Leikhús

Hlynur Páll nýr framkvæmdastjóri Íslenska dansflokksins
Hlynur Páll Pálsson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri Íslenska dansflokksins.

Týnd í skógi Shakespeares
Um síðustu helgi frumsýndi Þjóðleikhúsið Jónsmessunæturdraum eftir William Shakespeare, í nýrri þýðingu Þórarins Eldjárns, á stóra sviðinu.

Leið eins og eltihrelli
Listamaðurinn Friðgeir Einarsson frumsýnir nýtt leikverk í Borgarleikhúsinu í næstu viku. Verkið kallast Club Romantica.

Leikstýrir Ronju án þess að skilja málið
Ronja ræningjadóttir verður frumsýnd í grænlenska þjóðleikhúsinu í kvöld. Þrír íslenskir starfsmenn, þar á meðal leikstjóri, koma að uppsetningunni. Vonast er til þess að sýningin verði sett upp hér á landi á vormánuðum.

Hatari frumsýnir nýtt leikrit
Nýtt íslenskt leikverk frumsýnt á mánudag í Iðnó.

Í skugga fjölbýlis
Föstudaginn síðastliðinn frumsýndi sjálfstæði sviðslistahópurinn Smartílab Það sem við gerum í einrúmi eftir Heiðar Sumarliðason og Söru Martí Guðmundsdóttur í Tjarnarbíói, en sú síðarnefnda leikstýrir einnig sýningunni.

„Er Ellý ekki örugglega amma þín?“
Í kvöld verður 200. sýningin á leikritinu Elly sem fjallar um ævi og ástir einnar vinsælustu söngkonu Íslands fyrr og síðar, Ellyjar Vilhjálms, sem Katrín Halldóra túlkar.

Elma fær fastráðningu í einu virtasta leikhúsi Evrópu
"Þá er það orðið staðfest. Ég er orðin fastráðin leikkona við Burgtheater í Vín.“

Dóri DNA setur upp leikrit afa síns
Grínistinn Halldór Laxness Halldórsson, betur þekkt sem Dóri DNA, greinir frá því á Twitter að hann og Þjóðleikhúsið hafi komist að samkomulagi um uppsetningu á verkinu Atómstöðin.

Formaður fjárlaganefndar í vandræðum í Hveragerði
Leikfélag Hveragerðis sýnir nú verkið "Tveir tvöfaldir". Leikritið gerist á Hótel Höll en þar tekst formanni fjárlaganefndar Alþingis að koma sér og aðstoðarmanni sínum í ótrúleg vandræði. Þingmaðurinn hefur sem sé ákveðið að skrópa á nefndarfundi til að eiga stund með hjákonu sinni. Hreinlyndur og saklaus aðstoðarmaður þingmannsins klúðrar hins vegar málunum og úr verður hrærigrautur misskilnings og lyga.

Baltasar snýr aftur í Þjóðleikhúsið
Þjóðleikhúsið og Baltasar Kormákur leggja nú drög að því að sviðsetja Villiöndina eftir Henrik Ibsen, en fyrirhugað er að frumsýna verkið næsta leikár. Um er að ræða fyrstu leikstjórn Baltasars á sviði í á níunda ár.

Frækilegt og fjörugt ferðalag um ævintýraskóga
Besta sýning Lottu til þessa. Góð ævintýri eru aldrei of oft kveðin.

Atli Rafn krefst 13 milljóna frá Borgarleikhúsinu
Atli Rafn stefnir Kristínu Eysteinsdóttur og LR vegna uppsagnar í desember í fyrra.

Les ljóð eftir Sigurð á hverjum degi
Kristín hefur verið önnum kafin við að setja upp sýningu í Borgarleikhúsinu sem heitir Núna og var frumsýnd í gærkvöldi.

