Efnahagsmál
31 32 33 34 35 36 37 38 39 … 69 ›
Bein útsending: Seðlabankinn rökstyður stýrivaxtahækkunina Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti í morgun að vextir bankans yrðu hækkaðir um eina prósentu. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 3,75%. Viðskipti innlent 4.5.2022 09:01
Seðlabankinn hækkar stýrivexti um eina prósentu Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 1 prósentu. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 3,75%. Viðskipti innlent 4.5.2022 08:30
Svefnvottun íslenskra vinnustaða: Dýrt að vera með ósofið fólk í vinnu Rannsóknir hafa sýnt að svefnleysi er að kosta atvinnulífið háar upphæðir á ári. Reyndar svo háar að allar tölur mælast í tugum milljarða. Já, ósofið starfsfólk er hreinlega að kosta atvinnulífið marga milljarða á ári. Atvinnulíf 4.5.2022 07:02
Segir sorglegt að lífeyrissjóðir standi með stórfyrirtækjum en ekki launafólki Formaður Starfsgreinasambandsins segir skökku skjóta við að lífeyrissjóðirnir, sem eigi stærstan hlut í öllum helstu matvöruverslunum landsins, skuli ekki mótmæla hækkandi matvöruverði. Hækkandi vöruverð komi helst niður á neytendum, launafólki sem eigi sjóðina. Neytendur 3.5.2022 17:53
Minni verðbólga með „byggja til að leigja“ stefnunni Hagfræðingur segir að stjórnvöld og lífeyrissjóðir verði að byggja meira til að auka framboð á fasteignamarkaði og ekki síst undir merkjum „byggja til að leigja“ stefnunnar. Gott framboð af leiguhúsnæði hafi til að mynda haldið aftur af verðbólgu í þýskumælandi löndum Evrópu. Innlent 3.5.2022 13:22
Greiða sér út rúma tvo milljarða í arð en vara við enn meiri verðhækkunum ASÍ segir það skjóta skökku við að matvöruverslanir hækki verð á vörum sínum á sama tíma og þær skili inn margra milljarða króna hagnaði. Eigendur Haga stefna að því að greiða sér út tvo milljarða í arð í ár. Viðskipti innlent 3.5.2022 12:53
Segir hækkanir hjá matvöruverslunum furðulegar þegar þær skili milljarða hagnaði Verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ segir það skjóta skökku við að matvöruverslanir séu að hækka verð á vörum á sama tíma og tilkynnt hafi verið um margra milljarða króna hagnað hjá þessum sömu fyrirtækjum. Neytendur 2.5.2022 19:47
Hækkun stýrivaxta skili aðeins „verri kjörum og verri stöðu heimilanna“ Stýrivexti gætu hækkað um allt að eitt prósentustig í vikunni ef spár bankanna ganga eftir. Formaður VR segir slíkt koma sér gríðarlega illa fyrir heimilin í landinu og biðlar til peningastefnunefndar að finna aðrar leiðir. Viðskipti innlent 2.5.2022 19:01
Spár um vaxtahækkun: Markaðurinn klofinn milli 75 og 100 punkta Ríflega helmingur markaðsaðila gerir ráð fyrir því, samkvæmt könnun Innherja, að Seðlabanki Íslands hækki vexti um 100 punkta á miðvikudaginn. Laust taumhald peningastefnu, mjög lágir raunstýrivextir og vaxandi verðbólguþrýstingur eru meginstef í þeim svörum sem bárust. Innherji 2.5.2022 08:58
Ríkið fær fimmtán milljarða króna frá Landsvirkjun Aðalfundur Landsvirkjunar samþykkti tillögu stjórnar um fimmtán milljarða króna arðgreiðslu til eigenda í dag, en íslenska ríkið er eini eigandi fyrirtækisins. Viðskipti innlent 29.4.2022 18:10
Baráttudagur verkalýðsins í skugga verðbólgu og dýrtíðar Dýrtíð er skollin á um alla Evrópu og við förum ekki varhluta af því. Verðbólgan mælist nú 7,2% og höfum við ekki séð slíkar tölur um árabil. Að stærstum hluta er verðbólgan innflutt, vegna Covid-kreppunnar og stríðsins í Úkraínu, sem hefur haft þau áhrif að verðlagið hefur hækkað, ekki síst á mat og eldsneyti. Skoðun 29.4.2022 16:00
