
Eldgos og jarðhræringar

Rolluhótel sárabót fyrir að missa gistiheimilið
Útvegsbóndinn Hermann Ólafsson í Grindavík er kominn með rolluhótel skammt vestan bæjarins þar sem hann hýsir stóran hluta af sauðfé Grindvíkinga. Hann segir þetta sárabót vegna gistiheimilis sem hann neyddist til að loka vegna hamfaranna.

Eldgosið í beinni útsendingu
Hér fyrir neðan má sjá vefmyndavélar Vísis sem eru staðsettar á svæðinu í kringum Sundhnúksgígaröðina. Gos hófst á svæðinu þann 29. maí síðastliðinn.

Taka aftur við eignum í Grindavík eftir helgi
Fasteignafélagið Þórkatla hefur ákveðið, í samráði við Almannavarnir og Lögreglustjórann á Suðurnesjum, að halda áfram móttöku fasteigna í Grindavík strax á mánudag. Ákvörðunin er þó með þeim fyrirvara að aðstæður í bænum og við eldstöðvarnar breytist ekki til hins verra.

Þorvaldur tekur undir goslokaspá Haraldar
Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir að ef fram heldur sem horfir virðist spámennska Haraldar Sigurðssonar eldfjallafræðings og félaga vera á réttu róli. Þeir spá goslokum í Sundhnúkagígaröðinni í júlí og þá gæti verið komið 800 ára hlé á umbrotum að sögn Þorvaldar.

Viðhald eigna og verðmætabjörgun í Grindavík í dag
Mikið hefur dregið úr virkni eldgossins. Hraunrennsli er aðallega á svæðinu í kringum Hagafell. GPS mælingar sýndu að land í Svartsengi seig um fimmtán sentimetra þegar kvika hljóp þaðan í fyrradag áður en eldgosið hófst. Skjálftavirkni er lítil á svæðinu og gosórói helst nokkuð stöðugur.

Engar breytingar í nótt
Engar verulegar breytingar urðu á eldgosinu á Reykjanesi í nótt. Skjálftavirkni á svæðinu er takmörkuð og gosórói hefur haldist nokkuð stöðugur.

Myndasyrpa: Vegurinn endar í hrauninu
Hraun úr eldgosinu við Sundhnúk flæddi yfir vegi á Reykjanesskaga í gær. Nýjar myndir frá Vilhelm Gunnarssyni ljósmyndara Vísis sýna hvernig Grindavíkurvegur endar í hrauninu.

„Allt of snemmt að afskrifa Grindavík“
Formaður bæjarráðs í Grindavík segir stöðuna vegna eldgossins sem hófst í gær mun betri en í fyrstu leit út fyrir. Ljóst sé að varnargarðar hafi bjargað byggðinni oftar en einu sinni.

Eldsumbrotum á Reykjanesskaga ljúki líklega í sumar
Prófessor í eldfjallafræði telur líklegt að eldsumbrotum á Reykjanesskaga ljúki í sumar. Sennilegast muni gosið sem nú stendur yfir lognast út af á næstu dögum, en þó sé mögulegt að það malli áfram jafnvel í einhverjar vikur líkt og síðasta gos.

Segir enga hættu á ferðum og yfirvöld komin í lið með íbúum
Starfsmenn Einhamar Seafood unnu að því í morgun að koma óunnum fiski frá Grindavík en Stefán Kristjánsson, eigandi og forstjóri fyrirtækisins, segir yfirvöld mun samvinnufúsari núna varðandi aðgang að bænum en í fyrri gosum.

Fylgjast sérstaklega með hrauntjörnum sem gætu brostið fram
Hraun rennur áfram úr eldgosinu sem hófst í gær en hægt. Almannavarnir kanna í dag með drónaflugi hvar mögulega hrauntjarnir gætu verið að myndast og hvert þær gætu runnið. Vel er fylgst með öllum helstu innviðum en skyggni er erfitt vegna veðurs. Lokað er á svæðinu og inn í Grindavík. Vilji fólk sjá gosið er mælt með vefmyndavélum.

Virknin mjög svipuð í alla nótt
Virknin í eldgosinu á Reykjanesi sem hófst í gær hefur verið mjög svipuð í alla nótt eftir að töluvert dró úr ákafanum síðdegis í gær.

Vaktin: Virknin á svipuðum nótum í alla nótt
Virkni í eldgosinu sem hófst nærri Sundhnúki norðan við Grindavík upp úr hádegi í gær hefur verið á svipuðum nótum í alla nótt. Hún er enn mest á nokkrum gosopum en erfitt að fullyrða hvað þau eru mörg vegna lélegs skyggnis.

„Varnargarðarnir stóðu sig mjög vel“
Ármann Höskuldsson eldfjallasérfræðingur segir varnargarðana hafa haldið vel þegar hraun úr eldgosinu við Sundhnúk flæddi að í dag. Sýni af hrauninu séu á leið úr landi.

Hraun flæðir yfir Nesveg
Hraunið frá eldgosinu sem hófst við Sundhnúk á fyrsta tímanum í dag flæðir yfir Nesveg og Grindavíkurveg. Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari myndaði hraunflæðið í kvöld.

