
Féll í sprungu í Grindavík

„Það verður unnið í þessu þangað til málið leysist“
Björgunarsveitir hafa hafið leit á ný að manni sem féll niður í sprungu í Grindavík í dag. Leitin fer þannig fram að tveir og tveir leita í einu, með því að síga ofan í sprunguna í körfu. Þetta segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar í samtali við fréttastofu.

„Jörðin bara opnast undir fótum hans“
Karlmanns sem talinn er hafa fallið ofan í sprungu í Grindavík í dag er enn leitað. Aðstæður í bænum eru sagðar hættulegar fyrir björgunarfólk. Lögreglustjóri á Suðurnesjum lýsir slysinu þannig að jörðin hafi opnast undan manninum og hann hafi ekki ráðið við aðstæður. Hans verði leitað í alla nótt gerist þess þörf.

Stefna á að fara aftur niður sprunguna í kvöld
Björgunaraðilar í Grindavík stefna að því að senda björgunarmenn niður sprungu í Grindavík á nýjan leik í leit að manni sem talinn er hafa fallið ofan í sprunguna í morgun. Maðurinn hafði verið einn við vinnu við jarðvegsþjöppun eftir sprungufyllingu.

Fresta íbúafundi vegna leitarinnar
Grindavíkurbær hefur ákveðið að fresta íbúafundi sem var á dagskrá á morgun. Ástæðan er sögð „hörmulegt slys“ sem átti sér stað í dag.

Stækka sprunguna með gröfu
Verkfæri manns sem talinn er hafa fallið ofan í sprungu í Grindvík í morgun fundust ofan í sprungunni. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir allt benda til þess að maðurinn hafi farið ofan í sprunguna ásamt verkfærunum. Maðurinn hafði verið einn við vinnu við jarðvegsþjöppun eftir sprungufyllingu. Hans er enn leitað.

Leita manns sem talinn er hafa fallið í sprungu í Grindavík
Viðbragðsaðilar á Suðurnesjum leita nú manns sem talinn er að hafi fallið ofan í sprungu í Grindavík. Lögreglustjóri segir manninn hafa verið að störfum við að fylla í sprunguna. Enginn sjónarvottur hafi verið að atvikinu en grunur þó vaknað um slysið.