Þingkosningar í Bandaríkjunum
1 2 3 4 5 6 7 8 … 10 ›
Leiðtogi Repúblikana í fulltrúadeildinni niðurlægður í atkvæðagreiðslum í gær Kevin McCarthy, leiðtogi Repúblikana í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, varð í gær fyrstur manna í hundrað ár til að ná ekki að tryggja sér embætti forseta fulltrúadeildarinnar í fyrstu atkvæðagreiðslu. Erlent 4.1.2023 07:33
Taka aftur upp fjársvikamál gegn lygaþingmanninum Saksóknarar í Brasilíu ætla að taka aftur upp rannsókn á fjársvikamáli gegn George Santos, verðandi þingmanni Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum. Rannsóknin var sett á ís á sínum tíma þar sem brasilísku lögreglunni tókst ekki að hafa uppi á Santos. Erlent 3.1.2023 09:46
McCarthy í erfiðri stöðu og líkur á óreiðu á þingi Nýtt kjörtímabil hefst í Bandaríkjunum á morgun og munu Demókratar þá formlega missa meirihluta í fulltrúadeildinni. Kevin McCarthy, leiðtogi Repúblikana í fulltrúadeildinni, hefur unnið hörðum höndum að því að tryggja sér atkvæði 218 þingmanna svo hann geti orðið þingforseti en svo virðist sem hann nái því ekki. Erlent 2.1.2023 14:05
Rannsaka raðlygna verðandi þingmanninn Alríkis- og sýslusaksóknarar í Bandaríkjunum rannsaka nú fjármál nýkjörins þingmanns Repúblikanaflokksins og ítrekaðar lygar hans um sjálfan sig í kosningabaráttunni. Verðandi þingmaðurinn hefur átt erfitt með að skýra hvaðan fé sem hann notaði til framboðsins kom. Erlent 29.12.2022 08:49
Viðurkennir að hafa logið á ferilskránni en ætlar samt inn á þing George Santos, sem nýverið var kosinn þingmaður í New York-ríki í Bandaríkjunum fyrir Repúblikana, hefur viðurkennt að hafa logið á ferilskrá sinni. Hann gerir þó lítið úr fölsun sinni, segist einungis hafa gerst sekur um ýkja á ferilskránni og ætlar að taka sæti á þinginu eftir áramót líkt og hann var kosinn til þess að gera. Erlent 27.12.2022 08:51
Ferilskrá verðandi þingmanns talin vera uppspuni George Santos, sem nýverið var kosinn þingmaður í New York í Bandaríkjunum, virðist hafa falsað stóran hluta ferilskrár sinnar. Santos sem er Repúblikani vann sæti sitt í fulltrúadeildinni í kosningunum í síðasta mánuði, en Repúblikanar náðu mjög naumum meirihluta þar. Erlent 20.12.2022 16:19
Erfið vika í vændum hjá Trump Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, stendur frammi fyrir erfiðri viku. Þingnefnd mun mögulega leggja til að hann verði ákærður vegna árásarinnar á þinghúsið þann 6. janúar í fyrra og skattaskýrslur hans verða mögulega opinberaðar. Erlent 19.12.2022 15:48
Rannsaka kosningaframlög FTX-forkólfa Bandarískir alríkissaksóknarar eru nú sagðir beina sjónum sínum að framlögum stjórnenda rafmyntafyrirtækisins FTX í kosningasjóði stjórnmálamanna. Þeir voru einir stærstu fjárhagslegu bakhjarlar flokkanna tveggja fyrir þingkosningarnar í síðasta mánuði. Viðskipti erlent 19.12.2022 12:36
Meirihluti Demókrata geirnegldur Demókratar geirnegldu meirihluta sinn í öldungadeild Bandaríkjaþings í nótt þegar í ljós kom að þeir fóru með sigur af hólmi í aukakosningum sem fram fóru í Georgíu. Erlent 7.12.2022 07:31
Berjast um síðasta sætið í öldungadeildinni mánuði síðar Íbúar í Georgíu-ríki Bandaríkjanna ganga til kosninga í annað sinn á rúmum mánuði í dag til að ákveða hver hreppir sæti í öldungadeild þingsins. Prestur og fyrrverandi fótboltamaður keppast um sætið en með sigri gætu Repúblikanar jafnað þingmannafjölda Demókrata, þó ólíklegt þyki. Erlent 6.12.2022 00:19