Verðbólga eykst í 7,2 prósent Vísitala neysluverðs hækkaði um 1,25% í apríl og mælist ársverbólga nú 7,2% en var 6,7% í marsmánuði. Verðbólgan hefur ekki verið meiri frá því í maí 2010 þegar hún mældist 7,50%. Tólf mánaða verðbólga án húsnæðis fer úr 4,6% í 5,3%. Viðskipti innlent 28.4.2022 09:03
Spá því að stýrivextir verði hækkaðir um 0,5 prósentustig Greining Íslandsbanka telur að peningastefnunefnd Seðlabankans komi til með að hækka stýrivexti bankans um 0,5 prósentustig við næstu vaxtaákvörðun. Gangi sú spá eftir fara vextirnir úr 2,75% í 3,25% þann 4. maí en þeir hafa ekki verið jafnháir frá því á seinasta ársfjórðungi 2019. Viðskipti innlent 27.4.2022 11:25
Útlánaskrið gæti hvatt Seðlabankann enn frekar til að grípa fast í taumana Kraftmikill útlánavöxtur bankanna í mars er enn eitt merkið um að efnahagsumsvif séu meiri en áður var búist við og því eru auknar líkur á því að Seðlabanki Íslands bregðist harkalega við aukinni verðbólgu á vaxtaákvörðunarfundi bankans í næstu viku. Þetta segir Stefán Broddi Guðjónsson, sérfræðingur hjá markaðsviðskiptum Arion banka. Innherji 26.4.2022 12:01
Vonast til að hefja framkvæmdir við stórvirkjun í Þjórsá í haust Landsvirkjun vonast til að virkjunarleyfi fyrir næstu stórvirkjun landsins, Hvammsvirkjun í Þjórsá, verði auglýst á næstu dögum og stefnir að því að hefja undirbúningsframkvæmdir með haustinu. Viðskipti innlent 25.4.2022 21:50
Nýjar tölur sýna sögulega mikinn útlánavöxt í mars Nýjar tölur Seðlabanka Íslands fyrir marsmánuð sýna að hrein ný útlán íslenskra innlánsstofnana hafa aldrei verið jafnmikil í einum mánuði frá því að Seðlabankinn byrjaði að halda utan um tölurnar í byrjun árs 2013. Mikill vöxtur var í útlánum til bæði fyrirtækja og heimila. Innherji 25.4.2022 10:59
Ekki að firra sig ábyrgð með því að leggja Bankasýsluna niður Fjármálaráðherra er ánægður með heildarútkomu útboðsins á Íslandsbanka en viðurkennir að staðan sem nú er komin upp sé engin óskastaða. Hann hafnar því að með ákvörðun um að leggja niður bankasýslu ríkisins sé verið að firra hann sjálfan ábyrgð á söluferlinu. Innlent 22.4.2022 23:33
Arion: Hækkanir íbúðaverðs gætu reynst þrálátari en árið 2017 Ný verðbólguspá Arion banka gerir ráð fyrir því að aprílmæling Hagstofunnar á vísitölu neysluverðs sýni 7,1 prósenta verðbólgu samanborið við 6,7 prósent í mars. Samkvæmt spánni verður verðbólga yfir 7 prósentum í sumar. Innherji 22.4.2022 09:20
15.000 prósenta vöxtur í komum skemmtiferðaskipa Hagtölur á Covid tímum voru frekar fáránlegar. Gröf sem sýna breytingar milli ára síðustu árin sýna sitt á hvað 70% lækkun eða 300% hækkun. Mikilvægt er að blaðamenn og greinendur verði prósentufælnir því ef við pössum okkur ekki þá verða fréttir og fyrirsagnir um 1.721% eða jafnvel 15.000% vöxt á á vegi okkar innan tíðar. Umræðan 21.4.2022 11:00
Miklar hækkanir á álverði skilar Norðuráli hagnaði upp á tíu milljarða Miklar verðhækkanir á álverði á heimsmarkaði skiluðu sér í því að tekjur Norðuráls á Grundartanga jukust um 39 prósent á árinu 2021 og námu samtals 791 milljónum Bandaríkjadala, jafnvirði um 103 milljarða króna. Mikil umskipti voru í afkomu álversins sem hagnaðist um 79,4 milljónir dala eftir skatta borið saman við tap upp á tæplega 9 milljónir dala á árinu 2020. Innherji 16.4.2022 12:55
Spá 7,7 prósenta verðbólgutoppi í sumar Íslandsbanki spáir því að verðbólga muni aukast á næstu mánuðum og ná toppi í sumar. Viðskipti innlent 12.4.2022 10:56
