Sjávarútvegur Líklegt að flakið sem fannst sé úr banaslysi fyrir fimmtán árum Margt bendir til þess að flak og líkamsleifar sem komu upp í togara úti fyrir strendur Reykjaneshryggs séu úr lítilli flugvél sem fórst á leiðinni frá Grænlandi til Íslands í febrúar 2008. Rannsóknarnefnd samgönguslysa og kennslanefnd munu taka málið til skoðunar þegar togarinn kemur í land eftir tæpar tvær vikur. Innlent 10.3.2023 12:54 Fengu flugvélabrak og líkamsleifar í trollið Áhöfnin á Hrafni Sveinbjarnarsyni GK-255 fékk líkamsleifar og flugvélabrak í troll skipsins á miðvikudag, þegar skipið var að veiðum á Reykjaneshrygg. Innlent 10.3.2023 06:35 Flotinn mokveiddi hrognafulla loðnu undan Reykjanesi í dag Loðnuvertíðin stendur nú sem hæst. Loðnan er komin að hrygningu og þar með í sitt verðmætasta form og er hver dagur að skila eins til tveggja milljarða króna gjaldeyristekjum. Viðskipti innlent 9.3.2023 22:44 Fjórum sinnum fleiri neikvæðir en jákvæðir gagnvart sjókvíeldi Um 61 prósent landsmanna eru neikvæð gagnvart laxeldi í opnum sjókvíum. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun Gallup fyrir hagsmunasamtök um verndun laxastofnsins. Aðeins fjórtán prósent svarenda eða fjórum sinnum færri segjast vera jákvæðir gagnvart laxeldi í opnum sjókvíum. Innlent 8.3.2023 14:08 Kjartan Páll nýr formaður Strandveiðifélags Íslands Kjartan Páll Sveinsson, strandveiðimaður og félagsfræðingur, var kjörinn nýr formaður Strandveiðifélags Íslands á aðalfundi félagsins sem haldinn var síðastliðinn sunnudag. Innlent 8.3.2023 11:16 Ísfélagið kaupir í Ice Fish Farm og verður einn stærsti hluthafinn Ísfélag Vestmannaeyja hefur náð samkomulagi við aðaleiganda Ice Fish Farm um kaup á 16 prósenta hlut í laxeldisfyrirtækinu á Austfjörðum. Viðskiptin verðmeta Ice Fish Farm, sem er skráð á Euronext-markaðinum í Osló, á 55 milljarða íslenskra króna sem er 70 prósentum yfir markaðsvirði fyrirtækisins í gær. Innherji 8.3.2023 09:00 Vöruviðskiptin óhagstæð um 25,9 milljarða Fluttar voru út vörur fyrir 73,8 milljarða króna í febrúar 2023 og inn fyrir 99,7 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í febrúar voru því óhagstæð um 25,9 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 15,1 milljarð króna í febrúar 2022 á gengi hvors árs fyrir sig. Viðskipti innlent 7.3.2023 10:32 Galin stjórnsýsla Þá er óbreytt strandsvæðaskipulag runnið í gegn hjá Sigurði Inga innviðaráðherra. Það er búið að eyða mikilli vinnu og stórum upphæðum í það. Seyðisfjörður var settur í burðarþolsmat á röngum forsendum skv. svörtu skýrslu Ríkisendurskoðunar, af þáverandi sjávarútvegsráðherra Sigurði Inga Jóhannessyni. Skipulagið er nánast eins og lagt var upp með fyrir fjórum árum. Sjókvíaeldið stjórnaði bæði upphafi og enda. Skoðun 6.3.2023 09:30 Meint olía reyndist loðna Í reglubundnu eftirlitsflugi í vikunni varð þyrlusveit Landhelgisgæslunnar vör við flekki sem í fyrstu sýn virtust vera olíuflekkir. Við nánari skoðun kom í ljós að um loðnutorfur var að öllum líkindum að ræða. Innlent 3.3.2023 23:01 Hvernig komast þau upp með þetta? Svona spurði rannsakandi sem hefur skoðað aðferðafræði við gerð fyrsta haf- og strandsvæðaskipulags á Íslandi. Í dag er mikill sorgardagur því Innviðaráðherra Sigurður Ingi staðfesti tillögu svæðiráðs Austfjarða að Strandsvæðaskipulagi fyrir Austfirði! Já það ríkir sorg í hjörtum margra því tillaga svæðisráðs gerir ráð fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði – akkúrat samkvæmt pöntun laxeldisfyrirækisins. Skoðun 3.3.2023 20:30 Opinber störf vegna fiskeldis fari á sunnanverða Vestfirði Forystumenn á Vestfjörðum þrýsta á að rannsóknar- og eftirlitsstörf vegna fiskeldis verði staðsett í fjórðungnum enda séu vestfirsk samfélög og firðir undir. Formaður bæjarráðs Vesturbyggðar segir að til þessa hafi ekkert einasta opinbert starf vegna greinarinnar komið á sunnanverða Vestfirði. Innlent 2.3.2023 21:42 Hjón í nýsköpun: Meira að segja búin að búa til harðfisk án lyktarinnar Atvinnulíf 28.2.2023 07:00