Uppljóstrun Musks reyndist rýr í roðinu Elon Musk og blaðamaðurinn Matt Taibbi tístu um helgina um gögn frá Twitter sem fjölluðu um þá ákvörðun þáverandi forsvarsmanna fyrirtækisins um að banna frétt um Hunter Biden, son Joe Biden, núverandi forseta Bandaríkjanna. Erlent 5.12.2022 12:51
Mætir mótspyrnu innan eigin flokks Kevin McCarthy, leiðtogi Repúblikanaflokksins í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, stendur frammi fyrir óvæntri mótspyrnu innan flokksins í tilraunum hans til að tryggja sér embætti forseta fulltrúadeildarinnar. Þingmenn flokksins hafa sagt að til greina komi að gera samkomulag við Demókrata um að kjósa þingforseta sem falli í kramið hjá þeim. Erlent 1.12.2022 16:02
Pelosi stígur til hliðar eftir tæplega tveggja áratuga forystu Nancy Pelosi, fráfarandi forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, sækist ekki eftir því að leiða Demókrataflokkinn í deildinni á komandi kjörtímabili. Hún hefur verið í forystu flokksins í neðri deild þingsins í nærri því tuttugu ár. Erlent 17.11.2022 18:47
Repúblikanar taldir öruggir með meirihluta í fulltrúadeildinni Nú þykir orðið ljóst að Repúblikanaflokkurinn muni fara með völdin í fulltrúadeildinni á Bandaríkjaþingi. Erlent 17.11.2022 07:30
Katie Hobbs lagði Kari Lake í Arizona Katie Hobbs, frambjóðandi Demókrata í ríkisstjórakosningum í Arizona hefur verið útnefndur sigurvegari í kosningunum sem fram fóru á dögunum og reyndust afar tvísýnar. Erlent 15.11.2022 07:46
Beina spjótum sínum að Trump Áhrifamenn innan Repúblikanaflokksins notuðu spjall- og fréttaþætti í Bandaríkjunum í gær til að reyna að fjarlægja sig frá Donald Trump, fyrrverandi forseta. Deilt er innan flokksins vegna slæms gengis hans í þingkosningum síðustu viku og vilja margir beina spjótum sínum að Trump. Erlent 14.11.2022 09:21
Kjósendum hugnist ekki frambjóðendur sem afneita kosningaúrslitum Prófessor í sagnfræði segir að úrslit nýafstaðinna þingkosninga í Bandaríkjunum bendi til þess að pólitískur klofningur sé í algleymingi í landinu. Erlent 13.11.2022 22:35
Harris gulltryggir öldungadeildina en fulltrúadeildin enn óljós Helstu miðlar vestanhafs greindu frá því í nótt að Demókratinn Catherine Cortez Masto hefði sigrað mótframbjóðanda sinn, Repúblikanann Adam Laxalt og tryggt flokknum öldungadeildarþingsætið í Nevada. Demókratar hafa nú tryggt sér 50 sæti á móti 49 sætum Repúblikana og eiga niðurstöður enn eftir að berast frá Georgíu. Erlent 13.11.2022 14:04
Demókratar halda meirihluta í öldungadeildinni Demókratar hafa tryggt sér fimmtíu sæti í öldungadeild bandaríska þingsins. Flokkurinn vann afar nauman og mikilvægan sigur í Nevada-ríki í nótt. Erlent 13.11.2022 07:40
Mjótt á munum í Nevada en Demókratar tryggja sér Arisóna Eftir liðna nótt eru Demókratar einu sæti frá því að tryggja sér meirihluta í öldungadeild bandaríska þingsins. Geimfarinn Mark Kelly tryggði sér þingsæti Arisóna. Erlent 12.11.2022 12:17