Eina leiðin inn í Grindavík um Suðurstrandarveg og innviðir í hættu
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum líst illa á eldgosið nærri Sundhnúki. Hraunið, sem flætt hefur yfir bæði Grindavíkurveg og Nesveg liggi ofan í görðunum og innviðir séu bersýnilega í hættu.

Stærri atburður en við höfum séð áður
Kristín Jónsdóttir eldfjalla- og jarðskjálftafræðingur segir að sérfræðingar hafi beðið eftir eldgosinu sem hófst í morgun vegna stöðugrar kvikusöfnunnar og landris undir Svartsengi.

„Það mesta sem við höfum séð í þessum gosum hingað til“
Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, segir hraunflæðið vera um 1.500 til 2.000 rúmmetrar á sekúndu, það mesta í eldgosunum á Reykjanesskaga hingað til. Á einum og hálfum tíma sé hraunið orðið um 5 til 5,5 ferkílómetrar.

Mikilvægt að Grindvíkingar láti vita af sér
Almannavarnir vilja að Grindvíkingar sem eru búsettir í Grindavík eða voru í bænum þegar rýming átti sér stað láti vita hvar þau eru.

Átta hundruð manns í Bláa lóninu
Á milli sjö og átta hundruð manns voru í Bláa lóninu þegar það var rýmt upp úr klukkan ellefu. Viðvörunartónar hljómuðu í lóninu, Grindavík og við HS Orku.

Allar gosmyndavélarnar á einum stað
Hér að neðan má sjá vefmyndavélar frá svæðinu kringum Sundhnúksgígaröðina. Gos hófst í henni klukkan 12:46 í dag.

Vaktin: Eldgos er hafið
Eldgos hófst nærri Sundhnúki norðan við Grindavík klukkan 12:46 í dag.

„Þetta er bara strangheiðarleg jarðskjálftahrina“
Skjálftavirkni á Hengilssvæðinu er ekkert annað en strangheiðarleg jarðskjálftahrina, sem stafar sennilega af niðurdælingu frá Hellisheiðarvirkjum, að sögn sérfræðings. Fólk fylgist vel með vef Veðurstofunnar og því hafa vaknað spurningar um virknina.

Spá goslokum á Sundhnúksgígaröð í lok júlí
Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur og Grímur Björnsson jarðeðlisfræðingur telja líklegt að öll virkni undir Sundhnúksgígaröðinni muni stöðvast í lok júlí á þessu ári. Þetta kemur fram á bloggi Haraldar en þar fer hann yfir þróun kvikugangsins frá því í nóvember 2023 þegar fyrsta eldgosið hófst.

Fyrirvari á eldgosi gæti orðið mjög stuttur
Það hafa mælst um 140 skjálftar í kringum kvikuganginn síðustu tvo sólahringa, allir undir 2,0 að stærð. Skjálftarnir voru flestir á svæðunum milli Stóra-Skógfells og Hagafells annars vegar og sunnan Þorbjarnar hins vegar.

Kostnaður vegna uppkaupa fjórtán milljörðum meiri en áætlað var
Útlit er fyrir að heildarfjárfesting Þórkötlu í húsnæði í Grindavík verði allt að 75 milljarðar í heildina eða um 14 milljörðum króna meiri en áætlað var við setningu laganna um úrræðið. Aukinn kostnaður skýrist að mestu af hækkun brunabótamats á eignum í bænum. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Fasteignafélaginu Þórkötlu.

Styrkja kaup á sérhönnuðu listaverki Ólafs Elíassonar
Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra og Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri undirrituðu í dag samning á milli ráðuneytisins og Vestmanneyjarbæjar sem tryggir verkefnastyrk vegna aðkomu að listaverki eftir Ólaf Elíasson. Styrkurinn hljóðar upp á 50 milljónir.

Rýna í aðgerðir almannavarna síðustu sex mánuði á Reykjanesi
Í dag fer fram rýnifundur ríkislögreglustjóra á aðgerðum almannavarnadeildar og annarra viðbragðsaðila á aðgerðum síðustu sex mánaða á Reykjanesi. Dómsmálaráðherra ávarpaði fundinn í morgun. Um 70 manns sitja fundinn í heild sinni. Fundarstjóri er Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn.

Hálfri milljón yrði gert að rýma kæmi til goss
Skólum hefur verið lokað og fjöldi fólks svaf í bílum sínum eða á götunni í kjölfar öflugrar skjálftahrinu nærri Campi Flegrei-eldfjallinu í nágrenni Napólíborgar.

„Ber þess merki að eitthvað sé mjög nálægt því að bresta“
Prófessor í jarðeðlisfræði segir aukinn þrýsting í borholum HS veitna á Svartsengi í morgun bera þess merki um að jarðskorpan sé mjög nálægt því að bresta. Hann segir þá sem dvelja í Grindavík ættu að vera undir það búnir að yfirgefa bæinn á fimmtán mínútum. Grindavík sé ekki staður fyrir partýstand né börn.