14 15 16 17 18 19 20 21 22 … 68 ›
Líklegt að flakið sem fannst sé úr banaslysi fyrir fimmtán árum Margt bendir til þess að flak og líkamsleifar sem komu upp í togara úti fyrir strendur Reykjaneshryggs séu úr lítilli flugvél sem fórst á leiðinni frá Grænlandi til Íslands í febrúar 2008. Rannsóknarnefnd samgönguslysa og kennslanefnd munu taka málið til skoðunar þegar togarinn kemur í land eftir tæpar tvær vikur. Innlent 10.3.2023 12:54
Fengu flugvélabrak og líkamsleifar í trollið Áhöfnin á Hrafni Sveinbjarnarsyni GK-255 fékk líkamsleifar og flugvélabrak í troll skipsins á miðvikudag, þegar skipið var að veiðum á Reykjaneshrygg. Innlent 10.3.2023 06:35
Flotinn mokveiddi hrognafulla loðnu undan Reykjanesi í dag Loðnuvertíðin stendur nú sem hæst. Loðnan er komin að hrygningu og þar með í sitt verðmætasta form og er hver dagur að skila eins til tveggja milljarða króna gjaldeyristekjum. Viðskipti innlent 9.3.2023 22:44
Fjórum sinnum fleiri neikvæðir en jákvæðir gagnvart sjókvíeldi Um 61 prósent landsmanna eru neikvæð gagnvart laxeldi í opnum sjókvíum. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun Gallup fyrir hagsmunasamtök um verndun laxastofnsins. Aðeins fjórtán prósent svarenda eða fjórum sinnum færri segjast vera jákvæðir gagnvart laxeldi í opnum sjókvíum. Innlent 8.3.2023 14:08
Kjartan Páll nýr formaður Strandveiðifélags Íslands Kjartan Páll Sveinsson, strandveiðimaður og félagsfræðingur, var kjörinn nýr formaður Strandveiðifélags Íslands á aðalfundi félagsins sem haldinn var síðastliðinn sunnudag. Innlent 8.3.2023 11:16
Ísfélagið kaupir í Ice Fish Farm og verður einn stærsti hluthafinn Ísfélag Vestmannaeyja hefur náð samkomulagi við aðaleiganda Ice Fish Farm um kaup á 16 prósenta hlut í laxeldisfyrirtækinu á Austfjörðum. Viðskiptin verðmeta Ice Fish Farm, sem er skráð á Euronext-markaðinum í Osló, á 55 milljarða íslenskra króna sem er 70 prósentum yfir markaðsvirði fyrirtækisins í gær. Innherji 8.3.2023 09:00
Vöruviðskiptin óhagstæð um 25,9 milljarða Fluttar voru út vörur fyrir 73,8 milljarða króna í febrúar 2023 og inn fyrir 99,7 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í febrúar voru því óhagstæð um 25,9 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 15,1 milljarð króna í febrúar 2022 á gengi hvors árs fyrir sig. Viðskipti innlent 7.3.2023 10:32
Galin stjórnsýsla Þá er óbreytt strandsvæðaskipulag runnið í gegn hjá Sigurði Inga innviðaráðherra. Það er búið að eyða mikilli vinnu og stórum upphæðum í það. Seyðisfjörður var settur í burðarþolsmat á röngum forsendum skv. svörtu skýrslu Ríkisendurskoðunar, af þáverandi sjávarútvegsráðherra Sigurði Inga Jóhannessyni. Skipulagið er nánast eins og lagt var upp með fyrir fjórum árum. Sjókvíaeldið stjórnaði bæði upphafi og enda. Skoðun 6.3.2023 09:30
Meint olía reyndist loðna Í reglubundnu eftirlitsflugi í vikunni varð þyrlusveit Landhelgisgæslunnar vör við flekki sem í fyrstu sýn virtust vera olíuflekkir. Við nánari skoðun kom í ljós að um loðnutorfur var að öllum líkindum að ræða. Innlent 3.3.2023 23:01
Hvernig komast þau upp með þetta? Svona spurði rannsakandi sem hefur skoðað aðferðafræði við gerð fyrsta haf- og strandsvæðaskipulags á Íslandi. Í dag er mikill sorgardagur því Innviðaráðherra Sigurður Ingi staðfesti tillögu svæðiráðs Austfjarða að Strandsvæðaskipulagi fyrir Austfirði! Já það ríkir sorg í hjörtum margra því tillaga svæðisráðs gerir ráð fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði – akkúrat samkvæmt pöntun laxeldisfyrirækisins. Skoðun 3.3.2023 20:30