Demókratar bæta við forskotið í keppni um lykilþingsæti í Arizona Geimfarinn Mark Kelly er nú með ríflega fimm prósentustiga forskot á keppinaut sinn Blake Masters í keppninni um eitt af þremur öldungadeildarþingsætum sem gæti ráðið því hvort demókratar eða repúblikanar fara með völd í deildinni. Enn eru þó of mörg atkvæði ótalin til að hægt sé að lýsa annan þeirra sigurvegara. Erlent 11.11.2022 07:45
Trump liggur undir feldi og íhugar næstu skref Innsti hringur stuðningsmanna Donald Trump er sagður klofinn þegar kemur að því hvort forsetinn fyrrverandi ætti að tilkynna um forsetaframboð 2024 í næstu viku, eins og hann hefur gefið í skyn að hann hyggist gera. Erlent 11.11.2022 07:11
Slæmt gengi kemur niður á draumum McCarthy Kevin McCarthy, leiðtogi Repúblikana í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, vill verða forseti þingsins. Hann hefur ekki farið leynt með það en slæmt gengi flokksins í þingkosningunum á þriðjudaginn mun líklegast koma niður á vonum hans. Erlent 10.11.2022 15:40
„Repúblikanar hafa fylgt Donald Trump fram af klettabrún“ Áhrifamiklir Repúblikanar hafa ráðlagt Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, að fresta yfirlýsingu um nýtt forsetaframboð vegna slæms gengis flokksins í þingkosningunum á þriðjudaginn. Margir innan flokksins beina spjótum sínum að honum og þeim frambjóðendum sem hann studdi í kosningunum. Erlent 10.11.2022 10:30
Repúblikanar þokast nær meirihluta í fulltrúadeildinni Meirihluti í fulltrúadeild Bandaríkjaþings er nú innan seilingar fyrir repúblikana. Talningu er enn ólokið í fleiri en þrjátíu kjördæmum en repúblikana vantar aðeins sjö sæti til viðbótar. Ekki er búist við að úrslit í öldungadeildinni liggi fyrir fyrr en í fyrsta lagi eftir nokkra daga. Erlent 10.11.2022 08:37
„Mér líður ekki vel yfir því sem er að gerast“ Þorvaldur Gylfason prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands segir marga telja að Bandaríkin rambi beinlínis á barmi nýrrar borgarastyrjaldar, en að engu að síður virðist demókrötum hafa tekist að afstýra stórsigri repúblikana í þingkosningum þar vestra. Erlent 9.11.2022 23:01
Biden hrósaði varnarsigri Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hrósaði varnarsigri Demókrata, er hann kom fyrst fram opinberlega eftir þingkosningar þar í landi í gær. Hann segir ekkert annað í kortunum en að hann bjóði sig aftur fram í forsetakosningunum 2024. Erlent 9.11.2022 22:44
Þrjú ríki munu ráða úrslitum Niðurstöður öldungadeildarkosninganna í Arisóna, Nevada og Georgíu-ríkjum í Bandaríkjunum munu skera úr um hvort Demókratar eða Repúblikanar ná meirihluta í efri deild Bandaríkjaþing. Erlent 9.11.2022 21:45
Fáheyrt að stjórnarandstaðan nái ekki tökum á báðum þingdeildum Bandaríska þjóðin bíður nú í ofvæni eftir niðurstöðum þingkosninganna sem fóru fram í gær. Ljóst er að einhver bið getur verið eftir endanlegum niðurstöðum. Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði og sérfræðingur í bandarískum stjórnmálum segir fáheyrt að stjórnarandstaðan nái ekki tökum á báðum deildum þingsins. Erlent 9.11.2022 19:49
Meiri líkur á að demókratar geti stöðvað Trump-málin Prófessor í sagnfræði segir varnarsigur demókrata í nýafstöðnum þingkosningum í Bandaríkjunum hafa komið sér talsvert á óvart. Demókratar gætu vel haldið meirihluta í öldungadeildinni, einkum í ljósi mikilvægs sigurs í Pennsylvaníu, en repúblikanar taka líklegast yfir fulltrúadeildina, sem verður Biden þungur baggi. Erlent 9.11.2022 12:12