Stangveiði

Drápa græn verður Hrygnan 2012
Úrslit eru nú kunn í fluguhnýtingarkeppni veiðiverslunarinnar Hrygnunnar. Keppnin var styrktar góðu málefni og runnu 26 þúsund krónur til félagsskaparins "Kastað til bata."

Dágott gengi hjá lokahollinu í Þverá
Síðasta hollið í Þverá þetta haustið veiddi mun betur en hollin á undan og náði ellefu löxum á land auk nokkurra sjóbirtinga


Góðar gangur í Breiðdalsá
85 laxar hafa veiðst frá mánaðarmótum en 364 þegar horft er til sumarsins í heild. Meðalþyngdin vekur athygli en hún er ríflega 9 pund. Meðallengd veiddra laxa er 73,24 sentimetrar segir í veiðibók Breiðdalsár.






Laxinn stökk sjálfur í land í Hallá
Veiðimaður í Hallá við Skagaströnd í lok ágúst sá nokkra laxa en náði ekki að setja í þá. Einn laxinn sá þó aumur á honum og gekk sjálfur á land. Um þetta má lesa á agn.is.


Haustveiði á laxi í höfuðborginni gengur vel
Hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur eru menn ánægðir með haustveiðina í Elliðaánum. Á vef félagsins er sagt frá því að tólf laxar hafi veiðst í gær og urriðar og sjóbirtingar að auki.

Veiðitölur LV: 575 laxa vika í Ytri-Rangá
Haustveiðin er hafin af fullum krafti og Ytri-Rangá skilar þessa vikuna fantaveiði, eða 575 laxa viku. Ytri trónir á toppi veiðilistans eins og löngum í sumar og ljóst að svo verður til enda. 3.507 laxar hafa veiðst miðað við 3.853 laxa í fyrra.

Kreistu tvo laxa upp úr Krossá í Bitru
Veiðin í Krossá í Bitrufirðihefur, líkt og nánast flestum öðrum ám, verið dræm í sumar. Um síðustu helgi voru 37 laxar skráðir í veiðibókina.


Netaveiði í Hvítá og Ölfusá: Sáttatillaga frá Árna Baldurssyni
Fullyrt er að sáralítið af laxi sé í þeim ám sem renna í Hvíta og er skuldinni skellt á netaveiði. Árni Baldursson, eigandi Lax-á, hefur lagt fram sáttatillögu í pistli á vefnum lax-á.is

Níu ára með maríulax í fjölskylduferð í Straumana
Níu ára gutti nældi í maríulaxinn sinn í Straumunum í síðustu viku. Ágætlega hefur veiðst þar í sumar. Friðrik Þór Guðmundsson sendi Veiðivísi frásögn af veiðitúr sem stóð í tvær vaktir.



Laxárdalurinn veldur mönnum áhyggjum
Heildarveiðin á urriðasvæðunum í Laxá í Mývatnssveit og í Laxárdal heldur áfram að aukast milli ára – batinn er þó eingöngu í Mývatnssveit en í Laxárdalnum valda veiðitölur mönnum nokkrum áhyggjum.

Fiskar á land og tilboð í Skjálfandafljót eftir helgi
Veiðimenn sem voru á efri Austurbakka Skjálfandafljóts síðdegis á fimmtudag fengu þrjá laxa. Á Austurbakka neðri veiddust tveir fiskar á sama tíma að því er segir á agn.is.

Haustveiðin farin af stað í Elliðaánum
Tveir laxar komu á land í morgun í Elliðaánum. Var það fyrsta vaktin af tveggja vikna tímabili sem bætt var við áður ákveðna veiðidaga í sumar.

„Stórfiskar kafa víða um vatnamótin"
Líf er að færast í sjóbirtingsveiðina í Tungufljóti. Á tveimur tímum í gærkvöldi veiddust þrír birtingar sem voru allt að tíu punda þungir.


Netaveiðin í Hvítá/Ölfusá: Lögboðinni nýtingaráætlun aldrei skilað
Veiðiréttarhafar í Hvítá og Ölfusá hafa stundað netaveiðar sínar síðan 2006 án þess að skila inn lögboðinni nýtingaráætlun um veiðifyrirkomulag.

Veiðivötn: 19. 647 silungar veiddust á stöng
Stangveiði í Veiðivötnum lauk 22. ágúst og netaveiði hófst 24. ágúst. Á stangveiðitímanum veiddust 19.647 fiskar sem er nokkru minni veiði en sumarið 2011, en þá fengust 21.240 fiskar.


Ytri-Rangá yfir 3.000 laxa; tvær vaktir með 161 lax
Veiði með blönduðu agni hófst í gær og skiluðu tvær fyrstu vaktirnar 161 laxi, hvorki meira né minna.

Hvítá/Ölfusá: 206.707 laxar í net frá 1974
Árni gerir það að umtalsefni hver sanngirnin sé í því að 20 netabændur séu svo stórtækir í veiðum á vatnasvæðinu sem raun ber vitni þar sem laxinn sé augljóslega á leiðinni í árnar þar sem hann er upprunninn þegar hann gengur í netin neðar í vatnakerfinu.

Veiðin í Hofsá er betri en í fyrra
Hofsá í Vopnafirði er eina áin á topp tíu lista Landssambands veiðifélaga sem er með betri veiði en í fyrra. Rangárnar tróna á toppi listans.