ATP í Keflavík

Slakur endir á góðri drullu
Strákarnir í Botnleðju voru í góðum gír á All Tomorrow's Parties á föstudeginum og spiluðu alla sína helstu smelli.

Fullur og frábær Mark
Goðsögnin Mark E. Smith hafði fengið sér aðeins neðan í því áður en hann steig á svið með síðpönksveitinni The Fall á All Tomorrow's Parties.

Nick Cave hrundi fram af sviðinu
Nick Cave datt af sviðinu þegar hann kom fram á ATP tónlistarhátíðinni í gær, en hann fór á slysadeild vegna atviksins.

Feiknargóð stemning á ATP
Stemningin á tónlistarhátíðinni All Tomorrows Parties þótti mjög góð, en Nick Cave tróð meðal annars upp fyrir áhorfendur.

Lífið snýst eiginlega allt um tónlist
Tónlistarhátíðin All Tomorrow´'s Parties hófst í Keflavík í gærkvöldi og heldur áfram í kvöld. Tómas Young, skipuleggjandi hátíðarinnar, er algjörlega í essinu sínu. Hann hefur aldrei langað til að starfa við annað en tónlist.

Tilda Swinton dansaði við Apparat Organ Quartet
Rúmlega tvö þúsund manns eru samankomin í Keflavík þessa stundina, en þar verður tónlistarhátíðin All Tomorrows Parties haldin um helgina.

Botnleðja bætist við dagskrá ATP
Hljómsveitin Botnleðja hefur bæst við þann hóp listamanna sem kemur fram á hátíðinni All Tomorrow's Parties Iceland á Ásbrú nú um helgina.

Tilda Swinton valdi fjórar myndir fyrir All Tomorrow's Parties
Breska leikkonan Tilda Swinton óskaði eftir því að fá að velja kvikmyndir til sýningar á tónlistarhátíðinni All Tomorrow's Parties.

Tilda Swinton mætir á All Tomorrow's Parties
Leikkonan Tilda Swinton óskaði eftir því að fá að taka þátt í tónlistarhátíðinni All Tomorrow's Parties sem fram fer í Keflavík. Hún stýrir kvikmyndasýningu í tengslum við hátíðina.

Erlent fjölmiðlafólk sýnir ATP áhuga
Fjöldi erlendra blaðamanna mun sækja ATP í júní.

Eftirminnilegustu tónleikarnir með Múm
"Ég spilaði á einum eftirminnilegustu tónleikum ferils míns með Múm á Ítalíu. Þau eru alveg yndisleg. Nú er ég orðinn virkilega spenntur fyrir hátíðinni,“ segir tónlistarmaðurinn Warren Ellis þegar blaðamaður Fréttablaðsins hefur lokið við að telja upp nöfn þeirra íslensku hljómsveita sem koma fram á tónlistarhátíðinni All Tomorrow's Parties í júní. Sjálfur stígur Ellis á svið á laugardagskvöldinu ásamt Nick Cave og The Bad Seeds. Ellis er mikill aðdáandi All Tomorrow's Parties og segir hátíðina einstaka fyrir þær sakir að þar gefst gestum og tónlistarfólki færi á að eiga í nánum samskiptum.

Gamla herstöðin er fullkominn staður
Barry Hogan er stofnandi ensku tónlistarhátíðarinnar All Tomorrow"s Parties sem verður haldin í fyrsta sinn á Íslandi í lok júní.

Gestir fylla tvær íbúðarblokkir
"Tónlistarfólkið verður um hundrað talsins og það gistir á gamla herhótelinu sem heitir nú Bed and Breakfast Keflavík. Svo eru um tvö hundruð gistipláss í boði fyrir gesti. "Íbúum“ svæðisins fjölgar því um þrjú hundruð manns þessa helgi,“ segir Tómas Young, sem skipuleggur tónlistarhátíðina All Tomorrow"s Parties. Hátíðin fer fram á Ásbrú í Keflavík helgina 28. til 29. júní.

Selja miða án staðfestra sveita
Breska tónlistarhátíðin All Tomorrow"s Parties verður haldin á Íslandi helgina 28. til 29. júní á gömlu herstöðinni Ásbrú. Fréttablaðið greindi frá því á dögunum að samningar væru við það að nást um að halda hátíðina.

Viðræður um aðra stóra hátíð í Keflavík
Samningar um að halda tónlistarhátíðina All Tomorrow’s Parties á varnarliðs-svæðinu í Reykjanesbæ hafa verið í bígerð síðan á árinu 2011.

Íslandsvinir stýra hátíð
Meðlimir hljómsveitarinnar Belle & Sebastian munu stjórna tónlistarhátíðinni All Tomorrow‘s Parties í desember næstkomandi. Hátíðin stendur frá 10.-12. desember í Minehead á sunnanverðu Englandi. Meðlimir Belle & Sebastian munu velja um 40 hljómsveitir sem koma fram á hátíðinni.

Danskur lífeyrissjóður kaupir hlut í Össuri
Hlutafjárútboði Össurar þar sem safnað var 60 milljónum dala lauk á nokkrum klukkustundum í gær.