Opinber störf vegna fiskeldis fari á sunnanverða Vestfirði Forystumenn á Vestfjörðum þrýsta á að rannsóknar- og eftirlitsstörf vegna fiskeldis verði staðsett í fjórðungnum enda séu vestfirsk samfélög og firðir undir. Formaður bæjarráðs Vesturbyggðar segir að til þessa hafi ekkert einasta opinbert starf vegna greinarinnar komið á sunnanverða Vestfirði. Innlent 2.3.2023 21:42
Raunhagkerfið, landsbyggðin og höfuðborgarsvæðið Við þingmenn Framsóknar nýttum nýliðna kjördæmaviku vel og fórum í góða fundarferð um landið þar sem við héldum fjölda opinna funda ásamt því að heimsækja fólk og fyrirtæki um allt land. Skoðun 28.2.2023 06:02
Kafa í allar kvíar vegna gats á netapoka í Ísafjarðardjúpi Matvælastofnun barst tilkynning frá fiskeldisfyrirtækinu Háafelli í dag um gat á netapoka einnar sjókvíar Háafells við Skarðshlíð í Ísafjarðardjúpi. Gatið uppgötvaðist við reglubundið eftirlit á kví C5 og er bráðabirgðaviðgerð lokið. Innlent 27.2.2023 12:48
Fyrsti áfangi landeldis í Eyjum mun kosta 25 milljarða Félagið Icelandic Land Farmed Salmon (ILFS) vinnur að því að koma á fót landeldi á laxi í Vestmannaeyjum. Horft er til þess að framleiða í fyrsta áfanga um 15 þúsund tonn af laxi á seinni hluta árs 2027 með mögulega stækkun í 30 þús tonn. Um er að ræða um 25 milljarða króna fjárfestingu í fyrsta áfanga. Starfsmenn verða um 100. Innherji 25.2.2023 11:00
Íslensk stjórnvöld stundum „eins og eyðiland í Evrópu,“ segir forstjóri Brims Forstjóri og aðaleigandi Brims gagnrýnir íslensk stjórnvöld, sem hann segir að séu eins og „eyðiland“ í Evrópu, fyrir að neita að ræða við Rússland um nýtingu á veiðirétti Íslands í Barentshafi. Fyrirtækið skilaði metafkomu í fyrra samhliða hagstæðum markaðsaðstæðum fyrir sjávarafurðir og horfur fyrir þetta ár líta „þokkalega út.“ Innherji 24.2.2023 11:21
Mikilvægi strandsvæðisskipulags Strax í árdaga sjókvíeldis fyrir vestan og austan fóru sveitarfélög á svæðinu að kalla eftir að það yrði gert strandsvæðisskipulag fyrir þau svæði sem þá þegar var búið að ákveða af stjórnvöldum að hentuðu fyrir eldið. Hafist var handa við að loka stærsta hluta strandlengjunnar þannig eldi var aðeins leyft á hluta Austfjarða, á Vestfjörðum og í Eyjafirði. Skoðun 23.2.2023 07:31
Óvænt loðna í Húnaflóa ávísun á mikil verðmæti Miklar loðnutorfur hafa óvænt fundist norður af Húnaflóa og tilkynnti Hafrannsóknastofnun í dag að búast mætti við að minnsta kosti eitthundrað þúsund tonna aukningu loðnukvótans. Viðbótin gæti skilað tíu milljarða króna útflutningsverðmæti. Viðskipti innlent 22.2.2023 22:45
Reikna með um hundrað þúsund tonna hækkun á loðnuaflanum Hafrannsóknarstofnun boðar hækkun á tillögum um hámarksafla á loðnuvertíðinni eftir að umtalsvert magn af hrygningarloðnu mældist norður af Húnaflóa á dögunum. Gera megi ráð fyrir yfir hundrað þúsund tonna hækkun, varlega áætlað. Sjómenn eru hvattir til loðnuveiða á þeim slóðum frekar en öðrum. Innlent 22.2.2023 14:30
Benedikt Orri hjá Meniga orðinn forstjóri Rafnars Benedikt Orri Einarsson hefur verið ráðinn forstjóri haftæknifyrirtækisins Rafnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rafnar sem vinnur að því að auka aðgengi að úthöfunum með þróun nýrra haftæknilausna. Benedikt var áður framkvæmdastjóri fjármála hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Meniga. Viðskipti innlent 20.2.2023 11:57
