþings mun á næstu dögum ákæra Donald Trump Bandaríkjaforseta fyrir embættisbrot. Þetta sagði Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildarinnar, í bréfi til þingmanna á sunnudag. Erlent 11.1.2021 00:50
Elliði segir talsmenn Stjórnarskrárfélagsins nota sömu aðferð og Trump Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, sakar forsvarsmenn Stjórnarskrárfélagsins um að nota sömu aðferð og Donald Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseti, í baráttu sinni fyrir upptöku nýrrar stjórnarskrár. Innlent 10.1.2021 21:02
Búið að handtaka áberandi þátttakendur í óeirðunum Alríkissaksóknarar hafa ákært tvo einstaklinga til viðbótar í tengslum við óeirðirnar í bandaríska þinghúsinu sem fram fóru á miðvikudag. Um er að ræða tvo karlmenn sem vakið hafa mikla athygli fyrir þátt sinn í atburðunum en ljósmyndir af þeim á göngum þinghússins komust fljótt í mikla dreifingu um allan heim. Erlent 9.1.2021 20:42
„Á þessum tímapunkti hélt ég að ég yrði drepin“ Fjöldi blaðamanna og ljósmyndara var í og við bandaríska þinghúsið á miðvikudag og upplifði þá ótrúlegu atburðarás þegar æstur múgur, stuðningsmenn Donalds Trump fráfarandi Bandaríkjaforseta, réðst inn í húsið. Erlent 9.1.2021 19:31
Vildi „setja kúlu í hausinn á Pelosi“ í beinni Saksóknarar í Bandaríkjunum hafa greint frá upplýsingum úr rannsókn yfirvalda, sem snýr að árás stuðningsmanna Donalds Trump Bandaríkjaforseta á þinghúsið síðastliðinn miðvikudag. Frá þessu er greint á vef CNN. Erlent 9.1.2021 14:22
Demókratar undirbúa ákæru fyrir embættisbrot Demókratar á bandaríska þinginu hyggjast gefa út ákæru á hendur Donald Trump Bandaríkjaforseta fyrir hans þátt í óeirðunum sem urðu í og við þinghúsið á miðvikudag ef forsetinn segir ekki tafarlaust af sér. Erlent 9.1.2021 08:01
Twitter reikningi Trump lokað til frambúðar Twitter hefur lokað reikningi Donalds Trump til frambúðar. Erlent 8.1.2021 23:38
Maðurinn sem kom sér fyrir í stól Pelosi handtekinn Maðurinn sem kom sér fyrir í stól Pelosi þegar múgur réðst inn í þinghúsið hefur verið handekinn og ákærður fyrir brot á alríkislögum. Erlent 8.1.2021 19:38
Trump verður ekki viðstaddur innsetningu Bidens Donald Trump fráfarandi Bandaríkjaforseti ætlar ekki að mæta á vígsluathöfn Joes Biden þann 20. janúar. Frá þessu greinir Trump á Twitter en nefnir ekki ástæðu þess að hann ætlar ekki að mæta. Erlent 8.1.2021 16:03
Trump sagður íhuga að náða sjálfan sig Donald Trump, fráfarandi forseti Bandaríkjanna, er sagður hafa lagt til við ráðgjafa sína að hann hafi áhuga á að veita sjálfum sér forsetanáðun á lokadögum forsetatíðar sinnar. Forsetinn mun vera sannfærður um að óvinir sínir muni beita dómskerfinu gegn sér eftir að hann fer úr Hvíta húsinu. Erlent 8.1.2021 11:40
Lögreglan hafnaði boðum um aðstoð Nokkrum dögum fyrir óeirðirnar í þinghúsi Bandaríkjanna höfðu embættismenn í varnarmálaráðuneytinu samband við lögreglu þingsins og buðu þeim aðstoð þjóðvarðliðs Washington DC við að halda aftur af mótmælendum. Þegar þúsundir stuðningsmanna Donalds Trump, fráfarandi forseta Bandaríkjanna, umkringdu húsið á miðvikudaginn bauð dómsmálaráðuneytið aðstoð Alríkislögreglu Bandaríkjanna. Erlent 8.1.2021 08:54
Annar ráðherra í ríkisstjórn Trumps segir af sér Betsy DeVos, menntamálaráðherra Bandaríkjanna, hefur skilað inn afsögn sinni til Donalds Trump Bandaríkjaforseta, þrettán dögum fyrir embættistöku nýs forseta. DeVos segir að aðkoma Trumps hafi skipt sköpum varðandi það að æstur múgur hafi ráðist inn í bandaríska þinghúsið á miðvikudag. Erlent 8.1.2021 08:20
Lögreglumaður lést af sárum sínum eftir árásina á þinghúsið Lögreglumaður sem starfaði í þinghúsi Bandaríkjanna, Capitol Hill, er látinn. Hann lést af sárum sem hann hlaut þegar æstur múgur réðst inn í þinghúsið síðastliðinn miðvikudag og truflaði þingfund þar sem átti að staðfesta kjör Joes Biden í embætti forseta Bandaríkjanna. Erlent 8.1.2021 06:45
Trump kominn aftur á Twitter og fordæmir árásina í myndbandi Donald Trump, fráfarandi forseti Bandaríkjanna, er kominn aftur með aðgang að Twitter-reikningi sínum eftir að lokað var á hann í gærkvöldi. Hann birti nú skömmu eftir miðnætti myndband, þar sem hann fordæmir árásina á þinghúsið. Erlent 8.1.2021 00:22
Útiloka ekki að Trump verði ákærður Saksóknarinn Michael Sherwin segir rannsóknina á þeirri árás sem var gerð á þinghúsið í gær fyrst og fremst snúa að því að rannsaka hverjir stuðluðu að ofbeldi og óeirðum innan veggja hússins. Á þessu stigi sé það forgangsmál, þó ekki sé útilokað að fleiri verði ákærðir fyrir sinn þátt. Erlent 7.1.2021 23:34
Sagði atburði gærdagsins afleiðingu valdatíðar Trump Joe Biden, verðandi forseti Bandaríkjanna, hefur gagnrýnt viðbrögð lögreglu við árásinni á þinghúsið í gær harðlega. Hann segir óásættanlegt að hugsa til þess að lögregla hefði brugðist við af meiri hörku ef um Black Lives Matter mótmæli væri að ræða. Erlent 7.1.2021 21:41
Pelosi biðlar til Pence að svipta Trump völdum Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, hefur óskað eftir því að Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, og ríkisstjórnin svipti Donald Trump Bandaríkjaforseta völdum. Erlent 7.1.2021 19:38
Samgönguráðherra Bandaríkjanna segir af sér Elaine Chao, samgönguráðherra Bandaríkjanna, hefur sagt af sér. Hún segir í tilkynningu sem hún birti á Twitter að hún sé þjökuð vegna atburða gærdagsins. Erlent 7.1.2021 19:22
Forsætisráðherra segir áhlaupið í gær árás á lýðræðið Minnst fjórir eru látnir eftir að stuðningsmenn Donalds Trump Bandaríkjaforseta gerðu áhlaup á þinghúsið í Washington í gær. Erlent 7.1.2021 18:45
Geta ekki beðið í þrettán daga Fleiri þingmenn hafa kallað eftir því að 25. viðauki bandarísku stjórnarskrárinnar verði virkjaður og að Donald Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseta, verði vikið úr embætti. Aðeins þrettán dagar eru eftir af valdatíð Trump en Joe Biden tekur formlega við embættinu þann 20. janúar næstkomandi. Erlent 7.1.2021 17:39
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent