

Sendinefnd á vegum stuðningsmanna Fischers er á leið til Japans til að þrýsta á um að hann verði leystur úr haldi. Nefndin hefur leynivopn í farteskinu sem dregið verður fram ef Fischer fæst ekki látinn laus.
Íslensk sendinefnd hélt til Japans í dag til að knýja á um lausn skáksnillingsins Bobbys Fischers. Sæmundur Pálsson sem þegar er kominn til Japans segist hlakka til að hitta þennan forna vin sinn.
Sæmundur Pálsson hélt áleiðis til Japans í morgun ásamt fríðu föruneyti til að sækja Bobby Fischer. Hann segist bjartsýnni en áður um að Fishcer verði látinn laus og ætlar að gefa sér tíu daga til að vinna að því í Japan.
Sæmundur Pálsson og fylgdarlið mun ekki halda utan til Japans í dag eins og stefnt hafði verið. Hópurinn ætlar utan til að freista þess að sækja Bobby Fischer, fyrrverandi heimsmeistara í skák, en þurfti að fresta för sinni til morguns vegna einhverra vandamála með farseðla, að sögn Sæmundar.
Bobby Fischer fær svokallað útlendingavegabréf hér á landi. Útlendingastofnun samþykkti þetta rétt áðan að sögn Einars S. Einarssonar í Stuðningshópi Fischers. Sendiherra Íslands í Japan mun annast afhendingu á vegabréfinu.
Ef menn gátu fyrirgefið Khadafi Líbíuleiðtoga hljóta þeir að geta fyrirgefið Bobby Fischer, segir utanríkisráðherra, og vill ekki meina að Bandaríkjamenn hafi beitt íslensk stjórnvöld þrýstingi til að draga boð um dvalarleyfi til handa Fischer til baka.
Stuðningsmenn Bobbys Fischers eru sárir og reiðir yfir að allsherjarnefnd Alþingis skuli ekki leggja til að hann fái íslenskan ríkisborgararétt. Sæmundur Pálsson segir að þetta verði mikið áfall fyrir Fischer.
Allsherjarnefnd Alþingis ákvað í morgun að leggja ekki til við Alþingi að svo stöddu að Bobby Fisher skákmeistari fái ríkisborgararétt hér á landi. Ekki ríkti einhugur í nefndinni um þessa niðurstöðu en eftir sem áður stendur það að honum er boðið landvistarleyfi hér á landi.
Allsherjarnefnd Alþingis leggur ekki til að Bobby Fischer fái íslenskan ríkisborgararétt að svo stöddu. Guðmundur G. Þórarinsson, sem er í stuðningshópi Fischers, segir að þetta séu skelfileg vonbrigði.
Lögfræðingar Bobbys Fischers segja að það sé grundvallaratriði að íslensk stjórnvöld veiti honum íslenskan ríkisborgararétt. Ríkisborgararéttur myndi marka tímamót og koma máli hans loks á hreyfingu.
Bobby Fischer verður enn að bíða eftir íslenskum ríkisborgararétti. Allsherjarnefnd ákvað í morgun að fresta málinu á ný þar sem frekari rökstuðnings væri þörf.
Stuðningshópur Bobby Fischers hefur sent öllum alþingismönnum bréf þar sem farið er fram á að þeir veiti skáksnillingnum íslenskan ríkisborgararétt og stuðli að því að hann komist sem fyrst til Íslands úr sinni vondu japönsku fangavist.
Fjallað verður um málefni bandaríska skákmeistarans Bobby Fischers á fundi í allsherjarnefnd Alþingis á fimmtudaginn.
Heilsa Bobby Fischers er sögð slæm þar sem hann situr í fangelsi útlendingaeftirlitsins í Japan. Nú segja japanskir fjölmiðlar að sjálfur telji hann eina megin ástæðuna þá að hann fái ekkert áfengt að drekka í haldi.
Bobby Fischer er ekki á leiðinni til Íslands í bráð þrátt fyrir að hérlend stjórnvöld hafi boðið honum landvistarleyfi. Þetta sagði Masako Susuki, lögfræðingur Fischers, í morgun eftir fund með lögfræðingum útlendingaeftirlitsins í Japan.
Allsherjarnefnd Alþingis frestaði í morgun að taka afstöðu til bréfs Bobbys Fischers, fyrrverandi heimsmeistara í skák, þar sem hann fer fram á að honum verði veittur íslenskur ríkisborgararéttur. Bréf Fischers var lagt fram en efni þess vísað til næsta fundar eftir viku.
Forseta Alþingis, Halldóri Blöndal, var í morgun afhent erindi frá Bobby Fischer, fyrrverandi heimsmeistara í skák, þar sem hann óskar eftir því að Alþingi veiti honum íslenskan ríkisborgararétt. Það voru Garðar Sverrisson og Sæmundur Pálsson sem afhentu forseta Alþingis erindið fyrir hönd Fischers.
Bobby Fischer hefur póstlagt beiðni um íslenskan ríkisborgararétt. Stjórnvöld hafa ekki tekið afstöðu en formanni Vinstri grænna líst ekki vel á að veita Fischer ríkisborgararétt án þess að huga að fordæminu sem það skapi. Formanni Samfylkingarinnar líst hins vegar mjög vel á og segir Fischer hafa sérstöðu umfram aðra sem sækja um íslenskt ríkisfang.
Bobby Fischer hefur beðið ríkisstjórn Íslands um ríkisborgararétt að sögn Sæmundar Pálssonar, vinar skákheimsmeistarans fyrrverand, eftir að japönsk stjórnvöld höfnuðu ósk hans um að fá að nýta sér dvalarleyfi á Íslandi. Samkvæmt stjórnarskránni þarf lagasetningu Alþingis til að veita erlendum manni ríkisborgararétt á Íslandi. Það mál kemur til kasta allsherjarnefndar þingsins að fengnum tillögum dómsmálaráðuneytis.
Bobby Fischer gæti fengið íslenskan ríkisborgararétt með lagasetningu strax í næstu viku þegar þing kemur saman. Lögfræðingar Fischers telja að ríkisborgararéttur myndi auka möguleika hans á að fá fararleyfi til Íslands. Japanskur dómari féllst í nótt ekki á beiðni Fischers um að verða fluttur hingað til lands.
Japanskur dómstóll mun á miðvikudag fjalla um það hvort Bobby Fischer verður vísað frá Japan og hann fluttur til heimalands síns, Bandaríkjanna. Lögfræðingur Fischers, Masako Suzuki, sagðist í samtali við fréttastofu í dag ætla að nota þetta tækifæri og krefjast þess að tekin verði afstaða til tilboðs íslenskra stjórnvalda um að veita Fischer landvistarleyfi.
Japanska dómsmálaráðuneytið gefur ekki upp hvenær niðurstöðu sé að vænta í skoðun þess á máli skákmeistarans Bobbys Fischer. Sæmundur Pálsson, fyrrverandi lögreglumaður og vinur Fischers, segir lítið annað að gera en að bíða niðurstöðu ráðuneytisins og telur óráðlegt að halda til Japan til að sækja Fischer fyrr en eftir að hún liggur fyrir.
Japanska dómsmálaráðuneytið gaf í skyn í morgun að eðlilegra væri að senda Bobby Fischer til Bandaríkjanna en Íslands. Sæmundur Pálsson segir vin sinn Fischer svartsýnan á lausn málsins.
Dráttur virðist ætla að verða á viðbrögðum japanskra stjórnvalda vegna lausnar Bobbys Fischers. Lögfræðingur Fischers átti fund með fulltrúa japanska dómsmálaráðuneytisins í dag en engin svör fengust um það hvort eða hvenær Fischer yrði látinn laus.
Ekki er von á svari frá japönskum stjórnvöldum varðandi mál skákmeistarans Bobbys Fischers fyrr en í fyrsta lagi í dag, sem er fyrsti virki dagur eftir áramót ytra, að sögn Sæmundar Pálssonar, fyrrum lögreglumanns og vinar Fischers.
Dómsmálaráðuneytið bandaríska gefur ekki upp rökstuðning eða bakgrunn ákvarðana sinna og lætur ekkert uppi um mögulegar fyrirætlanir sínar, segir Michael Kulstad, upplýsingafulltrúi ráðuneytisins.
Chieko Nohno, dómsmálaráðherra Japans, féllst í gær á að taka til skoðunar beiðni skákmeistarans Bobbys Fischer um að fá að fara til Íslands í stað þess að vera vísað úr landi til Bandaríkjanna.
Chieko Nohno, dómsmálaráðherra Japans, hefur fallist á að taka til greina beiðni Bobbys Fischers um að verða vísað úr landi og sendur hingað til lands. Að öðrum kosti verður Fischer vísað til Bandaríkjanna þar sem hans bíður fangelsisvist.
Sæmundur Pálsson segist reyna að stappa stálinu í vin sinn, Bobby Fischer, sem sé vonsvikinn með hve hægt mál hans gangi í Japan. Útséð virðist um að Fischer komist til Íslands fyrir áramót.
Það virðist útséð með að Bobby Fischer komist hingað til lands fyrir áramót því lögmaður hans hefur ekki fengið nein viðbrögð frá utanríkisráðuneytinu þar við erindi sínu fyrir jól. Þá hefur ráðuneytið ekkert samband haft við sendiráð Íslands í Tókýó að sögn Benedikts Höskuldssonar sendifulltrúa.