
Banaslys á Ásvöllum

Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi á Völlunum
Karlmaður á sjötugsaldri hefur verið dæmdur til tveggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar fyrir manndráp af gáleysi, með því að hafa ekið vörubíl yfir hinn átta ára gamla Ibrahim Shah í október 2023. Honum er gert að greiða foreldrum Ibrahims alls átta milljónir króna í miskabætur. Rannsókn á slysinu bendir til þess að Ibrahim hafi sést í baksýnisspegli vörubílsins í rúma hálfa mínútu áður en hann varð undir bílnum.

Maðurinn sem ók á Ibrahim: „Skelfilegt að enda ferilinn svona“
Karlmaður á sjötugsaldri sem er ákærður fyrir manndráp af gáleysi fyrir að aka steypubíl á hinn átta ára gamla Ibrahim Shah, sem lést fyrir vikið, í október 2023 segist ekki hafa séð drenginn í aðdraganda slyssins.

Foreldrar Ibrahims krefjast tuttugu milljóna í miskabætur
Foreldrar Ibrahims Shah, átta ára drengs sem lést þegar ekið var á hann á Ásvöllum í Hafnarfirði í október 2023, krefja ökumann steypubíls um samtals tuttugu milljónir króna í miskabætur, að viðbættum lögmanns- og útfararkostnaði.

Bílstjórinn á Ásvöllum ákærður fyrir manndráp af gáleysi
Bílstjóri steypubíls, sem ók á dreng á Ásvöllum í Hafnarfirði með þeim afleiðingum að hann lést, hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Þetta staðfestir Hildur Sunna Pálmadóttir sviðsstjóri hjá ákærusviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Ibrahim hafi horfið sjónum bílstjórans í fáeinar sekúndur
Ökumaður vörubifreiðar sem ók á átta ára dreng á hjóli á Ásvöllum í Hafnarfirði í október 2023, með þeim afleiðingum að drengurinn lést, veitti umferð hjólandi vegfarenda ekki athygli áður en slysið varð. Þetta er niðurstaða rannsóknarnefndar samgönguslysa.

Ár frá andláti Ibrahims: „Hann er með okkur í hjarta og alls staðar í kring“
Fjölmenni kom saman í Hafnarfirði síðdegis í dag til minningar um Ibrahim Shah, átta ára dreng sem lést þegar steypubíl var ekið yfir hann á leið heim af fótboltaæfingu. Í dag, 30. október, er nákvæmlega ár frá slysinu.

Íhuga að fara í skaðabótamál vegna andláts Ibrahims
Fjölskylda Ibrahim Shah Uz-Zaman íhuga að fara í skaðabótamál vegna andláts hans. Hann lést 30. október á síðasta ári í umferðarslysi á Ásvöllum í Hafnarfirði. Rannsókn lögreglu lauk í janúar á þessu ári en enn er málið hjá ákærusviði og ekki verið tekin ákvörðun um hvort gefa eigi út ákæru.

„Ég elska hann svo mikið“
Faðir drengs sem lést af slysförum á síðasta ári segir síðustu mánuði hafa verið erfiða. Drengsins var minnst á veitingastað fjölskyldunnar en í dag hefði hann orðið níu ára.

Minnast Ibrahims á Shalimar
Ibrahim Shah Uz-Zaman, drengurinn sem lést í hræðilegu slysi á Ásvöllum þann 30. október síðastliðinn, hefði orðið níu ára í dag. Af því tilefni verða uppáhaldsréttir hans á Shalimar í Austurstræti á afmælistilboði.

Nafn drengsins sem lést í slysinu á Ásvöllum
Drengurinn sem lést í slysi á Ásvöllum síðdegis mánudaginn 30. október hét Ibrahim Shah Uz-Zaman. Hann var fæddur í janúar 2015 og því átta ára gamall.

Engin vitni að banaslysinu í Hafnarfirði
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er með skýra mynd af atburðarásinni þegar átta ára drengur lést nálægt vinnusvæði í Hafnarfirði á mánudaginn. Engin vitni urðu að slysinu.

„Það verður enginn ósnortinn þegar svona gerist“
Bænastund fór fram í Ástjarnarkirkju í gær fyrir drenginn sem lést í slysi við Ásvelli í Hafnarfirði á mánudag. Prestur í kirkjunni segir foreldra drengsins hafa fundið fyrir miklum stuðningi frá öllum þeim sem mættu.

Opin samverustund vegna banaslyssins
Opin samverustund verður haldin í Ástjarnarkirkju í Hafnarfirði á morgun, miðvikudaginn 1. nóvember, klukkan 18 vegna banaslyssins á Ásvöllum í gær.

Haukar og starfsfólk BM Vallár harmi slegin
Starfsfólk BM Vallá er harmi slegið vegna banaslyss sem varð við Ásvelli í Hafnarfirði á sjötta tímanum í gær. Knattspyrnufélagið Haukar sendir fjölskyldu átta ára drengs sem lést samúðarkveðjur. Hann var iðkandi hjá félaginu.

Átta ára drengur lést í umferðarslysi við Ásvelli
Átta ára drengur lést í umferðarslysi á Ásvöllum í Hafnarfirði síðdegis í gær. Frá þessu segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Alvarlegt umferðarslys í Hafnarfirði
Alvarlegt umferðarslys varð við Ásvelli í Hafnarfirði síðdegis í dag, eða á sjötta tímanum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.