
Drykkir

Carlsberg í hart við Pútín og Rússland
Danski bruggrisinn Carlsberg hefur stigið fyrstu skrefin í átt að því að sækja bætur frá Rússlandi eftir að Pútín Rússlandsforseti skrifaði undir tilskipun sem kom dótturfyrirtæki Carlsberg undir Rússa.

Heitustu trendin í haust
Septembermánuður er genginn í garð, litir náttúrunnar fara að taka breytingum, yfirhafnirnar eru orðnar þykkari og umferðin er farin að þyngjast. Það þýðir bara eitt, haustið er komið með sinni einstöku litadýrð, rútínu og tískubylgjum. Lífið á Vísi ræddi við fjölbreyttan hóp álitsgjafa um hvað er heitast fyrir haustið í margvíslegum flokkum.

Er kaffið á kaffistofunni ykkar sjálfbært?
Sjálfbærni er margnotað hugtak á okkar tímum og mikilvægt að inntak þess varðveitist. Í raun er lykilhlutverk fyrirtækja, óháð stærð og umfangi rekstrar, að stefna að sjálfbærni í bæði rekstri og framleiðslu svo starfsemin hafi sem minnst áhrif á umhverfið.

Hætti fljótt við umdeilt þjónustugjald
Eigandi veitingahússins Legendary Nordic Restaurant á Hellu hefur ákveðið að hætta að rukka fimmtán prósent þjónustugjald. Hann hafði sagt gjaldið ætlað að mæta þeim mikla kostnaði sem fylgi veitingahúsarekstri á Íslandi.

Einstök og Thule fá ekki ný nöfn í bráð
Ekki er á döfinni hjá Coca-Cola Europacific Partners á Íslandi að enska nöfn fleiri vörumerkja á vegum fyrirtækisins í bráð. Vörutegundir líkt og bjórtegundirnar Einstök og Thule munu áfram verða með sín nöfn.

Toppur verður að Bonaqua
Vörumerkið Toppur mun brátt heyra sögunni til. Nafnabreyting verður á vörunni í sumar og mun drykkurinn framvegis kallast Bonaqua. Engin breyting verður þó á bragði eða þeim bragðtegundum sem í boði eru.

Áhyggjur vaxa í takt við aukið koffínmagn orkudrykkja
Áhyggjur eru uppi af mikilli koffínneyslu ungmenna en svokallaðir „orkudrykkir“ sem hafa ratað á markað á síðustu árum innihalda jafn mikið koffín eða meira koffín og tveir kaffibollar eða sex dósir af hefðbundnum gosdrykk.

Heitustu sumartrendin í ár
Sumarið er komið, svona á það að vera og sólin leikur stundum um mann, misjafnlega beran. Hér á Íslandi er sumartíðin gengin í garð óháð fjölbreyttu veðurfari en á sumrin þróast hin ýmsu skemmtilegu trend á ólíkum sviðum. Blaðamaður fékk til sín fjölbreyttan hóp álitsgjafa til að reyna að komast að því hver heitustu trend sumarsins verða.

Velkomin í ævintýraferð hjá Sjávargrillinu
Einn af lífseigari og vinsælli veitingastöðum borgarinnar er Sjávargrillið við Skólavörðustíg en staðurinn fagnaði nýlega tólf ára afmæli.

Besti barþjónninn drekkur ekki kokteila
Leó Snæfeld Pálsson barþjónn á Sumac var valinn Besti barþjónninn í Bartenders Choice Awards sem fram fór í Kaupmannahöfn á dögunum. Drykkurinn hans, Funiks, var einnig valinn besti „signature“ drykkurinn og kokteilaseðillinn á Sumac eins og hann leggur sig var valinn Besti kokteilaseðillinn. Þá var Sumac valinn Besti veitingastaðurinn að mati dómnefndar. Sumac er veitingastaður vikunnar á Vísi.

Færeyingar á sama Svalalausa báti og Íslendingar
Það eru ekki bara Íslendingar sem munu ekki geta lengur svalað þorsta sínum með ísköldum Svala. Færeyingar eru í sömu stöðu. Í frétt Dimmalættings um endalok Svalans er drykkurinn kallaður „hinn víðfrægi íslenski svaladrykkur Svali“.

Hætta framleiðslu á Svala
Framleiðsla og sala á Svala mun hætta um áramótin. Svali hefur verið einn vinsælasti drykkur landsins í yfir fjörutíu ár.

Garden Party: Mezzoforte, búbblur og Bríet
Þann 13. ágúst fer fjölskylduhátíðin Garden partý fram í Laugardalnum en hátíðin er hugsuð sem lítil bæjarhátíð fyrir Reykjavík. Tónlistarmennirnir Bríet, Frikki Dór, Birnir, Reykjavíkurdætur, Hipsumhaps og Mezzoforte munu koma fram og skemmta lýðnum.

Sykurpúðakók með vatnsmelónu- og jarðarberjabragði
Coca-Cola kynnir til leiks nýja útgáfu af hinum sígilda drykk, nú með vatnsmelónu- og jarðarberjabragði. Þessi nýja bragðtegund er unnin í samvinnu við raftónlistarmanninn Marshmello og kemur út í takmörkuðu upplagi.