Arion spáir 5,5 prósenta hagvexti og tæpri 18 prósenta hækkun íbúðaverðs Ný þjóðhagsspá Arion banka gerir ráð fyrir 5,5 prósenta hagvexti árið 2022 sem er nokkuð minni hagvöxtur en gert var ráð fyrir í síðustu spá. Kraftmikil innlend eftirspurn kallar á umtalsverðan innflutning og því verður framlag utanríkisverslunar ekki jafn hagfellt og áður var spáð. Innherji 8.4.2022 13:22
Alþjóðagreiðslubankinn býst við langvarandi verðbólgu Agustín Carstens, framkvæmdastjóri Alþjóðagreiðslubankans (BIS), sem er í eigu fjölda seðlabanka um allan heim, segir að „nýtt verðbólguskeið“ sé að renna upp. Hann varar við því að stjórnvöld reiði sig um of á peningustefnu eða ríkisfjármál til að koma böndunum á verðlagshækkanir og kallar eftir stefnumörkun sem miðar að því að auka framleiðslugetu hagkerfa. Þetta kom fram í ræðu sem Carstens flutti fyrr í vikunni og Financial Times greindi frá. Innherji 6.4.2022 14:49
Katrín segir lífskjör ráðast af fleiru en launum, Ásgeir varar við „hringavitleysu“ Komandi kjaraviðræður voru á meðal þess sem Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri fjölluðu um á ársfundi Seðlabanka Íslands sem var haldinn fyrr í dag. Forsætisráðherra lagði áherslu á að lífskjör réðust af fleiri þáttum en fjárhæðinni sem er gefin upp á launaseðlinum og seðlabankastjóri varaði við þeirri „hringavitleysu“ mæta stýrivaxtahækkunum með auknum launakröfum. Innherji 31.3.2022 19:44
Vestmannaeyjar sem fyrr stærsta loðnuverstöðin Einni verðmætustu loðnuvertíð Íslandssögunnar er lokið og er áætlað að afurðirnar skili um 55 milljarða króna gjaldeyristekjum. Vestmannaeyjar halda áfram stöðu sinni sem stærsta loðnuverstöð landsins. Viðskipti innlent 31.3.2022 11:22
Ríkisstjórnin veðjar á aukinn hagvöxt til að lækka skuldir og auka kaupmátt Aukinn hagvöxtur, minni framlög til örvunaraðgerða vegna covid og góð niðurstaða í kjarasamningum munu tryggja aukinn kaupmátt á næstu árum að mati fjármálaráðherra sem kynnti fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar til næstu fimm ára í dag. Bjartara sé framundan en áður hafi verið talið. Innlent 29.3.2022 19:20
Ekkert fundarboð vegna „mikilmennskuæðis“ stjórnarflokkanna Í morgun var fjármálaáætlun til næstu fimm ára kynnt en það fórst fyrir að bjóða tveimur áheyrnarfulltrúum stjórnarandstöðunnar í fjárlaganefnd á kynninguna. Guðbrandur Einarsson, þingmaður Viðreisnar, sagði á Alþingi í dag undir liðnum störf þingsins að hann hefði fylgst með tölvupóstinum sínum til miðnættis í von um fundarboð en það barst aldrei. Innlent 29.3.2022 14:42
Sláandi að ekki sé brugðist frekar við mikilli verðbólgu Þingmaður Samfylkingar segir sláandi að aðgerðir fyrir þá sem helst verða fyrir barðinu á mikilli verðbólgu séu ekki boðaðar í fjármálaætlun ríkisstjórnarinnar. Formaður Miðflokksins telur horft fram hjá þeim gríðarlegu áhrifum sem stríðið í Úkraínu muni hafa á efnahagslífið. Innlent 29.3.2022 13:49
Bjarni boðar bjartari horfur sem aukið geti kaupmátt Bjartari efnahagshorfur eru boðaðar í nýrri fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar til næstu fimm ára sem kynnt var í morgun. Skuldir ríkissjóðs muni lækka verulega á tímabilinu og verðbólga komast að markmiðum Seðlabankans á þar næsta ári. Fjármálaráðherra segir fyrirhyggju í covid faraldrinum stuðla að áframhaldandi hagvexti. Innlent 29.3.2022 11:33
Verðbólga ekki mælst meiri síðan 2010 Ársverðbólga mælist nú 6,7% en hún var 6,2% í febrúar. Hún hefur ekki mælst meiri síðan í maí 2010. Viðskipti innlent 29.3.2022 09:03