Fréttir
75 76 77 78 79 80 81 82 83 … 334 ›
Forseti Íslands leggur áherslu á friðsæl samfélög á Norðurlöndum Forseti Íslands leggur áherslu á að Norðurlöndin séu friðsæl samfélög, sem láta sig varða frið á heimsvísu því stærri þjóðir eiga í vaxandi mæli erfitt með að láta til sín taka þegar friður er annars vegar. Innlent 14.9.2024 15:06
Herða eftirlit og banna síma vegna gegndarlausra skemmdarverka Svo mikil skemmdarverk hafa verið unnin síðustu daga á húsnæði grunnskólans á Kirkjubæjarklaustri að stjórnendur skólans hafa þurft að læsa salernum og skylda alla nemendur út í frímínútum. Þá er algjört símabann í skólanum. Unnið er að því að koma upp myndavélum innan og utan skólans. Búið er að tilkynna skemmdarverkin til lögreglu og til félagsmálayfirvalda í sveitarfélaginu. Innlent 14.9.2024 15:05
Ráðherra og nýr nefndarformaður ósammála: „Almenningur á betra skilið“ Fjármálaráðherra og verðandi formaður fjárlaganefndar eru ósammála um hvort endurnýja skuli almenna heimild til að nýta séreignasparnað inn á húsnæðislán. Þingmaður Pírata segir stjórnarmeirihlutann með þessu senda misvísandi skilaboð til almennings sem lofi ekki góðu fyrir komandi þingvetur. Almenningur eigi betra skilið. Innlent 14.9.2024 14:04
Séreignarsparnaður, netöryggi og leiðsögn um Alþingi Fjármálaráðherra og verðandi formaður fjárlaganefndar eru ósammála um hvort endurnýja skuli almenna heimild til að nýta séreignasparnað inn á húsnæðislán. Þingmaður Pírata segir stjórnarmeirihlutann með þessu senda misvísandi skilaboð til almennings sem boði ekki á gott. Innlent 14.9.2024 11:46
Mikil aðsókn í Alþingishúsið Færri komast að en vilja í leiðsögn um Alþingishúsið í dag, en nýtt hús Alþingis verður opið öllum síðdegis. Skrifstofustjórinn segir leiðsögnina svo vel heppnaða að stefnt sé að því að endurtaka leikinn síðar. Innlent 14.9.2024 11:44
Veikur maður fluttur með þyrlu á Neskaupstað Karlmaður var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Neskaupstað í nótt með verk fyrir brjósti. Björgunarsveitir voru kallaðar út rétt fyrir miðnætti í gær vegna mannsins sem treysti sér ekki til að ganga lengr. Hann var staddur í Sandvík. Innlent 14.9.2024 11:05
Fundu um 40 kíló af kókaíni í bananasendingu Um 40 kíló af kókaíni fundust í bananasendingum til franskrar verslunarkeðju í vikunni. Efnin fundust í þremur ólíkum verslunum. Lögreglan rannsakar nú hver viðtakandinn var. Erlent 14.9.2024 10:26
Um 400 fyrirtæki séu hætt eða að hætta að nota Rapyd vegna sniðgöngu Hundruð fyrirtækja hafa síðustu mánuði hætt að nota greiðslumiðlun Rapyd vegna þrýstings frá Sniðgönguhreyfingunni fyrir Palestínu. Þá hefur innflutningur á ávöxtum og grænmeti frá Ísrael minnkað verulega á milli ára. Sniðgangan 2024 verður gengin á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri í dag. Gangan er farin til að vekja athygli á sniðgöngu fyrir Palestínu. Innlent 14.9.2024 10:01
Segir það alrangt að Elvar skuldi ekki nema tvær milljónir í laun Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir það ekki rétt að Elvar Ingimarsson, eigandi veitingastaðarins Ítalíu, skuldi um tvær milljónir í laun. Á þessari stundu séu 3,8 milljónir hjá lögmanni í innheimtu fyrir hönd fólks sem hafi leitað til Eflingar vegna launaþjófnaðar. Innlent 14.9.2024 08:52