Vertuo fleytir kaffimenningu Íslendinga inn í aðra vídd
„Við Íslendingar höfum alltaf drukkið mikið af uppáhelltu kaffi en þessi vél gjörbreytir leiknum. Það er svo gaman að geta boðið upp á gott kaffi þegar það koma gestir eða njóta um helgar með fjölskyldunni og með Vertuo verður kaffiupplifunin einstök,“ segir Erla Björk Gunnarsdóttir verslunarstjóri Nespresso á Íslandi en splunkuný vörulína og kaffivél er komin á markað frá Nespresso sem getur hellt upp á heila kaffikönnu.

Pöruðu danshreyfingar við drykki
Eldblóm er hugarfóstur listakonunnar Sigríðar Soffíu Níelsdóttur sem kynnti nýjar vörur og danshreyfingar á HönnunarMars. Vörurnar voru líkjörinn Eldblóma Elexír og nýr ilmur sem var unnin með Lilju Birgisdóttur og gallerýinu Listval.

Breytingar á framkvæmdastjórn Ölgerðarinnar
Þrír einstaklingar koma nýir inn í framkvæmdastjórn Ölgerðarinnar samkvæmt nýju skipuriti. María Jóna Samúelsdóttir hefur tekið við framkvæmdastjórastöðu Danól, Guðmundur Pétur Ólafsson við stöðu framkvæmdastjóra sölusviðs óáfengra drykkja og Óli Rúnar Jónsson leiðir markaðssvið.

Óáfengur kokteill sem getur líka verið eftirréttur
Gunnar Ingi Svansson framkvæmdastjóri CinCin óáfengu drykkjanna deilir með lesendum ótrúlega ferskum og hressandi eftirrétt. Með því að breyta hlutföllunum er líka hægt að gera réttinn að óáfengum kokteil fyrir áramótin.

Skortur hrellir drykkjarvöruframleiðendur
Alþjóðlegur skortur á áldósum hefur leitt til þess að erfiðara hefur reynst að nálgast ákveðnar drykkjarvörur í verslunum.

Víkingur í úrslit alþjóðlegrar barþjónakeppni
Víkingur Thorsteinsson barþjónn og einn af eigendum Jungle Cocktail Bar er kominn í átta manna úrslit í Bacardi Legacy, einni stærstu barþjónakeppni heims. Drykkurinn hans kallast Pangea.

YLFA vinnur alþjóðleg gullverðlaun í flokki áfengislausra bjóra
Borg Brugghús státar nú af alþjóðlegum verðlaunum fyrir áfengislausa bjórinn Ylfu.

Getur tekið heilt ár að fá „hillupláss“ í Vínbúðinni
Ríkisvaldið þarf að rífa sig upp úr skotgröfum og laga regluverkið til að liðka fyrir innlendum bjórframleiðendum og brugghúsum. Þetta segir Ásmundur Sveinsson, eigandi KORS-heildsölu og Session Craft bar. Hann segir það geta tekið bjórframleiðendur allt upp í eitt ár að koma vörum sínum að hjá Vínbúðinni.

Ný og endurbætt vörulína frá innocent
innocent hefur sett á markað endurbætta línu af smoothies. Þeir eru litríkari og næringarríkari og eru auk þess í umhverfisvænni umbúðum.

Blómabar úti á Granda
Íris Ann Sigurðardóttir á og rekur veitingarstaðinn The Coocoo's Nest úti á Granda en á dögunum opnaði hún nýjan stað við hliðiná sem gengur undir nafninu Luna Flórens og er það bar í blóma. Einskonar blómabar.

Aðventumolar Árna í Árdal: Jólakokteillinn Tommi og Jenni
Árni Ólafur úr Hinu blómlega búi mun koma öllum í rétta hátíðarskapið og reiða fram einn rétt á dag fram að jólum.

„Gerum bara geggjaða kokteila"
Citrus - Cocktail Co. er sérsniðin kokteilþjónusta og ferðabar sem barþjónarnir Jónas Heiðarr og Jónmundur Þorsteinsson standa á bak við. Þeir mæta á hverskonar viðburði, vippa upp barnum og hrista fram dýrindis drykki.

Bjórkokteill fyrir þroskaðan smekk
Þótt ekki sé mikið talað um bjórkokteila, þá eru þeir víst fjölmargir og sumir vinsælir. Danir eru þekktastir fyrir að drekka bjór með snafs en flest drekkum við hann eins og hann kemur fyrir.

Álitsgjafar Vísis velja: Besta kaffið í bænum
Kaffi er ekki það sama og kaffi. Sjáðu hvaða kaffihús lenti í 1. sæti.

Óáfengur Watermelon Firecracker: Ávextir og ber það svalasta nú
Sumarið nær hámarki sínu núna um helgina og því tilvalið að gera sér sumarlegan kokteil.

Íslensku berin bláu sem bæta allt: Bláberjaostakaka Jóa Fel
Hlíðar Íslands, lautir og móar skarta nú víða berjum. Þau voru lengi einu ávextirnir sem Íslendingar höfðu aðgang að. Þessar gjafir náttúrunnar nýtast okkur vel enn í dag, bæta heilsuna og gæla við bragðlaukana.