Borgin bauð 18 þúsund manns á leiksýningar
Reykjavíkurborg gaf starfsfólki gjafakort í Borgarleikhúsið fyrir 43,5 milljónir í jólagjöf. Jafngildir ríflega 18 þúsund miðum. Myndi fylla stóra sal leikhússins 32 sinnum. Sjálfstæðismenn vildu leita tilboða.

Borgarleikhúsið kynnti söngleik með tónlist Bubba Morthens
Borgarleikhúsið boðaði til fréttamannafundar í dag þar sem söngleikur með tónlist Bubba Morthens var kynntur.

Nútíminn með augum Sjóns árið 1989
Fyrir 30 árum frumsýndi leikfélag MR verkið Tóm ást eftir Sjón. Verkið gerðist í fjarlægri framtíð, nánar tiltekið árið 2019, og fjallar um ungan geimprins sem lendir hér í borg og leitar að ástinni.

Dásamlega djöfullegar vélanir og djarft leikhús
Ríkharður þriðji var frumsýndur í Borgarleikhúsinu 29. desember.

Forsetinn sló jörðina upp í rjáfur
Sigurður Sigurjónsson vinnur leiksigur í hlutverki einræðisherrans.

Við þurfum að hlusta á þessa sögu
Sigurður Sigurjónsson leikur í Einræðisherra Chaplins sem er jólaleikrit Þjóðleikhússins. Segir einræðistilburði vera áberandi víða.

Lífið, alheimurinn, allt og þú
Af öllum þeim stöðum þar sem tilgangur lífsins er líklegur til að finnast er gamla Læknavaktin á Smáratorgi ekki ofarlega í huga, en einmitt þar hefur sviðslistahópurinn 16 elskendur opnað hugræna rannsóknarstöð.

Kjarnakona í krísu
Þrátt fyrir nokkra vankanta er Rejúníon eftirtektarverð sýning um gríðarlega mikilvægt málefni, þá sérstaklega út af frábærum leik aðalleikkonunnar. Frammistaða Sólveigar Guðmundsdóttur er algjörlega miðakaupanna virði.

Tómlát leit að tilgangi
Insomnia vekur upp fáar spurningar, fyrir utan kannski af hverju þessu verkefni var ýtt úr vör til að byrja með, og enn færri svör.

Hömlulaus og hamflett í Tvískinnungi
Hrá leikhúsupplifun frá nýju og fersku leikskáldi. Nýjar raddir koma alltof sjaldan fram í íslensku leikhúsi en síðustu og komandi mánuðir boða gott. Tvískinnungur er augljóslega ekki gallalaust verk en ber með sér marga góða kosti og persónulegan tón skáldsins, eitthvað sem hann mun vonandi þróa betur og koma í fastara form á komandi árum.

Gefa frumvarpi Lilju falleinkunn
Sviðlistafólk ályktar gegn drögum að frumvarpi að sviðslistalögum. Þjóðleikhússtjóri sá eini sem ekki ritar nafn sitt við ályktunina. Menntamálaráðherra hafnar fullyrðingum um að samráð hafi ekki verið haft.

Hjón tilnefnd heiðursfélagar Leikfélags Reykjavíkur
Hjónin Guðrún Stefánsdóttir og Theodór Júlíusson voru í gær tilnefnd heiðursfélagar Leikfélags Reykjavíkur.

Hneyksluð á endurkomu Atla Rafns
Hildur Lilliendahl Viggósdóttir, starfsmaður Reykjavíkurborgar og einn mest áberandi og um leið umdeildasti femínisti landsins, segist vita fyrir víst að í leiklistarbransanum séu konur sem ekki geti farið á leiksýningar með Atla Rafni Sigurðarsyni.

Atli Rafn snýr aftur í leikhúsið
Leikur í Jónsmessunæturdraumi í Þjóðleikhúsinu.

Sjáðu allar tilnefningarnar til Grímunnar 2018
Tilnefningar til Grímuverðlaunanna voru gerðar opinberar í dag.

Klúðurveisla vafin inn í kómík
Sýningin sem klikkar er flottur farsi í höndunum á sterkum leikhópi.