

Þorvaldur Örlygsson var um síðastliðna helgi kjörinn formaður Knattspyrnusambands Íslands. Þorvaldur flutti kraftmikla framboðsræðu sem hreyfði eflaust við fundargestum áður en gengið var til kjörkassa. Þar boðaði hann breytingar og framfarir, lýsti yfir óbeit sinni á óheiðarleika og sagði KSÍ ekki eiga að vera klíkuskap á kaffihúsum.
Á þessum síðasta degi ársins er vert að fara yfir árið í tónlistarheiminum en útvarpsstöðin FM957 kynnti fyrr í dag vinsælustu lög ársins 2023.
„Við gerðum þetta lag svolítið óvænt. Við hittumst einn daginn, settumst niður og prófuðum að gera eitthvað saman,“ segir tónlistarkonan Árný Margrét um lagið Part of Me sem hún og Ásgeir Trausti voru að senda frá sér.
Rapparinn Emmsjé Gauti er kominn í partýgírinn fyrir jólin en hann var að senda frá sér lagið Partýjól ásamt Steinda Jr. og Þormóði. Lagið var kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM í dag.
Hinn 22 ára gamli Jóhann Ágúst Ólafsson var að senda frá sér sitt fyrsta lag, „Kallinn á tunglinu“. Lagið var kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM í dag.
Íslenska hljómsveitin ex.girls var að senda frá sér breiðskífuna Verk. Lagið 90 oktan af plötunni var kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM í dag.
Kristmundur Axel og Árni Páll, jafnan þekktur sem Herra Hnetusmjör, ákváðu að sameina krafta sína og senda frá sér lagið Sólin. Lagið situr í sjöunda sæti Íslenska listans á FM957.
„Við erum búin að þróa með okkur meiri fullkomnunaráráttu,“ segir danssveitin Inspector Spacetime sem hefur verið að gera góða hluti í íslensku tónlistarsenunni síðustu misseri.
Tónlistarkonan Silja Rós var að senda frá sér lagið Honey sem var kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM í dag.
„Við elskum að segja sögur með tónlist,“ segja tónlistarmennirnir Háski og Séra Bjössi. Þeir voru að senda frá sér lagið Hausinn fór á milljón en lagið var kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM fyrr í dag.
„Lagið er ein stór spurning; hvað á ég að segja til að fólk heyri?“ segir tónlistarkonan og leikkonan Elín Hall um lagið sitt bankastræti, sem hún syngur ásamt Unu Torfa.
„Trust issues fjallar um þær tilfinningar sem komu upp hjá mér þegar ég gekk í gegnum erfiðan tíma í sambandi,“ segir tónlistarkonan Þórunn Salka. Hún var að senda frá sér lagið Trust Issues en lagið var kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM.
Íslensku hljómsveitirnar GusGus og Vök voru að sameina krafta sína við útgáfu á laginu When We Sing.
Plötusnældan og tónlistarkonan Peggy Gou hefur verið að gera öfluga hluti í tónlistarheiminum og troðið upp víðs vegar fyrir fjöldann allan af fólki.
Rappsveitin Eldmóðir var að senda frá sér lagið Stefán Braga en lagið fjallar að sögn þeirra um óþolandi týpu á djamminu sem kann sig engan veginn. Stefán Braga var kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM957 fyrr í dag.
„Þetta er smá fyndin saga,“ segir tónlistarmaðurinn Patrik Atlason í samtali við blaðamann um hvernig lagið Skína varð til. Lagið situr á toppi Íslenska listans á FM þriðju vikuna í röð.
„Kiki er óður til heimapartýja í London sem heita öðru nafni Kikis. Kiki er eina móteitrið við gráma borgarinnar þegar sumarið er liðið,“ segir Katrín Helga Andrésdóttir sem notast við listamannsnafnið Special-K. Lagið Kiki var kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM í dag.
Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason, jafnan þekktur sem prettyboitjokko, situr á toppi Íslenska listans á FM í þessari viku ásamt Luigi með lagið Skína.
