Vatnsleki í Háskóla Íslands

Háskóli Íslands krefst 224 milljóna vegna vatnslekans
Háskóli Íslands hefur krafið Veitur, tryggingafélagið VÍS og fleiri aðila um samtals 224 milljónir króna í skaðabætur vegna mikils vatnsleka sem varð á lóð skólans þann 21. janúar 2021.

Myndir ársins 2021: Faraldur, fegurð og -hamfarir
Ljósmyndarar og myndatökumenn fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar fönguðu margt dýrmætt augnablikið í ár, eins og þeim einum er lagið. Sigrar og sorgir voru fest á filmu og í mörgum tilvikum sannaðist það fornkveðna; að mynd segir meira en þúsund orð.

Tjónið í HÍ metið á annan milljarð króna
Sérfræðingar hafa áætlað að tjónið vegna vatnslekans sem varð í Háskóla Íslands í janúar sé á annan milljarð króna. Er meðal annars horft til mikilla skemmda á húsgögnum og raflögnum við mat á tjóninu.

Mistök ástæða vatnstjóns í Háskóla Íslands
Veitur segja að mistök hafi verið gerðar við framkvæmdir á vegum fyrirtækisins við Suðurgötu sem olli því að stofnlögn vatns fór í sundur þannig að vatn flæddi inn í byggingar Háskóla Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veitum sem viðurkenna mistök og segjast líta atvikið alvarlegum augum.

Starfsemi getur hafist í Gimli á morgun
Ekkert er því til fyrirstöðu að hefja hefðbundna starfsemi í Gimli, byggingu Háskóla Íslands, á nýjan leik á morgun eftir að heilmikið tjón varð á byggingum háskólans af völdum vatnslekans í síðustu viku.

„Við máttum ekki alveg við þessu“
Forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands segir að gríðarlegur vatnsleki í skólanum í fyrrinótt sé enn eitt áfallið fyrir nemendur, ofan á erfiðar annir sem undangengnar eru í kórónuveirufaraldrinum. Hreinsunarstarf gekk vel í skólanum í dag.

Reyna að koma rafmagni aftur á í dag
Hreinsunarstarf og uppbygging heldur áfram í Háskóla Íslands í dag eftir vatnsleka í húsnæði skólans í fyrrinótt. Á meðal verkefna dagsins er að gera við lyftur og koma rafmagni aftur á. Þá var unnt að opna Hámu og Bóksölu stúdenta á ný í morgun - en bið verður á opnun Stúdentakjallarans.

Sjáðu þegar vatnið fór að flæða inn í Háskóla Íslands
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, segist vongóður um að tjón vegna mikils vatnsleka í húsakynnum háskólans í vesturbæ Reykjavíkur í nótt verði bætt. Myndband úr öryggismyndavél sýnir upphaf lekans og hvernig vatn flæddi inn í háskólann.

Miklar breytingar á starfi á Háskólatorgi og Gimli
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, segir að öll kennsla sem fram hafi farið í húsakynnum Háskólatorgs og Gimli verði nú rafræn. Þá verður jarðhæð í Gimli ónothæf næstu mánuði og sama gildi um fyrirlestrarsali á jarðhæð á Háskólatorgi.

Hafa dælt úr skólanum í hálfan sólarhring
Slökkviliðsmenn sem eru að störfum í byggingum Háskóla Íslands eru nú farnir að sjá fyrir endann á aðgerðum á staðnum. Þeir vonast til að lokið verði við að dæla vatni af göngum skólans á næstu klukkutímum.

Skoða hver ábyrgð Veitna sé vegna tjónsins í HÍ
Arndís Ósk Ólafsdóttir, forstöðumaður vatns- og fráveitu hjá Veitum, segir að það eigi eftir að koma í ljós hvort fyrirtækið sé skaðabótaskylt vegna vatnstjónsins sem varð í byggingum Háskóla Íslands í nótt eftir að stór kaldavatnslögn við skólann rofnaði með tilheyrandi vatnsleka.

Gryfjan í Stúdentakjallaranum „eins og sundlaug“
Rebekka Sigurðardóttir, upplýsingafulltrúi Félagsstofnunar Stúdenta, sem rekur Stúdentakjallarann, Bóksölu stúdenta og veitingasöluna Hámu á Háskólatorgi segir ekki ljóst hversu mikið tjón stofnunarinnar er vegna vatnslekans sem varð í Háskóla Íslands í nótt.

Háskóli Íslands er ekki tryggður fyrir tjóninu
Háskóli Íslands er ekki tryggður fyrir tjóninu sem varð vegna gríðarlegs vatnsleka í fimm byggingum skólans í nótt, að sögn rektors. Hann segir ljóst að tjónið sé gríðarlegt og hafi einmitt orðið í þeim skólastofum sem eru í notkun í kórónuveirufaraldrinum.

Hurðir sprungu undan gríðarlegum vatnsflaumnum
Gríðarlegt tjón varð á byggingum Háskóla Íslands í miklum vatnsleka á svæðinu í nótt, að sögn sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs skólans. Tvær byggingar; Gimli og Háskólatorg, fóru verst úti. Hurðir sprungu undan vatninu og í Gimli náði flaumurinn upp í rafmagnstöflur.

Handritin í Árnagarði óhult
„Það fór ekkert inn til okkar og handritin eru óhult.“ Þetta segir Guðrún Nordal, forstöðumaður Árnastofnunar, í samtali við Vísi, aðspurð um hvort að vatnslekinn í byggingum Háskóla Íslands hafi náð inn í handritageymslur stofnunarinnar.

Engin starfsemi í mörgum byggingum Háskóla Íslands
Öll starfsemi Háskóla Íslands á Háskólatorgi, í Gimli, Lögbergi, Árnagarði og aðalbyggingu mun liggja niðri að minnsta kosti til hádegis í dag vegna gríðarlegs vatnstjóns sem orðið hefur í byggingum skólans.

Gríðarlegt vatnstjón í HÍ: Meira en tvö þúsund tonn af vatni runnu út eftir rof á kaldavatnslögn
Ljóst þykir að gríðarmikið vatnstjón varð í nokkrum byggingum Háskóla Íslands í Vesturbæ Reykjavíkur eftir að rof varð á aðalkaldavatnsæð Veitna við Suðurgötu í nótt.