Þarf að greiða um hálfan milljarð í skatt eftir rannsókn sem hófst með Panama-skjölunum Sigurður Gísli Björnsson, fyrrverandi eigandi og stjórnandi Sæmarks, þarf að greiða tæpan hálfan milljarð í tekjuskatt og útsvar, vegna áranna 2010-2016, í máli sem nefnt hefur verið sem eitt af umfangsmestu skattalagabrotum sem upp hafi komið hér á landi. Yfirskattanefnd telur ljóst að Sigurður Gísli hafi vantalið tekjur frá tveimur panamískum-félögum í hans eigu upp á rúmlega einn milljarð króna á umræddum árum. Mál hans er til rannsóknar hjá héraðssaksóknara. Viðskipti innlent 19.2.2023 12:00
Skýrslan leiði til úrbóta í veitingu leyfa til fiskeldis Ítrekaðar frestanir á leyfisveitingum fyrir fiskeldi í Ísafjarðardjúpi valda því að örlög laxaseiða fyrir á þriðja hundrað milljóna króna eru í uppnámi hjá Arctic Fish. Talsmaður fyrirtækisins vonast til að viðkomandi stofnanir taki mið af ábendingum Ríkisendurskoðunar, fari að lögum og gefi út leyfin. Viðskipti innlent 18.2.2023 22:44
Loðnuhrognin og fullnýting sjávarfangs Þessa stundina er sjávarútvegurinn að undirbúa sig undir loðnuvertíð. Ekki er á vísan að róa enda óvíst hvað leyft verður að veiða mikið, hvort næst að veiða þegar loðnan er verðmætust og hvaða staða er á mörkuðum. Síðustu ár hefur það gerst oftar en einu sinni að loðnuvertíðin er blásin af í heilu lagi. Þá sitja hinar gríðarlegu fjárfestingar sem verða að vera tiltækar aðgerðalausar og allt markaðsstarf í óvissu. Þetta er nú það sem sjávarútvegurinn verður að búa við. Skoðun 18.2.2023 07:01
Stefnumótun matvælaráðuneytisins byggir á kjaftasögum Stefnumótun Svandísar Svavarsdóttur, ráðherra Vg, undir því kaldhæðnislega slagorði „Auðlindin okkar“ verður í framtíðinni líklega notuð sem kennslubókardæmi í háskólum, í opinberri stjórnsýslu, um stefnumótun stjórnvalda í þágu almennings sem getur snúist upp í andhverfu sína þegar fram líða stundir. Skoðun 17.2.2023 12:17
Segir að þetta hús lyfti upp norðanverðum Vestfjörðum Stærsta og afkastamesta laxvinnsla landsins rís núna í Bolungarvík á vegum Arctic Fish og á hún að taka til starfa í júní. Ráðamenn fyrirtækisins gera ráð fyrir að bara á síðari helmingi þessa árs verði unninn þar lax fyrir yfir fimmtán milljarða króna. Viðskipti innlent 16.2.2023 23:40
Bæjarstýran hlýtur að vera ánægð að fá hafnargjöldin Mikil umsvif hafa verið í Ísafjarðarhöfn og Dýrafirði undanfarnar vikur í kringum norskt fiskvinnsluskip, sem fengið var tímabundið til Vestfjarða til laxaslátrunar. Útflutningsverðmæti afurðanna úr þessu eina verkefni nemur þremur og hálfum til fjórum milljörðum króna. Viðskipti innlent 15.2.2023 22:42
Vill að Grænlendingar flytji fiskinn út í gegnum Ísland Ísland gæti leikið lykilhlutverk í fiskútflutningi Grænlendinga í framtíðinni. Þetta segir Verner Hammeken, forstjóri Royal Arctic Line, skipafélags landsstjórnar Grænlands. Viðskipti innlent 15.2.2023 13:44
Réttarhöldin í Samherjamálinu hefjast í haust Ákveðið var í morgun að réttarhöldin yfir mönnunum tíu sem ákærðir eru í Samherjamálinu í Namibíu munu hefjast þann 2. október næstkomandi. Gert er ráð fyrir að réttarhöldin standi yfir fram í júní árið 2024. Erlent 14.2.2023 14:06
Löndun hvalkjöts lokið í Japan án vandkvæða Norska frystiskipið Silver Copehagen lét úr höfn í Japan í morgun eftir að hafa landað 2.600 tonnum af íslensku hvalkjöti. Engar fregnir hafa borist af því að andstæðingar hvalveiða hafi reynt að trufla affermingu skipsins. Þá virðist 49 daga sigling skipsins frá Íslandi hafa gengið vandræðalaust. Viðskipti innlent 12.2.2023 10:33
Bræðslur keyrðar á olíu vegna raforkuskerðingar Annan veturinn í röð hafa fiskimjölsverksmiðjur neyðst til að brenna dísilolíu vegna raforkuskerðingar. Landsvirkjun segir þetta vegna mikils álags, kerfið sé nánast uppselt. Viðskipti innlent 11.2.2023 22:00