„Þetta er kærulaus tónlist um hversdagsleg málefni. Um sápukúludiskótek og sangríu. Um þjóðarsálina, íslenska sumarið og hina eilífu leit að réttu stemningunni,“ segir tónlistarmaðurinn Jón Frímannsson um lagið Andalúsía sem hljómsveit hans JónFrí var að senda frá sér.
Efstu sex lög Íslenska listans á FM eru íslensk í þessari viku en listinn var fluttur á FM957 fyrr í dag. Herra Hnetusmjör trónir á toppi listans aðra vikuna í röð með nýjasta lagið sitt All In, Iceguys sitja í öðru sæti með lagið Rúlletta og Patrik hækkar sig upp í þriðja sæti ásamt Luigi með lagið Skína.
Rapparinn og athafnamaðurinn Árni Páll, jafnan þekktur sem Herra Hnetusmjör, trónir á toppi Íslenska listans á FM með nýjasta lagið sitt „All In“.
Tónlistarmaðurinn Emmsjé Gauti trónir staðfastur á toppi Íslenska listans á FM957 fjórðu vikuna í röð með lagið Þúsund hjörtu. Blaðamaður tók púlsinn á honum og fékk að heyra hvernig hann er stemmdur tæpri viku fyrir stóru stundina.
Emmsjé Gauti situr staðfastur í fyrsta sæti Íslenska listans á FM með Þjóðhátíðarlagið Þúsund hjörtu. Íslenski listinn var fluttur á FM957 fyrr í dag og eiga efstu fimm lög listans í þessari viku það sameiginlegt að vera öll íslensk.
Tónlistarmaðurinn og fyrrum Idol keppandinn Guðjón Smári var að senda frá sér sitt fyrsta lag, Dansandi í myrkri, og var lagið kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM fyrr í dag.
„Það var stór stökkpallur að fara úr Músíktilraunum yfir í tónlistarbransann á Íslandi. Ótal dyr sem opnuðust, fullt af möguleikum og skemmtilegum tækifærum,“ segir tónlistarkonan Kolbrún Óskarsdóttir, sem notast við listamannsnafnið KUSK. Hún var að senda frá sér lagið Áttir allt sem var kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM í dag.
„Einhverjir hafa spurt mig hvort lagið fjalli um að vera foreldri og ég held að það sé að einhverju leyti rétt. Ég fékk allavega innblástur úr móðurhlutverkinu,“ segir tónlistarkonan Guðrún Ýr Eyfjörð, jafnan þekkt sem GDRN. Hún var að senda frá sér lagið Parísarhjól en lagið kom nýtt inn á Íslenska listann á FM í dag.
„Lífinu sem ég hafði þekkt var kippt undan mér og ég þurfti að læra upp á nýtt að lifa með miklum kvíða og vanlíðan, sem var ákveðið áfall fyrir mig,“ segir tónlistarkonan Katrín Myrra. Hún sendi nýverið frá sér smáskífuna Skuggar og er þar að finna lagið Ljósið, sem var kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM957 í dag. Blaðamaður ræddi við Katrínu um tengslin á milli tónlistarinnar hennar og tilverunnar.
Tónlistarkonan Róshildur var að senda frá sér lagið Fólk í blokk (v2,3) en lagið var í dag kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM957.
„Lagið fjallar um hvernig það er í okkar höndum að hafa gaman af hlutum, sama þó að eitthvað leiðinlegt komi upp á,“ segir hljómsveitin Celebs, sem var að senda frá sér lagið Bongó, blús & næs. Lagið var kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM957 í dag.
„Ég ætla bara að leggja allt til hliðar og setja alla orkuna mína í að geta gert það sem mig langar, sem er að verða tónlistarkona og leikkona,“ segir Eurovision farinn Diljá Pétursdóttir, sem sendi nýlega frá sér lagið Crazy. Lagið situr í tíunda sæti Íslenska listans á FM en blaðamaður ræddi við hana um lagið.