Rafmagnslaust í Laugardal í nótt Rafmagnslaust var í Laugardal og nágrenni í nótt á milli klukkan 02:41 og 04:59 vegna bilunar. Í tilkynningu frá Veitum kemur fram að rafmagnsleysið hafi haft áhrif á póstnúmer 104, 105 og 108. Innlent 14.9.2024 08:52
Gul viðvörun á Suður- og Suðausturlandi til hádegis Gul viðvörun er í gildi á Suðurlandi og Suðausturlandi til hádegis í dag. Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að hvasst verði fram yfir hádegi og rigning í flestum landshlutum en þurrt að kalla vestan- og norðvestantil. Seinnipart á að draga úr vindi og stytta upp. Hitastig verður líklega á bilinu fjögur til 12 stig og þá verður hlýjast á Suðausturlandi. Veður 14.9.2024 07:44
Kviknaði í út frá kerti á svölum Fjórir gistu í fangageymslum Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Alls voru 82 mál skráð í dagbók lögreglunnar frá klukkan 17 til fimm í nótt. Innlent 14.9.2024 07:15
Búa sig undir aftakaúrkomu og flóð í Mið-Evrópu Slökkviliðsmenn í Prag unnu að því að koma upp flóðvörnum í kringum gamla bæinn þar vegna aftakaúrkomu sem er spáð fram á helgina. Svipuðu veðri er spáð víða í Mið-Evrópu næstu daga. Erlent 13.9.2024 23:49
Hét því að vísa haítískum innflytjendum til Venesúela Donald Trump, forsetaframbjóðandi repúblikana, hét því að vísa þúsundum löglegra haítískra innflytjenda frá einni tiltekinni borg í Ohio úr landi í dag. Hann virtist ruglaður í ríminu þegar hann sagðist ætla að senda fólki „aftur til Venesúela“. Erlent 13.9.2024 22:37
Þingmaður Miðflokksins rak augun í undarlega grein Þingmanni Miðflokksins finnst undarlegt að gert sé ráð fyrir aukinni aðkomu stjórnvalda að rekstri borgarlínu, umfram það sem gert væri ráð fyrir í nýundirrituðu samkomu lagi ríkis og sveitarfélaga. Samgöngumálin voru rædd í tengslum við fjárlög næsta árs á Alþingi í dag. Innlent 13.9.2024 21:28
Mögulega rangar ADHD-greiningar kalli á aukið opinbert eftirlit Mikilvægt er að komast til botns í því hvort ADHD sé ofgreint á Íslandi segir heilbrigðisráðherra. Varaformaður ADHD-samtakanna segir varhugavert að draga ályktanir um rangar greiningar en ef rétt reynist þurfi aukið eftirlit. Innlent 13.9.2024 20:31
Saka rússneskan ríkisfjölmiðil um að vera arm leyniþjónustunnar Rússneski ríkisfjölmiðillinn RT er framlenging á rússnesku leyniþjónustunni að sögn bandarískra, breskra og kandarískra stjórnvalda. Þau kynntu refsiaðgerðir sem eiga að draga tennurnar úr áróðursherferðum stöðvarinnar víða um heim. Erlent 13.9.2024 20:20
Staða sauðfjárræktarinnar er björt segir fjallkóngur „Lömbin koma væn af fjalli og eru harðholda “segir fjallkóngur Hrunamanna en réttað var í Hrunaréttum Í Hrunamannahreppi í dag og í Skaftholtsréttum í Skeiða og Gnúpverjahreppi. Innlent 13.9.2024 20:04
„Ég stend við þessa ákvörðun“ Dómsmálaráðherra stendur keik við ákvörðun sína um að veita Helga Magnúsi Gunnarssyni vararíkissaksóknara ekki lausn frá störfum, þrátt fyrir gagnrýni. Hún segir eðlilegt að fram komi ólík sjónarmið enda eigi málið sér fá sem engin fordæmi. Ríkissaksóknari telur umræðu um málið hafa verið óvægna gagnvart embættinu. Innlent 13.9.2024 19:26
Aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna á fundum í Reykjavík Utanríkisráðherra og aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna funduðu í dag í Reykjavík um tvíhliða samskipti þjóðanna, stöðu átakanna í Úkraínu og á Gaza. Bandaríski ráðherrann segir stöðuna á Indo-Kyrrhafssvæðinu snerta Evrópubúa þar sem Kína og Norður Kórea styðji stríðsrekstur Rússa í Úkraínu með beinum hætti. Innlent 13.9.2024 19:22
Ráðherra stendur fastur á sínu og möguleg ofgreining á ADHD Dómsmálaráðherra stendur keikur við ákvörðun sína um að veita Helga Magnúsi Gunnarssyni vararíkissaksóknara ekki lausn frá störfum, þrátt fyrir gagnrýni. Farið verður yfir gagnrýnina og þróun málsins í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 13.9.2024 18:12
„Við erum hundfúl yfir þessu“ Bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar var í síðustu viku falið að krefja Vegagerðina svara um stöðu framkvæmda á Dynjandiheiði, en aðeins sjö kílómetra vantar upp á að bundið slitlag verði á heiðinni allri. Svarið sem barst var einfalt; fjármagn skortir og ekkert verður aðhafst í bili. Innlent 13.9.2024 17:01
Hafa áhyggjur af samsæringi sem fylgir Trump Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðandi, hefur á undanförnum dögum ítrekað sést í fylgd með konu sem heitir Laura Loomer. Sú er fjar-hægri aðgerðasinni, yfirlýstur múslimahatari og samsæringur, svo eitthvað sé nefnt, og hefur vera hennar með Trump vakið áhyggjur hjá einhverjum bandamönnum hans. Erlent 13.9.2024 16:14
Rúta í ljósum logum á Ísafirði Eldur logar í rútu í Tungudal í Ísafirði. Slökkvilið á Ísafirði sinnir verkefninu en getur engar frekari upplýsingar veitt að svo stöddu. Innlent 13.9.2024 15:15
Hallað hafi á embættið í moldviðri Helga Magnúsar Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari segir fjölmiðlaumfjöllun um mál Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara hafa verið mjög á einn veg og lítið hafa farið fyrir gagnrýnum spurningum til Helga Magnúsar. Þannig hafi hallað verulega á embætti ríkissaksóknara og ákæruvaldið í moldviðri, sem Helga Magnúsi hafi tekist að magna. Innlent 13.9.2024 14:33
Elvar á Ítalíu viðurkennir erfiðleika við launagreiðslur Elvar Ingimarsson, eigandi veitingastaðarins Ítalíu, viðurkennir að félagið hafi átt í erfiðleikum með að greiða út laun. Hann segir að sem stendur skuldi veitingastaðurinn tvær milljónir króna í ógreidd laun, sem samsvari um tveimur prósentum af launum sem hafa verið til greiðslu á þessu ári. Innlent 13.9.2024 14:11
Grænt ljós á Flensborgarhöfn Flensborgarhöfn stígur inn í framtíðina með nýju deiliskipulagi sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í gær og verður nú sett í auglýsingu. Innlent 13.9.2024 14:05
Lagði á flótta á Vegmúla Ökumaður lagði á flótta frá lögreglu eftir að hún hafði afskipti af ökutæki hans við Vegmúla í Reykjavík í dag, örskammt frá vegamótunum við Suðurlandsbraut. Innlent 13.9.2024 14:05
Sýkna Sólveigar stendur Hæstiréttur hefur hafnað beiðni Áslaugar Björnsdóttur um áfrýjunarleyfi í máli hennar á hendur Sólveigu Guðrúnu Pétursdóttur, fyrrverandi þingmanni og dómsmálaráðherra. Áslaug krafði Sólveigu um greiðslu 28 milljóna króna í málinu en í tengdum málum hefur Sólveig verið krafin um milljarða króna. Innlent 13.9.2024 13:52
Bjóða almenningi í heimsókn Almenningi verður biðið að skoða Alþingishúsið og Smiðju, nýja skrifstofubyggingu Alþingis á morgun, laugardag. Viðburðurinn er liður í dagskrá áttatíu ára afmælis lýðveldisins. Innlent 13.9.2024 13:33